Morgunblaðið - 23.06.1988, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.06.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 29 Breytingar á vísindaáætluninni kynntar: 78 hvalir veiddir í stað 100 og sleppum við staðfestíngarkæru Komið til móts við óskir Vísindanefndarinnar o g Bandaríkjamanna HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra kynnti í gær breyt- ingar á hvalarannsóknum íslend- inga á þessu ári í kjölfar viðræðna við fulltrúa Bandaríkjamanna í Reykjavík um síðustu helgi. Með breytingunum er komið til móts við tillögur vísindanefndar Al- þjóða hvalveiðiráðsins og óskir Bandaríkjamanna, en á móti munu bandarísk yfirvöld ekki ieggja fram svokallaða staðfestingar- kæru, þar sem þau telja að vísinda- veiðar íslendinga dragi ekki úr virkni Alþjóðasáttmálans um skip- an hvalveiða. Staðfestingarkæra gæfi forseta Bandaríkjanna leyfi til að beita íslendinga viðskipta- þvingunum. Samkvæmt breyting- unum má veiða allt að 68 lang- reyðar og allt að 10 sandreyðar, en fyrir breytingarnar var áætlað að veiða 80 langreyðar og 20 san- dreyðar. Aðspurður sagði Halldór Ásgríms- son að Bandaríkjamenn hefðu ekki sett fram ákveðnar kröfur um breyt- ingar á fundinum um síðustu helgi gegn því að falla frá staðfestingar- kærunni. Hins vegar hefðu þeir beð- ið um réttlætingu á nauðsyn þess að drepa þann fjölda hvala sem áætl- unin gerði ráð fyrir. Bandarísku full- trúamir hefðu ekki nefnt neina ákveðna tölu í þessu sambandi, en hins vegar hefðu Bandaríkjamenn Verðmæti hvalafurða 300 millj. ÍSLENDINGAR seldu 2.813 tonn af hvalafurðum til Japans á árinu 1987 fyrir 302 milljónir króna og var það 0,57% af heildarút- flutningi landsmanna. Á árinu 1985, síðasta árinu áður en hval- veiðibannið gekk í gildi, nam útflutningurinn 348 milljónum króna og var það 1,03% af heild- arútflutningnum. Japanir kaupa allar hvalafurðir íslendinga. Hvalafurðir em einkum fryst hvalkjöt, en í fyrra vom seld 1846 tonn af því fyrir 227 milljónir króna. Aðrar frystar hvalafurðir, 957 tonn, vom seldar fyrir 75 milljónir króna. Samkvæmt þessu má reikna með að verðmæti hinna 200 tonna af hvalkjöti, sem liggja á hafnarbakk- anum i Helsinki sé í kringum 25 milljónir króna. ávallt viljað halda fjölda veiddra dýra í lágmarki. Nú væri komið til móts við þá skoðun án þess að látið væri undan neinum ákveðnum kröfum Bandaríkjamanna um fjölda veiddra dýra. Halldór sagði að ekki hefði verið rætt um nýtingu kjötsins eða ann- arra hvalafurða í viðræðunum við Bandaríkjamenn, enda hefðu íslend- ingar fylgt ályktun hvalveiðiráðsins frá 1986 um það mál. „Það sem skiptir máli er hversu mörg dýr eru tekin, ekki hver étur þau. Hins vegar virðast vera fjölmargir áhugamenn í heiminum um það hver étur hvalkjöt og sumum er það jafnvel mikið kappsmál að honum sé hent og eng- inn éti hann,“ sagði sjávarútvegsráð- herra. Halldór sagði að íslendingar myndu skila skýrslu um vísindaveið- ar íslendinga fyrir næsta fund Al- þjóða hvalveiðiráðsins í samræmi við ályktun ráðsins á fundinum í Auck- land fyrir skömmu. Þá munu íslend- ingar framfylgja þeim fimm tillögum Vísindanefndarinnar, sem samþykkt- ar voru á fundi hennar í San Diego í maí á þessu ári. Halldór sagði að skerðingin á langreyðarkvótanum væri tilkomin vegna þess að hvalvert- íðin hefðist seinna nú en undanfarin ár. Hins vegar væri stefnt að því að auka langreyðarkvótanum aftur upp í 80 næsta ár. Halldór sagði að breytingamar á rannsóknaráætluninni væru nauð- synlegar til að koma í veg fyrir vand- ræði og átök á milli íslendinga og Bandaríkjamanna á þessu sumri, eins og talin hefði verið hætta á. Bandarísk lög skylduðu viðskiptaráð- herrann til að senda staðfestingar- kæru til forsetans ef talið væri að íslendingar brytu gegn stefnu Al- þjóða hvalveiðiráðsins, og þó að þetta væru „hin furðulegustu lög“ yrði að Óteljandi leiðir færar Kjötið kemur heim og fer aðra leið utan aftur, segir Kristján Loftsson „VIÐ fengum á sínum tima afger- andi svar frá Finnlandi i gegnum utanríkisráðuneytið hér, að leyfi- legt væri að umskipa hvalkjötinu í Helsinki. Vegna þess var kjötið sent þangað, en auðvitað eru ótelj- andi aðrar leiðir færar. Kjötið kemur einfaldlega heim og fer síðan aðra leið utan aftur. Þegar ekki er hægt að treysta upplýs- ingastreyminu og menn virðast ekki vita hvað þeir hafa sam- þykkt, er ekki von á góðu,“ sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf, i samtali við Morgunblaðið. Kristján sagði, að samningar hefðu náðst við Rússa um flutning hvalkjötsins með Síberíulestinni til borgarinnar Vostocnhyy, sem er við Japanshaf. Vegna þess hefði verið leitað upplýsinga um það hvort flytja mætti kjötið gegn um Finnland. Að fengnu jákvæðu svari hefðu gámar frá Rússum komið til landsins og verið sendir fullir utan. Flutningar með Síberíulestinni væru heppilegir, meðal annars vegna þess hve stuttan tíma þeir tækju og vegna þess að þá þyrftu menn ekki að eiga á hættu ónæði vegna grænfriðunga í öðrum umskipunarhöfnum. Nú hefði komið í ljós að menn hefðu einfaldlega ver- ið plataðir og þessi leið væri ekki fær, þrátt fyrir fyrri fullyrðingar um hið gagnstæða. Hann sagðist sannfærður um að útflutningur á hvers konar sjávaraf- urðum til Japans, Kóreú og Austur- Kína og innflutningur hingað frá sömu löndum væri hvað hagstæðast- ur með Síberíulestinni. Hann teldi því að innan fimm ára yrði að minnsta kosti helmingur þessa flutn- inga með þeim hætti. Þannig skapað- ist möguleiki á reglulegri áætlun milli íslands og rússneskra og finn- skra hafna. Menn væru orðnir þreytt- ir á tiðum töfum og ónæði af því að grænfriðungar og tollyfírvöld í Þýzk- alandi og Hollandi krefðust þess að umskipunargámar yrðu opnaðir vegna leitar að hvalkjöti, sem ekki færi gegn um þær hafnir. „Það er ljóst að hvalvertíðin nú verður minni í sniðum en áður. Við því er lítið að segja,“ sagði Kristján. „Við ráðum ekki ferðinni, heldur búum við sama þrýstinginn að vestan og venjulega. Þar veifa menn pappír- splaggi, sem einhverri hótun og við gefum eftir. Staðfestingarkæran hef- ur, að því mér virðist, ekki haft nein ÞÆR upplýsingar sem Hvalur iif. fékk frá Finnlandi fyrir milli- göngu utanríkisráðuneytisins um að ekkert væri því til fyrirstöðu að flytja hvalkjöt til Japans í gegn- um Finnland voru komnar frá einkaaðilum þar í landi, en ekki frá finnskum stjórnvöldum. Helgi Ágústsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, sagði i samtali við Morgunblaðið að utanríkisráðu- neytið hefði beðið sendiráð íslands í áhrif á Japani og Norðmenn og ég sé ekki að hún myndi hafa áhrif hér heldur. Þama er aðeins um að ræða innlendar bréfaskriftir, sem við eig- um ekki að láta hafa áhrif á okkur. Þessi afskipti Bandaríkjamanna eru angi af heimsvaldastefnu þeirra. Ifyrst koma þeir mönnum í vandræði og síðan bjóða þeir fram aðstoð sína. Það líður sjálfsagt ekki á löngu þar til við lendum í vandræðum eins og Norðmenn nú með selinn. Banda- ríkjamenn og EB eru fremstir í flokki þeirra, sem koma í veg fyrir að sel- veiðar verði arðbærar og afleiðingin er „innrás" milljón sela að Noregs- ströndum svo byggð á mörgum svæðum er í stór hættu. Lífkeðjan hjá okkur er líka í stórhættu, verði hvalveiðum alveg hætt,“ sagði Kristj- án. Stokkhólmi að kanna lögmæti hval- Iqotsflutninga í gegnum Finnland fyrir Hval hf. Aðstæður f Svíþjóð og Danmörku voru einnig athugaðar. Niðurstaðan var sú að ekkert hindr- aði slíka flutninga, en heimildar- mönnum sendiráðsins var ekki kunn- ugt um lög sem sett voru í byijun þessa árs, sem finnski umhverfis- málaráðherrann segir hafa ráðið ákvörðun sinni um að endursenda 200 tonn af íslensku hvalkjöti frá Helsinki. Einkaðili gaf upp- lýsingar um Fimiland MorgunblaÖið/BAR Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra kynnir samkomu- lag við Bandaríkjamenn og breytingar á hvalarannsóknum Islendinga á blaðamannafundi í gær. taka tillit til óska Bandaríkjamanna vegna þeirra hagsmuna sem væru í húfi. Aðspurður sagði Halldór að það væri ekki tryggt að ekki þyrfti að taka upp viðræður við Bandaríkja- menn á ný á næsta ári, en hann teldi miklu minni líkur á því en áður. JakoI^Jakobsson, fiskifræðingur, sem hefur yfirumsjón með hvala- rannsóknum íslendinga, sagði á blaðamannafundinum í gær að með samkomulagi íslendinga og Banda- ríkjamanna lægi fyrir viðurkenning á vísindalegu gildi rannsóknaráætl- unar íslendinga. Utflutninffur til Finnlands fyrir milljarð Grænfriðungar hafa hótað að hefja herferð gegn íslenskum útflutningsvörum í Finnlandi og þá fyrst og fremst íslenskum fiski í kjölfar mótmælanna við hvalkjötsgámana i Helsinki-höfn. Islendingar fluttu út vörur til Finnlands fyrir réttar 900 millj- ónir króna á árinu 1987 og stærsti hlutinn af því voru sjávar- afurðir. Rúmlega helmingur af útflutn- ingi íslendinga til Finnlands er loðnumjöl, sem var selt þangað fyr- ir 452 milljónir króna í fyrra, en verðmæti annarra sjávarafurða var um 200 milljónir króna, þar af sér- verkuð saltsíld fyrir tæpar 100 milljónir óg fryst fiskflök fyrir 57 milljónir króna. Loðsútuð skinn og húðir voru seldar fyrir 159 milljónir króna, en aðrar vörur eru seldar í litlum mæli til Finnlands. hóp til að flalla um tillöguna og átti sá hópur að skila áliti fyrir næsta ársfund ráðsins. Staðfestingar- kæra kemur fram Aðalumræðuefni ársfundar ráðs- ins í Málmey í Svíþjóð árið 1986 voru hvalveiðar í vísindaskyni þar á meðal tillaga Svía frá árinu áður. Þar náðist á endanum samkomulag um að leyfa veiðarnar svo framar- lega sem afurðir þeirra færu að meirihluta til innanlandsneyslu. Vegna afstöðu Bandaríkjamanna vegná svokallaðra Pelly og Pack- wood-Magnusson laga hófust nú viðræður milli íslendinga og Banda- ríkjamanna um vísindaveiðarnar og kom fram meðan á þeim stóð að Bandaríkjamenn töldu sig hafa í höndunum upplýsingar um að vísindaveiðarnar stæðust ekki Pelly-lögin. Tilkynntu þeir að yrðu veiðamar ekki stöðvaðar strax myndu Bandaríkjamenn grípa til lögboðinna gagnráðstafana sam- kvæmt þeim lögum og leggja fram staðfestingarákæru gegn Islandi. Ríkisstjórnin fór þegar fram á viðræður milli Halldórs Asgríms- sonar sjávarútvegsráðherra og Baldrigde viðskiptaráðherra Bandaríkjanna um veiðamar, sem vom stöðvaðar tímabundið í fram- haldi af því eða hinn 28. júlí 1986. Fyrir fund ráðherrana ritaði Matt- hías A. Mathiesen utanríkisráð- herra bréf til George Shultz ut- anríkisráðherra þar sem hann lýsti þungum áhyggjum vegna þróunar málsins. A fundi þeirra Halldórs og Baldridge var aðaldeilumálið túlkun á því hugtaki að meirihluti afurða veiðanna færi til innanlandsneyslu. Til að komast hjá þessu deilumáli tilkynnti ríkisstjóm Islands að hún myndi tryggja að meirihluti afurð- anna yrði nýttur innanlands. Jafn- framt yrði veiðum á langreyð og sandreyð haldið áfram en veiðum á hrefnu frestað. Á móti tilkynnti Bandaríkjastjóm að hún myndi ekki standa í vegi fyrir útflutningi hvala- afurða til Japan. I nóvember 1986 var tveimur hvalbátum sökkt í höfninni í Reykjavík. Jafnframt vom unnin skemmdarverk á hvalstöðinni í Hvalfirði. Talsmaður Sea Shepard samtakanna lýsti ábyrgð á hendur samtökunum vegna þessara at- burða. I mars 1987 kom hingað sendi- nefnd frá Bandaríkjunum til að ræða framkvæmd íslensku hvala- rannsóknanna og í maí það ár urðu bréfaskipti milli utanríkisráðherra landanna þar sem af Islands hálfu var óskað eftir fundi til viðræðna um tillögur Bandaríkjamanna um vísindaveiðar sem þeir ætluðu að leggja fyrir ársfund Alþjóðahval- veiðiráðsins í Bournemouth í júní. A fundi þessum lögðu íslendingar fram ýmsar breytingar á banda- rísku tillögunni en ekki reyndist unnt að ná samkomulagi. Á árs- fundinum var tillögum Islendinga um frestun svo og um lögfræðilega könnun á lögmæti framkominna tillagna, sem miðuðu að því að gera íslendingum þessar veiðar ókleifar, voru felldar en samþykkt tillaga þar sem íslendingar voru hvattir til að hætta veiðunum. Hart var brugðist við þessu og lýsti Halldór Asgríms- son því yfir að íhuga þyrfti alvar- lega hvort ísland gæti áfram átt aðild að ráðinu. Islendingar héldu áfram viðræð- um sínum við Bandaríkjamenn eftir þennan ársfund og voru veiðar stöðvaðar meðan á þeim stóð. Nið- urstaða þeirra var ekki önnur en að frekari viðræðna væri þörf. í byrjun september 1987 var til- kynnt um ákvörðun ríkisstjórnar- innar í hvalveiðimálinu þar sem áréttuð var sú afstaða að hvalveiðar í vísindaskyni væru nauðsynlegar til að tryggja að þvi markmiði yrði náð 1990 að hægt yrði á grund- velli þessara veiða að áætla stofn- stærðir hvala og tryggja vemdun og skynsamlega nýtingu þessara sjávarauðlinda, jafnframt því að meta áhrif hvala á aðra þætti sjáv- arlífríkisins. Um haustið 1987 vofði staðfest- ingarkæra af hendi bandaríkja- manna enn yfir og ritaði Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra þá bréf til Ronalds Reagan Bandaríkjafor- seta þar sem forsetinn var hvattur til, í ljósi góðrar sambúðar ríkjanna, að leggjast gegn kærunni. I svari Reagns kom fram að miðað við núverandi aðstæður í hvalveiðimál- inu væri viðskiptaráðherra Banda- ríkjanna skylt að leggja fram stað- festingarkæru ef fleiri hvalir verða veiddir en jafnframt var óskað eftir nýjum viðræðum. Fundur var síðan haldinn 9. september og þar náðist samkomulag milli ríkjanna sem fel- ur í sér í stórum dráttum að frá árinu í ár muni íslendingar leggja rannsóknaráætlun sína fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðs- ins til umsagnar og framfylgja til- mælum nefndarinnar. Bandaríkja- stjóm leggi ekki fram staðfesting- arkæru vegna veiða á 80 langreyð- um og 20 sandreyðum og að Banda- ríkjamenn muni vinna ásamt íslend- ingum og öðrum aðalfulltrúum ráðsins að því að auka traust á framkvæmd og vísindalegt gildi þessara veiða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.