Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 30

Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 Mílljón börnum þröngv- að til að stunda vændi Smygl á börnum er orðið alvarlegt vandamál í Evrópu- löndum og Bandaríkjunum segir í nýrri norskri skýrslu Mar^el Lefabvre erkibiskup. Lissabon, Reuter. RÚMLEGA milljón börnum er þröngvað til að stunda vændi og á ári hverju, að því er segir í norskri skýrslu sem kynnt var í gær á fundi dómsmálaráð- herra rikja Evrópuráðsins sem haldinn var í Lissabon. Barna- smygl hefur aukist og er orðið alvarlegt vandamál í Evrópu og Bandaríkjunum, auk landa þriðja heimsins, samkvæmt skýrslunni. Ráðherramir ræddu á fundinum til hvaða aðgerða hægt væri að grípa til að stöðva bamavændi og bamaklám, að því er haft var eft- ir talsmanni Evrópuráðsins. Sér- fræðingar segja hins vegar að ekki verði hægt að leysa vanda- málið fyrr en það verði kannað nánar og fólki gert grein fyrir hversu alvarlegt það sé. „Það er mjög mikilvægt að sýna fólki fram á að vandamálið er fyr- ir hendi," sagði Alf Anderson, sem hefur rannsakað bamasmygl fyrir Páfi hvetur til einingar innan rómversk-kaþólsku kirkjunnar Stefnir í fyrsta skisma innan kirkjunnar í meira en öld Páfagarði, Reuter. JÓHANNES Páll páfi II. hvatti opinberlega til einingar rómversk- kaþólsku kirkjunnar þegar hann veitti pUagrímum áheym í gær. Talið er víst að páfi hafi beint orðum sínum til franska erkibiskups- ins Margel Lefebvre, sem hefur hlaupist undan merkjum páfa svo að liggur við skisma. „Á þessari stundu höfum vér sérstakar áhyggjur af einingu kirkj- unnar,“ sagði páfi við 13.000 suður- göngumenn, sem hann veitti áheym í Páfagarði. „Vér skulum snúa okk- ur að bæn Krists, sem hvatti læri- sveina sína til þess við síðustu kvöldmáltíðina að vera sem einn maður. Þegar vér forum með Faðir- vorið í lok þessarar áheymar skul- um vér gera það með sérstakri áherslu." Páfi minntist ekki á Lefebvre með nafni, en það mátti vera sjón- um ljóst að páfi átti við hinn 82 ára gamla erkibiskup. Lefebvre, sem er stofnandi hinn- ar íhaldssömu Reglu bræðralags heilags Píusar X., hefur heitið því að ganga í berhögg við páfa og vígja fjóra biskupa án leyfis hans heilagleika, en með því verður hann sjálfkrafa settur út af sakrament- inu. Biskupsvígsluna hyggst Lefebvre framkvæma hinn 30. júní, en með því yrði um leið fyrsta skisma innan kaþólsku kirlq'unnar frá því að hóp- ur klerka skildi við kirkjuna árið 1870, en þeir féllust ekki á úrskurð fyrsta kirkjuþings páfagarðs um óskeikulleika páfa. Lefabvre er á hinn bóginn á móti þeirri nýguðfræði, sem honum finnst hafa vaðið uppi í Páfagarði frá seinna kirkjuþinginu árin 1962-65, og niðurfellingu messu- söngs á latínu. Páll páfi VI. veitti honum lausn frá öllum prestlegum störfum árið 1976 eftir að hann hafði neitað að hætta prestvígslu. Tilkynning Lefebvres fyrr í mán- uðinum um að hann hygðist vígja biskupana kom mjög á óvart þar sem hann hafði undirritað sam- komulag við kirkjuna hinn 5. maí um að hann myndi leysa ágreining sinn við hana og snúa aftur til henn- ar. Nú segir erkibiskupinn hins veg- ar að sér sé ómögulegt að snúa af þeirri braut sem hann hafi markað þrátt fyrir það sem hann kallar „ofsóknir“ kirkjunnar. Eftir að Lefebvre lýsti þesu yfir birti Páfagarður bréf þar sem ákvörðun hans var hörmuð og sagði að ef erkibiskupinn léti verða af ásetningi sínum myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir kirkj- una. Vígi Lefabvre biskupsefnin fjög- ur setur hann sjálfan sig sjálfkrafa af sakramentinu og biskupa sína um leið. í því fellst að þeir verða bannfærðir og verða þannig alger- lega útskúfaðir af hálfu kirkjunnar. norska dómsmálaráðuneytið. „Þeir sem misnota böm kynferðislega í Bandaríkjunum og Evrópu eru afar varasamir. Þetta em ekki gamlir karlar sem leita á böm á leikvöllunum. Þetta em kennarar og menn sem umgangast mikið börn í starfinu.“ Anderson sagði að þótt barna- klám hefði verið bannað í Evrópu hefði það aukist á síðustu ámm með tilkomu upptökuvéla fyrir myndbönd. „Þeir sem sækjast eft- ir barnaklámi þurfa ekki að kaupa myndbönd lengur, því þeir geta sjálfir tekið myndir heima og sýnt þær öðrum." í skýrslunni segir að bömin séu aðallega flutt frá Suður-Ameríku, Asíu og Afríku til Evrópu, Norð- ur-Ameríku og Mið-Austurlanda. Glæpasamtök eða ólöglegar ætt- leiðingarstofnanir kaupi bömin eða ræni þeim frá fátækrahverfum í þriðja heiminum. Þau séu síðan seld auðugum viðskiptavinum í norðlægum löndum, sem þröngvi þeim til að stunda vændi. V estur-Þýskaland: Gaddafi á allan póst Bonn, Reuter. VESTUR-þýska póstþjónustan rifti í gær auglýsingasamningi, sem kvað á um að 5.000 póstflutn- ingabifreiðir skyldu auglýsa þýska útgáfu „Grænu bókarinnar" eftir Muammar Gaddafi, einræðis- herra í Líbýu. Frá 1. júní hefur vörumerki hins sakleysislega „Útgáfufélags betri heims" skreytt skærgula póstbílana, en fyrir vikið átti póstþjónustan að fá um 3,5 milljónir vestur-þýskra marka (jafnvirði um 80 milljóna íslenskra króna). Það sem hinir þýsku póstþjónar vissu ekki, var að eina bókin sem forlagið hefur sent frá sér er „Græna bókin". Þegar upp komst var auglýs- ingasamningnum rift, þar sem reglur um auglýsingar á opinberum farar- tækjum kveða á um að þær megi hvorki vera pólitísks eða trúarlegs eðlis. Irene Sgalla, talsmaður póstþjón- ustunnar sagði að auglýsingamar yrðu fjarlægðar svo slq'ótt sem unnt væri. „Það er þó hægara sagt en gert ... Fimm þúsund póstbílar eru heill hellingur og við getum einfald- lega ekki kippt þeim öllum inn í einu.“ Reuter Maður fluttur á sjúkrabörum og slasað barn borið í sjúkrabO eftir að sprengja sprakk i Jóhannesarborg í gær. Suður-Afríka: Tíu mauns slösuð- ust í sprengingu Jóhannesarborg, Reuter. TÍU manns slösuðust, þar á meðal vanfær kona og tveggja ára barn hennar, þegar sprengja sprakk í leiktækjahúsi i Jóhannesarborg í gær. Alls hafa sjö manns látist vegna sprengjutilræða í Suður- Afriku siðustu tvo mánuði. Frans Malherbe, talsmaður lög- reglunnar, sagði að fjórir hefðu slas- ast alvarlega í sprengingunni. „Sem betur fer voru fáir á svæðinu," sagði Malherbe og bætti við að fjöidi náms- manna hefði yfirgefið húsið aðeins fimmtán mínútum áður en sprengjan sprakk. Sjö manns hafa látist vegna sprengjutilræða í suður-afrískum borgum á síðustu tveim mánuðum. Suður-Afríkustjóm hefur sakað Afríska þjóðarráðið, ANC, um að bera ábyrgð á öllum tilræðunum. Adrian Vlok, lögreglumálaráðherra Suður-Afríku, skýrði frá því á þriðju- dag að lögreglan hefði handtekið 23 félaga í Afríska þjóðarráðinu sem grunaðir væru um aðild að tilræðun- um og bardögum nálægt landamær- unum við Svasíland, þar sem níu manns féllu. Noregur: Vilja endurskoða löggjöf- ina um félagslega aðstoð TVEIR af hverjum þremur, sem njóta aðstoðar norskra félagsmála- stofnana, eru undir fertugu og þessi hópur fær i sinn hlut lang- stærsta skerfinn. Þá eru hjón með böm aðeins 7-8% þeirra, sem þurfa á félagslegri hjálp að halda. Þetta og margt fleira forvitni- legt kemur fram í skýrslu, sem Samtök norskra sveitarfélaga sendu nýlega frá sér. Var frá henni sagt í Aftenposten í fyrradag. Norsk sveitarfélög hafa nokkur síðustu ár átt í miklum erfiðleikum með að áætla fjárframlög til fé- lagsmálastofnana enda hafa út- gjöld þeirra vaxið meira en allra annarra stofnana á þeirra vegum. Sem dæmi má nefna, að útgjöldin milli áranna 1986 og 1987 jukust um 37% og það, sem af er þessu ári, hafa þau hækkað um 33% miðað við sama tíma í fyrra. Stefnir nú í, að þau verði rúmlega 21 milljarður ísl. kr. áöllu árinu. Þriðjungxir styrkþega ókvæntir og barnlausir karlmenn Norskir sveitarstjórnarmenn hafa að vonum velt þessum málum fyrir sér á alla lund og til glöggv- unar létu þeir taka saman skýrslu með tölfræðilegum upplýsingum um þá, sem njóta félagslegrar aðstoðar. Kom þá meðal annars þetta í ljós: Einstæðar konur með barn eða böm eru 15% styrkþeganna en einstæðar konur bamlausar eru 25%. Einstæðir karlmenn með bam eða böm em aðeins 2% þeirra, sem þurfa á hjálp að halda, en einstæðir karlmenn og bam- iausir eru hvorki meira né minna en 33%. Hjón með bam eða böm em 7-8% og bamlaus hjón 6%. Áfengis- og fíkniefnavandamál Tölumar fyrir Ósló endurspegla landið allt. Þar em flestir þiggj- endurnir undir fertugu og af þeim 25.000, sem þágu styrk á árinu 1986, vom 70% einstætt fólk. í Ósló hafa útgjöld til félagsmála Ú'órfaldast á sex ámm. Þá kemur það einnig fram, að þar í borg eigi 96% styrkþeganna við að stríða áfengis- eða fíkniefna- vanda, séu sjúkir á sál eða líkama eða hafi verið dæmdir fyrir ein- hveijar sakir. Auknar kröfur til styrkþega Tove Strand Gerhardsen, fé- lagsmálaráðherra í stjóm Verka- mannafiokksins, og raunar stjóm- málamenn í öllum flokkum hafa nú mikinn hug á að breyta núgild- andi lögum um félagslega aðstoð. Segir Gerhardsen, að þeir, sem þurfi á hjálp að halda, eigi fyllsta rétt til hennar en ekki sé nema eðlilegt að gera um leið meiri kröf- ur til styrkþeganna. „Það á að vera hægt að skylda þá styrkþega, sem þess þurfa, til að fara í meðferð eða starfsþjálfun og það verður að fylgjast vel með þeim framan af,“ segir Gerhards- en og Anne Enger Lahnstein, varaformaður norska Miðflokks- ins, segir, að það gangi ekki leng- ur, að atvinnulaust fólk hafni störfum, sem það telur vera fyrir neðan virðingu sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.