Morgunblaðið - 23.06.1988, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
37
Listahátíð:
Stuttmynd Brynju fékk
flest atkvæði áhorfenda
Þykir ákaf lega vænt um dóm þeirra,
segir Brynja Benediktsdóttir
ATKVÆÐUM áhorfenda og úr-
skurði dómnefndar Listahátíðar
bar ekki saman, er valin var
besta stuttmynd hátíðarinnar.
Þriggja manna dómnefnd skipuð
Sune Lund Sörensen, Viðari
Víkingssyni og Sæbirni Valdi-
marssyni taldi mynd Lárusar
Ýmis Óskarssonar „Konu eina“
best fallna til að hljóta viður-
kenningu Listahátíðar. Ahorf-
endur gáfu mynd Brynju Bene-
diktsdóttur „Simoni Pétri fullu
nafni“ 214 atkvæði, mynd Maríu
Kristjánsdóttur „Ferðalagi
Fríðu“ 113 atkvæði og mynd
Lái-usar „Konu einni“ 72 at-
kvæði.
Aðspurð sagði Brynja að sér
þætti vissulega vænt um dóm al-
mennings og það væri upplyfting
að frétta af valinu. En úrskurður
dómnefndar sýndi að þær María
væru ekki innvígðar í heim kvik-
myndagerðarmanna. „Ég held einn-
ig að það hafí haft áhrif á val dóm-
nefndar, að í henni átti sæti maður
sem ekki skilur orð í íslensku. í
myndum okkar Maríu var textinn
ekki síður mikilvægur en myndmál-
ið,“ sagði Brynja.
Hún sagði geysilega vinnu liggja
að baki, frá því að handritin 3 voru
verðlaunuð á kvikmyndahátíð í
fyrrahaust. Handritshöfundar
höfðu þegar útnefnt leikstjóra og
gerðu þeir fjárhagsáætlun í sam-
vinnu við Listahátíðarnefnd. „Það
er alrangt sem kom fram í sjón-
varpsviðtali við Viðar Víkingsson
um va] dómnefndar, að mynd Lár-
usar Ýmis hafi ein haldist innan
tilsettra tíma- og peningamarka og
það hafi haft sitt að segja. Okkur
Morgunblaðið/Sverrir
Brynja Benediktsdóttir.
voru ekki sett nein mörk, heldur
unnum við myndirnar í samræmi
við þá fjárhagsáætlun sem Lista-
hátíð gerði ásamt okkur.“ Kostnað-
ur við myndina er rúmar 2 milljón-
ir og sagði Brynja að hann væri
undir áætlun og þætti með allra
minnsta móti.
Þetta er í fyrsta sinn sem Brynja
gerir kvikmynd en hún hefur áður
unnið að gerð sjónvarpsmyndarinn-
ar „Við reisum nýja Reykjavík" og
stjómað 2 upptökum á leikritum
Þjóðleikhússins „Lýsiströtu" og
„Uppreisn á ísafirði“. Þá nam
Brynja einnig kvikmyndagerð fyrir
atvjnnuleikstjóra í Stokkhólmi um
stuttan tíma. „Ég vinn við kvik-
myndir og sjónvarp þegar tækifæri
gefst og sú vinna er í raun lítið
frábrugðin leikhúsvinnu. Aðalatrið-
ið er að koma skálskapnum til skila.
Það er enginn galdur fólginn í kvik-
myndatækni, hún lærist. Handa-
vinnan er einungis meiri og aðstoða
fagmenn leikstjórann við hana,“
sagði Brynja
Hún sagðist hafa haft verulega
ánægju af vinnunni við stuttmyndin
þar sem hún hefði unnið með ein-
valaliði. „Það sem skyggði á var
að okkur var öllum gert að vinna
að lokafrágangi myndanna með
dönsku fyrirtæki, sem hefði að
ósekju getað vandað betur til vinnu
sinnar. Lokaáfanginn var því lang-
erfíðastur.“
Árangurinn sagðist Brynja án-
ægð með, þó auðvitað væri alltaf
hægt að gera betur. Hún hefði kos-
ið að fleiri áhorfendur hefðu séð
myndirnar. „Við höfum von um að
geta selt myndina í kvikmyndahús
á Norðurlöndum og í S-Evrópu þar
sem hún er af góðri lengd. Áuk
þess hefur Sjónvarpið keypt hana
en það var hluti styrks Listahátíð-
ar.“
Morgunblaðið/K.G.A.
Göngumenn leggja af stað i Sólstöðugönguna 1988 frá Kópavogs-
kirkju.
Sólstöðugangan 1988:
A aimaðjiúsiind manns
komu í Arbæjarsafn
Forsetakosningarnar:
Avörp frambjóðenda í
Sjónvarpinu í kvöld
SÓLSTÖÐUGÖNGUNNI 1988 lauk laust eftir miðnætti aðfaranótt
gærdagsins á toppi Helgafells i Mosfellssveit, og hafði þá staðið yfir
i sólarhring. Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri í Kópavogi, ræsti
gönguna á Borgarholti hjá Kópavogskirkju á miðnætti aðfaranótt
þriðjudagsins. Sá háttur er hafður á, að ákveðnum byggðarlögum eru
gerð skil á hverju ári. í þetta sinn voru það Kópavogur, Reykjavík og
Mosfellsbær, en í fyrra Seltjarnarnes, Bessastaðahreppur og Kjalar-
nes. Nú var bryddað upp á þeirri nýbreytni, að skipta göngunni i tvennt
á hluta leiðarinnar og staldraði annar hlutinn við i Arbæjarsafni þar
sem tekið var á móti börnum af barnaheimilum borgarinnar. Þar var
húsdýrasýning, farið í náttúruskoðunarferðir í Elliðaárdalinn, grillaðar
pylsur og farið í leiki. Þátttaka i þessum hluta sólstöðugöngunnar var
mjög góð og er talið að vel á annað þúsund manns hafi komið i Árbæj-
arsafn i gærdag.
Vigdís hafnar
ítrekaðri ósk
um kappræður
ÁVÖRP frambjóðenda til for-
setakosninga 1988, Sigrúnar
Þorsteinsdóttur og Vigdísar
Finnbogadóttur, verða flutt í
ríkissjónvarpinu i kvöld og
hefst útsending klukkan 20.35.
Vigdís Finnbogadóttir hefur
hafnað ítrekaðri áskorun Sigrúnar
Þorsteinsdóttur um kappræður í
sjónvarpi, en eins og greint var
frá í frétt Morgunblaðsins í gær,
fór Sigrún þess á leit að forsetinn
endurskoðaði þá afstöðu sína að
neita að koma fram í sjónvarpi
með Sigrúnu. í svari Vigdísar
Finnbogadóttur segir meðal ann-
ars að ekkert það hafi komið fram
í kosningabaráttu Sigrúnar er gefi
tilefni til að Vigdís breyti afstöðu
sinni. „Ég álít enn að kynning sú
sem fram hefur farið og á eftir
að koma fram í útvarps- og sjón-
varpsþáttum sé til þess fallin að
skýra, svo augljóst sé, málstað
okkar beggja fyrir þjóðinni.
Stuðningsmenn Sigrúnar hafa í
yfirlýsingu vegna þessa lýst von-
brigðum sínum með svar Vigdísar
og segja meðal annars að með því
séu brotnar leikreglur sem ættu
að ríkja í kosningum og lítilsvirð-
ing sýnd því fólki sem ætlað er
að ganga i kjörklefann þann 25.
júní n.k.
Eins og áður sagði lagði Sólstöðu-
gangan 1988 af stað frá Borgarholti
í Kópavogi og voru það 70—80
manns. Þaðan lá leiðin niður Skelja-
brekku í gegnum skógræktarstöð
Skógræktarfélags Reykjavíkur yfir
. Fossvogslækinn að Snælandsskóla,
Áskrifiarshnirm er 83033
Góðum afla í Sogi
misskipt.
„Það veiddust 10 laxar í Soginu
fyrsta daginn sem veitt var,
þriðjudaginn 21. júní. Menn urðu
varir við all mikið af laxi og allir
laxarnir voru grálúsugir," sagði
Friðrik D.Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Þó var veiðin ekki
alls staðar góð í ánni og aflanum
verulega misskipt. Þannig veidd-
ust 8 laxar í landi Ásgarðs, 5 til
10 punda fiskar, einn í landi
Bíldsfells og einn fyrir landi Syðri
Brúar, á Landaklöppinni forn-
frægu. Var það 14 punda fiskur
sem fékkst á Black Sheep nr. 10
og var glíman að sögn feikna-
hörð. Enginn lax veiddist í Alviðru
og urðu menn þar ekkert varir
og vekur það dálitla furðu. Auk
þessa má geta, að veiðimenn fyrir
landi Bíldsfells urðu venju fremur
varir við stórar bleikjur og veidd-
ust nokkrir slíkir fiskar og marg-
ir sáust.
Glæsibyrjun í Laxá í
Dölum.
Fyrsti veiðihópurinn í Laxá í
Dölum snaraði rúmlega 60 löxum
á þurrt á fyrstu 18 klukkustund-
um veiðitímans, en veiðin hófst
eftir hádegið á mánudaginn. Mik-
ill lax var kominn í ána og dreifð-
ur um alla á. Þetta er með fjör-
legri opnunum í Laxá í Dölum í
mörg ár. Nær allir laxarnir voru
mjög vænir, 9 til 14 pund að jafn-
aði og sá stærsti 21 pund sem
kunn aflakló, Dagur Garðarsson,
dró á þurrt.
þar sem kveikt var miðnæturbál.
Kristján Guðmundsson gekk með
göngumönnum þessa leið og tendraði
bálið. Margrét Olafsdóttir, tónlistar-
kennari í Fossvogsskóla spilaði á
gítar og sungið var frumort ljóð og
lag eftir hana, „íslensk sumamótt".
Fólk kom úr götunum í kring og tók
þátt í gleðskapnum og margir gengu
stuttan spöl með göngunni. Svo var
reyndar á áfangastöðum víðar.
Næst var haldið inn Fossvogs-
dalinn gegnum göngin á Breiðholts-
brautinni, um Elliðahólmana og upp
Breiðholtið eftir snyrtilegum upplýst-
um stíg, sem ástæða er til að vekja
athygli á, upp á Vatnsendahvarfið.
Þangað var komið laust fyrir kl. 3.
Þar var áð og m.a. farið í leiki. Sól-
stöðumínútan var kl. 3.59, en þá var
sólin nákvæmlega hæst á ferli sínum.
Hátíðarbragur var yfír þeirri stund
og þögn í tvær mínútur.
Gangan greindist nú í tvennt. A-
gangan fór sömu leið til baka niður
í Elliðavog. Þar tók Hafsteinn
Sveinsson hjá Viðeyjarferðum á móti
göngumönnum kl. 5 og bauð í sigl-
ingu út í Viðey, og fóm um 15 göngu-
manna þangað. I Viðey var snæddur
árbítur og síðan var ætlunin að sigla
um hinar eyjarnar Engey, Lundey
og Þerney. Vegna sterkrar undiröldu
var horfíð frá því og lent í Sunda-
höfn kl. 8. Þá þynntist dálítið í hópn-
um, sem rekja má til þess að vinnu-
dagur var að hefjast og veðrið ekki
upp á það besta. Þeir sem eftir voru
gengu með Leirvognum hring um
Mosfellssveitina, norður fyrir
Grímarsfell niður Seljadal um vatna-
svæðið, þar sem meðal annarra vatna
eru Silungatjörn og Krókatjöm, og
niður í Hafravatnsrétt. Þangað var
komið um kl. 18.
Loks var gengið upp Þormóðsdal
yfir að Reykjalundi, þar sem göng-
umar sameinuðust kl. 23.
B-gangan hélt frá Vatnsenda-
hvarfínu austur fyrir Elliðavatn, upp
Heiðmörkina og upp á Selfjall þang-
að sem komið var kl. 8. Þaðan var
gengið til baka norður fyrir Elliða-
vatn niður að Árbæjarsafni þar sem
hlé var gert á göngunni.
Samband hafði verið haft við
bamaheimilin í borginni og bömun-
um boðið til hátíðar. Fyrsti hópurinn
kom um kl. hálftíu. í Árbæjarsafnv
var húsdýrasýning í tilefni dagsins,
þar sem ær með lömb sín vom í
gömlum fjárhúsum og hestar í göml-
um hesthúsum auk þess sem hundar
vom á vakki um svæðið. Höfðu böm-
in mikla ánægju af. Þá var boðið upp
á stuttar náttúmskoðunrferðir í Él-
liðaárdalinn, sem flórir líffræðingar
stjómuðu. Krakkamir vom fróðleiks-
fúsir og fyrir mörgum þeirra opnað-
ist nýr heimur. Úti á túni vom svo
grillaðar pylsur og lauk svo þessum
þætti kl. 18.
Nú var í fyrsta sinn boðið upp á
dagskrá sem þessa, enda hefur þátt-
takan í sólstöðugöngum verið slök
um miðjan daginn undanfarin ár. í
þetta sinn brá svo við, að vel á ann-
að þúsund manns komu i Árbæinn.
Éftir þetta tók B-gangan upp
þráðinn og sameinaðist A-göngunni
hjá Reykjalundi um kl. 23. Þaðan
héldu svo um 50 göngumenn upp á
Helgafell, þar sem velheppnaðri Sól-
stöðugöngu 1988 lauk laust eftir
miðnætti með hátíðlegum söng.
Einar Egilsson hjá Náttúmfræði-
stofnun var einn aðstandenda
göngunnar. Sagði hann að mjög vel
hefði tekist til að þessu sinni og
hann væri sannfærður um, að í
framtíðinni yrði þetta mikil hátíð.
Göngunni lögðu lið: Áhugahópur
um byggingu náttúmfræðihúss, Ár-
bæjarsafn, Bandalag íslenskra skáta,
bamaheimilin i Reykjavík, Hesta-
mannafélagið Fákur, Menningar-
nefnd Mosfellsbæjar, Náttúmfræði-
stofnun íslands, Náttúmvemdarfé-
lag Suðvesturlands, Skógræktarfél-
afg Reykjavíkur, Umhverfismálaráð
Reykjavíkur, Umhverfisráð Kópa-
vogs og Ungmennafélag íslands.