Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 52

Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 Plastkör Þessi sterku og léttu plastkör henta vel til flutninga og geymslu á hverskonar vörum og matvælum. Þrjár stærðir. B.SÍGURÐSSON sf. Veitum allar __ upplýsingar. Auðbrekku 2, Kópavogi. Sími 91-46216. Símar 35408 og 83033 UTHVERFI Austurbrún, staka talan o.fl. Viðjugerði Nökkvavogur Logafold 1-72 VESTURBÆR Nýlendugata AUSTURBÆR Sóleyjargata Barónstígur Bólstaðahlíð Mávahlíð Grettisgata 64-98 Þuríður Þórðar- dóttir - Minning Fædd 12. apríl 1912 Dáin 10. júní 1988 Við brotthvarf vina og náinna venslamanna rifjast óhjákvæmilega upp atvik og svipmyndir af ýmsum toga. Fyrir hugskotssjónum stendur mynd. Kominn til landsins úr langri siglingu hitti ég föður minn að máli. Hann upplýsti að þeir bræður sem um þær mundir héldu heimili saman að Hringbraut 103 hefðu fengið ráðskonu til þess að annast húshaldið. Þessi ráðskona var Þuríður Jórunn Þórðardóttir, sem síðar átti eftir að verða eiginkona föður míns, mikill vinur okkar hjón- anna og nánasta amma sona okkar tveggja, Goða og Sindra, þar sem hinar raunverulegu ömmur bjuggu í fjarlægð. Ljóslifandi fyrir hugskotssjónum stendur einnig minningin um fyrstu kynni. Allt fas Þuríðar bar vott um varfæmi en um leið vinsemd. Hún var yfírveguð og fáguð í fram- komu, alvörugefin en þó glöð. Enda þótt ég vissi ekki sögu hennar þá, fannst mér að hún hefði mikla og erfiða reynslu að baki sem og líka var. í stuttu máli þá tókust með Þuríði og fjölskyldu föður míns miklir kærleikar sem aldrei bar skugga á. Þuríður fæddist á Hvammstanga 12. apríl 1912. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Sveinsdóttir og Þórður Sæmundsson. Hún var þriðja bam foreldra sinna. Eldri vom Sigríður og Debora og jmgri Sveinn. Hún ólst upp á miklu mynd- arheimili foreldra sinna við nám og störf. Þegar sími kom á Hvamms- tanga gerðist Þórður símstöðvar- stjóri og símstöð var sett upp í húsinu. Það leiðir af líkum að dæt- umar á heimilinu tóku snemma virkan þátt í símsvömn og af- greiðslu, vöndust því ungar að axla ábyrgð sem slíkri þjónustustarfsemi fylgir. Ung giftist Þuríður unnusta sínum Hrólfí Þorsteinssyni. Hann var sjómaður, oft í siglingum til Suðurlanda en þess á milli á fiski- skipum. Heimili sitt höfðu þau á Hvammstanga. Framtíðin virtist blasa björt við þessum ungu og gjörvilegu hjónum. Eitt sumar var Hrólfur vegaverkstjóri nyrðra en er haustaði var ekki frekari vinnu að hafa á heimaslóðum. Hann afréð að fara á ný til sjós og gerðist skips- maður á L.v. Pétursey. Það var haustið 1940 og stórþjóðimar bár- ust á banaspjótum. Síðan tók við fiskflutningar til Bretlands og allt fór vel fram í fyrstu. Slysaárið mikla, 1941, gekk í garð. Pétursey fór frá Vestmannaeyjum áleiðis til Englands hinn 10. mars 1941. Skip- ið fórst í þeirri ferð. Enginn varð þar til frásagnar, en hluti úr þaki stýrishússins sem síðar fannst var sundurtættur af skotum og kúlna- brotum og vitnaði um hver örlög skipsmanna urðu. Nokkm áður en þeir válegu at- burðir gerust höfðu þau Þuríður og Hrólfur tekið ungan svein I fóstur, dótturson Þuríðar. Við fráfall Kveðjuorð: Kristín Anna Kress Fædd 4. desember 1904 Dáin 15. júnl 1988 Mig langar til þess að minnast vinkonu minnar, Kristínar Önnu Kress, með nokkrum orðum. Þegar maðurinn minn, Bjami Guð- jónsson, varð veikur, í febrúar 1946, benti móðir hans mér á konu, sem væri að leita sér að starfskrafti að gæta bús og heimilis, meðan hún væri úti að vinna. Þetta var Kristín Anna Kress, sem þá var matreiðslu- kennari í Miðbæjarbamaskólanum og bjó á Lokastíg 8. Varð það úr, að ég réðist til hennar sem vetrar- stúlka. Hafði ég með mér son minn, Einar, sem þá var mánaðargamall. Þegar ísland var hemumið af Englendingum hinn 10. maí 1940, var eiginmaður Kristínar, Bruno Kress, þýskur að ætt og uppruna, handtekinn og fluttur úr landi. Þessum atburði fylgdi mikil sorg fyrir Kristínu. Áttu þau hjónin eina dóttur bama, Helgu Kress, mjög elskulegt bam. Marga nótt vakti Kristín og gekk um gólf af áhyggj- um. Þótti henni þá gott að taka Ein- ar litla, son minn, sér í fang og gæla við hann. Oft hélt hún til vinnu sinnar að morgni nær ósofin, en eft- ir því mun enginn nemenda hennar hafa tekið, svo dugleg sem hún var. Kristín var mjög sérstök kona og vel af Guði gerð. Gaman þótti okkur báðum, þegar Gunnar bróðir hennar Thoroddsen kom í heimsókn með bamunga syni sína tvo. Svo hafði verið til ætlað, að ég hætti í vistinni hjá Kristínu um vo- rið, þegar skóla lauk. En Kristín gerði það ekki endasleppt við mig, heldur leitaði uppi fyrir mig sama- stað. Kom þá í ljós, að dyravörðinn á Hótel Borg, Tómas Jónsson, vant- aði stúlku til þess að gæta fyrir sig t Faðir minn, DITLEV OLSEN, andaðist i Landspítalanum 10. þ.m. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Reinhard Olsen. Móðir okkar, OKTAVÍA LOVISA FRIÐRIKSDÓTTIR frá Siglufirði, lést 7. júní. Jarðarförin hefur farið fram. Fyrir hönd aðstandenda, börn hinnar látnu. Hrólfs og veikindi Þuríðar, sem hún átti í um nokkur ár, varð ungi piltur- inn, Þór Magnússon, heimilisfastur hjá ömmu sinni og afa og ólst þar upp uns langskólaganga tók við. Eftir að Þuríður og faðir minn, Sæmundur Eggertsson, giftust bjuggu þau sér ákaflega fallegt og menningarlegt heimili. Þeim auðn- aðist að búa saman hálfan annar áratug uns hann andaðist á miðju sumri 1968. Eftir það bjó Þuríður ein í íbúð þeirra á Hringbraut 103, en vegna hnignandi heilsu flutti hún á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund þar sem hún dvaldi við gott atlæti síðustu tvö ár ævinnar. Við María og synir okkar minnumst Þuríðar Þórðardóttur með virðingu, þökk og söknuði. Hún var mikilhæf kona, hjartahlý og einstaklega bamgóð. Hún var okkur öllum hjartfólginn vinur. Blessuð sé minning hennar. Sveinn Sæmundsson dóttursonar síns og var ég hjá því góða fólki um þriggja ára bil. En þótt ég væri ekki lengur hjá Kristínu, hringdi hún mig upp dag- lega margar næstu vikur, til þess að frétta hvemig mér liði, og hvem- ig drengurinn minn hefði það. Þegar Einar minn óx og dafnaði, útvegaði Kristín mér dagheimilis- pláss handa honum í Tjamarborg. Lét hún ekki þar við sitja, heldur greiddi hún sjálf allan kostnað af vist hans þar. Avallt héldum við sam- band og kom ég oft til hennar gegn- um árin. Þegar yngsti sonur minn hóf störf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, sagði hann mér frá gamalli konu, sem kæmi ávallt í vagninn við Odd- fellow-húsið. Hafði hún vakið at- hygli hans fyrir dugnaðar sakir og kurteisi. Tók ég mér far að gamni mínu einn daginn til þess að sjá, hver þetta væri. Það reyndist þá vera mín gamla vinkona, Kristín Anna Kress. Hún sagði mér þá, að bílstjórinn væri svo almennilegur að hieypa sér út, þótt ekki væri komið að stoppistöð og kvaðst hún helst á því, að allir strætisvagnabílstjórar væru svona liðiegir! Kristín var svo dugleg, að hún vflaði það ekki fyrir sér að fara út, þótt eitthvað væri að veðri. Ég kveð mína kæru vinkonu og velgjörðarmann með innilegu þakk- læti og söknuði og flyt henni og ást- vinum hennar kveðju sonar míns, Einars Bjamasonar, sem starfar hjá þýskri ferðaskrifstofu í Hannover. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Br.) Lilja Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.