Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 53

Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 Minning: Margrét Krisíjánsdótt- irfrá Syðra-Langholti Fædd 25. apríl 1903 Dáin 14. júní 1988 Nú hefur Magga loks fengið hvíldina eftir langa sjúkralegu. Þegar okkur verður hugsað til hennar er margs að minnast. Einna minnisstæðust er minningin um hin skemmtilegu sunnudagskaffi þar sem íj'ölskyldan hittist að stað- aldri. Þegar við vorum yngri biðum við þess með eftirvæntingu og til- hlökkun að smakka á góðgerðum hennar og Kötu systur hennar meðan hún var á lífi. Fyrir okkur sem yngri vorum voru sunnudags- morgnarnir tilvaldir til spila- mennsku og annarra leikja. Eldra fólkið gat skrafað um heimsmálin í friði á meðan. Alltaf var nóg til af veitingum í hennar húsum og aldrei var hún spör á þær. Þann tíma sem hún vann hjá Sælgætis- gerðinni Víkingi nutum við sérs- takra forréttinda. Þar má t.d. nefna páskaegg sem voru sérstaklega fyllt með tilliti til okkar þá 6 manna fjölskyldu. Þau höfðu einatt að geyma 6 málshætti og voru úttroð- in af gotteríi. Magga var tíður gestur í húsi okkar og þá sérstaklega hjá ömmu og afa enda bjó hún hjá þeim áður en við fæddumst. Hingað kom Magga jafnan á jólunum og að- fangadagskvöldi eyddum við öll saman. Þá var oft gaman niðri í stofu hjá ömmu og afa að taka upp pakkana. Nú þegar hún er farin minnumst við systurnar Möggu með ánægju og þökk fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Við vonum að hún sofi vært og njóti lífsins hinum megin með áður dánum ættingjum. Katrín og Jóhanna Kristjánsdætur Margrét Kristjánsdóttir var fædd í Bolafæti, í Hrunamannahreppi, dóttir hjónanna Gróu Jónsdóttur frá Sandlækjarkoti og Kristjáns Magn- ússonar frá Syðra-Langholti. í Bolafæti, sem nú ber nafnið Bjarg, bjuggu þau hjónin árin 1901—1911, en þá fluttu fjölskyldan að Syðra- Langholti í sömu sveit og bjuggu þau hjón þar allan sinn búskap. Margrét var næst elst bama þeirra hjóna. Hún tók miklu ástfóstri við Syðra-Langholt, þótt hún hafi trú- lega lifað þar erfiðustu ár ævi sinnar, því lífsbaráttan var hörð á þessum árum, og mikið þurfti að vinna. Mörg voru sporin í kringum kvíaæmar og ósjaldan leit að þeim upp um alla sveit, en hún vr gefin fyrir dýr ekki síst kindur og hesta. Heyskapur var heldur erfíður og oft mikil vosbúð við hann. Slegið var með orfi og ljá um mýrar og flóð er tún þraut og gekk Margrét að slætti sem karlmaður, þegar á þurfti að halda. Hlífðarföt voru ófullnægjandi og fótabúnaður ákaf- lega lélegur. Þá var húskuldinn mikill og minntist hún þess, að baðstofusúðin hrímaði oft á vetrúm. Þessara erfiðu tíma bar hún ávallt merki í krepptum fingrum og aflöguðum tám, en þrátt fyrir þetta voru þessi ár í minningunni hin áhægjulegustu og staðurinn kær. Þar þekkti hún hveija þúfu, hvergi var fallegra, hvergi ánægju- legra að vera. Sautján ára gömul fór hún að heiman, og var hennar högum þannig háttað í mörg ár, að hún réðst í vist að vetrinum, oftast í Reykjavík, en vann foreldrum sínum á sumrin. Ekki hefur hún safnað veraldarauði á þessum árum, því launin voru lág, og eftir- tekjan eftir sumurin trúlega engin, en þetta þótti ekkert óeðlilegt á þessum tíma, enda ekki jafn mikið um vinnu og síðar varð. Um eða nokkru fyrir 1940 fór hún svo að vinna í efnagerð, og voru verk- SVERRIR KRISTJÁNSSOIM HÚS VERSLUNARINNAR 6.HÆO LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRl" 223 fm einbýlishús ásamt ca 50 fm bftsk. Stórglæsileg teikning eftir Vífil Magnússon. Húsið afhendist fokhelt, fullgert að utan. Grófjöfnuð lóð. FASTEIGN ER FRAMTÍÐ Miðhús: 13-15-17, Grafarvogi Til sölu þrjú hús sem eru hæð og ris, samtals 184,6 fm nettó m/bilg. Afhent fokheld, fullgerð utan með grófjafnaðri lóð. Súlunes - Arnarnes p targnit] hl & Metsölublað á hverjum degi! E r J smiðjustörf vinna hennar eftir það, að undanskildum árunum 1951— 1960 að hún var ráðskona hjá Bjarna bróður sínum í Syðra- Langholti, en hann hafði þá nokkru áður misst konu sína frá ungum börnum. Síðustu tvo áratugina, sem hún var við störf vann hún í Sælgætis- gerðinni Vfkingi og hélt starfsþreki sínu langt fram á áttræðisaldurinn. Öllum sumarleyfum eyddi hún í Syðra-Langholti og var þá ekki aðgerðalaus, fremur en endranær. Hún var alla tíð mikil verkmann- eskja, fram úr hófi ósérhlífin og ólöt, fljótvirk og velvirk enda vinnu- lúin þegar yfir lauk. Hún var ákaf- lega gestrisin og góðgerðasöm. Enginn komst hjá að þiggja ein- hverjar góðgerðir, þótt heimsóknin væri stutt. Eftir að Margrét og eldri systir hennar, Katrín, eignuðust sína eigin íbúð fyrir nær þijátíu árum, voru heimsóknir vina og einkum skyld- fólks til þeirra tíðar. Við systkina- börnin og seinna okkar börn urðum þeim systrum nærri eins og börn og barnabörn. Varla leið sá sunnu- dagsmorgun, að ekki væri húsfyllir á Rauðarárstígnum. Umhyggjan fyrir velferð okkar hinna yngri var mikil og ráðlegging- ar og áminningar oft þannig, að viðkomandi þótti nóg um, en allt var það vel meint og af einlægum huga, enda var hún ákaflega frænd- rækin. Hún var gjafmild og oft stjórgjöful. Hver smágreiði fannst henni vera stórra gjalda verður. Hún var mjög vönduð, samvisku- söm og húsbóndaholl, mátti ekki vamm sitt vita og ekki til þess hugsa að skulda neinum neitt. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var fljót að mynda sér skoðanir enda fljóthuga, en nokkuð dómhörð. Fyrir tæpum tveimur árum fékk Margrét heilablóðfall og náði ekki neinum teljandi bata eftir það áfall. Allan tímann hefur hún legið á Borgarspítalanum og þurfti mikillar umönnunar við. Fjölskyldan þakkar þeim mörgu, sem hlynntu að henni og önnuðust hana með fádæma þolinmæði og þrautseigju í þessari lögu og erfiðu legu. Hvíldin var henni því kærkomin, þegar kallið kom. Með þessum fátæklegu línum vil ég þakka Möggu samfylgdina frá vöggu minni til grafar hennar, þakka fádæma umhyggju fyrir mér og óska henni alls góðs í öðrum heimi. Dauðinn því orkar enn til sanns, út slokkna lífið hlýtur manns, holdið leggst í sinn hvíldarstað, hans makt nær ekki lengra en það, sálin af öllu fári frí fiutt verður himna sælu í. (Hallgrímur Pétursson) KS UTSOLUSTAÐIR: Akrasport - Akranesi Bikarinn - Reykjavik Borgarsport - Borgarnesi Bragasport - Reykjavik Hljóö og Sport - Husavik Musik og Sport - Hafnarfirði ^55 Sportbúö Kopavogs - Kopavogi Sportbuöin Laugavegi 97 - Reykjavik Sportbúð Öskars - Keflavík Sportbuðin Sunnuhlíð 12-Akureyri Sporthlaðan - ísafirði Tómstund - Vestmannaeyjum Útilif- Reykjavík SPORTLAND h/f Grensásvegi16 Simi: 680330 I 1 M v.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.