Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
57
Minning:
Elís Pétursson
Urriðavatni
Norrænir forverðir
funda nú í Reykjavík
Viðgerð menmngarminja - siðfræðileg viðhorf
Fæddur 8. nóvember 1905
Dáinn 17. mars 1988
Fyrri hluta ævinnar vissi ég eng-
in deili á Elís Péturssyni. En er ég
kom austur á Hérað til að byrja
með tilraunastöð á Hafursá þurfti
ég vetrarmann vegna umsvifa er
hófust nokkur, sérstaklega á öðru
árinu. M.a. voru 2 kýr á vegum
búsins, garðamatur og margvísleg
umhirða. En lengi vetrar var ég
fjarverandi. Síðla sumars eða að
hausti 1948 leitaði ég fyrir mér um
vetrarmann, spurði m.a. Helga
Gíslason, er þá var við vegaverk-
stjóm, hvort hann gæti bent mér á
mann. Hann svaraði fljótlega og
benti mér á Elís. Bar á hann mikið
lof, trúr, viljugur og „þrælduglegur
andskoti". En á þeim tíma a.m.k.
skildu flestir sveitamenn hólið, sem
áherzlu fékk af viðskeytinu. Ég tók
þessari ráðleggingu, Elís gaf kost
á sér, var á Hafursá um veturinn
og í engu brást dómur Helga.
Elís var ágætur starfsmaður á
alla lund. Léttur í skapi oftast,
sívinnandi, harðskarpur, bráð-
snöggur í hreyfingum, laglegur,
snyrtilegur sjálfur og í umgengni,
greindur og gamansamur. Trú-
mennska — já, sem var engin upp-
gerð. Og þessi mynd, sem festist
mér í minni stóðst ævina út.
Næstu árin, þau er ég var á
Skriðuklaustri, áttum við lítil kynni.
Ferðaskrifstofan Saga:
Ferðir í
nágrenni
Eyjafjalla
í sumar bjóða Ferðaskrifstofan
Saga og fyrirtækið Fjallahestar
upp á tvenns konar ferðir á hest-
um í nágrenni Eyjafjalla.
Annars vegar verður riðið frá
Skógum, meðfram Eyjafjöllum að
Seljavallalaug, en þaðan er ekið
aftur til Skóga. Boðið er upp á
þessa ferð alla laugardaga í sumar.
Lagt verður af stað kl. 14, og mun
ferðin taka um það bil 3 klukk-
utíma. Verð er kr. 2.950.
Hins vegar verður farið ríðandi
frá Skógum og upp á Fimmvörðu-
háls en gengið þaðan niður í Þórs-
mörk. Þaðan er þátttakendum gef-
inn kostur á bílferð til Skóga. Ferð-
in mun taka um 10 tíma og verður
lagt af stað frá Skógum kl. 10 alla
sunnudaga í sumar. Verð er kr.
7.250.
(Úr fréttatilkynningu)
Nýlistasafn-
ið framleng--
ir sýningu
SÝNINGU á vegum Listahátíðar
og Nýlistasafnsins á verkum
Donald Judds, Richard Long og
Kristjáns Guðmundssonar, sem
opnaði 4. júni siðastliðinn, hefur
verið framlengd til sunnudagsins
26. júní. Sýningin er opin frá
16—20 á virkum dögum og frá
14—20 um helgar.
Eftir að ég flutti hingað í nánd
Lagarfljótsbrúar jukust kynnin að
nýju. M.a. lagði ég stundum leið
mína í Urriðavatn er túnasláttur
stóð yfír. Ég hafði alla tíð haft
yndi og beina lífsfyllingu og holla
líkamsæfingu af að slá með orfi og
ljá. Túnið á Urriðavatni er holótt
og þéttur þeli á hólunum, mesta
kjarnataða íslenzks búskapar. Elli
sló þessa hóla og ég sóttisl eftir
að mega veita mér þá ánægju. Og
við stóðum „tveir í túni“ stund og
stund í nokkur sumur. Ræddum lítið
saman í verkinu en í loftinu lá hlý-
legur andi beggja gagnkvæmt. Og
aukin kynning næstu árin er ég var
við Verzlunarfélag Austurlands. í
mörg haust var Elís við söltun á
gærum í sláturhúsinu. Ólygnastur
er sá dómur er gærur frá Slátur-
húsi VAL fengu, þóttu einhveijar
þær bestu er bárust, t.d. til Loð-
skinns á Sauðárkróki. Ekki sízt
fyrir vandlega söltun út í hvern
skækil. Ótvíræður vitnisburður um
hinn trúa þjón í starfi.
Elís hafði mikið yndi af hrossum.
Ég man það að á fyrri árum mínum
hér eystra var ekki mikið um útreið-
ar, en oft skeði það að ég varð var
við Elís á hestbaki, t.d. um helgar.
Vel ríðandi, jafnvel einn á ferð. Mér
hafa verið nefnd af hrossum Elíss
Jarpur og Blesi og hryssan Skjóna,
en hún var skagfirskk. Ég hefi séð
á Urriðavatni mynd af hesti blesótt-
um er Elís átti og kallaði Ljúf.
Harðfjörugan hest sem e.t.v. var
mesta uppáhald hans. Líklega hefir
sannast á Elís að „knapinn á hest-
baki er kóngur um stund. Kórónu-
laus á hann ríki og álfur". Víst er
að þá voru yndisstundir hans. Urr-
iðavatn er landfrægt fyrir góðhesta
einkum hlaupahross. Ög austfirskir
hestamenn vissu af þessu og þeir
Urriðavatnsfrændur, Ólafur og
Elís, stundum sóttir heim af ríðandi
kunningjum.
Ég hygg Elís hafi almennt haft
yndi af skepnum. Hann hafði sjálf-
ur nokkum sauðíjárstofn og fjósið
hirti hann á Urriðavatni þegar ég
var þar kunnugastur.
Sólrún hét móðir Elísar og var
systir Jóns Ólafssonar bónda á Urr-
iðavatni. Sonur Jóns er Ólafur er
þar hefir búið um fjölda ára. Þeir
systkinasynimir eru mér ríkastir í
minni um það er snertir Urriðavatn.
Elís giftist aldrei. Systkini átti hann
tvö: Oddnýju, sem búið hefir í
Reykjavík, og Martein, kenndan við
Brekku í Fljótsdal, en síðari árin
mörg í Reykjavík, við bílaakstur.
Mér fínnst að á Urriðavatni hafí
einna lengst lifað athyglisverður
þáttur í búskaparsögu íslendinga,
sá þáttur er hefír verið mörgum
sveitabýlum styrkur og öryggi, þar
sem óskráð lög gagnkvæmrar fé-
lagshugsunar voru letruð yfir bæj-
ardyrum, án stafa.
Hér er vinur kvaddur með þakk-
látum huga.
Myndin, sem fylgir af Elís, er
tekin á áttræðisafmæli hans.
Jónas Pétursson
FELAG norrænna forvarða
heldur þessa dagana ráðstefnu
í Reykjavík, en hana sitja um
100 manns frá Norðurlöndun-
um auk Englands. Alls eru
haldnir 25 fyrirlestrar á ráð-
stefnunni, sem gefnir hafa ver-
ið út, og fjalla flestir um efnið
„Viðgerð menningarminja - sið-
fræðileg viðhorf".
Tilgangur félagsins er að efla
samstarf Norðurlandanna um við-
gerðir og varðveislu menningar-
minja og bæta menntun og þekk-
ingu norrænna sérfræðinga á
þessu sviði. Félagið var stofnað
sem sérdeild innan alþjóðasam-
taka forvarða árið 1950 en íslend-
ingar gerðust aðilar að því 1971.
Ráðstefnur félagsins eru haldnar
í Morgunblaðinu í gær var farið
rangt með timakaup hjá Vinnu-
skóla Reykjavíkur.
í frétt um vinnuskólana á höfuð-
borgarsvæðinu, sem birtist á bls.
17, var sagt, að unglingar í
Reykjavík, fæddir 1973 hefðu
rúmar 153 kr. á tímann. Það er
rangt, því tímakaup þeirra er kr.
143,54. Ungmenni fædd 1973
hafa hins vegar kr. 126,66 á
tímann.
þriðja hvert ár og er þessi hin ell-
efta í röðinni. Þetta er fyrsta skip-
tið sem norrænir forverðir funda
á íslandi.
Ekki hefur enn fundist betra i
starfsheiti en forvörður yfir stétt
sérhæfðra viðgerðarmanna safn-
gripa, listaverka, handrita, skjala
og bóka. Starfsheitið er þýðing á
erlendu orðunum „conservator“ og
„restaurator“.
A Islandi eru nú starfandi ellefu
forverðir, fjórir á Þjóðskjalasafni,
þrír á einkaverkstæði og fjórir á
Þjóðminjasafni. Forverðir vinna
aðallega að rannsóknum á ástandi
safngripa, viðgerðum og eftirliti
með heppilegu umhverfi gripanna.
Forvörslunám er aðeins hægt að
stunda erlendis, yfirleitt á háskóla-
stigi og tekur það þrjú til sex ár.
Einnig var þess getið í frétt-
inni, að launin væru lægst í
Reykjavík. Lilja Möller hjá Vinnu-
skóla Reykjavíkur taldi þetta á
misskilningi byggt. Ekki væri tek-
inn inn í þetta 10% bónus, auk
þess sem unglingarnir fengju miða
í strætisvagna sér að kostnaðar-
lausu. Enn fremur benti Lilja á,
að annars staðar væru fleiri ald-
urshópar á launaskrá vinnuskól-
anna og samanburður því óraun-
hæfur.
t
Móðir okkar,
SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR
frá Ási,
Hringbraut 55,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítaia f Hafnarfirði 22. júní.
Siguriaug Arnórsdóttir,
Sigurður Arnórsson,
Ásta Arnórsdóttir,
Sigrún Arnórsdóttir,
Sólveig Arnórsdóttir.
t
Sonur okkar og bróðir,
FRIÐRIK P. DUNGAL,
verður jarðsunginn í Bústaðakirkju föstudaginn 24. júní kl. 15.00.
Páll Dungal, Auður Jónsdóttir,
Marfa Dungal.
t
Sambýlismaður minn,
SIGURÐUR GÍSLASON
hótelstjóri,
Skipholti 20,
verður jarösunginn fró Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23.
júní kl. 13.30.
Ólöf Runólfsdóttir.
t
Þökkum fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
INGIBERGS SVEINSSONAR,
Efstasundi 66.
Börnin.
t
Við þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HELGU J. JÓNSDÓTTUR,
Bragagötu 38.
Guðbjörg Egilsdóttir, Róbert Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS FRIÐBJÖRNSSONAR
frá Nesjum.
Magnús Stefánsson, Jónína Bergmann,
Guðjón Stefánsson, Ásta R. Margeirsdóttir,
Sigurbjörn Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LIUU BJARNADÓTTUR,
Eyrarvegi 16,
Selfossi.
Tryggvi Eiríksson,
Þorgils Eiríksson,
Sigríður Eiríksdóttir,
Bjarnþór Eiriksson, Anna Jóhannesdóttir,
Sighvatur Eiríksson, Sólrún Guðjónsdóttir,
Eydfs Lilja Eirfksdóttir, Guðjón Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Vinnuskóli Reykjavíkur:
Tímakaup eldri hóps-
ins 143,54 krónur