Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
SUMARHÚSIÐ
DALESMAN
WÉBmmwÍmmm
Allt í ferðalagið frá
Seglagerðinni Ægi
Paradísófellihýsið - uppsett á hálfri mínútu.
Tökum í umboðssölu notuð og ný hjólhýsi,
tjaldvagna og kerrur.
Opið laugardag frá kl. 10.00-19.00.
FERÐAMARKAÐURINN,
Bíldshöfða 12, sími680003,
v/hliðina á Bifreiðaeftirlitinu.
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar sími 686988
VEXTIR Á
VERÐBRÉFAMARKAÐI
n
Víkan 10. — 16. júl! 1988
Vextirumfram Vextir
Tegund skuldabréfa verðtryggingu % alls %
Bníngabréf
Einingabréf 1 13,1% 55,6%
Bningabréf2 9,4% 50,5%
Bningabréf3 12,5% 54,7%
Lífeyrisbréf 13,1% 55,6%
Skammtímabréf 8,0% áætlað
Spariskírteini ríkissjóðs
Iægst 7.2% 47,4%
hæst 8,5% 49,2%
Skuldabréf banka og sparisjóða
lægst 9,7% 50,9%
hæst 10,0% 51,3%
Skuldabréf stórra fyrirtækja
Lind hf. 11,5% 53,4%
Glitnir hf. 11,1% 52,8%
Verðtryggð veðskuldabréf
lægst
hæst
Fjárvarsla Kaupþings
12.0%
15,0%
54.1%
58,2%
mismunandi eftir samsetn-
ingu verðbréfaeignar.
Heildarvextir annarra skuldabréfa en Bningabréfa eru sýndir
rniðað við hækkun lánskjaravísitölu siðastliðna 3 mánuði.
Raun- og nafnávöxtun Hningabréfa og Lífeyrisbréfa er sýnd
miðað við hækkun þeirra síðastliðna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með litlum fVrirvara. Bn-
ingabréf er innleyst samdægurs gegn 2% innlausnárgjaldi hjá
Kaupþingi og nokkrum sparisjóðanna. Spariskírteini eru seld á
2-3 dögum og flest önnur skuldabréf innan tveggja vikna. Fé í
Fjátvörslu Kaupþings er oftast hægt-að losa innan viku.
Öskrað úr
sandkassa
Mörg stórtíðindi hafa
verið að gerast á alþjóða-
vettvangi á undanföm-
um vikum og mánuðum.
Athyglin beinist ekki síst
að þróuninni innan Sov-
étríkjanna. Arás banda-
riska beitiskipsins Vin-
cennes á írönsku far-
þegaþotuna yfir Persa-
flóa og dauði 290 sak-
lausra manna um borð í
henni ýtti þó öilu öðm
tíl hliðar. í ieiðara Morg-
unblaðsins þriðjudaginn
5. júli sagði meðal annars
um þetta hörmulega at-
vik: „Forkastanlegur at-
burður af þessu tagi vek-
ur fyrst og siðast óhug
og fordæmingu . . . Það
er fráleitt að ætla að
Bandaríkj amenn sjái
nokkum hemaðarlegan
tílgang í þvi að ráðast á
óvopnaða iranska far-
þegavél í áætlunarflugi
og granda henni. Líti
Bandarikjamenn á slikt
sem nauðsynlegan þátt í
eftirliti sínu með sigling-
um á Persaflóa eiga þeir
að hypja sig þaðan þegar
í stað. Óhæfuverk em
aðeins til þess fallin að
festa öfgamenn í íran í
sessi og gefa þeim tílefni
til að herða enn á
stríðsrekstrinum. Hann
hefur þegar staðið alltof
lengi og sannað tilgangs-
leysi sitt."
í Morgunblaðinu á
miðvikudag birtist síðan
fréttaskýring, þar sem
blaðamaður veltir fyrir
sér spumingu, sem sett
er fram i fyrirsögn
greinar hans með þess-
um hættí: Hvað er svona
forkastanlegt við árásina
á irönsku þotuna? Spum-
ingin byggist á þvi að
árásin hafi verið forkast-
anleg en hún vekur hins
vegar lesandann til um-
hugsunar um allar hliðar
þessa hörmulega máls.
Skal efni þeirrar greinar
ekki rakið hér. Blaða-
maður við Dagblaðið-Vísi
(DV) hefur á hinn bóginn
lesið fyrirsögnina og
greinina með sérkenni-
legum hætti. I dálkinum
Sandkomi, sem almennt
er ástæðulaust að gera
sér rellu út af, stendur
þessi klausa á fimmtu-
Hörmungar
á. Persaflóa
Að hafa rétt eftir
Eftir því sem fjölmiðlar verða fleiri eru
menn í meiri vafa hvar þeir heyrðu eða
sáu eitthvað, sem vakti athygli þeirra,
þótt ekki vaeri nema í framhjáhlaupi. Oft
leggja menn ekki við hlustir eða lesa frétt
eða grein af athygli fyrr en það hefur
verið áréttað við þá af öðrum, að ástæða
hafi verið að staldra sérstaklega við
ákveðið efni. Þeir sem þekkja til allra
málavaxta verða oftar en ekki undrandi,
þegar þeir átta sig á því, hve auðvelt er
fyrir aðra að misskilja eða skilja ekki til
fulls það sem sagt er eða skrifað í fjöl-
miðla. Allt er þetta skiljanlegt í hraða
dagsins, hitt er verra að skilja, þegar
blaðamenn taka sig til og hafa rangt eft-
ir eða afflytja að því er virðist markvisst
það, sem sagt er annars staðar á prenti.
Er staldrað við þetta í Staksteinum í dag.
dag: „„Hvað er svona
forkastanlegt við árásina
á írönsku þotuna?" spyr
Moggi í fyrirsögn á
fréttaskýringarpistli I
gær, í heilagri vandlæt-
ingu yfir því fjaðrafoki
sem skotæfing banda-
ríska flotans á Persaflóa
olU.“ Leitast blaðamaður-
inn siðan við með útúr-
snúningi að gera allt það,
sem Morgunblaðið eða
blaðamenn þess hafa
sagt um þetta hörmulega
mál, tortryggilegt. Og
lætur eins og Morgun-
blaðinu sé óljúft að um
þetta voðaverk sé rætt,
þótt enginn fjölmiðill
hérlendur hafi gert því
eins ítarleg skil.
Erfitt er að átta sig á
því, hvað fyrir blaða-
mönnum vakir, þegar
þeir grípa til jafn lúa-
legra vinnubragða og
gert var i þessu Sand-
komi. Eitt er vist að þeim
er ekki efst i huga að
skýra satt og rétt frá.
Ef fyrir höfundi Sand-
koms hefði vakað að lýsa
afstöðu Morgunblaðsins
til árásar Bandaríkja-
manna á farþegaþotuna
hefði hann auðvitað átt
að vitna i forystugrein-
ina, þar sem henni er
lýst sem forkastanlegri.
Ef blaðamaðurinn hefði
viljað segja frá skoðun-
um sem fram komu í nið-
urstöðum fréttaskýring-
arinnar hefði hann átt
að vitna beint i þær.
Blaðamanni DV var ekki
efst i huga að hafa það
sem sannara reynist
heldur hitt að aia á tor-
tryggni og kasta rýrð á
starfsbræður.
• •
Oskra hver
áannan
íslensk blöð hafa löng-
um einkennst af þvi, að
andstæðingar hafa notað
þau tíl að öskra hver á
annan. Áður en mál fóm
að þróast til samninga
um afvopnunarmál milli
austurs og vesturs um
miðjan þennan áratug,
einkenndi þetta sama
samskiptí rikjanna i
austri og vestri, að þau
hrópuðu hvert á annað.
Um tíma virtust Sovét-
menn álíta að með því
að öskra nógu hátt um
leyndar ráðagerðir
Reagans og hans manna
um að hefja kjamork-
ustrið, heyja „takmarkað
kjamorkustríð“ og slá
„fyrsta kjamorkuhögg-
ið“ gætu þeir náð þvi
markmiði að einoka með-
aldræg kjamorkuvopn i
Evrópu; friðarhreyfing-
amar svonefndu störf-
uðu undir þessu merki.
Þegar þessar deilur
stóðu hvað hæst komst
Carrington lávarður, þá-
verandi framkvæmda-
stjóri NATO og núver-
andi listaverkasali, þann-
ig að orði, að enginn
árangur næðist, ef ætlun-
in væri að rækta stjóm-
málasamband milli hinna
stríðandi fylkinga með
þvi að hrópa hvor á ánn-
an í gjallarhoraum. Menn
yrðu að hætta að ala á
tortryggni og snúa sér
að þvi að greiða úr mál-
efnura á efnislegum
grundvelli.
í opinberum umræð-
um hér þjá okkur er þró-
unin vonandi á þann veg,
að efnishlið mála setji æ
meiri svip á orðasldptí,
þótt alltaf sé rík tilhneig-
ing tíl að persónubinda
einstök úrlausnarefni og
færa þau undir pólitískan
hatt með einu eða öðm
mótí. Það lofar til dæmis
góðu að lesa þessa klausu
í Þjóðviljanum í gær eftir
Áma Pál Ámason, laga-
nema og varaformann
Alþýðubandaiagsins i
Reykjavík: „Það virðist
vera staðreynd, — og hún
er ekki.mjög skemmtileg,
að ótrúlega gmnnt sé á
hinu gamla ofstæki sem
oft, og ekki að ástæðu-
lausu, hefur verið kennt
við kalda stríðið. Þetta
ofstæki á sér ýmsar birt-
ingarmyndir sem margir
kannast án efa við. Fang-
ar kalda stríðsins tala
einatt um skáldin og rit-
höfundana „okkar" og
em þá aðrir vart taldir
með, það em fræðimenn-
imir „okkar" og menn
bíða i ofvæni eftír þvi að
ungt og efnilegt fólk
„gefi sig upp“, taki undir
„okkar" viðhorf i fræði-
legri umræðu, gangi í
Keflavíkurgöngu, kaupi
Þjóðviljaim eða i versta
falli skrifí þó undir á
mótí ráðhúsinu. Það þarf
ekki að hafa um það
mörg orð, út f hvers kon-
ar ógöngur hugsunar-
háttur af þessu tagi leiðir
menn . . .“
DRÁTTAR-
VÉLIN
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
Sötuioíaiiuigw »J)i§)(n)©©®(rQ <& ©o
VESTURGOTU 16 SIMAR 14680 21480
Stjórn Verkamannabústaða í Garðabæ
Umsókn um íbúð
Stjórn verkamannabústaöa i Garðabœ óskar eftir
umsóknum um eina eldri íbúð i Krókamýri. Um
ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessarar íbúÖar
gildalögnr. 60/1984, nr. 77/1985, nr. 54/1986
ognr. 27/1987.
Umsóknareyöublöð verða afhent á bœjarskrifstofum
Garðabœjar, Sveinatungu, frá l.júli 1988. Umsókn-
um skal skila eigi siÖar en 21. júlí 1988.
Stjórn verkamanna bústaöa í
Garðabæ.