Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 12

Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 Helgi Skúlason fremstur í flokki illmennanna í norsku myndinni Leiðsögumaðurinn. I ríki samanna Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Leiðsögumaðurinn („Veiviser- en“). Sýnd í Regnboganum. Norsk. Leikstjóri: Nils Gaup. Handrit: Nils Gaup. Framleið- andi: John M. Jacobsen. Kvik- myndataka: Erling Thurmann- Andersen. Tónlist: Nils-Aslak Valkeapaa, Marius Muller og Kjetil Bjerkestrand. Helstu hlutverk: Mikkel Gaup, Helgi Skúlason, Henrik H. Buljo, Ailu Gaup, Ingvald Guttorm og Amund Johnskareng. Besta auglýsingin sem norska myndin Leiðsögumaðurinn („Vei- viseren") getur fengið hér á ís- landi, þar sem hún er fyrst frum- sýnd utan Noregs, er Helgi Skúla- son í einu af aðalhlutverkunum. Myndin gerist meðal Sama fyrr á öldum og er öll á samísku og Helgi segir ekki eitt aukatekið orð en framkoma hans er öll hin magnaðasta. Hann hefur það hlutverk að leika þann versta af þeim verstu í flokki óþokka og sýnir hér, eins og raunar í „Hrafn- inn flýgur", að hann er meistari í einskonar forhertum, þegjanda- legum tryllingi sem stingandi augun lýsa best. „Hrafninn" kemur víðar í hug- ann þegar horft er á Leiðsögu- manninn. Eins og mynd Hrafns Gunnlaugssonar gerist norska myndin fyrir um 1000 árum og hefndarþorsti ungs manns er burðarliður sögunnar. En þar sem Hrafn fjallaði um hinn klassíska einfara predikar Leiðsögumaður- inn samheldni og bræðrabönd. í ríki Samanna verður að treysta á heildina og þeir eru óþokkamir sem slíta sig frá henni. Þannig talar Nóadinn, eða höfðingi lítils samfélags Sama, við hina ungu hetju myndarinnar . hvers fjölskylda hefur verið drepin af flokki miskunnarlausra utan- garðsmanna sem kallast Tsjudar og áður en sögunni lýkur fáum við að sjá á grimmilegan, tákn- rænan hátt hvemig sundrungin virkar þegar Saminn ungi hefur leitt óþokkana í gildru sem reyn- ist erfltt að losa sig úr. Það er frábær og eftirminnilegur há- punktur í góðri mynd. Saminn ungi, Aigin, verður vitni að drápinu á fjölskyldu sinni í upphafl myndarinnar en kemst undan í æsispennandi eltingaleik við Helga Skúlason vopnuðum lásboga. Særður og illa til reika kemst Saminn til lítils veiði- mannasamfélags þar sem bæði er tekið vel á móti honum og hann hundskammaður fyrir að leiða óaldaflokkinn til þeirra. Veiðimennimir hafa sig í burtu með fjölskyldur sínar, örin og boginn eru veiðitæki ekki morð- tól, en Aigin ásamt þremur öðrum verður eftir til að kljást við flokk- inn. Þeir eru auðvitað ofurliði bom- ir og óþokkamir neyða Aigin til að vísa sér leiðina til fólksins. Yfír sveimar hrafninn, illur fyrir- boði. Sérkennilegasta persóna mynd- arinnar er höfðingi veiðimann- anna, Nóadinn. Hann virðist rammgöldróttur, birtist og hverf- ur þegar honum sýnist og í honum speglast þjóðsögur og hjátrú veiðimannasamfélagsins sem tengjast bráðinni, lífinu og dauð- anum. Leiðsögumaðurinn er á margan hátt mjög vel heppnuð mynd og þarf engan að undra þótt hún hafl vakið umtal og átt velgengni að fagna í heimalandi sínu, Nor- egi. Hún er hröð og spennandi og vel gerð í flesta staði með kröftugri tónlist, segir sterka sögu sem getur höfðað til allra og ger- ist í forvitnilegu, hijóstrugu og snjóhvítu umhverfí Samanna. Hún lýsir mikilli grimmd og líka mannkærleik í hinni eilífu baráttu á milli góðs og ills en Leiðsögu- maðurinn byggir á samískri munnmælasögu sem lifað hefur með hinni 50.000 manna þjóð í þúsund ár og leikstjórinn og hand- ritshöfundurinn, Nils Gaup, heyrði fyrst hjá afa sínum. Gaup er sjálfur Sami og fjallar um sína arfleifð og menningu af þekkingu, skilningi og fordóma- leysi og opnar manni þannig for- vitnilega sýn í uppruna sinn. Leik- stjómin einkennist af einlægni og virðingu fyrir viðfangsefninu en Gaup er líka hinn frambærilegasti hasarleikstjóri sem nær hraða og spennu á sínum heimavelli í snjó- breiðum og klettum. Þessi ágæta samíska mynd sýnir líka hvers virði það er að vinna á heimavelli, starfa í sínu eðlilega umhverfí, fyalla um menn- ingu sína, fortíðina eða nútímann en rembast ekki við eftirlíkingar alþjóðlegra metsölumynda sem yfírleitt eru ekki annað en endur- tekningar á sjálfum sér. jWtSöur á tttorgun Guðspjall dagsins: Mk.8.: Jesús mettar 4 þús. manna. ÁRBÆJARKÍRKJA: Guðsþjón- usta kl. 22. Sr. Hulda Helgadóttir. ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir guð- fræðinemi prédikar. Laufey G. Geirlaugsdóttir syngur einsöng. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjón- ar fyrir altari. Sóknarprestur. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Jónas Þór- ir. Sr. Ólafur Skúlason. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Organleikari Gunnar Gunnars- son. Sr. Lárus Halldórsson. Mánudagur 18. júlí: Orgelleikur í kirkjunni kl. 11.30—12.00. Org- anisti Jónas Þórir. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 13. Organleikari Birgir Ás Guð- mundsson. Sr. Hjalti Guðmunds- son. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs- þjónusta kl. 10. Sr. Anders Jós- efsson. FELLA-OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Organisti Nína Margrét Grímsdóttir. Sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Jón Bjarman. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld- bænir og fyrirbænir eru í kirkj- unni á miðvikudögum kl. 18. Sr. Arngrímur Jónsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Þorbergur Krist- jánsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stefánsson. Heitt á könnunni eftir athöfn. Sóknarprestur. LAUGARNESKIRKJA: Laugar- dag 16. júlí. Guðsþjónusta í Há- túni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sunnudag: Guðsþjónusta í Ás- kirkju fyrir Ás- og Laugarnes- sóknir kl. 11. Jóna Kristín Þor- valdsdóttir guðfræðinemi prédik- ar. Laufey G. Geirlaugsdóttir syngur einsöng. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Ólafur Jóhanns- son. Miðvikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Síðasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi starfsfólks. Sóknar- prestur. * SELTJARNARNESKIRKJA: Bænaguðsþjónusta kl. 11. Um- sjón Jakob Hallgrímsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila- delfía: Almenn samkoma kl. 20. Garðar Ragnarsson er ræðu- maður. Daniel Jónasson og fjöl- skylda kveðja. DOMKIRKJA Krists Konungs, Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Þessi messa er stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18 nema laugar- daga, þá kl. 14. Á laugardögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. Sr. Gunnþór Ingason. HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma kl. 20.30. Rannveig Nielsdóttir og Albert Oddsson stjórna og tala. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti: Helgi Bragason. KAPELLAN St. Jósefsspítala, Hafn.: Hámessa kl. 10. Rúm- helga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 11. Prófastur Kjalarnespróf- astsdæmis sr. Bragi Friðriksson vísiterar söfnuðinn. Þriðjudagur: Bænasamkoma kl. 20.30. Kaffi og umræður að henni lokinni. Sr. Örn Bárður Jónsson. KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl. 14. Prófastur Kjalarnesprófasts- dæmis vísiterar söfnuðinn. Sr. Örn Bárður Jónsson. SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa kl. 17. Organisti Hilmar Örn Agnars- son. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Oragnisti Einar Sig- urðsson. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 10.30, síðasta fyrir sumarleyfi kirkjustarfsfólks. Organisti: Jón Ól. Sigurðsson. Sr. Björn Jóns- son. Sljörnuspáin ÞÍN Undan skilningstrénu Egill Egilsson Ef þú ert islenskur karlmaður á aldrinum 22ja til 70 ára, og fæddur á tímabiiinu 1.1 ár hvert til 31.12 ár hvert, á þessi stjörn- uspá alveg sérstaklega við þig. Lestu hana. Taktu tillit til henn- ar, og sýndu konunni þinni hana ekki. Sýndu hana konu náunga þíns. Það er góð byijun aukinna kynna. Almennt um stjörnuspeki Stjömuspeki er vísindagrein. Hún er til dæmis engu ómerkari en þjóðhagfræðin að því leyti, að það er hægt innan þessarar grein- ar að panta hagstæða spá, sem rætist auðvitað, þar sem stjömu- spekin er vísindagrein. Frægasti maðurinn sem pantaði sér viku- lega hagstæða spá er Adolf Hitl- er. Hann setti sérstakan stjöm- uspámann til að spá sér. Að sjálf- sögðu rættist hin hagstæða spá. enda gekk honum eins og kunn- ugt er allt í haginn framan af. Stjörnuspáin ÞÍN vikuna 17.-23.7.1988 Með Tunglið í hnattstöðu, Mars í fastri stöðu, Hannes Hólmstein í lektorsstöðu og Sjöfn í skóla- stjórastöðu em þér í fáum orðum sagt allir vegir færir næstu vik- una. Það einkennir þig eins og aðra, að þú ert tilfinninganæmur umfram aðra. Þetta má meðal annars marka af því að þú skynj- ar tilfinningar sjálfs þín miklu sterkar en tilfínningar konu þinn- ar og bama. Þú ert greindur með afbrigðum, en vandi þinn felst í að þér geng- ur illa að koma öðrum í skilning um greind þína, né að nýta hana til nokkurs skapaðs hlutar. Fjármál þín standa vel. Saltaðu bara Landsbankaafborganimar í eina eða tvær vikur. Lögfræðing- ar Landsbankans em sennilega hvort sem er flestir í sumarfríi og senda þér ekki lögtakshótunina fyrr en í ágúst. Aftur á móti er sennilega hægt að kría út víxil í Búnaðarbankanum. Þar varstu þrátt fyrir allt með nokkur við- skipti fyrir nokkmm ámm, þó að það endaði illa. Mundu að maður tengdadóttur frænku þinnar þekkir einn bankastjóranna þar. Tilfinningamál: Eins og fyrri daginn em allir alltaf að ofsækja þig. Þú þyrftir þess vegna að koma öðmm í skilning um að þú sért ekki eins slæmur inni við beinið og breytni þín gefur til kynna. Syndir fortíðarinnar era of stórar til að verða fyrirgefnar. Einkum á eiginkonan þér grátt að gjalda. Reyndu því að sleikja hana svolítið upp. Það hefurðu ekki gert síðan í tilhugalífínu. Mundu að skilnaður kemur ekki til greina af þinni hálfu. Brautargengi á vinnustað: Reyndu með lempni að koma erf- iðustu verkefnunum yfir á félaga þína, einkum undirmenn. Það gef- ur þér tíma og orku til að snúa þér að mikilvægari viðfangsefn- um, þar sem em yfirmenn þínir. Reyndu til dæmis aldrei að vera fyndinn á þeirra kostnað. Fyndni þinni em mikil takmörk sett þeg- ar þeir eiga í hlut. Aftur á móti er alltaf hægt að skemmta yfir- mönnum á kostnað undirmanna. Komdu seinna í vinnuna en þú hefur gert hingað til. Þess í stað skaltu fara fyrr heim úr vinn- unni. Þetta gefur þér tíma til að sinna eiginkonunni og telja henni trú um að þú elskir hána. En það hefurðu ekki gert frá því tveimur mánuðum eftir brúðkaupið. Reyndu líka að gefa þér tíma til að kynnast bömunum þínum, þó að strákurinn sé hlaupinn út í lönd, og stelpan vilji ekkert með þig hafa. Þessi stjömuspá er vísindalega tölvuunnin fyrir þig, og þess vegna skaltu taka mark á henni. Hafí fyrri stjömuspár ekki ræst, vísum við allri ábyrgð á hendur þér, og vísum til fyrmefnds eigin- leika þíns um hversu illa þér hef- ur tekist hingað til að nýta greind þína og hæfileika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.