Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 15 Vernharður Bjarnason sonarsonur séra Benedikts Kristjánssonar, sem þjónaði Grenjaðarstað frá 1877-1907, og aðrir afkomendur sr. Benedikts. Séra Halldór Gunnarsson, prestur í Holti og afkomandi séra Bene- dikts Krisljánssonar, predikaði í Grenjaðarstaðarkirkju á afmæli ^yggðasafnsins. Við hlið hans eru Páll H. Jónsson, sem unnið hefur mikið starfs fyrir safnið, óg eiginkona hans, Fanney Sigtryggs- dóttir. Fyrir aftan þau situr Þór Magnússon, þjóðminjavörður. f Morgunblaðið/Sigurður Pétur Bjömsson Haraldur Sigurdsson, formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri, og Finnur Kristjánsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri, nú safnvörður á Húsavík. séra Þorgrímur Sigurðsson, síðar prestur á Staðarstað, en bærinn var í ábúð til ársins 1949, og virtust þá örlög hans ráðin, eftir að hætt var að búa í honum. En áhugamenn beittu sér fyrir því, að hafist yrði handa um varðveizlu bæjarins og var þar fremstur í flokki Friðfinnur Sigurðsson bóndi á Rauðuskriðu. Bærinn stóð og hrörnaði þar til sumarið 1955, að fyrir forgöngu þáverandi þjóðminjavarðar, Krist- jáns Eldjáms, var hafin gagngerð viðgerð á honum og hann jafnframt færður í sitt upprunalega form og lauk þeirri viðgerð 1958. Elsti hluti gamla bæjarins er um 150 ára gam- all, en áður hafði bærinn fengið mikla endurbyggingu þegar sr. Benedikt fluttist að Grenjaðarstað 1877, en hann var þar prestur til 1907. Hjá byggðasafnsnefndinni var vaknaður áhugi að fá varanlegan samastað fyrir safnið í hinum end- urreista bæ á Grenjaðarstað, sem nú var kominn í varðveizlu þjóð- minjavarðar, og í samvinnu við Kristján Eldjárn var miklum hluta safnsins komið þar fyrir, en hluti þess er nú í Safnahúsinu á Húsavík. Þar stjórna hjónin Hjördís Tryggva- dóttir Kvaran og Finnur Kristjáns- son með mikilli prýði og þar bætast' alltaf við merkir munir. sjá fleiri merka og mikilsverða hluti, en þeir hefðu búist við. - Fréttaritari Njálssaga: Kvikmyndatökur hefjast næsta sumar SVO sem greint hefur verið frá í Morgunblaðinu, þá hafa bandarískir aðilar hafið undir- búning að kvikmyndun Njáls- sögu. Framleiðandi kvikmynd- arinnar, James Johnston, er nú staddur hér á landi á leið sinni til Svíþjóðar, og var hann innt- ur eftir því hvernig undirbún- ingi kvikmyndatökunnar liði. „Ég hef unnið að undirbúningi þessa verks nú um tveggja ára skeið ásamt sænska kvikmynda- leikstjóranum Jan Troel, en hann hefur fallist á að leikstýra mynd- inni þegar við höfum í höndunum kvikmyndahandrit sem við teljum hæfa viðfangsefninu. Nú sem stendur höfum við ekki handrit sem fullnægir öllum okkar kröf- um, en ég er að vonast til að komast í samband við aðila hér á landi sem kynnu að hafa áhuga á að skrifa endanlegt kvikmynda- handrit. Þetta er fyrst ög fremst spumingin um að finna réttu manneskjuna sem hefur lausan tíma til að sinna þessu verkefni. Ég hef sjálfur gert uppkast að handriti sem er nokkurskonar úr- dráttur sögunnar eins og ég sé hana fyrir mér sem kvikmynd, og er það fyrst og fremst ætlað til leiðbeiningar fyrir þann sem sem- ur hið endanlega kvikmyndahand- rit.“ James Johnston sagði að ekk- ert hefði enn verið ákveðið með val leikara í kvikmyndinni, en tók fram að hann hefði mikinn áhuga á að sænski leikarinn Max von Sydow tæki að sér hlutverk Njáls. „Max von Sydow og Jan Troel hafa verið vinir árum saman, og þegar við Jan Troel bytjuðum að vinna að þessu verkefni, þá kom fljótlega í ljós að Max von Sydow hafði einhvern tíma lýst áhuga sínum á að glíma við hlutverk Njáls, en ennþá hefur ekki verið gengið formlega frá neinum samningi við hann. Hann hefur einungis lýst áhuga sínum á þessu verkefni." Varðandi önnur hlutverk í kvik- myndinni sagði Johnston að hann Morgunblaðið/BAR James Johnston, kvikmynda- framleiðandi. hefði mörg nöfn í huga sem hann teldi að gætu haft gildi fyrir myndina, en mörg hlutverkin væru þó þess eðlis að honum hefði ennþá ekki komið neinn til hugar í þau. Hann tók fram að til dæm- is þyrfti mjög kraftmikið fólk bæði líkamlega og leiklistarlega í hlutverk aðalhetja sögunnar, og nefndi þar sérstaklega hlutverk Gunnars á Hlíðarenda. „Sá sem kemur til með að fara með hlutverk Gunnars þarf að vera sérstaklega vel á sig kominn líkamlega og einnig þarf hann að hafa ákveðin blíðleg einkenni, vegna þess að Gunnar var að mínu mati hin eiginlega norræna hetja. Þetta gerir gífurlega miklar kröfur til leikarans, og ég vona sannarlega að ég fínni þann rétta í hlutverkið hér á landi eða ann- ars staðar á Norðurlöndum. Ann- ars vantar okkur fyrst og fremst karlleikara, því við höfum í huga ákveðnar leikkonur í aðalkven- hlutverkin, en sem stendur hefur ekki verið gengið frá neinum samningum, þannig að ef ég finn leikkonur hér á landi sem ég tel koma til greina, þá er allt opið hvað það varðar." Stefnt er að því að taka kvik- myndarinnar hefjist næsta sumar, og sagðist Johnston vonast til þess að þær gætu að sem mestu leyti farið fram hér á landi. Fjár- hagsáætlunin hljóðar upp á 6 milljónir dollara, og er þá miðað við að allt gangi að óskum og aðstaða fáist til að fullgera mynd- ina í Svíþjóð eða London. Johnston sagði að um nokkuð margar leiðir væri að ræða varð- andi efnistök sögunnar, en ennþá hefðu ekki verið teknar endanleg- ar ákvarðanir varðandi hvaða leið yrði valin. „Einn helsti styrkur þessa verk- efnis er að þetta verður mikil spennu og ævintýramynd fyrir hinn almenna áhorfanda. Almenn- ingur í Bandaríkjunum til dæmis er líklegur til að fara í kvikmynda- hús og sjá mynd af þessu tagi áður en hann fer að horfa á alvar- lega mynd, sem hefur einhvern þann boðskap að flytja sem hefur varanleg áhrif á líf hans. En þetta verður einmitt kvikmynd sem hef- ur slíkan boðskap, og við vonumst til að hann hafí áhrif á þá áhorf- endur sem koma fyrst og fremst í þeim tilgangi að sjá spennu- mynd. Þannig á ævintýrið í sög- unni að verða miðillinn til að koma hinni mannlegu visku sögunnar til skila. Aðalboðskapur sögunnar eins og hann kemur mér fyrir sjónir er að friður fæst ekki með ofbeldi heldur með sáttum. Ég tel Njál hafa fómað sér vísvitandi, og hann hafi gert sér grein fyrir því að dauði hans þjónaði ákveðn- um tilgangi. Hann kaus að deyja á þann hátt að í því var fólginn ákveðinn boðskapur. Við viljum koma þessum skilaboðum Njáls áleiðis til fleiri. En sem stendur er þetta allt á frumstigi og geysilega mikil skipulagsvinna er framundan. Það á eftir að reyna margt áður en í ljós kemur hvað hentar best. Ætlunin er að fá allt það hæfasta fólk sem mögulegt er á öllum sviðum kvikmyndagerðar til liðs við okkur, þannig að mögulegt verði að gera þessu bókmennta- verki þau skil sem það verðskuld- mollcbœfc hu©e UM HELGINA MILLI KL. 13 OG 17 SYNING Langar þig ekki ígóðan sumarbústað? Svona einn alvöru... Hefurðu hugleitt hvað sumarhúsið getur orðið notalegt í vetrarkyrrðinni líka... Sýnum fullinnréttað frístundahús í Brautarholti laugardag og sunnudag kl. 13 til 17 og aðra daga á verslunartíma. Byggðasafni Þingeyinga er nú komið fyrir á tveim stöðum, á Grenjaðarstað og í Safnahúsinu á Húsavík. Þessi merku söfn eru mik- ið skoðuð af ferðamönnum sem þar 6 ára góð reynsla í íslenskri veðráttu. ELDASKÁLINN Brautarholti 3, 105 R. S 621420

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.