Morgunblaðið - 16.07.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
L/F Föroya
Fiskasöla
fjörutíu ára
Fiskiskip í Þórshöfn,
eftir GuðmundH.
Garðarsson
í dag eru 40 ár liðin frá stofn-
un færeyska fisksölufyrirtækis-
ins L/F Föroya Fiskasöla, í Þórs-
höfn í Færeyjum. Af því tilefni
langar mig til þess að minnast
þessa merka fyrirtækis með
nokkrum orðum hér í Morgun-
blaðinu. Bæði er, að L/F Föröya
Fiskasöla hefur unnið færeysku
þjóðinni ómetanlegt gagn á
fjörutíu ára starfsferli, sem og
að þetta fyrirtæki hefur komið
hvjög við sögu íslenskra fisksölu-
mála síðustu tvo áratugina.
Eins og þeir-vita, sem þekkja til
físksölumála erlendis, hefur verið
mjög náið samstarf milli Fiskasöla
og Coldwater Seafood Corp. (S.H.)
frá 1970 í sölu frystra sjávarafurða
í Bandaríkjunum. í gegnum fyrra
starf og þekkingu á þessu' sam-
•starfi getur höfundur þessarar
greinar fullyrt, að aldrei hefur fall-
ið á það skuggi, og einnig sagt, sem
mest er um vertj að báðir aðilar,
Færeyingar og Islendingar, hafa
talið sig hljóta verulegan efnahags-
og fjárhagslegan ávinning af þessu
samstarfi.
Þá er sá þáttur óupptalinn, og
ekki sá ómerkasti, sem er að með
hinu nána samstarfi L/F Föroya
Fiskasöla og Coldwater Seafood
Corp. (S.H.) hefur verið sannað með
áþreifanlegum hætti, að tvær litlar
norrænar þjóðir geta náð langt í
góðu samstarfi í sölu sjávarafurða
á hinum hörðu samkeppnismörkuð-
um heimsins. Án nokkurs vafa hef-
ur sjálfstætt sölukerfi þessara aðila
skilað íslenskum og færeyskum
fiskframleiðendum mun meira í
aðra hönd en ella hefði verið, ef
sölumálin hefðu alfarið verið í hönd-
um erlendra umboðsfyrirtækja.
Gagnkvæmir hagsmunir
Áður en sögu L/F Föroya Fiska-
söla verður gerð nánari skil, skal
þess þegar getið að helztu hvata-
mennimir að sölusamstarfi íslend-
inga og Færeyinga á bandaríska
markaðnum árið 1970 voru Þor-
steinn Gíslason, þáverandi forstjóri
Coldwater, og Birgir Daníelssen,
forstjóri Fiskasölu. Milli þessara
tveggja manna, sem báðir eru verk-
fræðingar, tókst þegar mikil og góð
samvinna og vinátta, sem var aðil-
um ómetanlegt í upphafi þess mikla
uppgangstímabils í sölu frystra
sjávarafurða í Bandaríkjunum, sem
varð um og eftir 1970 og helst svo
til óslitið fram á þennan áratug.
Eftir að Þorsteinn lét af störfum
hjá Coldwater, tók Magnús Gúst-
afsson við forstjóm fyrirtækisins. f
hans tíð hefur hinn góði samstarfs-
andi haldist og eflst. Þá hefur ríkt
góð samvinna milli Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, eignaraðila
Coldwater, og L/F Fiskasöla. ís-
lenzkir og færeyskir frystihúsa-
menn hafa sótt hverjir aðra heim
og skipzt á skoðunum um það, sem
að gagni mætti verða í vinnslu- og
sölumálum.
Við unifjöllun þessara mála er
rétt að hafa í huga að í árlegri
sölu og framleiðslu frystra sjávaraf-
urða í Færeyjum og á íslandi er
ekki verið að jjalla um nokkrar
milljónir króna, heldur milljarða.
Samstarf L/F Föroya Fiskasöla og
Coldwater Seafood Corp. er því án
efa stærsti samstarfssamningur ís-
lendinga við aðrar þjóðir, sem
sprottinn er upp úr íslenzkum jarð-
vegi. En í þessu samstarfi hafa
Færeyingar og íslendingar ætíð
Stjórnarformaður Aksel Hansen.
Forstjóri Birgir Danielsen
starfað á jafnræðisgrundvelli. Báðir
aðilar hafa setið við sama borð og
notið sömu kjara og sama afrakst-
urs af sölu- og markaðsmálum
Coldwater í réttu hlutfalli við fram-
lag þeirra.
Islendingar geta verið stoltir af
þessu samstarfi við Færeyinga. Það
hefur verið samstarf í reynd við
gott fólk, góða þjóð, sem íslending-
um ber að standa með í hvívetna.
Stofnun — umsvif
L/F Föroya Fiskasöla var stofn-
uð, sem fyrr segir, 16. júlí 1948.
tilgangurinn með stofnun fyrirtæk-
isins var að annast alhliða sölu á
sjávarafurðum frá Færeyjum. í
upphafi seldi Fiskasöla einkum salt-
físk, þurrkaðan og blautfisk. Enn
er saltfiskurinn stór þáttur í fram-
leiðslu sjávarafurða í Færeyjum, en
á síðustu 20 árum hefur mikilvægi
saltfisks farið minnkandi á sama
tíma sem frystingin eykst. Þá hefur
útflutningur fersks fisks, aðallega
lax og silungs, farið vaxandi.
Á síðastliðnu ári var heildarút-
flutningur Færeyinga á sjávarvör-
um um 2.000 milljónir færeyskra
króna, eða um kr. 13.200 milljónir
íslenzkar. Þar af annaðist Fiskasöla
sölu sjávarafurða að andvirði kr.
1500 milljónir færeyskra eða um
kr. 9.900 milljónir íslenskar. Var
þetta a/4 hlutar útfluttra sjávaraf-
urða frá Færeyjum. Segir þetta
nokkuð um stærð fyrirtækisins.
Helztu markaðir Fiskasölu eru í
Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum
en í mynd er sýnd skipting útflutn-
ingsins eftir helztu markaðssvæð-
um árið 1972 og 1987. Af mynd-
inni má m.a lesa, að hlutdeild Evr-
ópubandalagslandanna, en þá eru
meðtalin þau lönd, sem gengið hafa
í EB eftir 1. jan. 1973, hefur auk-
ist úr 48,1% árið 1972 í 59,0% árið
1987. Hlutdeildin í útflutningnum
„Forustumenn Fiska-
sölu hafa verið fram-
sýnir og kjarkmiklir í
því að leita nýrra leiða
í sölu- og markaðsmál-
um fyrir færeyskar
sjávarafurðir. Hafa
þeir skapað sér og fær-
eyskum f iskverkendum
sterkan sess á helstu
fiskmörkuðum heims.“
til Bandaríkjanna er reiknuð 17%
árið 1972 og 16,2% árið 1987.
Framsýni og kjarkur
Fiskasöía hefur mjög fjölbreytt
vöruúrval, s.s. saltfisk, frystan fisk,
frystan humar og rækju, ferskan
fisk, ferskan og frystan lax og sil-
ung.lýsi og fiskimjöl, fóður fyrir
eldisfisk og fleira.
Frá stofnun fyrirtækisins hefur
átt sér stað geysimikil þróun í út-
gerð og fiskvinnslu í Færeyjum. L/F
Föroya Fiskasöla hefur átt mikinn
þátt í þessari jákvæðu þróun en
mikil samræming hefur jafnan ver-
ið í veiðum og vinnslu í Færeyjum.
Forustumenn Fiskasölu hafa ver-
ið framsýnir og kjarkmiklir í því
að leita nýrra leiða í sölu- og mark-
aðsmálum fyrir færeyskar sjávaraf-
urðir. Hafa þeir skapað sér og fær-
eyskum fiskverkendum sterkan
sess á helstu fiskmörkuðum heims.
Gott álit og traust er gulls ígildi í
þessum viðskiptum. Þá hafa þeir
verið ódeigir við að taka áhættu
vegna nýjunga. Má 1 því sambandi
nefna fiskeldi, en í þeim efnum
hafa Færeyingar þegar náð mun
lengra en íslendingar. Fiskeldi er
nú orðin gild búgrein í Færeyjum.
í L/F Föroya Fiskasöla eru nú
um 100 félagsaðilar, þ.e. frystihús,
frystitogarar, saltfiskverkendur,
fiskeldisstöðvar o.fl. Færeysk
frystihús eru vel flest fyrirmyndar-
fyrirtæki, vel útbúin tækjum og
vélum; vinnslusalir nýtískulegir og
aðbúnaður fólks góður. Vöruvönd-
un er mikil og sjávarafurðir frá
Færeyingum eru eftirsóttar á
heimsmörkuðum. Þá eru Færeying-
ar mjög ábyggilegir í viðskiptum.
Töluð orð gilda sem samningur, ef
því er að skipta.
L/F Föroya Fiskasöla hefur ekki
látið staðar numið í öflugri upp-
byggingu sinni í Færeyjum, heldur
hefiir fyrirtækið fært út kvíarnar
erlendis til að styrkja stöðu sína á
helztu mörkuðum. í Bretlandi og
Danmörku rekur Fiskasöla öflug
fiskvinnslu- og sölufyrirtæki, en
þau eru The Faroe Seafood Comp-
any Ltd. í Grimsby og fyrirtækin
Faroe Seafood Danmark og Föroya
Fiskasöla Export Amba í Hirtshals
í Danmörku. Fiskasöla selur sjávar-
afurðir til 25 landa.
í Færeyjum á Föroya Fiskasöla
fyrirtækin P/F Marknaderrökt og
P/F Faroe Seafood Trading Co.
Ltd. Þá á Fiskasöla þriðjung af
hlutabréfum Sjóvinnubankans og
helming hlutabréfa í P/F Föroya
Fiskaiðnað, sem í gegnum félagið
P/F Dagsbrún á 2/a af eignum fiski-
mjölsverksmiðjunnar Havsbrún í
Fuglafirði. Þá hefur fiskasöla tekið
þátt í stofnun fyrirtækja í þriðja
heiminum til að stuðla að þróunar-
verkefnum á sviði útgerðar og fisk-
iðnaðar. Á síðustu árum hefur
Fiskasöla stuðlað að öflugu fiskeldi
í Færeyjum, sem þegar hefur skilað
miklum árangri. Til dæmis má
nefna að fiskimjölsverksmiðjan í
Fuglafirði getur framleitt um
20.000 smálestir á ári af fóðri fyrir
eldisfisk. Þetta nægir til að full-
nægja öllum fiskeldisstöðvunum í
Færeyjum. Af þessu má sjá að víða
kemur Fiskasöla við sögu.
Fiskasöla og Coldwater
í afmælisriti L/F Föroya Fiska-
söla 1948—1988 eftir Jógvan Arge
segir m.a. um samstarf Fiskasölu
og Coldwater:
„Við gerð samstarfssamnings
árið 1970 milli Föroya Fiskasölu
og íslenzka fyrirtækisins Coldwater
Seafood Corp. öðluðust Færeyingar
betri mögleika í sölu fiskafurða á
bandaríska markaðinn.
Fiskasöla hafði áður kannað með
hvaða hætti unnt væri að fá meira
út úr þessum markaði. Niðurstaðan
var samningur við Coldwater, sem
tryggði okkur ekki aðeins meiri
framleiðslu fyrir þennan markað,
heldur einnig meira í aðra hönd.
Samningurinn við Coldwater var
undirritaður 10. nóvember 1970 og
jafnframt var samstarfinu við
bandaríska fyrirtækið O’Donnel
Usen Fisheries sagt upp miðað við
vorið 1971.
Mat Fiskasölu var að Coldwater
væri ■ kröftugri samstarfsaðili, sem
mýndi skila meiru í framtíðinni.
Coldwater hefur sérstaklega góð
sambönd við stórar matvælakeðjur
um öll Bandaríkin. Mikið var selt
af 5 punda fiskflökum, sem fær-