Morgunblaðið - 16.07.1988, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
Þessi stjórnarmaður hefði mjög
ákveðnar skoðanir á því í hvaða röð
skyldi veija fjármunum til endurbóta
á eignum kirkjunnar og kirkjunni
sjálfri. Það, að ráðist var í að mála
og teppaleggja eina hæð í prest-
bústaðnum var ekki borið undir
hann. Það var hins vegar þáverandi
formaður stjórnarinnar, Gísli ísleifs-
son, sem tók ákvörðun um verkið.
Það er því ekki við prestinn að sak-
ast, — ef einhverjar sakir eru.
Af þessu má ráða, að þær sakir
sem meirihluti stjómarinnar ber á
prestinn eru í fyrsta lagi ágreiningur
um tónlistarmál, sem leystur var
eftir að prestinum var sagt upp fyrra
sinnið, og í öðru lagi móðgun í síma-
rifrildi milli fyrrverandi stjómar-
manns og prests út af smáatriðum.
Þá hefur meirihluti stjómarinnar
nefnt að ýmis dæmi hafi verið um
samskiptaörðugleika í skiptum
presthjónanna við húsvörð og organ-
ista. Ekki verður séð að þessir örðug-
leikar hafi verið alvarlegir, — ef
þeir hafa verið fyrir hendi.
Brottrekstur
óréttlætanlegur
Niðurstaða hvers hugsandi manns
hlýtur þvi að vera sú, að engar þær
ávirðingar hafi komið til, a.m.k. að
undanfömu, er réttlæti brottrekstur
prests úr starf, jafnvel þótt svo yrði
litið á að stjómin hefði til þess heim-
ild.
Kjarni málsins er hins vegar sá,
að lagabreyting sú er safnaðar-
stjómin byggir vald sitt á fær ekki
staðist. Stjórnin hefur ekki vald til
þess að reka prest úr embætti, sem
hann hefur verið réttilega kjörinn
til af söfnuðinum.
Í lögum'Safnaðarins er kveðið á
um störf stjórnar. Þar segir að safn-
aðarstjóm annist fjárhagsmál safn-
aðarins og fari með annað er við-
komi rekstri hans. Hún hafí full
umráð allra eigna hans, annist veð-
setningar, lántökur og annað í um-
boði aðalfundar eða annarra lög-
mætra safnaðarfunda. Safnaðar-
stjórnin er því fyrst og síðast sá
aðili sem sér um íjárreiður safnaðar-
ins.
Engin ákvæði eru í lögum um að
safnaðarstjórnin hafi yfir prestinum
að segja, — ef litið er hjá títtnefndri
lagabreytingu.
I lögum safnaðarins segir að
presturinn beri sömu skyldur gagn-
vart söfnuðinum og prestar þjóð-
kirkjunnar. Hann hefur því einnig
hliðstæð réttindi. Vilji hann hætta
ber honum að tilkynna það með 6
mánaða fyrirvara.
Jafnframt segir í lögum safnaðar-
ins, að vilji söfnuðurinn segja presti
upp störfum skuli stjórnin boða til
almenns safnaðarfundar og geta
þess greinilega í fundarboði að upp-
sögn prestsins verði til umræðu. Tii
þess að uppsögn sé lögmæt verða
3/4 fundarmanna að samþykkja
hana. Uppsagnarfresturinn skyldi
þá vera 6 mánuðir en mögulega
styttri með samkomulagi aðila.
Þessu ákvæði telur meirihluti
safnaðarstjómar að hafi verið breytt
með samþykkt fámenns aðalfundar
1981. Það fær ekki staðist af eftir-
greindum ástæðum:
a) Presturinn sækir umboð sitt
til safnaðarins í almennri kosn-
ingu. Hann er ekki ráðinn til
starfa af safnaðarstjóm.
Stjómin hefur því eðli máls
samkvæmt heldur ekki umboð
til þess_ að víkja honum úr
starfi. Akvæði um kosningar
hefði þá lítið gildi ef safnaðar-
stjórnin gæti vikið réttkjömum
presti úr starfi hvenær sem er
að afloknum kosningum.
b) Lög safnaðarins gera ráð fyrir
mjög vandaðri meðferð mála
þegar uppsögn prests er fyrir-
huguð. Breyting laganna í þá
veru að uppsögnin geti orðið
einhvers konar geðþótta-
ákvörðun meiri hluta safnaðar-
stjómar yrði því að sæta sér-
lega vandaðri meðferð, þ.e. að
birta yrði það í fundarboði að
reglum um uppsögn ætti að
breyta, og kreíjast yrði aukins
meirihluta við kosningu. Það
var ekki gert.
c) Engin ákvæði eru um það í
lögunum að hægt sé að beita
tafarlausri brottvikningu.
d) Akvæði um vald safnaðarfund-
ar hefur aldrei verið úr gildi
fellt. Líta verður svo á, ef laga-
breytingin yrði talin hafa öðl-
ast gildi, að hið nýja ákvæði
komi til fyllingar hinu eldra.
Þ.e.a.s. ákvörðun um brott-
vikningu prests verði því að-
eins borin undir safnaðarfund
að aukinn meirihluti stjórnar
sé því sammála.
Framangreind sjónarmið um lög
Fríkirkjusafnaðarins voru á sínum
tíma reifuð þegar lagt var til atlögu
við séra Gunnar 1985, og þau em
enn í fullu gildi. Það var enda niður-
staða talsmanna Prestafélagsins, að
GRILLIIM
sem hafa slegið í gegn
Það er ekki sama hvort þið kaupið járn- eða áigrill.
Gerið verð- og efnissamanburð.
Seljast á meðan birgðir endast
Opið virka daga kl. 10.00-18.00.
Sölusýning laugardag kl. 10-18, Yrtf
sunnudag kl. 13-17.
Skeifan 3G símar 686204 og 686337
brýna nauðsyn bæri til þess að taka
lög safnaðarins til endurskoðunar.
Ólöglegt stjórnarkjör
Loks má benda á, að við stjómar-
kjör í vor beitti núverandi meirihluti
valdi til þess að víkja úr stjórninni
stjómarmanni, sem tekið hafði við
stjórnarsetu sem varamaður stjóm-
armanns er flutt hafði af landinu.
Kjörtímabil þessa manns, sem kjör-
inn var aðalmaður í stjórn, var þijú
ár. A aðalfundi í vor var kjörtímabil-
inu ekki lokið. Skýr ákvæði em um
það í lögum safnaðarins, að „ ...
um kosningu í sætið fer svo sem
staðið hefir á um starfsaldur aðal-
manns, en ekki þess varamanns sem
við störfum tók“. Það var því and-
stætt lögum safnaðarins að kjósa
aðalmann að nýju. Líta verður svo
á að þær ákvarðanir sem teknar
hafa verið með atkvæði þess sem
með ólögmætum hætti var kjörinn
í safnaðarstjómina hafi frá öndverðu
verið markleysa. þannig er um upp-
sögn prestsins.
Af því sem hér er ritað má ráða,
að meirihluti er ekki í stjórninni fyr-
ir brottrekstri prestsins hvað sem
öðm líður. Er þá átt við ólögmæti í
stjórnarkjöri og þá afstöðu stjómar-
formanns að hann telji að falla eigi
frá uppsögninni.
Niðurstaða þessa endemismáls
verður sú, að brotin verður á bak
aftur aðför þessa hóps að séra Gunn-
ari Bjömssyni og Fríkirkjusöfnuðin-
um ef þörf krefur. Heill safnaðarins
er í hættu. Til þess að koma í veg
fyrir að fylkingar myndist frekar en
orðið er, sem leitt gæti til klofnings
safnaðarins, er skorað á meirihluta
stjómarinnar að gaumgæfa hvort
þau rök, sem hér em tíunduð, vegi
ekki þyngra en tilfinningar einstakra
stjórnarmanna. Hvort ekki sé rétt
að láta staðar numið.
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur og lögmaður sr. Gunnars
Björnssonar.
NYR HVITARLAX I
HEILU kr. 425.- pr.kg.
NÝR HVÍTÁRLAX í
SNEIÐUM kr.555-pr.kg.
SVÍNALÆRI/BÓGAR
kr. 395.- pr.kg.
SVÍNAKÓTILETTUR
kr. 780.- pr.kg.
NÝ HAMFLETTUR
LUNDI kr. 69.- pr.stk.
LAMBASVIÐ
kr. 179.- pr.kg.
ÚRBEINAÐUR
HANGIFRAMPARTUR
kr. 599.- pr.kg.
OPIÐ 10 -16 I DAG
VISA
EJ NÓATÚN
NÓATÚNI - HAMRABORG