Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
27
Kubbadýr í Seoul
Formaður suður-kóresku Ólympíunefndarinnar, Park Seh-jik, sést hér
virða fyrir sér furðudýr úr plasti. Danska fyrirtækið LEGO lét búa
til eftirlíkingu af „Madori“, heilladýri Ólympíuleikanna, sem fram eiga
að fara í Seoul síðar á árinu. Alls þurfti um 100.000 LEGO-kubba til
smíðinnar sem tók tvo mánuði.
Umbætur en ekki hrófl-
að við einsflokks-kerfinu
Ungveijaland:
Búdapest. Reuter.
UNGVERSKIR kommúnistar hafa ákveðið að beita róttækum að-
ferðum til að rétta við bágborinn efnahag landsins. Þott einnig
sé áætlað að leyfa að fjölbreyttari pólitískar skoðanir verði viðrað-
ar en áður þá er ekki á döfinni að hrófla við einokunarhlutverki
kommúnistaflokksins; aðrir flokkar fá ekki að starfa. Á fundi
miðstjórnar flokksins á miðvikudag og fimmtudag var samþykkt
að skera niður opinber útgjöld með því að leggja niður óarðbær
fyrirtæki og stuðla að frjálsu framtaki einstaklinga ásamt þyngri
áherslu á markaðsbúskap.
Vestrænn stjórnarerindreki í
landinu er enn þá fullur efasemda.
„Vissulega fitja þeir stöðugt upp
á nýjum hlutum... En þetta eru
aðeins orð. Við skulum bíða og sjá
hvernig framkvæmdin verður.“
Þótt Ungveijar hafi aukið vægi
markaðarins meira en nokkurt
annað Austantjaldsríki hafa hefð-
bundnar aðferðir þeirra til að
vemda vinnustaði gegn lögmálum
markaðarins valdið verðlags-
hækkana, skuldasöfnun og við-
skiptahalla. Enda þótt atvinnuleysi
sé enn lítið miðað við ýmis Vesturl-
önd skal það haft í huga að það
er bannorð í kommúnistaríkjunum;
samkvæmt hugmyndafræðinni
eiga allir rétt á vinnu. Áætlað er
að tala atvinnulausra muni hækka
úr 30 þúsundum upp í 100 þúsund
á næsta ári eða í 2% af vinnufæru
fólki. Erlendar skuldir ríkisins eru
hærri en í nokkru öðru kommún-
istaríki, sé miðað við íbúafjölda,
og verðbólga nálgast 20% á árs-
grundvelli.
Helsti hagfræðingur stjóm-
málaráðs flokksins, Miklos Ne-
meth, segir að hluti einkarekstrar
af heildarframleiðslunni gæti, eftir
efnahagsumbæturnar, farið upp í
30% eða meira en hlutfallið er nú
um 6%. „Við erum að leggja drög
að nýju gildismati en ýmsir þættir
þess eru ekki enn fyllilega ljósir,“
sagði Nemeth á fundi miðstjórnar-
innar. Hann sló því föstu að ekki
væri verið að koma á kapítalisma
en ýmsir draga þá yfirlýsingu í efa.
Samþykktar vom tillögur um
víðtækari réttindi minnihlutahópa
til að láta í ljós skoðanir sínar og
settar skorður við valdníðslu yfir-
valda. Jafnframt var samþykkt að
einsflokkskerfi skyldi vera í
landinu „meðan landið væri á nú-
verandi þróunarstigi.“
Umbótasinninn Gyorgy Fejti
sagði að flokkurinn yrði að horf-
ast í augu við þá staðreynd að
ungversku þjóðfélagi væri ekki
ógnað af skyndilegum uppátækj-
um borgaranna heldur þvert á
mótiskorti á slíku fmmkvæði, ógn-
valdarnir væm aðgerðaleysi og
áhugaleysi.
„Það sem við væntum af nýju
lögunum er að borgaranir verði
sjálfstæðari, fmmkvæði í þjóð-
félaginu komi frá grasrótinni,
fijálsar umræður eigi sér stað um
ólíka hagsmuni og skoðanir og
almenningur verði virkari í um-
ræðunni," sagði Fejti á fuittíi mið-
stjómarinnar.
Sök Bandaríkjamanna
og f lotinn á Persaflóa
UMRÆÐUR um árás bandaríska flotans á íronsku farþegaþotuna
yfir Persaflóa þann þriðja þessa mánaðar hafa orðið miklar. Málið
®r nú til meðferðar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. í bandariska
vikuritið Time ritaði Walter Shapiro blaðamaður um hlut Bandaríkja-
manna að árásinni og breska vikuritið The Economist tók afstöðu
til umsvifa bandaríska flotans í forystugrein. Birtast þessi sjónar-
mið hér en þau gefa nokkra mynd af því, á hve ólíkan hátt menn
hafa fjallað um hinn hörmulega atburð.
í forystugrein The Economist
segir: „Kvöld eitt fyrir 14 mánuðum
hikaði Glenn Brindel, skipherra frei-
gátunnar Stark. Þar urðu honum á
mistökuraska flugvélin sem nálgað-
ist skaut flugskeyti að bandaríska
herskipinu og felldi 37 úr áhöfn
skipstjórans. Við nánast sömu að-
stæður ákvað Will Rogers, skip-
herra beitiskipsins Vincennes, að
hleypa af. Aftur reyndust mistök
hafa átt sér stað. I þetta skiptið
var flugvélin sem nálgaðist írönsk
farþegaþota. Allir þeir. sem um borð
voru, 290 manns, týndu lífi.
Óbreyttur borgari sem hugleiðir
málið í hægindastólnum heima í
stofu kemst að þeirri riiðurstöðu að
harmleikurinn yfir Hormuz-sundi
sé öldungis óréttlætanlegur. Það
skiptir engu þótt skipherrann hafi
verið óttasleginn; erlent herskip á
ekki að granda farþegaþotu
skammt undan strönd heimalands-
ins á alþjóðlegri flugleið. Þrátt fyr-
ir þetta var ákvörðun skipherrans
rökrétt þegar tekið er tillit til að-
stæðna við Persaflóa; þessa ófull-
komna afkima meingallaðrar ver-
aldar. Vilji lesandinn glöggva sig á
því hvers vegna, ætti sá hinn sami
að setja sig í spor skipstjórans og
ímynda sér að hann sé í stjórnstöð
Vincennes þessar örlagaríku sek-
úndur sunnudaginn þriðja júlí.
Aðeins gefst um 400 sekúndna
ráðrúm frá því flugvélin kemur
fram á ratsjá þar til skera þarf úr
um hvort hún hyggist granda þér.
Gerir þú ekkert, hættir þú bæði
skipi þínu og áhöfn eða áhöfnum
annarra bandarískra herskipa, sem
þér hefur verið falið að veija. Hugs-
aðu til árásarinnar á Stark eða log-
andi breskra herskipa við Falk-
landseyjar og leggðu mat á sönnun-
argögnin. Flugvélin hóf sig á loft
frá einni helstu herstöð írana
skömmu eftir að herskip þitt hafði
átt í bardaga við íranska fallbyssu-
báta. Flugvélin sem nálgast þig á
fullri ferð hefur sjö sinnum hundsað
aðvaranir áhafnar þinnar bæði á
neyðarrásum fyrir borgaralega og
hernaðarlega flugumferð. Aðeins
fábjáni eða dýrlingur gæti fyrirskip-
að að ekki skyldi hleypt af við þess-
ar aðstæður. Þess -er krafist af
bandarískum skipstjórum að þeir
séu hvorugt.
Hver getur svarað til saka ef
ekki er unnt að áfellast skipstjór-
ann? Við skulum leiða hjá okkur
ruglingslegar tilraunir manna til að
rekja orsakirnar til bilunar í ratsjár-
búnaði eða klúðurslegra starfsað-
ferða áhafnar Vincennes. Vissulega
fór eitthvað úrskeiðis þó svo kunni
að fara að einstök atriði verði aldr-
ei skýrð til fullnustu nema íranir
finni „svarta kassann" og leyfi er-
lendum sérfræðingum að rannsaka
hann. Þó svo fari mun ein óvefengj-
anleg staðreynd standa óhögguð.
Allt þar til Guð eða bandaríska
varnarmálaráðuneytið uppgötvar
ratsjárkerfi, sem upprætir alla
óvissu í alheiminum, verða hermenn
af og til að taka ákvarðanir sem
varða líf og dauða á grundvelli ófull-
nægjandi upplýsinga. Af og til
munu þeim verða á mistök.
Þessi mistök voru réttlætanleg í
ljósi aðstæðna. Voru aðstæðurnar
réttlætanlegar? Hefðu þær verið
aðrar - ef Vincennes hefði t.a.m.
verið á Gíbraltar-sundi en ekki
Hormuz-sundi - hefði Rogers aldrei
gefið skipun um árás. Því verður
að leggja mat á þennan harmleik í
ljósi raunverulegra orsaka hans:
ástandsins á Persaflóa undanfarið
ár þar sem stríð milli Bandaríkja-
manna og írana hefur hvað eftir
annað virst yfírvofandi og þeirra
hárfínu reglna um afskipti herafl-
ans sem mótast hafa af þessum
aðstæðum. Sökum þessa gat skyn-
samur skipstjóri ekki komist að
annarri niðurstöðu en þeirri að flug-
skeytinu skyldi skotið gegn flugvél-
inni.
Það er eðlilegt að Bandaríkja-
menn fyllist hryllingi vegna þessa
atburðar, sem kostaði 290 manns
lífíð og spyiji hvort vera flotans á
Persaflóa sé á einhvern hátt rétt-
lætanleg. Sú staðreynd að Sovét-
menn gerðu hvað þeir gátu til að
sýna engin merki hryggðar eða eft-
irsjár eftir að þeir höfðu grandað
kóreönsku farþegaþotunni árið
1983 varð þess valdaridi að at-
burðurinn varð enn viðurstyggilegyi
fyrir bragðið. Þótt Sovétmönnum
hafí verið fullkunnugt um að þotan
var á ekki á flugi yfír átakasvæði
og ógnaði hvorki lífi né limum
óbreyttra borgara breytti það engu
um afstöðu þeirra. En Bandaríkja-
menn þurfa að taka afstöðu til enn-
þá erfiðari spurningar. Ber að halda
flotaverndinni á Persaflóa áfram
ef annar hörmúngaratburður siglir
í kjölfar þessa annaðhvort fyrir
mistök eða sökum hefndaraðgerða
írana; t.a.m. ef árásin á Stark end-
urtekur sig og Bandaríkjamenn en
ekki íranar þurfa að leita líkams-
leifa fómarlambanna?
Ástandið hefur batnað
Svarið við þessari spurningu ei
það að floti Bandaríkjanna og her-
skip þeirra Evrópuríkja, sem senc
hafa verið á þessar slóðir, verða
áfram að halda uppi vernd á Persa-
flóa þótt því fylgi mikil áhætta.
Þegar olíuskip Kuwait-búa sigldu i
fyrsta skipti undir bandarískum
1 The rioi'DMiMuii'iu nuoom
FIAT VERSUS V0LKSWAGEN
Fconomkr THE C0ST OF GRANNY POWER ***
v^ vx X X VX X X X X v3 V- Ium tu< A TRUE COMMGN MARKET? A survey of Eurdpe’s 1992
Forsíða breska vikuritsins The Economist.
fána inn á Persaflóa fyrir ári hót-
uðu íranar öllu illu. Engu að síður
var rétt að taka áhættuna. Hvort
sem mönnum líkar það betur eða
verr er rúman helming olíuauðlinda
jarðar að fínna á þessum slóðum.
Stór hluti þeirra tilheyrir vanmátt-
ugum eyðimerkurríkjum, sem á
síðasta ári töldu ástæðu til að ótt-
ast um öryggi sitt vegna hins enda-
lausa stríðs Ayatollahs Khomeinis
og íraka. Það var nokkuð sem ríki
Vesturlanda urðu að koma í veg
fyrir þá og geta ekki liðið nú.
Til allrar hamingju er hættan
ekki söm og áður. Að undanförnu
hefur hallað á írana í Persaflóa-
stríðinu í fyrsta skipti frá árinu
1982. Hin óhugnanlega árás á far-
þegaþotuna verður til þess að draga
enn frekar úr baráttuþreki þeirra.
Arabaríkin við Persaflóa - einkum
Saudi-Arabar og Kuwait-búar -
hafa að undanförnu sýnt aukið
sjálfstraust gagnvart hótunum ír-
ana. Að baki þessarar þróunar
•>ggja ýmsar ástæður og margar
þeirra eru með öllu ótengdar ríkjum
Vesturlanda: stríðsþreyta í íran og
gífurleg reiði í arabaheiminum
vegna óeirðanna, sem íranskir
pílagrímar æstu til í Mekka á
síðasta ári og lauk með allsheijar
blóðbaði. En flotavemd vestrænna
ríkja hefur skipt sköpum. Sökum
hennar hefur írönum gengið erfið-
lega að halda uppi árásum á skip
hlutlausra ríkja og umfram allt
hefur tekist að draga úr áhrifa-
mætti hótana Ayatollahs Khomein-
is. Ef hörfað yrði nú væri það víta-
vert veikleikamerki."