Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 Engin afskipti fjármálaráðuneyt- is af gerð þjóðhagsáætlunar eftir Bolla Þór Bollason Undanfama daga hefur nýgerð þjóðhagsspá mikið verið í fréttum. . Það er út af fyrir sig mjög eðli- legt. Hitt sætir meiri tíðindum, að umræðan hefur að þessu sinni ekki eingöngu snúist um innihaldið, heldur jafnmikið og jafnvel meira um aðdragandann að birtingunni. Jafnvel þetta væri út af fyrir sig ekkert óeðlilegt, ef rétt væri farið með staðreyndir. Svo hefur því miður ekki verið, langt því frá, þar sem umfjöllunin um þennan þátt hefur bæði verið ákaflega villandi og oftast beinlínis röng. Þar sem bæði ég og mínir starfsfélagar hafa beint eða óbeint verið dregnir inn í þessa umræðu fínnst mér óhjákvæmilegt að koma á fram- færi nokkmm athugasemdum. Upphaf þessa máls, alla vega í fjölmiðlum, er lítil og sakleysisleg klausa aftan á DV síðastliðinn mánudag, þar sem það er nefnt svona rétt í framhjáhlaupi, að fjár- málaráðuneytið hafí viljað endur- skoða spá þjóðhagsstofnunarinnar um viðskiptahallann. Ekki var meira gert úr þessu þennan dag- inn. Fréttatilbúningnr En næsta dag kom stóra bomb- an. í fimm dálka fyrirsögn yfir þvera forsíðuna á DV var þjóð- hagsspáin komin á einn allsheijar þvæling um kerfið og fjármála- ráðuneytið farið að ráðskast með einstakar tölur úr spánni. Gott ef ekki farin að ásælast sjálfan grip- inn úr höndum Þjóðhagsstofnunar. En þar með var sagan ekki öll sögð. Því að á miðvikudeginum reið sjálfur spariritstjóri DV fram á völlinn í þrumuleiðara og dró þar upp heldur ófagra mynd af með- ferðinni á blessaðri þjóðhags- spánni. Hálfgerð . hryllingsmynd, þar sem skúrkarnir í fjármálaráðu- neytinu'. léku vondu mennina. Við vorum sökuð um að hafa tafið birt- ingu á spánni um hartnær viku, á meðan við reyndum að neyða sjálf- stæða og óháða stofnun til þess að skipta um skoðun. Lýsingin er svo átakanleg, að maður hálflam- aðist. Enda ritstjórinn lipur penni. Fyrir okkur sakleysingjana, sem ekki kunnum nægilega vel á æsi- fl-éttamennsku, kom þessi trílógía satt að segja gjörsamlega í opna skjöldu. Maður var hreinlega alveg gáttaður á þessari efnismeðferð. Eru virkilega engin takmörk fyrir því, hvernig fréttir eru búnar til? Því hveijar skyldu nú vera stað- reyndimar í þessu máli? Ekki að maður búist svo sem við því, að það verði nokkurn tíma hægt að leiðrétta svona fréttatilbúning. Þar gildir því miður sú almenna regla, að það situr eftir sem fyrst er birt. Það er erfíðara að koma leiðrétt- ingum á framfæri. Ég vil hins veg- ar alls ekki sitja undir þeim aðdr- óttunum, sem koma fram í þessum fréttaflutningi. Engin afskipti Sannleikurinn er nefnilega sá, að hvorki ég né kollegar mínir hér í ráðuneytinu hafa á nokkurn hátt reynt að hafa áhrif á innihald þjóð- hagsspárinnar hvað þá heldur að koma í veg fyrir eða teija birtingu hennar. Þetta er svo fráleit hug- mynd, að ég skil ekki, hvemig nokkmm heilvita manni getur dot- tið þetta í hug. Ég hafði sjálfur unnið á Þjóðhagsstofnun í 15 ár, áður en ég hóf störf í fjármálaráðu- neytinu, og þekki það vel til fyrmm starfsfélaga minna þar á bSe, að svona vinnubrögð væm fyrir neðan öll velsæmismörk. Hitt er annað mál, að sem betur fer þá er ástandið ekki svo slæmt, að menn séu hættir að tala saman. Til dæmis líður varla sá dagur, að við hér í fjármálaráðuneytinu ræð- um ekki við kollega okkar á Þjóð- hagsstofnun, eða í Seðlabanka og á Hagstofunni. Jafnvel eigum við það til að slá á þráðinn inn á Al- þýðusamband eða Vinnueitenda- samband. Það er nefnilega þannig, að menn gera talsvert af því að bera sig saman um hlutina. Tala saman. Þetta á alveg sérstaklega við, þegar verið er að setja saman þjóðhagsspá. Þá leita menn víða fanga. Þar með er ekki sagt, að allir þessir aðilar séu með puttana ofan í sjálfri spánni. Eða séu endi- lega sammála öllum niðurstöðun- um. Sem betur fer hafa menn enn- þá leyfi til þess að hafa mismun- andi skoðanir á flestum hlutum. enda held ég, að aukin skoðana- skipti um efnahagsmál hljóti að Við vorum sökuð um að hafa tafið birtingn á spánni um hartnær viku, á meðan við reyndum að neyða sjálfstæða og óháða stofnun til þess að skipta um skoðun. leiða til þess, að fyrirbæri eins og þjóðhagsspár verði betri. Betur sjá augu en auga Fyrir nokkrum árum var ástand- ið þannig, að Þjóðhagsstofnun var því sem næst einráð á þessum markaði. Hún gerði allar verðlags- spár, allar launaspár, allar þjóð- hagsspár. Nánast allar spár, nema ef vera skyldi veðurspá. Þetta er hins vegar liðin tíð. Til dæmis eru verðlagsspár gerðar út um allan bæ. Um þetta er ekkert nema gott að segja. Samkeppni er af hinu góða á þessu sviði eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Það sama hlýtur auðvitað að gilda um þjóð- hagsspá. Heilbrigð skoðanaskipti eiga hins vegar ekkert skylt við allt að því pólitíska íhlutun í starfsemi sjálfstæðrar og óháðrar stofnunar eins og Þjóðhagsstofnunar. Þessu mega menn ekki rugla saman. Jafnvel ekki í miðri gúrkutíð. Það ætti kannski að gilda það sama um dagblöð og agúrkur, að þegar Bolli Þór Bollason. þau seljast ekki nógu vel mætti reyna að lækka söluverðið. Ráða- menn á DV ættu kannski að velta því fyrir sér, hvort markaðslögmál- in eigi ekki jafnvel við dagblöð og landbúnaðarvörur. Höfundur er skrifstofustjóri hag- deildar fjármálráðuneytisins. A Félag Islendinga á Norðurlöndum: Oánægja með Flugleiðir Samstarfs við önnur flugfélög um leiguflug leitað FÉLAG íslendinga á Norðurl- öndum leitar nú nýrra sam- starfsaðila um flug milli Islands og hinna Norðurlandanna. Und- anfarin ár hefur félagið haft samstarf við Flugleiðir, en kurr er í félagsmönnum vegna hárra fargjalda, að þeirra mati, og því hefur stjórn félagsins verið falið að leita samstarfs um leiguflug við aðra. Þetta kom fram í sam- tali við Harald Ólafsson, form- ann félagsins, sem er nú staddur hér á landi í þessum erindagjörð- um. Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir flugfélögin þar sem félagið semur um nálægt 5000 sæti milli íslands og hinna Norðurland- anna á hveiju ári. Að félaginu standa hin ýmsu félagasamtök íslendinga, sem búsettir eru á hinum Norðurlöndunum, og eru meðlimir um 9000 talsins. Frá upphafi hefur eitt af megin- markmiðum þess verið að fá hagstæð flugfargjöld fyrir fé- lagsmenn. „Eitt af helstu verkefnum félags- ins er að semja um sem hagstæð- Morgunblaðið/Júlíus Haraldur Ólafsson, formaður Félags íslendinga á Norðurlönd- um. ust fargjöld fyrir félagsmenn sína milli íslands og hinna Norðurland- anna. Undanfarin ár höfum við ein- ungis átt viðskipti við Flugleiðir en á aðalfundi félagsins í mars kom upp óánægja með það samstarf. Mörgum þykja fargjöld Flugleiða dýr og að þeim hætti við að líta á farþega, sem kaupa fargjöld í gegnum okkur, sem annars flokks uppfyllingarfarþega," sagði Har- aldur. „I framhaldi af því var stjóminni falið að vinna markvisst að því að finna samstarfsaðila á íslandi um leiguflug til helstu áætl- unarstaða á hinum Norðurlöndun- um bæði með langtíma og skammtíma sjónarmið í huga,“ bætti hann við. Haraldur sagði að þeir hefðu verið að þreifa fyrir sér hjá öðrum flugfélögum bæði hér innanlands og á hinum Norðurlöndunum og leitað að samstarfsaðilum um leigu- flug. Sagði hann að undirtektimar hafí verið jákvæðari en þeir áttu von á. Ekki vildi hann gefa upp hvaða flugfélög er um að ræða. „Okkur virðist sem ríki dálítill pirringur hér heima, ekki síður en úti, með einokun Flugleiða á þess- um flugleiðum," sagði Haraldur að lokum. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 15. júii. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 44,00 30,00 39,34 13,805 544.896 Ýsa 87,00 35,00 75,32 3,575 269.350 Ufsi 15,00 14,50 14,94 8,317 124.229 Karfi 21,00 12,50 18,00 18,493 332.902 Steinbítur 26,00 17,00 23,99 0,492 11.815 Koli 25,00 25,00 25,00 0,969 24.225 Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,108 4.320 Langa 21,00 15,00 20,14 0,775 15.618 Lúða 120,00 110,00 118,00 0,262 31.000 Samtals 29,00 46,844 1.358.355 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Selt var aðallega úr Hamrasvani SH og Eini GK. Nk. mánudag verða m.a. seld 90 tonn af þorski og 30 tonn af ýsu úr Otri HF, 11 tonn af blönduöum afla úr Fróða SH, 20 tonn af karfa úr Saxhamri SH og 10 tonn af karfa og 2 tonn af blönduðum afla úr Tjaldi SH. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 52,00 34,00 45,16 3,812 172.142 Ýsa 56,50 50,50 52,04 1,521 79.152 Ufsí 11,00 8,00 10,92 3,231 35.298 Karfi 20,00 14,00 15,53 8,185 127.136 Steinbítur 23,50 20,50 21,35 3,670 78.368 Lúða 156,00 103,00 114,39 1,342 153.515 Langa 21,50 20,50 20,92 0,775 16.213 Langlúra 15,00 15,00 15,00 0,213 3.195 Sólkoli 45,00 44,00 44,54 0,968 43.110 Skarkoli 45,50 40,00 -12,48 0,580 24.636 Öfugkjafta 15,00 13,00 13,29 1,579 20.985 Skata 40,00 40,00 40,00 0,043 1.720 Skötuselur 170,00 46,00 152,13 0,276 41.989 Samtals 30,44 26,195 797.459 Selt var aöallega úr Eldeyjar-Boöa GK. Nk. mánudag verða m.a. seld 70 tonn af þorski, ýsu og fleiri tegundum úr Sigurði Þorskur 39,00 13,00 36,52 19,096 697.467 Ýsa 72,00 10,00 41,15 0,913 37.569 Karfi 17,00 17,00 17,00 0,310 5.270 Ufsi 17,00 8,00 14,95 14,156 211.653 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,356 5.340 Hlýri 10,00 10,00 10,00 1,571 15.710 Skarkoli 40,00 39,00 39,44 0,216 8.518 Lúða 100,00 100,00 100,00 0,326 32.600 Samtals 27,45 36,944 1.014.127 Selt var úr Þrymi BA og Runólfi SH. Nk. mánudag verða m.a. seld 150 tonn af karfa, 50 tonn af ufsa og 10 tonn af þorski úr Viöey RE. FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA hf. Þorleifssyni GK og nk. þriöjudag verða m.a. seld 130 tonn af blönduöum afla úr Aöalvik KE. SKIPASÖLUR í Bretlandi 11. 7.-15.7 > Þorskur 93,77 147,270 13.809.615 Ýsa 97,36 66,120 6.437.180 Ufsi 35,70 18,200 649.653 Karfi 53,34 4,000 213.379 Koli 107,28 0,135 14.482 Blandað 113,85 6,035 687.075 Samtals 90,22 241,760 21.811.384 Þorskur 43,00 42,00 42,64 0,671 28.614 Ufsi 27,50 27,50 27,50 2,625 72.188 Karfi 26,80 -18,00 21,79 9,000 196.136 Langa 30,00 28,50 29,61 2,359 69.855 Steinbítur 23,00 18,50 21,53 1,177 25.343 Skötuselur 105,00 105,00 105,00 0,274 28.770 Samtals 26,13 16,106 420.906 Seld voru 101,155 tonn úr Náttfara RE í Hull sl. mánudag fyrir 9.142.142 krónur eða 90,38 króna meöalverö og 140,605 tonn úr Sólbergi ÓF í Grimsby sl. miövikudag fyrir 12.669.242 krón- ur eða 90,11 króna meöalverö. GÁMASÖLUR í Bretlandi 11.7.-15.7. Selt var úr Frá VE, Suðurey VE, Erlingi VE, Skúla fógeta VE og Sigurbjörgu VE. Nk. mánudag verður a.m.k. selt úr Bjarnar- ey VE. Þorskur 89,86 422,300 37.946.093 Ýsa 80,30 230,210 18.485.380 Ufsi 43,33 7,840 339.716 Karfi 51,72 9,265 479.190 Koli 86,45 54,340 4.697.514 Grálúða 67,50 19,680 1.328.486 Blandaö 110,00 56,529 6.218.351 Samtals 86,85 800,164 69.494.731 GENGISSKRÁIMING Nr. 132. 15. júlí 1988 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala g»ngl Dollari 46,24000 46,36000 45,43000 Sterlp. 77,90500 78,10700 78,30300 Kan. doliari 08,29200 38,39200 37,66800 Dönsk kr. 6,54120 6,55820 6,64520 Norsk kr. 6,85700 6,87480 6,94490 Saensk kr. 7,25790 7,27670 7,31560 Fi. mark 10,51990 10,54720 10,61700 Fr. franki 7,40370 7,42290 7,48130 Belg. franki • 1,19160 1,19470 1,20460 Sv. franki 30,10420 30,18230 30,48990 Holl. gyllini 22,12700 22,18450 22,38480 V-þ. mark 24,94130 25,00610 25,23610 l't. líra 0,03367 0,03376 0,03399 Austurr. sch. 3,64560 3,55480 3,58560 Port. escudo 0,30670 0,30750 0,30920 Sp. peseti 0,37540 0,37640 0,38140 Jap. yen 0,34585 0,34675 0,34905 (rskt pund 66,92300 67,09700 67,80400 SDR (Sérst.) 60,10460 60,26060 60,11570 ECU, evr. m. 51,81190 51,94640 52,33990 Tollgengi fyrir júlí er sölugengi 28. júni Sjálfvirkur 62 32 70. símsvari gengisskráningar er

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.