Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 I 5 l ) Minning: Ragnar Ketilsson, VíkíMýrdal Fæddur 4. apríl 1899 Dáinn 5. júlí 1988 Afi okkar, Ragnar Ketilsson, fæddist á Ketilsstöðum í Mýrdal 4. apríl 1899 og var hann á nítugasta aldursári þegar hann lést, 5. júlí sl. Við eigum margar góðar minn- ingar um afa og erum mjög þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast honum svona náið, þegar við vorum að alast upp. Oft svæfði hann okk- ur á kvöldin og kenndi okkur margt frá því í gamla daga. Margar ferðir fórum við með honum í fjárhúsið á Borgarhólnum og lærðum að umgangast kindumar og þekkja þær með nöfnum. Við hjálpuðum honum við heyskapinn og smalamennskuna, og þeim mun meira eftir því sem við urðum eldri. Afi hafði alltaf mikinn áhuga á kindum alla sína tíð, enda hugsaði hann um kindur alveg frá 12 ára aldri og fram á síðasta dag. Afí bjó hér í Vík í tæp 70 ár, og þekkti því vel öll ömefni og kennileiti hér um slóðir. Hann var mjög duglegur að ganga og var hann t.d. göngustjóri hér í Vík á „Göngudegi fjölskyldunnar“ 25. júní sl. Við viljum þakka afa fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og allt sem hann gerði fyrir okkur.. Blessuð sé minning hans. Helgi, Linda, Asa, Ragnar. Þegar við minnumst Ragnars Ketilssonar leitar hugurinn til bemsku- og æskuáranna í Suðurvík í Mýrdal. Það var mikils virði að alast upp á því mannmarga heim- ili. Þar áttum við vini meðal heima- fólks og bil milli kynslóða þekktist ekki. Samfylgd þessa fólks á æsku- árum okkar var dýrmætt veganesti. Einn þessara vina var Ragnar, en hann var á heimilinu frá því að við fyrst munum eftir okkur. Þang- að mun hann hafa komið árið 1920. Ragnar fæddist á Ketilstöðum í Myrdal þann 4. apríl 1899. Foreldr- ar hans vom hjónin Ketill Ketilsson og Amfríður Bjömsdóttir. Hann ólst upp í foreldrahúsum, einn af sex systkinum. Elstur var hálf- bróðirinn Björn, sonur Ketils og fyrri konu hans, Ragnhildar, Næst- ur var Ragnar, þá Þorbjörg hjúkr- unarkana. Þau em öll látin. A lífi em Sigurfinnur bóndi á Dyrhólum, Brynheiður húsmóðir í Vestmanna- eyjum og Ingólfur bóndi á Ketils- stöðum. Tólf ára gamall fór Ragnar að Höfðabrekku til Lofts Jónssonar og var þar smaladrengur í þrjú sumur og tvö ár sem vetrarmaður. Eins og fyrr getur kom Ragnar að Suður-Vík árið 1920. Hann var það óslitið í fjörutíu og fímm ár, eða þar til frændi okkar, Jón Hall- dórsson, lést. Það var mikið lán fyrir heimilið að verða aðnjótandi ævistarfs Ragnars. Öll sín störf vann Ragnar af ein- stakri alúð og trúmennsku. Ráðs- maður var hann í ijöldamörg ár og ríkti gagnkvæmt traust og virðing á milli hans og frænda okkar. Ragn- ar var með eindæmum §árglöggur maður og natinn við sauðfé, svo af bar. Það var bæði hollt og þrosk- andi fyrir æskufólk að vera í návist hans er hann var að störfum. Þáttaskil urðu í lífí Ragnars haustið 1939, en þá kom að Suður- Vík ung og glæsileg stúlka, Guðríð- ur Salómonsdóttir, en þau felldu fljótt hugi saman. Fyrstu búskapar- ár sín voru þau í Suður-Vík en haustið 1946 stofnuðu þau sitt eig- ið heimili. Eignuðust þau þijú börn, Sigurður Gunnlaugs- son — Kveðjuorð en þau eru: Kristín Sigrún, gift Bimi Hallmundi Siguijónssyni, úti- bússtjóra í Vík, Karl Friðrik tré- smiður, kvæntur Guðnýju Helga- dóttur kennara í Vík og Jón Þór bifvélavirki, kvæntur Rúnu Jóns- dóttur í Reykjavík. Bamabömin eru níu. Ragnar var myndarlegur maður og mikið snyrtimenni. Greindur var hann og dagfarsprúður. í daglegri umgengni var hann alvörugefínn en gmnnt var á góðri kímnigáfu í vinahópi. Hann var einkar heima- kær og nægjusamur. Þrátt fyrir hrakandi heilsu á síðustu ámm sinnti Ragnar, sem fyrr, sínum fjárbúskap, oft með dyggri aðstoð eiginkonu og bama- bama. Það er táknrænt fyrir ævi- starf Ragnars, að hann kvaddi þennan heim að afloknu dagsverki viðheyskap. A þessum árstíma, eins og við minnumst hans, var túnið í Suður- Vík iðandi af lífi, þar sem fólk var við heyskap undir stjóm Ragnars. í kirkjugarðinum, á miðju túninu, hvfla nú margir þeir er við minn- umst frá þessum dögum. Þar verð- ur Ragnar lagður til hinstu hvíldar í dag. Við minnumst Ragnars Ketils- sonar með þakklæti. Astvinum hans vottum við okkar dýpstu samúð. Matthildur, Ólöf og Sigríður. Fæddur 8. maí 1912 Dáinn 6. júli 1988 Mig langar að minnast með ör- fáum orðum vinar eða Sigga afa eins og dóttir mín kallaði hann. Síðastliðinn vetur fór hann að finna fyrir þeim illkynja sjúkdómi sem svo margur maðurinn hefur farið hall- oka fyrir. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Sigga fyrir um 2 vikum. Hann var þá orðinn mjög veikburða, en hugs- un hans svo skýr og minnið eftir því. Það er ekki nema ár síðan við hittumst síðast, þegar ég kom suður til að eiga yngstu dóttur mína. Þá gat nú enginn ímyndað sér að svo stutt væri eftir. Þá var Siggi sjálf- um sér samkvæmur, svo traustur og góður og tilbúinn að rétta fram hjálparhönd, því engin fyrirhöfn var honum of mikil ef gera þurfti vinum greiða. Ekkert var fjær honum en að sitja aðgerðalaust með hendur í skauti. Hann var sístarfandi, ef ekki við vinnu sína sem var mjög krefjandi og vinnutíminn oft lang- ur, en hann rak ásamt konu sinni, Ráðhildi, syni og tengdadóttur fyr- irtæki, þá var hann að vinna í garð- inum þeirra í Hlíðarhvamminum. Þar liggja nú ófá verk eftir hann og ber garðurinn þess glöggt merki að hlúð hafi verið að honum af alúð. Já, garðurinn og húsið þeirra í Hlíðarhvamminum, sem þau byggðu fyrir um 35 árum, var hans líf og yndi. Einhvem veginn þá hugsaði ég aldrei til Sigga sem eldri manns, þó kominn væri hátt á átt- ræðisaldur. Miklu heldur sem manns með fulla orku og starfs- krafta, eins og ungur maður væri. Og ekki að undra, eins unglegur og hann var bæði í útliti og verki. Örlögin höguðu því þaniiig til að ég naut þeirrar gæfu að dvelja hjá Sigga og Ráðu af og til á mínum uppvaxtarárum, og minnist ég þeirra ára með mikilli ánægju, og er mjög þakklát fyrir þá umhyggju og þann hlýhug sem ég hef notið frá þeim hjónum í gegnum árin. Nú þegar Siggi er horfinn af sjónar- sviði þessa heims og finnst okkur við hafa misst stóran og sterkan homstein úr Qölskyldunni. Og mik- ill er missir þinn, elsku Ráða frænka, og Gígja, Diddi, Bjami og fjölskylda ykkar. Við treystum öll á aðra tilveru og erum þess fullviss að einhvem tímann hittast allir um síðir. Að lokum viljum við þakka fyrir þá gæfu að hafa átt slíkan vin og afa. Við biðjum honum Guðs blessun- ar á nýjum leiðum. Kristín Kjartansdóttir og fjölskylda, Þórshöfn. Dómnefndarálit um lektors : stöðu í stjórnmálafræði i endahegðun í Bretlandi, sbr. bls. 34-37 og aðrar frá Noregi og Svíþjóð, sbr. 40-41. Þessar töflur vekja ýmsar spumingar um það að hve miklu leyti þær séu sambæri- legar og er þá aftur komið að þeim vanda sem fylgir slíkum saman- burði milli landa. Ekki verður séð að höfundur reyni að samræma ^ slíkar upplýsjngar eða hafi nægi- i lega fyrirvara þar að lútandi. í §órða kafla rekur umsælq'aridi helstu niðurstöður, en heldur er sá | kafli í rýrara lagi. Loks fylgja ítarlegar tilvísanir og 1 vönduð heimildaskrá. (' í heild má þó segja að höfundi takist að gera mjög flóknu og erf- f iðu viðfangsefni á sviði saman- burðarstjómmála viðunandi skil. Electoral Volatility. Ritgerð þessi var skrifuð fyrir ráðstefnu stjómmálafræðinga í Vestur-Evr- ópu 1981 (18 bls.). Athugaðar eru fylgissveiflur á milli flokka á ís- landi 1942-1979 og þær útskýrðar i að svo miklu leyti sem hægt er án •S fræðilegra kannana á viðhorfum og hegðun kjósenda en engar slíkar ' kannanir höfðu þá verið gerðar hér á landi. Ritgerðin sýnir traust tök á viðfangsefninu og fæmi í meðferð gagna. Umsækjandi gerði 1983 fyrstu fræðilegu rannsóknina á hegðun og viðhorfum íslenskra kjósenda, en slíkar rannsóknir hafa verið mjög veigamikill þáttur í stjómmála- fræðirannsóknum á Vesturlöndum á síðustu áratugum og þylqa m.a. ómissandi í fræðilegri umfjöllun um lýðræði. íslenskir kjósendur, 1003 talsins, svöruðu margvíslegum spumingum um viðhorf sín til stjómmála, stjómmálaflokka og um stjómmálahegðun sína. Eftir kosn- ingar 1987 stýrði umsækjandi ann- arri rannsókn af svipuðu tagi; er þar með orðið til gagnasafn sem veitir möguleika á margvíslegum langtímasamanburði á viðhorfum og kosningahegðun íslenskra kjós- enda. Þessar tvær kannanir eru fyliilega sambærilegar að gæðum við kannanir sem gerðar hafa verið af stjómmálafræðingum annars staðar á Vesturlöndum. Þar eru slíkar fræðilegar kannanir yfírleitt framkvæmdar á vegum háskóla- deilda eða stofnana. Umsækjandi stóð fyrir og stýrði hinsvegar einn öllum þáttum þessara rannsókna: mótun fræðilegrar undirstöðu, hönnun spumingalista, framkvæmd könnunarinnar, flokkun upplýsinga. Nokkur verk sem byggja á þessum viðamiklu rannsóknum em lögð fram með umsókninni. Viðhorf íslendinga til öryggis- og utanríkismála. Öryggismála- nefnd 1984, 81 bls. Þetta er ítarleg könnun sem er mjög samviskusamlega og vand- virknislega unnin. í lokakafla grein- ir umsækjandi frá helstu niðurstöð- um og má segja að þær komi ekki á óvart, svo sem þær að aðild ís- lands að Atlantshafsbandalaginu njóti mjög mikils fylgis meðal kjós- enda. A óvart kemur þó að þriðjung- ur svarenda segist enga skoðun hafa á málinu. Þá er meirihluti kjós- enda hlynntur Keflavíkurstöðinni. Einnig er ríflega meiri hluti al- mennt hlynntur gjaldtöku fyrir stöðina. Athygli vekur hversu margir eru hlynntir hugmyndinni um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd og friðarhreyfingunum. Einnig birtist ensk útgáfa, „Ice- landic Attitudes towards Secur- ity and Foreign Affairs“ í ritröð Öryggismálanefndar. Þá birti um- sækjandi grein um þetta efni, „Ice- landic Security and Foreign Policy: The Public Attitude“, í tímaritinu Cooperation and Conflict, Nr. 4, 1985 sem er viður- kennt tímarit stjómmálafræðinga á Norðurlöndum. Umsækjandi hefur í smíðum doktorsritgerð við London School of Economics and Political Science, er byggir á þeim gögnum sem safn- að var 1983 og 1987. Með umsókn- inni fylgir efnisyfírlit doktorsrit- gerðar ásamt tveimur köflum: la. Movements in the election: How did the results come about; lb. The decision making process: When did the voters decide? Did they consider other parties? Er þar Qallað um breytingar á fylgi flokkanna í kosningum 1983 og til- greindar þijár hugsanlegar ástæð- ur: breytingar á kjósendahópnum sjálfum (m.a. vegna nýrra kjós- enda); breytingar á kosningaþátt- töku; kjósendur lqösi aðra flokka en áður. Umfjöllunin er vönduð og ítarleg með tilvísunum til hlið- stæðra erlendra athugana. Ýmsar niðurstöður vekja athygli; þannig er hópur þeirra sem kjósa ekki í hveijum kosningum allstór (15-20%, bls. 10) og að meira en helmingur eru líklegir til að kjósa ekki alltaf sama flokkinn í kosning- um (bls. 26). 2. Voters ties to the parties (19 bls.). Þar er fyrst rætt um hugtakið flokksvitund (paity identification) sem er lykilhugtak í kenningum um kosningahegðun, m.a. eru skýrð tengsl flokksvitund- ar og hvemig fólk kýs. Síðan er athugað hve margir kjósendur segj- ast vera félagar í stjómmálaflokk- um og þær upplýsingar bomar sam- an við tölur sem stjómmálaflokk- amir gefa upp. Ein meginniðurstað- an er að mjög mismunandi er eftir flokkum hversu hátt hlutfall stuðn- ingsmanna viðkomandi flokks eru flokksbundnir. Hæst er hlutfallið í Sjálfstæðisflokknum en lægst í Al- þýðubandalaginu. Þetta er mjög óvænt niðurstaða því að í kenning- um um stjómmálaflokka er yfírleitt gert ráð fyrir að þessu sé öfugt varið: hlutfall flokksmanna af stuðningsmönnum sé hærra í vinstri flokkum heldur en í öðrum flokkum. Drottna fjölmiðlar í kjörklef- anum, Samfélagstfðindi 1987, bls. 52-64. Niðurstöður úr kosninga- rannsókn 1983 eru notaðar til þess að ræða um hvort samband sé á milli þess hvaða dagblöð menn lesa og hvaða flokk þeir kjósa. Gögnin benda til þess að þó að mjög áhuga- vert samband komi fram milli dag- blaðanotkunar og kosningahegðun- ar þá fari því fjarri að blöðin drottni yfir lesendum sínum á þessu sviði. Greinin er vandlega unnin. í heild sýna þessi verk umsækj- anda gott vald á öllum þáttum rann- sókna á viðhorfum og hegðun íslenskra lqósenda: kenningum, vali rannsóknaraðferðar, gagnasöfnun, úrvinnslu og greinargerð. III. Niðurstöður Björn S. Stefánsson. Háskólamenntun umsækjanda er ekki á sviði stjórnmálafræði. Af rit- verkum umsækjanda sést ekki að hann sé hæfur til að annast kennslu í undirstöðugreinum, kenningum og rannsóknaraðferðum í stjómmála- fræði né kénnslu og rannsóknir á einhveijum af tilgreindum sérsvið- um. Umsækjandi telst því ekki hæfur til að gegna lektorsstöðu í stjómmálafræði eins og hún er aug- lýst. í þessu felst ekkert mat á hæfni umsækjanda til að annast kennslu og rannsóknir á öðmm sviðum. Gunnar Helgi Kristinsson. Umsækjandi hefuriokið BA-prófi og M.Sc.-grófi í stjómmálafræði (Politics). í verkum hans kemur fram þekking á undirstöðugreinum í stjómmálafræði og hæfni til rann- sókna á a.m.k. emu áf tilgreindum sérsviðum (samanburðarstjómmál). Hann telst því hæfur til að gegna lektorsstöðu í stjómmálafræði eins og hún er auglýst. Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Háskólamenntun umsækjanda er fyrst í heimspeki og sagnfræði en síðar lauk hann doktorsritgerð í stjómmálafræði (Politics). Nánar tiltekið er ritgerðin á sviði gilda- kenninga (normative theory) um stjómmál. í dómnefndaráliti um lektorsstöðu í heimspeki við heim- spekideild er tekið fram að umsækj- andi sé hæfur til að gegna lektors- stöðu í stjórnmálaheimspeki. Af rit- verkum umsækjanda má ráða að hann sé hæfur til að annast kennslu og rannsóknir á sviði gildakenninga um stjómmál sem er eitt af sérsvið- um stjórnmálafræði. Veigamikill þáttur hennar og annarra ritverka, sem umsælq'andi hefur skrifað á grundvelli hennar, er samanburður á ólíkri þjóðfélagsskipan, m.a. eftir því hvaða gildi menn aðhyllast. Er megininntak í þessum rannsóknum umsækjanda hvort og hvemig markaðsöfl annars vegar og mið- stýring hins vegar móta ólíkar þjóð- félagsgerðir og stjómmál almennt. Þessi verk geta fallið undir saman- burðarstjómmál sem eitt af til- greindum sérsviðum. Verður um- sækjandi samkvæmt þessu talinn hæfiir til kennslu og rannsókna á sviði samanburðarstjómmála. Hins vegar verður það ekki ráðið af námsferli umsækjanda né heldur hefur hann sýnt fram á það með ritverkum sínum að hann hafi þá þekkingu á helstu kenningum og rannsóknaraðferðum í stjómmála- fræði að hann teljist hæfur til kennslu í undirstöðugreinum henn- ar. Ólafur Þ. Harðarson. Umsækjandi hefur lokið BA-prófi og M.Sc.-prófi í stjómmálafræði (Politics). í verkum hans kemur fram góð þekking á undirstöðu- greinum í stjómmálafræði. Af rit- verkum umsækjanda má ráða að hann sé hæfur til að annast kennslu og rannsóknir á tveimur af þeim sérsviðum sem tilgreind em í aug- lýsingu (samanburðarstjómmál; hegðun og viðhorf kjósenda). Kosn- ingarannsóknir hans teljast til viða- mikilla rannsókna. Auk þess hefur umsækjandi annast umfangsmikla kennslu í stjómmálafræði og að- ferðafræði við Háskóla íslands síðan 1980. Hann telst því vel hæf- ur til að gegna lektorsstöðu í stjóm- málafræði eins og hún er auglýst. Reykjavík, 28.4. 1988, Svanur Kristjánsson, Sigurður Líndal, Jónatan Þórmundsson, Gunnar Gunnarsson. • Einn umsœkjandi óskaði nafnleyndar og: var umsögn um hann og nafn fellt út þegar dóm- nefndarálitið var gert opinbert. í álitinu seg- ir um umsœlganda að hann hafi ekki sent nein rítverk með umsókn sinni. Dómnefndin hafi því ekki getað kannað hæfni hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.