Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 44

Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 félk f fréttum Glen Foster er svo sláandi líkur Bob Geldof að litla dóttir hans sér engan mun. ENGLAND Mj ólkurpóstur tvífari rokksljörnu Glen Foster, mjólkurpóstur í Englandi, er svo sláandi líkur rokkstjörnunni Bob Geldof að margir mjólkurþyrstir Bretar hafa heldur betur ruglast í riminu. Sumir viðskiptavinir Glens trúa vart sínum eigin aug- um þegar hann birtist með mjólkina á morgnana. Glen á þijú böm og þar af eina dóttur sem er ijögurra ára. Hún getur jafnvel ekki greint á milli föður síns og Bobs Geldofs því að í hvert sinn sem Bob birt- ist á skjánum hrópar hún „pabbi minn!“. Alls staðar þar sem Glen kem- ur er horft á hann af mikilli for- vitni en Glen er farinn að venj- ast því. Hann segir: „Bob Geldof er líkur mér, þannig lít ég á málið. Þrátt fyrir allt þá var ég á undan Mike að taka upp skegg- broddatískuna því að ég þarf að vakna svo snemma á morgnana að ég hef engan tíma til að raka mig.“ Margir hafa heyrt Bob Geldof syngja lagið „I Don’t Like Mondays" og Glen segist geta tekið undir þann söng með Bob því að honum finnst mánudagar sérstaklega leiðinlegir dagar. Bob Geldof í eigin persónu. Svínakföt hefurlágt fituinnihald - og má því gjarnan nota í megrunarmáltíð. Svínakótelettur: Yerð aðeins kr. 787.- kr./kg. ídag, laugardag frá kl. 8-18 og sunnudagfrá kl. 11-18 Á KJOTMIOSTOÐIN GARÐABÆ, S.656400 ENGLAND Díana prinsessa æf ir tennis Díana prins- essa hefur nú fengið áhuga á tennis og eyðir miklum tíma í að læra þessa íþrótt. Hún velur sér ekki kennara af verra taginu því að nýlega lék hún á móti tenn- isstjömunni Steffi Graf og segja sjónarvott- ar að prinsessan hafi staðið sig nokkuð vel. Díana hefur verið dugleg að sækja alla helstu tennisleiki í grenndinni. Eftir einn leikinn hitti hún tennisleikar- ann Boris Becker og þáði nokkur góð ráð hjá hon- um. Síðan bauð hún kappanum í kaffi og ræddi við hann um íþróttina. Díana prins- essa spjallar við Steffi Graf eft- ir tennisleikinn. BROOKE SHIELDS Fyrsta ástin Brooke Shields sagði nýlega í viðtali að George Michael hafi verið fyrsta ástin hennar. Hún var mjög ung þegar hún kynntist honum og þau voru saman í stuttan tíma. George og Brooke hittust af tilviljun í vaxtarræktarstöð. Stuttu áður hafði hún Brooke Shields sagði nýlega í sjón- varpsviðtali að George Michael hafi verið fyrsta ástin hennar. George Michael batt enda á sam- bandið við Brooke og fór að einbeita sér að eigin frægð og frama. sagt í sjónvarpsvið- tali að George Mic- hael væri sá maður sem hana langaði mest til að hitta. Samband þeirra stóð stutt því að Ge- orge sagðist verða að einbeita sér að eigin frægð og frama og þau höfðu sjaldan tíma til að hittast. „Ég fékk algjört áfall þegar George batt enda á samband- ið,“ segir Brooke en hún getur gert grín að öllu saman í dag. Hún er nú orðin eldri og þroskaðri og skilur vel hvers vegna Ge- orge yfirgaf hana. Sá orðrómur hefur gengið fjöllunum hærra að George Michael sé kynvilltur. Brooke segir hins vegar, „Ég veit af eigin raun að það er ekki rétt.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.