Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
Bensínleysi hjá ferjuflugmanni:
Náði með naumind-
um til Keflavíkur
Hefur tvisvar áður þurft á aðstoð að halda
FLUGMAÐUR lítiUar eins hreyf-
ils flugvélar í feijuflugi lenti í
erfiðleikum i fyrrinótt á leiðinni
frá Narsassuaq tíl Reykjavíkur.
Flugvél Flugmálastjórnar og
þyria Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, fóru tU móts við hann. Hon-
um tókst að lenda á Keflavikur-
flugveUi á siðustu bensindropun-
um. Þessi flugmaður hefur tvisv-
ar áður lent i hrakningum og
þurft á aðstoð að halda.
Flugmaðurinn gaf upp tíu tíma
flugþol þegar hann lagði upp frá
Grænlandi. Þar fékk hann veðurspá
um mikinn mótvind á leiðinni, en
svo virðist sem hann hafí ekki gert
sér grein fyrir þýðingu spárinnar.
Þegar hann hafði samband við flug-
umsjón í Reylq'avík, varð fljótt ljóst
miðað við staðsetningu hans og
tíma, að það stæði mjög tæpt að
hann næði landi. Flugvél Flugmála-
stjómar fór því til móts við hann
og fann hún flugvélina um 100
mflur út af landinu. Stuttu seinna
var þyrlan einnig kölluð til. Um síðir
tókst flugmanninum þó að ná til
Keflavíkur og átti þá eftir eldsneyti
til um níu mínútna flugs.
Flugmaður þessi er Pakistani,
Shiv Chutani að nafni og rekur eig-
ið feijuflugsfyrirtæki í Englandi.
Hann hefur áður komið við sögu
vegna ævintýra á feijuferðum
sínum. Fýrra sinnið þegar hann
villtist á leið frá. Færeyjum til
Reykjavíkur. Þá taldi hann sig vera
yfír suðurströnd landsins, en var
yfír Þingvallavatni. Síðara sinnið
nauðlenti hann á Grænlandsjökli og
var bjargað þaðan á ævintýralegan
hátt. Flugvélin sem hann flaug að
þessu sinni er af gerðinni Piper
TA-38 Tomahawk og er eins hreyf-
ils, tveggja sæta hægfleyg kennslu-
vél. »
Geysisgos
Ákveðið hefur verið að setja sápu
í Geysi laugardaginn 30. júlí nk.
kl. 15.00 og má þá gera ráð fyrir
gosi nokkru síðar, ef veðurskilyrði
verða hagstæð.
Skák:
Margeir tef 1-
ir í Næstved
■
Morgunblaðið/KGA
140 ára gömulhlaða enn notuð
Á BÆNUM Grænavatni í Mý-
vatnssveit er heyhlaða úr torfí og
gijóti, sem var full af ilmandi
heyi er Morgunblaðsmenn bar að
á dögunum. Að sögn Sigurðar
Þórissonar Grænavatnsbónda
reisti Lundarbrekku-Jón hlöðuna
á fímmta áratug aldarinnar sem
leið. „Það er enn sami dyraum-
búnaður og í upphafí; hurðin ófú-
in þótt aldrei hafl hún verið máluð
eða fúavarin og lamirnar óryðgað-
ar. Þessu trúa Sunnlendingar
ekki, en svona langt inni í landi
er loftið ósalt og þurrt,“ sagði
Sigurður.
Sigurður bendir hér á hlöðu-
homið, en það hrundi í vor. „Það
var sextug kona, sem hlóð þetta
aftur upp, það kunna ekki margir
að hlaða torfvegg nú til dags,"
sagði Sigurður. Jámþak var sett
á hlöðuna fyrr á þessari öld, en
að öðm leyti er hún í uppruna-
legri mynd. Ef vel er að gáð má
sjá að dyrunum er lokað_ með
skeifu og tveimur kengjum. í löm-
unum em heimatilbúnir naglar og
undir þakskeggið lengst til hægri
hefur verið stungið gömlum ljá —
þetta hús er minning um tíma sem
var, en á Grænavatni er nú heyjað
með stórvirkum vélum og nýtísku
steinsteypubyggingar hýsa Sig-
urð bónda og búalið hans.
JllOTgttSlflfðttfe
Auglýsend-
ur athugið
Athygli auglýsenda er vakin á
því að síðasta blað fyrir verzl-
unarmannahelgi kemur út
laugardaginn 30. júlí. Auglýs-
ingar, sem birtast eiga í blað-
inu, þurfa að berast auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins fyrir
kl. 16 fímmtudaginn 28. júlí.
Fyrsta blað eftir verzlunar-
mannahelgi kemur út miðviku-
daginn 3. ágúst og þurfa aug-
lýsingar í það blað að berast
fyrir kl. 17 föstudaginn 29. júlí.
MARGEIR Pétursson stórmeist-
ari teflir nú á opnu móti í
Næstved í Danmörku. Eftir fimm
umferðir hefur hann þrjá og
hálfan vinning, vann fyrstu tvær
skákirnar en tapaði þeirri þriðju
gegn Svíanum Brynell og gerði
jafntefli við Bandaríkjamanninn
Ginsburg í fjórðu umferð. í
fimmtu umferð, sem tefld var í
gær, vann Margeir með hvítu
ungverska alþjóðlega meistar-
ann Hal Asz.
Sovétmaðurinn Barejev er einn í
efsta sæti með fjóra og hálfan vinn-
ing. Margeir sagði í gær, að hann
hefði teygt sig of langt til vinnings
í skákinni á móti Brynell og tapað
klaufalega. Níu umferðir verða
tefldar á mótinu og lýkur því á
sunnudag.
Viðræður fjármálaráðuneytis og lánastofnana:
Ríkissjóðiir fái aUt að
3,6 milljörðum í lán
í viðræðum fjármálaráðuneytis við lánastofnanir hefur verið
rætt um að ríkissjóður fái allt að 3,6 milljarða króna að láni á
innlendum markaði. í tengslum við það hefur verið rætt um nýtt
sölukerfi fyrir spariskirteini rikissjóðs sem miði m.a. að vaxtalækk-
un. Fjármálaráðherra gerði grein fyrir gangi þessara viðræðna á
ríkisstjórnarfundi á þriðjudag.
Fulltrúar fjármála- og við-
skiptaráðuneyta og Seðlabanka
Reynt að knýja fram staðfestingarkæru á íslendinga:
Hæstaréttardómur gæti
veikt málstað grænfriðunga
„ÉG HEF ekki séð kæruna gegn
viðskiptaráðherra, en ég veit að
grænfriðungar hafa tilkynnt
ráðherranum um hana,“ sagði
Brian Gorman, upplýsingafull-
trúi bandaríska viðskiptaráðu-
neytisins, er Morgunblaðið bar
undir hann tilraun grænfriðunga
og annarra samtaka til að knýja
fram staðfestingarkæru gegn
íslendingum fyrir dómstólum.
Gorman sagði að samkvæmt
Svíþjóð:
Óperu Karólínu vel fagnað
ÓPERAN „Nágon har jag sett“
eftir Karólinu Eiríksdóttur við
samnefndan ljóðaflokk sænsku
skáldkonunnar Marie Louise
Ramnefalk var flutt f gær-
kvöldi í höllinni í Vadstena í
Sviþjóð.
Að sögn Jóns Asgeirssonar,
tónlistargagnrýnanda Morgun-
blaðsins, sem var viðstaddur
flutning óperunnar, fékk hún
glæsilegar móttökur og sagði
hann óhætt að fullyrða að Karó-
lína hefði unnið markverðan lista-
sigur með þessu verki. Óperan
hefði verið frábærlega flutt af
ungum sænskum listamönnum
undir stjóm Per Borin.
Karólina Eiríksdóttir
dómi Hæstaréttar Banda-
rikjanna i svipuðu máli fyrir
nokkrum árum, sem varðaði
hvalveiðar Japana, hefði við-
skiptaráðherra töluvert svigrúm
í túlkun sinni á þvi hvenær gripa
þyrfti til staðfestingarkæru.
Telji dómstólar málin sambærileg
má búast við því að erfítt verði að
hnekkja ákvörðun viðskiptaráð-
herrans um að leggja ekki fram
staðfestingarkæru á hendur fslend-
ingum, en slík kæra myndi opna
leiðir til að setja höft á fiskinnflutn-
ing fslendinga. Gorman sagðist að-
spurður ekki þora að segja hvort
málin væru að öllu leyti sambærileg
í lagalegum skilningi. Hann benti á
að í máli Japana hefði verið um að
ræða yfirlýstar veiðar í ágóða-
skyni, en veiðar íslendinga væru í
vísindaskyni.
Eins og kunnugt er féllu Banda-
ríkjamenn frá því að bera fram stað-
festingarkæru vegna hvalveiða ís-
lendinga samkvæmt samkomulagi
þjóðanna frá því í júní. Grænfríð-
ungar telja hins vegar að bandarísk
lög skyldi viðskiptaráðherrann til
að leggja slíka kæru fram, þar sem
íslendingar bijóti gegn samþykkt-
um Alþjóðahvalveiðiráðsins.
annars vegar og banka, sparisjóða
og verðbréfafyrirtækja hins vegar
hafa undanfarið átt viðræður um
fjármögnun ríkissjóðs. Er þar ver-
ið að leita eftir samkomulagi sem
tryggi sölu á spariskírteinum og
ríkisskuldabréfum en samkvæmt
lánsQáráætlun er miðað við að
bankar kaupi ríkisskuldabréf fyrir
1.260 milljónir og einnig er gert
ráð fyrir að sala á spariskírteinum
afli ríkissjóði 400 milljóna króna.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er til viðbótar m.a.
rætt um Qármögnun á halla ríkis-
sjóðs á árinu, sem nú er áætlaður
um 700 milljónir króna, og einnig
á gjaldföllnum útflutningsbótum
sem nema nú um 470 milljónum.
Að hámarki er talað um að afla
ríkissjóði allt að 3,6 milljörðum
króna á þennan hátt.
í tengslum við þetta er rætt um
að koma upp nýju sölukerfi fyrir
spariskírteini ríkissjóðs. Þar er
gert ráð fyrir að viðskiptabankar,
sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki
annist þessa sölu gegn sölutrygg-
ingu, þ.e. ábyrgist ákveðna fasta
upphæð mánaðar- eða ársfjórð-
ungslega.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er verið að leita að
samkomulagi sem tryggi að ekki
verði um að ræða tilslökun varð-
andi aðhald á peningamarkaði,
einnig að sölukerfið verði sam-
ræmt innlendri lánsfjáröflun ríkis-
sjóðs og að samkomulagið miðist
við að vextir lækki frekar en
hækki. í því fælist helst að ríkis-
sjóður myndi einbeita sér að sölu
spariskírteina til lengri tíma sem
gæti stuðlað að lækkun vaxta á
skammtímaskuldbindingum.
Heilbrigðis- og fjármálaráðuneyti:
Samkomulag' um bætur
vegna alnæmissmits
RÁÐUNEYTI heilbrigðismála
og fjármála hafa náð samkomu-
lagi um bótagreiðslur til konu
sem smitaðist af alnæmi við
blóðgjöf. Guðmundur Bjarna-
son heilbrigðisráðherra stað-
festi þetta við Morgunblaðið en
vildi ekki upplýsa hver upphæð
bótagreiðslnanna væri.
Konan, sem býr á Suðumesjum,
varð fyrir alvarlegu slysi og var
flutt á sjúkrahús í Reykjavík, þar
sem henni var gefíð blóð. Þegar
hafið var að skima blóð hér á landi
til að koma í veg fyrir alnæmis-
smit með blóðgjöf kom í ljós að
konunni hafði verið gefið blóð úr
alnæmissjúklingi. Við afgreiðslu
íjárlaga fyrir þetta ár samþykkti
Álþingi heimild til fjármálaráð-
herra um að greiðakonunni bætur
í samráði við heilbrigðisráðherra.
Guðmundur Bjamason sagði að í
þessu tilfelli væri í raun ekki um
það að ræða að yfirvöld bæru sök
í málinu en ákveðið hefði verið að
greiða bætur þrátt fyrir það.