Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 ÍHALDSSÖM ÞRÖNGSÝNI? Erlendar bækur Guðmundur H. Frímannsson Allan Bloom: The Closing of the American Mind, Pengnin, 1988. Fáar bækur hafa vakið jafn- miklar umræður og þessi bók All- ans Blooms um bandaríska skóla- kerfið og hvemig það hefur brugðizt nemendum sínum. Hún kom út í fyrra í Bandaríkjunum og seldist feikna vel og vakti mikil við- brögð. Menn lofuðu hana eða löst- uðu og deildu af hörku um efni hennar. Bokin er nú nýlega komin út hjá Penguin-forlaginu í Bretlandi og það er ástæða til þess að hvetja alla, sem láta sig menntun ein- hvetju skipta, til að lesa hana, ekki af því að þeir verði endilega sam- mála henni, heldur vegna þess að hún er þess virði að hugsa um hana. Það hefur verið sagt um þessa bók að hún fari í taugamar á öllu rétta fólkinu. Þá hefur venjulega verið undanskilið að það fólk sé þetta fijálslynda, víðsýna og sann- færingarlausa fólk, sem heldur, að framfarir felist í útþenslu ríkisins í skólakerfinu, heilbrigðisþjón- ustunni og hvarvetna annars stað- ar, sem því verður við komið. Það heldur að fijálslyndi sé sama og agaleysi og víðsýnin er að öll menn- ing sé jafn mikils virði, hvort sem það er hámenning eða lágmenning, vestræn menning eða austræn. Þetta hefur mátt skilja á ýmsum, sem hafa dæmt þessa bók. Ég lenti í nokkrum vanda með þessa bók, vegna þess að hún fór jafn mikið í taugamar á mér og ýmsum öðmm. Ég hef samúð með mörgum þeim skoðunum, sem höf- undur heldur fram, en mér sýnist hann iðulega bregðast, þegar á reynir og rökin, sem hann beitir, annaðhvort ekki vera fyrir hendi eða standast ekki nákvæma skoðun. Bókin skiptist í þijá hluta. Sá fyrsti nefnist stúdentar, annar hluti tómhyggja í amerískum stíl og sá þriðji háskólinn. Fyrsti hlutinn er lýsing á eðli og skoðunum stúdenta nútímans. Það er ekki stuðzt við neinar kannanir heldur miðast lýs- ingin við reynslu Blooms sem kenn- ara. Þetta er klassísk aðferð í bók- menntum að lýsa eigin reynslu þannig að hún virðist vera almenn. En vandinn við hana er mikill. Höf- uðókostur hennar er sá að það er engin sérstök ástæða til að taka mark á henni nema lýsingin komi heim og saman við eigin reynslu hvers lesanda. Þeir stúdentar, sem Bloom lýsir, eru heldur ógeðfelldar manneskjur, lifa í eilífum samtíma og vita ekkert um fortíðina, halda að ást sé kynlíf og stjómast af tak- markalausri eigingimi og mótast mest af dægurtónlist. Auðvitað er þetta skopmynd öðrum þræði og flestir ættu að þekkja ungt fólk, sem er ekki svona. En það er einn kostur við þennan hluta bókarinn- ar, að flestir ættu að kannast við ýmsa þá lesti, sem mótað hafa ungt fólk frá því um 1960. Hann er líka bezt skrifaður og óvenjulegastur af bókarhlutunum þremur. Annar hlutinn greinir frá því, hvemig ýmsar evrópskar hugmynd- ir, sérstaklega frá Þýzkalandi, náðu fótfestu í menntalífi Bandaríkjanna og hvemig þær hafa breytzt við það. Meginhugmyndin er sú, að tómhyggja frá Nietzsche sé rótin að þeirri siðferðilegu afstæðis- hyggju, sem sé versta andleg sýki samtímans. Tómhyggjan hafi borizt til Bandaríkjanna með Freud og Max Weber og sé ótrúlega djúp- rætt í andlegu lífi þar nú á dögum. Það er svo sérkennilegt, hvemig þessi siðferðisafstaða hefur síðan borizt yfir heimsbyggðina alla frá Bandaríkjunum. Ein mynd þessarar afstæðishyggju er sú skoðun, að allar siðferðisskoðanir séu jafnar, sama hversu fáránlegar þær em eða illa rökstuddar. Það eitt nægir, að mér finnst eitt vera rangt, annað rétt; þess vegna er það rangt eða rétt eftir atvikum. Þetta byggist á því að gera strangan greinarmun á staðreyndum og verðmætum. í síðasta kaflanum greinir Bloom frá stöðu háskóla í menningu Bandaríkjanna. Hann greinir þróun hugmynda um sjálfstæði háskóla frá Platóni og Aristótelesi og fram á okkar dag. Hann segir frá hvern- ig sú hugsjón beið hnekki, þegar heimspekingurinn Martin Heid- egger sagði í rektorsávarpi sínu við háskólann í Freiburg árið 1933 að tíminn til ákvörðunar væri liðinn, yngsti hluti þýzku þjóðarinnar hefði þegar tekið ákvörðun. Hugsunin var sú, að háskólamir ættu að fylgja ákvörðunum nasistanna, þar sem sigurvilji hins unga fólks birtist skýrastur, beygja sig undir vilja flokksins og þar með stjórnmála. Bloom telur að róttæklingar sjö- unda áratugarins hafi verið ná- kvæmlega sömu skoðunar og Heid- egger; töldu að kennarar ættu að fylgja æskunni, nemendum sínum, og vildu auka hlut stjómmála í háskólum. Hann rekur reynslu sína af róttækum stúdentum á sjöunda áratugnum, ræfildómi háskóla- kennara og ýmsar þær afleiðingar, sem uppivöðslusemi og ofbeldi stúd- enta hafði. Þetta ætti að nægja til að gefa ófullkomna mynd af efni bókarinnar og því, hvemig tekið er á ýmsum mikilvægustu úrlausnarefnum samtímans með óvenjulegum hætti. Það, sem er skemmtilegast við þessa bók, er, hve óvenjuleg hún er, hvemig í henni tekst að flétta saman djúpar og mikilvægar heim- spekilegar hugmyndir og margvís- lega hluti úr lífi samtímans, sem heimspekingar hirða yfirleitt lítið um. Bloom heldur einnig fram mjög virðingarverðum skoðunum um mikilvægi almennrar menntunar, sem virðist vera að hverfa í banda- ríska skólakerfinu. En það eru galiar á gjöf Njarð- ar. Bloom hirðir lítið um að greina og skoða vandlega þær hugmyndir, sem hann vinnur með. Hann vitnar mikið til Platóns, sérstaklega Ríkis- ins, sem er óumdeilanlega eitt af meistaraverkum m'annsandans. Hann beitir henni til að varpa ljósi á margvíslega hluti í samtímanum og gerir það hugvitssamlega. En túlkun hans á skoðunum Platóns á eðli og hlutverki kvenna er mjög umdeilanleg,' svo vægt sé til orða tekið. Annað atriði er að hann seg- ir snemma í bókinni að öll góð kennsla miði að góðu lífi. Nu er þetta hin merkasta skoðun, en til að leiða rök að henni þarf að skýra, hvað gott líf er. Það er hvergi gert í bókinni. Að síðustu vil ég nefna að Bloom gefur út margvíslegar yfirlýsingar um ástand og eymd bandarískrar heimspeki, en gerir hvergi hina minnstu tilraun til að réttlæta þær yfirlýsingar. Þetta er undarlegt, því að raunin er sú, að sennilega er heimspeki hvergi blóm- legri á byggðu bóli þessi árin en einmitt í Bandaríkjunum. Lesendur bókarinnar mættu gjaman hyggja að því, af hveiju Bloom vitnar svo sjaldan beint í klassíska höfunda. Yfirlýsingamar um heimspeki skipta máli, vegna þess að Bloom trúir því að heimspeki eigi að vera höfuðgrein í háskólum, sem allar aðrar greinar þiggi birtu sína af. Til að svo sé, þurfa heimspeking- amir að kunna sitt fag, líka Allan , Bloom. í Garðabae: Óskum eftir 5-6 herb. íb. f. ákv. kaupanda. Einbýlis- og raðhús Bröndukvísl: Stórglæsil. 250 fm einlyft einbhús. Tvöf. bílsk. Stórar stof- ur. 3 svefnherb. Vandaöar innr. Útsýni. Laugarás: 280 fm glæsil. tvíl. parhús m. innb. bílsk. Gott útsýni. Langtímalán. Afh. fljótl. Miðvangur Hf.: 150fmraöh. á tveimur hæöum auk 40 fm bílsk. Vesturberg: 160 fm fallegt enda- raöh. á tveimur hæöum auk 30 fm bílsk. Stórar stofur. 4 svefnherb. 40 fm suö- ursv. Glæsil. útsýni. Víðiteigur — Mosfbœr: 90 fm vandaö nýtt raöh. Góö áhv. lán. Vesturbær: Lítiö bárujárnskl. timburh. á steinkj. Verö 4,5 millj. Holtsbúð: 160 fm nýl. raöh. á tveim- ur hæöum. Innb. bílsk. Verö 8,5 m. 4ra og 5 herb. Hjarðarhagi: Ágæt 4ra herb. íb. Fæst í skipt. f. einb.- eöa raöh. í Vesturbæ. Hraunbær: Glæsil. 115 fm íb. á 2. hæö i fjórb. Sórlega vandaöar innr. Vesturberg: 100 fm mjög góö íb. á 2. hæö. Parket. Suöursv. Verö 6,0 millj. Miðleiti: 125 fm glæsil. íb. á 4. hæö. Vandaöar innr. Parket. Suöursv. Hagst. áhv. lán. Eiðistorg: 150 fm mjög vönduö íb. á tveimur hæöum. Þrennar svalir. Stór- kostl. útsýni. Stæöi í bílhýsi. í Hlíðunum: 120 fm ágæt íb. á 2. hæð. 3 svefnherb. Laus strax. Spóahólar: 115 fm glæsil. íb. auk bflsk. Vandaöar innr. Parket. í Austurborginni: 135 fm efri hæð auk 30 fm bflsk. Gott útsýni. Verð 7,5 millj. í Hólunum: Glæsil. 130 fm íb. á tveimur hæöum auk 28 fm bflsk. Stór- kostl. útsýni. Verö 7,3 millj. 3ja herb. Asparfell: Falleg 100 fm íb. á 1. hæð. Töluv. endurn. Verö 4,5 millj. Álfhólsvegur: 75 fm ágæt íb. á 1. hæö. Þvottah. í Ib. Sórlóö. Bllskplata. Hjarðarhagi: Mjög góö 80 fm jaröh. 2 svefnherb. Parket, flísar. Hagst. áhv. langtímalán. Nóatún: 80 fm falleg rislb. í þríb. Svalir i suður. Glæsil. útsýni. Hjallavegur: Ágæt 70 fm jaröh. 2 svefnherb. Parket. Sérinng. Skálagerði: 70 fm íb. á 1. hæð. Blokkin nýmáluö. Laus nú þegar. Hjarðarhagi: 80 fm ágæt ib. á 1. hæö. Nýtt rafm. Suöursv. Verð 4,4 m. Vífilsgata: 75 fm efri hæö auk bllsk. sem er innr. sem stúdíófb. Verö 4,5 mlllj. Mjölnisholt: Tvær 3ja herb. íb. 75 fm hvor + byggróttur. 2ja herb. Álagrandi: 65 fm nýl. vönduð fb. á 1. hæö. Svalir í suðvestur. Verö 3,8-4,0 millj. Hraunbær: Mjög góð 65 fm íb. á 1. hæö. Suðursv. Laus strax. V. 3,5 m. Flyðrugrandi: Mjög góð ca 70 fm 2ja-3ja herb. ib. á 1. hæö. Sérgaröur. Reynimelur: 60 fm góö íb. á 4. hæö. Verö 3,5-3,6 millj. Þangbakki: I einkasölu mjög góö 70 fm íb. ó 2. hæö. Góöar innr. Parket. Sólvallagata: 60 fm ágæt kjlb. Sveigjanl. grkjör. Laus strax. 2,8-3,0 millj. Ýmislegt Sumarbústaðir til sölu: v. Þingvallavatn, Apavatn, i Skorradal og i nágr. Rvíkur. Grensásvegur: 200 fm skrifst- húsn. tilb. u. trév. og máln. nú þegar Góð bílastæöi. Skóbúð við Laugaveg: i fullum rekstri. Fæst meö mjög góöum grskilm. FASTEIGNA MARKAÐURINN Óðinsgötu 4 11540 - 21700 Jón Guömundsson sölustj., Leó E. Löve lögfr., Jlafur Stefánsson viöskiptafr. v Græöum Graeoum ÁTAK í LANDGRÆÐSLU LAUGAVEG1120,105 REYKJAVlK SlMI: (91) 29711 Hlaupareiknlngur 2512001 Búnaðarbanklnn Hellu Hafnarfjörður - Álfaskeið Nýkomin til sölu falleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýl- ishúsi. Suðursvalir. Bílskúr. Verð 5,2 millj. Einkasala. Árni Gunnlaugsson, hrl. Austurgötu 10, sími 50764. TRAUST VEKUR FASTEIGNA MIÐSTÖÐIN SKIPHOLTI50B V 62 20-M HAGNLIS LEÓPOLOSSON ® 622030 JÓN GUÐMUNOSSON • SJÖFN ÓLAFSOÓTTIR GlSU GlSLASON HOL GUNNAR JÓH. BiRGISSON HOL. SIGUHÐUR PÖflOOOSSON HOL KOPAVOGUR - EINBYLI - TVIBYLI Skemmtilegt ca 220 fm einbýli á góðum stað í Vest- urbæ. Um er að ræða húseign á tveimur hæðum. Auð- velt að hafa aukaíbúð á neðri hæð. Innb. bíjskúr. Gott útsýni. Mögulegt að taka minni eign uppí. Ákv. sala. GARÐABÆR - EINBÝLI Glæsilegt vel staðsett einbýli á einni hæð með góðum bílskúr. Samtals ca 260 fm. Óvenju glæsilegur, gróinn garður. Arinn í stofu. Parket á gólfum. Eignin er öll vel umgengin og í góðu ástandi. Myndir og teikn. á skrifst. MATVÖRUVERSLUN í góðri verslunarmiðstöð. Selst með eða án húsnæðis. Um er að ræða áhugavert fyrirtæki. r HVSVANGIJR FASTEIGNASALA BORGARTÚNI 29, 2. HÆÐ. 62-17-17 n u Stærri eignir Eldri borgarar! Síöari áfangi húseigna eldri borg- ara viö Vogatungu í Kóp. Fjögur parhús á einni hæö meö bílsk. Þar af er tveim óráöstafaö. Stærðir ca 115-120 fm. og fjögur ca 75 fm parhús á einni hæö án bílsk. Húsin sem eru sérl. vel staös. skilast fullb. aö utan og innan meö frág. lóðum. Áætl. afhtími haustiö 89. Kjarrhólmi - Kóp. Ca 100 fm góö íb. á 3. hæð. Yfirb. suö- ursv. Þvottaherb. og búr í íb. Ákv. sala. Verö 5,1 millj. Eskihlíð - ákv. sala Falleg ca 90 fm nettó íb. í fjölb. Nýtt gler. Gott útsýni. VerÖ 4,7 millj. Langholtsvegur - laus Ca 120 fm kjíb. 3 svefnherb. Sérinng. Ákv. sala. Verö 4,1 millj. Hrafnhólar Ca 95 fmfalleg ib. á 2. hæó. Verð 4,6 m. 3ja herb. Einbýli Digranesvegi K. Vesturborgin Ca 260 fm steinhús, hæö kj., og ris. Fallegur ræktaður garöur. Vönduð eign. Bflskréttur. Einb./tvíb. Jöklafold Glæsil. húseign. m. tveim íb„ 165 fm hæð þar af 25 fm bílsk. og 90 fm kj. er til sölu. Afh. fokh. eða tilb. u. tróv. Raðhús - Garðabæ Rúmg. raöhús, kj., hæö og ris. Verö 10,5 millj. Raðhús - Mosfellsbæ Ca 160 fm glæsil. raöhús á tveimur hæöum viö Stórateig. Bílsk. Lóð Mosfellsbæ Ca 1030 eignarlóð við Ásland. Verö 600 þús. Sérhæð Holtagerði K. Ca 130 fm falleg efri sárh. Bílsk. Vönd- uö eign. Álfheimar Ca 120 fm íb. á tveimur hæöum i tvíb. raöhúsi. Parket á stofu. Gott útsýni yfir Laugardalinn. Verö 6,2 millj. Sérh. Rauðagerði Ca 150 fm ný glæsil. og vönd. jaröh. í tvíb. Innr. allar sérsm. Sér- garöur, verönd. Hagst. áhv. lán. Ca 95 fm falleg íb. á 1. hæö. Suöaust- ursv. VerÖ 4,9 millj. Spóahólar Ca 85 fm gullfalleg ib. á 3. hæö. Suö- ursv. Gott útsýni. Verö 4,3 millj. Nálægt Háskólanum. Ca 86 fm gullfalleg íb. i fjölb. Ný eld- húsinnr. Ákv. sala. Hofteigur Ca 80 fm falleg kjíb. Góöur garöur. Sérinng. Verö 4,2 millj. Furugrund - Kóp. Ca 80 fm falleg íb. Suöursv. Þvottahús á hæö. Verö 4,5 millj. Leirubakki m. aukah. Ca 93 fm falleg íb. á 1. hæð. Þvottah. i ib. Aukah. í kj. Verð 4,2 millj. Gaukshólar Ca 85 fm vönduö íb. á 6. hæö í lyftu- húsi. Verö 3,9 millj. 4ra-5 herb. Fossvogur Ca 105 fm falleg íb. á 2. hæð i vönduöu sambýli. Ákv. sala. 2ja herb. Samtún Falleg íb. á 1. hæð. Sórinng. Parket. Ljósheimar Ca 61,4 fm nettó góð ib. í lyftuhúsi. Eiríksgata Ca 70 fm góð kjíb. Verð 3,3 millj. Hamraborg - Kóp. Ca 70 fm glæsil. íb. á 2. hæö. Bíla- geymsla. Rauðalækur Ca 53 fm góð jarðhæð. Þvottah. og búr. Guðmundur Tómasson, Finnbogi Kristjánsson, Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. - fasteignasali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.