Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
29
29 heitir dagar íMekku
Yfír ein milljón múhameðstrúarmanna safnast sam-
an þessa dagana undir brennandi sól í Mekku í
Saudi-Arabíu til að halda aðaltrúarhátíð sína, Al-
hadjdi. Lofthitinn mælist allt að 44 gráður í for-
sælu. Frá 16. júlí til 13. ágúst fara áhangendur
Kóransins úr öllum heimshornum þangað í pílagríms-
ferð — fljúgandi, siglandi eða fótgangandi — í því
skyni að sinna þeirri skyldu sérhvers múhameðstrú-
armanns að fara þessa heilögu ferð að minnsta
kosti einu sinni á ævinni. Í stærsta bænamusteri
Mekku rúmast 600.000 manns, en íbúar borgarinn-
ar eru 400.000. Múhameðstrú hefur verið í sókn
undanfarin ár, svo að búast má við metaðsókn á
hátíðina — meira en einni og hálfri milljón manna,
að því er talið er, en alls eru múhameðstrúarmenn
um 850 milljónir talsins í heiminum. Sú skylda
hvílir á þeim fimm sinnum dag hvem að snúa bæn
sinni til Mekku. Helgi borgarinnar stafar af því, að
þar fæddist Múhameð spámaður árið 610. Aður en
hann lést, 22 ára að aldri, hafði hann lokið við að
grundvalla trúarhrejrfingu sína — eftir að hafa feng-
ið opinberanir frá Guði, að því er sagt er.
r
ROSE:
Fullvíst að ráðstefn-
an verður framlengd
Vín. Reuter.
FULLTRÚAR á Ráðstefnu um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(ROSE, CSCE) sögðu í gær að
fullvíst væri að ekki tækist að
Ijúka fundahöldunum fyrir 31.
júlf eins og áformað hafði verið.
Því mætti heita öruggt að ráð-
stefnunni yrði haldið áfram f
ágústmánuði. Það eru einkum
Rúmenar sem tafið hafa fyrir lok-
um ráðstefnunnar en fulltrúar
þeirra neita staðfastlega að fallast
á tilslakanir á sviði mannréttinda-
mála.
Mjög hefur verið hvatt til þess að
fulltrúar ríkjanna 35 ljúki störfum á
tilsettum tíma til að ný ráðstefna um
„stöðugleika á sviði hins hefðbundna
Pólland:
Gar ðyr kj umaður
rændur gulli og fé
Varsjá. Reuter.
VOPNAÐIR þjófar stálu gulli og
peningum að verðmæti 165 millj-
óna zloty, eða jafnvirði um 16
milljónar islenzkra króna, á
pólsku einkaheimili um helgina.
Að sögn lögreglu er um að ræða
verðmætasta ránsfeng, sem tekinn
er af pólsku einkaheimili eftir stríð.
Samanstóð hann af gulli og pening-
um, bæði pólskum og erlendum
gjaldeyri.
Innbrotið átti sér stað nálægt
borginni Poznan aðfaranótt mánu-
dags. Húsráðandinn er 71 árs garð-
yrkjumaður og rumskaði hann ekki
meðan þjófarnir létur greipar sópa
um heimili hans.
vígbúnaðar frá Atlantshafi til Úral-
fjalla“ geti hafist. Erindisbréf þeirrar
ráðstefnu hefur enn ekki verið samið
én fulltrúar Vesturlanda telja ekki
rétt að hefja nýju viðræðumar fyrr
en ríkin austan Jámtjaldsins hafa
skuldbundið sig til að gera ákveðnar
tilslakanir á sviði mannréttindamála.
Að sögn fulltrúa á ráðstefnunni eru
það einkum Rúmenar, sem standa í
vegi fyrir árangri á þessu sviði.
Ráðstefnan um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu hefur þegar verið
framlengd nokkrum sinnum vegna
deilna um skilgreiningar á sviði
mannréttindamála. Nú síðast var það
Hans-Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýskalands, sem
lagði til að viðræðunum yrði haldið
áfram. Genscher heldur til Moskvu
síðar í þessari viku og herma heimild-
ir að hann hyggist hvetja ráðamenn
eystra til að gera hvað þeira geta
til að nýju viðræðumar geti hafist
sem fyrst.
Ráðstefnan um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu, sem fer fram í Vínar-
borg, er framhald Helsinki-ráðstefn-
unnar sem, lauk árið 1975 með und-
irritun Helsinki-sáttmálans svo-
nefnda.
Hér er lítil saga um hann Sigga, skrifstofu-
mann, sem situr allan guðslangan
vinnudaginn inná lítilli skrifstofu. Og útsýnið
er heldur dapurlegt þvi hann sér einungis
þakið á næsta húsi.
En Siggi lætur þetta lítið á sig fá núorðið.
Hann á sér nefnilega ágætis tómstunda-
gaman. - Hann safnar fágætum blóma-
tegundum og við grípum inní atburðarrásina
rigningardag einn hér fyrir sunnan
þegar Siggi er kominn heim til sín. Siggi
er að hringja í Jón sem á blómabúð
hér í bæ:
„ Já, gott kvöld frú, er hann Jón við?" ....
„Takk, ég hinkra“ (Siggi flautar á meðan
hann bíður)“.
„Sæli Jón minn, Siggi hérna. Heyrðu,
eru plönturnar komnar ... ha? Hvar ég er ...
í Paradís ... Þú meinar fuglakvakið og
vatnsniðinn ... nei, nei, og þó. - Þetta er
hreinasta paradís síðan ég byggði mér
sólstofuna úr plastinu frá SINDRA STÁLI“.
„ Já, þú heyrðir rétt. FRÁ SINDRA STÁLI.
Þeir eru með PLASTDEILD. Gæðaplast frá
GENERAL 0 ELECTRIC PLASTICS
og hér er gosbrunnur og páfagaukar...“
„Satt segirðu Jón, „MAÐUR GETUR ALLTAF
Á SIG BLÓMUM BÆTT“ - enda er ég hér öllum
stundum" ...
„ Já, já, þess vegna safna ég núna fágætum
blómum. - Fínt Jón minn, þú hringir svo í mig
þegar plönturnar eru komnar. Þakka þér fyrir“.
Siggi er alsæll á svipinn, tekur upp
garðklippurnar og flautar með
fuglunum sínum.
Þessi saga er sönn og því til staðfestu
sýnum við mynd sem tekin var af Sigga
þegar hann var nýbúinn að kaupa sér
páfagaukana. Myndin er eðlilega tekin
á uppáhaldsstað Sigga: ... inni í sólstofunni
sem byggð var úr plastinu góða frá
SINDRA STÁLI..
I
Evrópubandalagið:
Fráleitt að völd þjóðþing-
anna verði skert öllu frekar
Me
ablómlegurokveðium,
BORGARTÚNI 31
- segir Margaret Thatcher
London. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætls-
ráðherra Bretlands, sagði £ gær
að það væri fráleit hugmynd að
Evrópubandalagið myndi í framt-
íðinni hafa flest alla efnahags-
stjórnun aðildarríkjana með hönd-
um i stað þjóðþinga þeirra.
Thatcher lét þessi orð falla í við-
tali við breska útvarpið BBC er hún
var beðin að tjá sig um ummæli Jac-
ques Delors, forseta framkvæmda-
nefndar Evrópubandalagsins, þess
efnis að innan tíu ára kynni svo að
fara að Evrópubandalagið hefði flest
alla lagasetningu á þessu og fleiri
sviðum með höndum. „Ég tel að
þama hafi hann gengið of langt,“
sagði Thatcher. „Mér þykir þetta
fráleitt og ég tel að slík ummæli
veki ugg í bijósti almennings," bætti
hún við.
Forsætisráðherrann sagði að hún
myndi aldrei samþykkja að Bretar
létu öðrum eftir að móta stefnu
landsmanna í efnahags- og félags-
málum. Aðildarríki Evrópubanda-
lagsins ættu að koma fram sem ein
heild í viðskiptum við Bandaríkja-
menn, Kínveija og Sovétmenn, en
hugmyndin væri sú að einstök ríki
Evrópu störfuðu saman á þessu sviði.
Thatcher vísaði á bug hugmyndum
um stofnun „Bandaríkja Evrópu".
„Það mun aldrei verða á meðan ég
lifi,“ sagði breski forsætisráðher-
rann.
SINDRA
ÚNI31 '
plgMOd
STALHF
SÍMi: 91 -2 72 22
Bladid sem þú vaknar við!