Morgunblaðið - 28.07.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
Mesta ferðahelgi
ársins framundan
UMFERÐARRÁÐ og lögreg-lan ætla að starfrækja upplýsingamið-
stöð um verslunarmannahelgina þar sem veittar verða upplýsing-
ar um ýmsa þætti umferðarinnar og annað sem getur orðið ferða-
fólki að liði. Útvarpað verðu beint frá upplýsingarmiðstöðinni á
öllum helstu útvarpsstöðvum.
Að sögn Óla H. Þórðarsonar
framkvæmdastjóra Umferðarráðs
eiga flest slys sér stað yfír sumar-
mánuðina og þá einkum í ágúst-
mánuði. í fyrra urðu 22 bílveltur
um það leyti, 40 árekstrar, ekið
var á þtjá gangandi vegfarendur,
ekið var á sjö skepnur úti á þjóð-
vegum og 58 ökumenn voru tekn-
ir ölvaðir við stjóm ökutækis.
Umferðarráð býst við mikilli um-
ferð um allt land um verslunar-
mannahelgina og hvetur vegfar-
endur til sérstakrar árvekni, tillits-
semi og varkámi um þessa mestu
ferðahelgi ársins.
Löggæsla verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Að sögn
Ómars Smára Armannssonar aðal-
varðstjóra í Reykjavík verða 5
vegalögreglubílar úti á landi til
þjónustu og eftirlits, einn í hveij-
um landsfjórðungi og einn á há-
lendinu. Auk þess nýtur lögreglan
aðstoðar þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar. Þannig verður auðveldara-
að fylgjast með hvar fólk hópast
saman og verða lögreglubílar þá
færðir til _á milli staða eftir álagi,
að sögn Ómars Smára.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
verður með vegaþjónustuvakt í
Borgartúni 33 alla helgina frá
klukkan 10 árdegis til klukkan 22.
Auk þess verða sex bílar úti á
þjóðvegum. FÍB hefúr fækkað
þeim bílum sem þeir hafa í förum
en þess í stað samið við verkstæði
út um allt land um þjónustu við
bifreiðaeigendur. Félagið mun
veita varahlutaþjónustu alla helg-
ina.
Morgunblaöið/Ámi Sœberg
Sjúkraflug með tvo sovéska sjómenn
ÞYRLA varnarliðsins sótti í gær
sovéska sjómenn í tvo sovéska
verksmiðjutogara, sem þá voru
staddir um 270 mílur suðvestur
af Reykjanesi. Annar mannanna
hafði orðið fyrir slysi um borð
í togaranum Bolsévik og var
með opið beinbrot um olnboga
annars handleggs en hinn, 54
ára gamall skipveiji á Timofey
Khrykin, kvartaði undan mikl-
um innvortis kvölum. Þyrlan
lenti með þá við Borgarspítal-
ann um klukkan 20 i gærkvöldi.
Að sögn Hannesar Hafstein for-
stjóra Slysavamafélags Íslands
barst Slysavamafélaginu hjálpar-
beiðni frá Bolsévik á þriðjudags-
kvöld en þá var skipið um 400
mílur undan landi og var ákveðið
að bíða með aðgerðir til morguns.
Klukkan rúmlega níu í gærmorgun
barst svo beiðnin frá Timofey
Khrykin. Vamarliðið sendi um
hádegið þyrlu og eldsneytisvél á
móti skipunum og vom sjúkling-
amir komnir um borð um klukkan
16. Þyrlan þurfti þrívegis að taka
eldsneyti meðan á sjúkrafluginu
stóð.
VEÐUR
I/EÐURHORFUR í DAG, 28. JÚLÍ 1988
YFIRLIT f G/ER: Skammt austur af landinu er hægfara 992ja mb
lægð og þaðan lægöardrag til suðvesturs. Hiti verður á bilinu 4 til
10 norðanlands, en 8 til 15 stig syðra.
SPÁ: Minnkandi norðanátt, skýjað norðanlands og dálítil rigning
enn á norðausturlandi en víða bjart veður syðra. Heldur hlýrra en
í dag.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A FÖSTUDAQ: Fremur hæg norðaustanátt. Skýjað og
sums staöar skúrir um norðan- og austanvert landið en bjart veð-
ur suövestanlands. Hiti 5—10 stig norðantil en 10—15 stig syöra.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg norðan eöa breytileg átt. Skýjað
og sum staðar skúrir við norðausturströndina en annars þurrt og
víða bjart veöur sunnan- og vestanlands. Áfram svalt í veðri.
V f %
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hitl veftur
Akureyri 4 alskýjað
Reykjavík 6 skúr
Bergen 13 úrkoma
Helsinki 20 skýjaö
Kaupmannah. 16 léttskýjað
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk 2 þoka
Ósló 13 lóttskýjað
Stokkhóimur 14 rtgnlng skýjað
Þórshöfn 11
Algarve 26 heiðskfrt
Amsterdam 14 þokumóða
Barcelona 20 mistur
Chicago 17 helðskírt
Feneyjar 21 heiðskírt
Frankfurt 16 léttskýjað
Glasgow 11 skúr.
Hamborg 13 þokumóða
Las Palmas vantar
London 12 skýjað
Los Angeles 19 þokumóða
Lúxemborg 13 léttskýjað
Madrfd 19 heiðskírt
Malaga 21 þokumóða
Mallorca 19 léttskýjað
Montreal 20 skúr
New York 22 skúr
París 14 rigning
Róm 22 heiðskirt
San Diego 21 skýjað
Winnipeg 24 léttskýjað
Nýjar afskriftareglur refabúa:
Yeðhæfni aukin
Á FUNDI Stofnlánadeildar land-
búnaðarins á þriðjudag var meðal
annars fjallað um vandamál loð-
dýrabænda og þær vinnureglur
settar að loðdýrahús skuli vera
án afskrifta fyrstu fimm árin.
Síðan eru afskriftir hækkaðar úr
3% í 4% þannig að afskriftatiminn
er svipaður og áður. Reiknað er
með að lausaskuldalán til refa-
bænda verði til 15 ára, séu verð-
tryggð, beri 2% vexti og verði
afborgunarlaus fyrstu tvö árin.
Halldór Blöndal alþingismaður
sem á sæti í stjóm Stofnlánadeildar
sagði að með þessum hætti væri
reynt að koma til móts við þá sér-
stöku erfíðleika sem eru í loðdýra-
ræktinni. „Þau dæmi sem við höfum
fyrir okkur sýna þó að þetta muni
ekki öllu. Samkvæmt lögum um
stofnlánadeild er hámark lána 7096
af fasteignamati og eins og dæmin
liggja fyrir þá er ekki allur munur á
hvor aðferðin er viðhöfð," sagði Hall-
dór. Hann sagðist telja nauðsynlegt
að viðhalda refastofninum í landinu
þannig að hægt verði að ná upp
skinnaframleiðslu aftur þegar
ástandið á markaðnum batnar. Til
þess þarf að aðstoða refabændur.
„Stjómvöld, einstakir stjómmála-
menn og forysta bænda hvatti á
sínum tíma til þess, að menn færu út
í refarækt. Af þeim sökum eiga refa-
bændur nú nokkra kröfu á samfélag-
ið, að það bregðist við þeirra vanda.
Þess vegna er nauðsynlegt að endur-
skoða og endurmeta stöðu þeirra og
þessarar atvinnugreinár í heild út frá
markaðnum eins og hann stendur.
Það er fyöldi refabænda sem hefur
náð mjög góðum árangri í þessari
ræktun og þá hljótum við að standa
frammi fyrir að gera upp við okkur
hvort við viljum að allir skeri niður
og veðji á minkinn eða hvort við telj-
um rétt að hafa einhver refabú í
landinu, þó svo að við þurfum að
borga eitthvað með þeim í bili. Eftir
sem áður borgum við miklu minna
með refabúum heldur en sauðfjárbú-
um,“ sagði Halldór Blöndal.
Borgarráð:
Sótt um lán
til kaup-
leiguíbúða
BORGARRAÐ hefur samþykkt
tillögu minnihlutaflokkanna um
að sótt verði um lán til allt að
60 kaupleiguíbúða á næsta ári.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir, að við gerð fjárhagsáætlunar
borgarinnar hafí ekki verið ljóst
hvort yrði af hugmyndinni um
kaupleiguíbúðir. Ljóst sé að Hús-
næðisstofnun hafi nú um 273 millj-
ónir króna til úthlutunar til kaup-
leiguíbúða.
Að sögn Gunnars Eydal skrif-
stofustjóra borgarstjómar, var til-
lögunni vísað til borgarritara, sem
sækja mun um lánið fyrir hönd
borgarinnar.
Vatnsveðrið á Norðurlandi:
Úrkomumet slegin á
Siglunesi og Gjögri
ÚRKOMUMET voru slegin á Siglunesi við Siglufjörð og Gjögri á
Ströndum í vatnsveðrinu sem gengið hefur yfir Norðurland að und-
anförnu. Vegir, sem lokuðust norðanlands vegna aurskriða og vatna-
vaxta sl. þriðjudag, voru opnaðir aftur í gær, að sögn Ólafs Torfason-
ar vegaeftirlitsmanns.
Á Siglunesi mældist úrkoman 76
millimetrar frá klukkan 9 sl þriðju-
dag til klukkan 9 í gær. Á sama
tíma mældist úrkoman á Gjögri 73
millimetrar. Mesta sólarhringsúr-
koma, sem mælst hafði áður á
Siglunesi, var 58,5 millimetrar í
september 1983 en 57 millimetrar
á Gjögri í september 1984, að sögn
Öddu Báru Sigfúsdóttur á veður-
farsdeild Veðurstofunnar.
Næstu tvo sólarhringa dregur
verulega úr vindi og úrkomu norð-
anlands og á morgun, föstudag,
verður hæg norðanátt og skýjað við
norðurströndina en bjartara inn til
landsins og sunnanlands. Gott veð-
ur verður um allt land nk. laugar-
dag, sunnudag og mánudag, að
sögn Eyjólfs Þorbjömssonar veður-
fræðings.