Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
15
Norrænar kon-
ur og jafnrétti
eftirNils Ove
Gottlieb
Norræna ráðherranefndin sendi
nýlega frá sér handbók um stjóm-
málaþátttöku kvenna eftir Drude
Dahlerup og kemur þar fram að
nokkurrar óþolinmæði sé farið að
gæta meðal norrænna kvenna og
þyki þeim sem þær hafí „beðið nógu
lengi“ eftir því að fá hlutdeild í
völdúnum. Bókin er inngangur að
því, sem á döfinni er í málefnum
kvenna í Osló á næstunni á vegum
Norðurlandaráðs og norrænu ráð-
herranefndarinnar. Annars vegar
verður þar opinber jafnréttisráð-
stefna dagana 3.-5. ágúst með um
það bil 130 fulltrúum og hins vegar
norrænt kvennaþing með 10—20
þúsund þátttakendum dagana 30.
júlí til 7. ágúst. Verður þar reynt
að komast að niðurstöðu um að-
stæður kvenna á Norðurlöndum og
reynt að fá úr því skorið hveijar
eru óskir þeirra og hvaða tækifæri
við þeim blasa.
Fmmkvæði Norðurlandanna í
þessum efnum er í eðlilegu fram-
haldi af starfi sem miklu skiptif
fyrir þróun jafnréttismála og hefur
einkennt opinbert samstarf nor-
rænna þjóða lengst af á starfsferli
Norðurlandaráðs.
Oft er þess spurt, hvem árangur
norræn samvinna hafí borið. Af
hálfu kvenna er fljótlegt að benda
á ýmis atriði, sem hún hefur haft
forgöngu um og stuðlað hafa að
auknu jafnrétti og bættri stöðu
kvenna í þeim mæli, að þær telja
sig nú í stakk búnar til að auka
hlutdeild sína í póiitísku valdi.
Frá því að Norðurlandaráð var
stofnað árið 1952 og norrænni sam-
vinnu komið á, hefur samstarfið að
miklu leyti snúizt um margs kyns
framfaramál til heilla fyrir íbúa
Norðurlanda, konur sem karla. Eft-
ir 1960 hafa spurningar um stöðu
kvenna í samfélaginu vakið vaxandi
athygli og umræðu um öll Norður-
lönd. Norrænu kvennasamtökin
fóru þess á leit við Norðurlandaráð
að ríkin lögleiddu sams konar
ákvæði um jafnrétti kynjanna, og
frá lokum sjöunda áratugarins hafa
jafnréttismál og málefni kvenna
verið stöðugt til umræðu á þingum
Norðurlandaráðs.
Á vettvangi Norðurlandaráðs
kom fram tillaga þegar árið 1956
um að Norðurlöndin reyndu í sam-
einingu að gera athuganir á at-
vinnuþátttöku kenna. Ur þessu varð
þó ekki, því að ráðið leit svo á að
slíkar athuganir hlytu að eiga sér
stað í hveiju landi sérstaklega og
málið varðaði því ekki norræna
samvinnu.
Jafnrétti kynjanna í launamálum
kom til umfjöllunar á Norðurlanda-
ráðsþingi árið 1960 en var vísað frá
þar eð Svíum þótti sem þar væri
um að ræða íhlutun í fijálsan samn-
ingsrétt. Af hálfu Norðurlandaráðs
markaði m.a. alþjóðleg verkalýðs-
málaráðstefna 1975 upphaf alþjóð-
legs kvennaárs, sem varð kvenna-
áratugur Sameinuðu þjóðanna. Að
frumkvæði norrænu ráðherra-
nefndrainnar var lögð fram á þess-
ari ráðstefnu tillaga um að rannsak-
aðar yrðu aðstæður kvenna á nor-
rænum vinnumarkaði.
Á fyrstu árum Norðurlandaráðs
var einkum fjallað um máleftii
kvenna í tengslum við sifjarétt og
hjúskaparlöggjöf. Smám saman
hafa ýmis atriði jafnréttismála sótt
fram á þessum vettvangi og hefur
athyglin þá einkum beinzt að sam-
starfí á vinnumarkaði, atriðum
varðandi vinnuumhverfi og mennt-
unarmál. Það hefur síðan leitt til
þess að Norðurlandaráð hefur fyall-
að um málefni, sem hefur beina
þýðingu fyrir þróun jafnréttis karla
og kvenna.
Mörg skeyti bárust frá kvenna-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
sem haldin var í Nairobí árið 1985.
Þar á meðal var eitt sem skýrði frá
því að leiðtogi bandarísku sendi-
nefndarinnar, Maureen Reagan,
dóttir forsetans, hefði sýnt sér-
stakan áhuga á jafnréttisbaráttu
kvenna á Norðurlöndum og að hún
vonaðist til að sú barátta einkenndi
ráðstefnuna.
Kjörorð þessarar alþjóðlegu ráð-
stefnu voru: Jafnrétti, framþróun,
friður. Að þeim var reynt að vinna
með því að leggja megináherzlu á
atvinnu, heilbrigði og menntun.
Mörkuð voru nokkur svið, sem
vinna skyldi á í einstökum löndum
og snertu þau meðal annars
pólitiskan ákvörðunarrétt, menntun
og fræðslu, atvinnu, heilbrigðis- og
framfærslumál, fjölskyldu- og hús-
næðismál, en í öllum þessum mála-
flokkum hefur Norðurlandaráð gert
átak til verulegra hagsbóta fyrir
íbúa Norðurlanda,’ böm og full-
orðna, konur og karla. Gaumgæfí-
leg athugun á þeirri þróun hefði
ef til vill mikla þýðingu fyrir fram-
gang jafnréttismála í einstökum
löndum, heimshlutum eða jafnvel
fyrir heim allan.
Tveir fulltrúar frá Norðurlanda-
ráði tóku þátt í ráðstefnunni í Nair-
obí. Annars vegar Dorte Benned-
sen, þingmaður og fyrrverandi
kennslumálaráðherra frá Sósíal-
demókrataflokknum í Danmörku,
en hins vegar Elsi Hetemáki-Oland-
er, þingmaður frá Þjóðlega samein-
ingarflokknum í Finnlandi, en hún
er fulltrúi í forsætisnefnd Norður-
landaráðs og formaður fínnsku
sendinefndarinnar á þingum ráðs-
ins. Þær notuðu tækifærið til að
sýna fram á hvemig samvinna
nokkurra landa getur stuðlað að
því að þoka jafnréttismálum áleiðis
og gefíð byr undir báða vængi þeim
stefnumálum, sem mörkuð vom
með kvennaáratug Sameinuðu þjóð-
anna 1975—85.
Þegar árið 1973 lagði Norður-
landaráð til að réttarfarsreglur á
Norðurlöndum yrðu skoðaðar
gaumgæfilega til þess að betri yfir-
sýn fengist yfír framfærsluhlutverk
karla og kvenna.
Framfærsluhugtakið og ýmis
vandamál þar að lútandi hafa síðan
verið stöðugt til umræðu á þingum
Norðurlandaráðs og jafnframt
ýmiss konar atriði er varða hjúskap
og sambúð.
Á hinu alþjóðlega kvennaári
1975, sem síðar var gert að kvenna-
áratug, samþykkti Norðurlandaráð
ályktun um að tryggður yrði jafn
réttur karla og kvenna. Sú sam-
þykkt varð tilefni til ráðstefnu um
baráttu gegn kynjamisrétti, meðal
annars með því að auka lýðræði í
atvinnulífí. Síðar var samþykkt
norræn starfsáætlun og er hún eins
konar umgjörð um samstarf Norð-
urlanda í jafnréttismálum á öllum
sviðum samfélagsins er máli skipta.
Margir þættir í norrænni sam-
vinnu snerta heilbrigðisástand al-
mennings á einn eða annan hátt,
en slíkt er jafnframt mikilsvert at-
riði í öllu starfi, er lýtur að jafn-
rétti og jafnri stöðu karla og
kvenna. Samstarfsáætlun í félags-
og heilbrigðismálum, til að mynda
í baráttu gegn fíkniefnaneyzlu,
virku eftirliti gegn útbreiðslu sjúk-
dóma, tómstundamálum bama og
unglinga og varðandi ráðstafanir
gegn sjúkdómum og næringar-
skorti, gæti haft umtalsverð áhrif
á þróun fyrirbyggjandi ráðstafana
af ýmsum toga, sem jafnframt
gætu falið í sér úrbætur í heilbrigð-
ismáluni kvenna.
Aðstæður bama, aðgangur
þeirra að fræðslu og tækifæri til
framhaldsmenntunar, skipta miklu
máli fyrir þroska þeirra og stöðu í
samfélaginu þegr fram f sækir.
Þessar aðstæður hafa þar af leið-
andi úrslitaþýðingu fyrir þjóðfé-
lagsstöðu kvenna. Frá árinu 1976
hafa margs konar samþykktir verið
gerðar um stefnumið á sviði menn-
ingar bama en jafnframt um að-
búnað bama og aukið átak í fullorð-
insfræðslu.
Þá hefur Norðurlandaráð mælt
með þvi að Norðurlandaþjóðir hafí
með sér aukna samvinnu varðandi
starfsmenntun í því skyni að
tryggja öllu æskufólki jöfn tæki-
færi til fræðslu og þroska. Reynt
er að stuðla að því að menntunar-
og starfsval byggist í minna mæli
en áður á hefðbundnum hlutverkum
kynjanna.
Allt sem lýtur að atvinnulífi og
vinnumarkaði hefur. mjög mikla
þýðingu fyrir jafnstöðu karla og
kvenna, en þessi atriði hafa verið
á meðal hinna mikilvægustu í nor-
rænu samstarfi frá því að sameigin-
legum norrænum vinnumarkaði var
komið á fót árið 1954.
EIsi Hetemáki-Olander
Lengd vinnudagsins skiptir miklu
fyrir aðstöðu kvenna á vinnumark-
aði og jafna stöðu þeirra á við
karla. Norðurlandaráð hefur mælt
með því að fram fari rannsókn á
hagfræðilegum og félagslegum af-
leiðingum af styttingu vinnutímans.
Athuganir hafa varpað ljósi á ýms-
ar forsendur fyrir umtalsverðri
styttingu vinnutímans.
Þá hefur Norðurlandaráð lagt til
að komið verði á laggimar nor-
rænni vinnumálastofnun, meðal
annars í þeim tilgangi að koma í
veg fyrir atvinnuleysi og gera ráð-
stafanir gegn því en jafnframt til
þess að þróa áfram samstarf á sviði
jafnréttismála og spá í framtíðar-
horfur. Árangurinn af þessu frum-
kvæði er kominn skammt á veg en
þó liggja fyrir sameiginlegar tillög-
ur um rannsóknir og greiningu.
Ennfremur liggur fyrir, og ekki
sízt að tilhlutan Norðurlandaráðs,
starfsáætlun um efnahagsþróun og
fulla atvinnu með tillögum um sér-
stakar ráðstafanir í atvinnu- og
menntúnarmálum. Mun hún hafa
áhrif til úrbóta fyrir margar konur,
sem eru atvinnulausar eða hafa
ekki tök á að afla sér æskilegrar
menntunar.
Oft og tíðum hefur Norðurlanda-
ráð útfært ályktanir sfnar á þann
veg að þær geti tekið til þjóðfélags-
legra umbóta á alþjóðlegum vett-
vangi. Á hinum alþjóðlega kvenna-
áratugi var einkum leitazt við að
Dorte Bennedsen
beina athyglinni að konum í þróun-
arlöndunum og þar af leiðandi sam-
þykkti Norðurlandaráð ýmsar
ályktanir um norræna samvinnu til
hagsbóta fyrir þróunarlönd og gætu
þær orðið aflvaki þjóðfélagslegra
breytinga, sem konur í þróunar-
löndunum nytu ekki sízt góðs af.
Ráðstefnumar í Osló á næstu
dögum verða í framhaldi af þremur
alþjóðlegum ráðstefnum, sem
haldnar voru á vegum Sameinuðu ■
þjóðanna á kvennaáratugnum
1975—85. Markmiðið með þessum
norrænu ráðstefnum er það meðal
annars að fínna úrræði til að þróa
áfram norræna samfélagsgerð eftir
að kvennaáratugurinn hefur runnið
sitt skeið. Ennfremur er tilgangur-
inn sá að fá nákvæmari hugmyndir
en áður um hvar og með hvaða
hætti er hægt að halda áfram við-
leitninni við að ná fullkominni jafn-
stöðu karla og kvenna.
Þessi eftirmáli eftir ráðstefnur
Sameinuðu þjóðanna með kröfum
um aukið framlag til að bæta kjör
kvenna getur leitt til vaxandi áhuga
um heim allan á samvinnu, sam-
kennd og sameiginlegum verðmæt-
um norrænna þjóða, sem er jafn-
framt grundvöllur fyrir framsókn
kvenna og bættri stöðu þeirra í
samfélaginu.
Höfundur er aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Danmerkurdeildar
Norðurlandaráðs.
Samband vestfirskra kvenna:
Stjórnvöld lækki orku-
verð á landsbyggðinni
AÐALFUNDUR Sambands
vestfirskra kvenna var haldinn
á BQdudal 2. og 3. júlí síðastlið-
inn i boði Kvenfélagsins Fram-
sóknar á Bildudal. Mörg mál
voru til umræðu og gerð voru
um þau ályktanir, segir í frétt
frá Sambandi vestfirskra
kvenna.
Á fundinum var rætt um réttar-
stöðu heimavinnandi fólks og um
vegamál á Vestfjörðum, sem kon-
um þótti vera í miklum ólestri,
segir í fréttinni. Þá voru umhverf-
ismál reifuð og lýsti fundurinn
yfír áhyggjum sínum af mengun
sjávar.
Orkukostnaður heimilanna var
stærsta málið á þessum aðalfundi
og vildi fundurinn senda harðorðar
ályktanir til stjórnvalda. Eftirfar-
andi ályktun var samþykkt á fund-
inum: „Orkuverð á Vestfjörðum
er stór kostnaðarliður í útgjöldum
heimilanna. Það er brýnt hags-
munamál heimila á Vestfjörðum
og víðar á landsbyggðinni að orku-
verð sé lækkað. Okkur fínnst tími
til kominn að þingmenn kjördæm-
isins geri sér grein fyrir því að á
sama tíma og Landsvirkjun greiðir
hagnað af rekstri sínum, er orku-
verð á Vestfjörðum svo hátt að
stór hluti af tekjum heimilanna fer
í raforkukaup. Staðreynd er að
fólk flýr héðan vegna þessa. Við
skorum á stjómvöld að beita sér
fyrir því að orkuverð á lands-
byggðinni lækki og verði það sama
um allt land.“ I lok fundar fór
fram kosning ritara og var Guðrún
Jóhannesdóttir frá Bolungarvík
kosin. Jóhanna Kristjánsdóttir
Kirkjubóli, baðst undan endur-
kosningu í varastjóm. Voru henni
þökkuð góð störf í þágu kvenfé-
lagshreyfingarinnar á Vestfjörð-
um og hún einróma kosin heiðurs-
félagi Sambandsins, segir í frétt-
inni. Formaður Sambands vest-
firskra kvenna er Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir og gjaldkeri er
Kristín Björk Bjamadóttir.
Stöð 2 sýnir ekki
frá Ólympíuleikunum
STÖÐ 2 mun ekki verða með
útsendingar frá Ólympíuleikun-
um í Seoul í Suður-Kóreu í sept-
ember næstkomandi.
Ríkissjónvarpið hefur einkarétt
á sýningu efnis frá Ólympíuleikun-
um en það er í Sambandi evróp-
skra sjónvarpsstöðva. íslenska
sjónvarpsfélaginu hefur enn ekki
verið veitt innganga í Samband
evrópskra sjónvarpsstöðva.
Þótt Stöð 2 hafi ekki sýningar-
rétt á efni frá Ólympíuleikunum
mun greint frá gangi leikanna í
íþróttaþætti og fréttaþættinum
19:19 eftir því sem kostur er, að
því er forráðamenn Stöðvar 2
segja.