Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
íslenska loftvarnakerfið:
Islendíngar í forystusveit á
tölvusviðinu í heiminum
- segja bandarískir sérfræðingar
UNDANFARNA daga hafa full-
trúar íslands og Bandaríkjanna
unnið að samningi um þáttöku
íslendinga i LADS verkefninu
svokallaða eða íslenska loft-
vamakerfinu sem Atlantshafs-
bandalagið ætlar að byggja hér
og komast á í gangið 1994. Að
sögn bandarískra sérfræðinga
þýðir þátttaka íslendinga í þessu
verkefni að þeir verða í forystu-
sveit á tölvusviðinu i heiminum
næstu árin þar sem hugbúnaður-
inn í tölvukerfi IAlDS verður
byggður upp með Ada forritun.
Ada er nýtt og fullkomið forrit-
unarmál sem talið er að hafa
muni mikil áhrif á þróun hug-
búnaðarkerfa í framtíðinni.
Vegna þátttöku íslendinga í
þessu verki og starfs þeirra við
kerfíð í framtíðinni eru nú uppi
áform um að koma á fót kennslu í
Ada forritun við Háskóla íslands
enda talið að á milli 20 og 40
islenska forritara þurfí til að annast
verkið.
Sem kunnugt er af fréttum
Morgunblaðsins er það Mannvirkja-
sjóður Atlantshafsbandalagsins
sem stendur að smíði IADS hérlend-
is og ætlar að veija til þess sem
svarar 13 milljörðum íslenskra
króna. Staða þessa verkefnis nú er
sú að send hafa verið útboðsgögn
til þeirra verktaka sem áhuga hafa
á að bjóða í verkið og eiga þeir að
skila inn tilboðum sínum innan 84
daga. Hægt er að veita 21 dags
viðbótarfrest. Alls hafa 95 aðilar
fengið útboðsgögnin, bæði banda-
rískir og evrópskir en af þeim er
áætlað að aðeins 6-8 bjóði í verkið
sem aðalverktakar. í þeim hópi má
fínna fyrirtæki á borð við Hughes-
samsteypuna, Boeing, Lockheed og
Unisys. íslendingar eiga þess kost
að vera undirverktakar í uppbygg-
ingu IADS og er slíkt áskilið í út-
boðsgögnunum. Hinsvegar verða
þeir aðalverktakar í viðhaldi og
rekstri LADS er það kemst í gagn-
ið. íslensk hugbúnaðarsamsteypa
hefur þegar verið stofnuð vegna
þessa, Icelandic Software Consor-
tium eða ISC, en hana mynda Ar-
tek, VKS og Tölvumyndir hf.
Morgunblaðið ræddi við hina
bandarísku forsvarsmenn IADS og
Þorstein Ingólfsson skrifstofustjóra
Vamarmálaskrifstofunnar sem ver-
ið hefur í forsvari íslensku viðræðu-
nefndarinnar. Hinir bandarísku for-
svarsmenn em m.a. Bob Johnson
undirofursti við Electroic Systems
Division (ESD) sem sér um bygg-
ingu á tækjakostinum og Harry A.
Pearce ofursti við Tactical Air Com-
mand (TAC), sem annast mun upp-
setningu hugbúnaðarins og rekstur
hans.
Bob Johnson segir að þátttöku
íslendinga í verkinu megi rekja til
hins einstæða sambands sem er á
milli íslands og Bandaríkjana og
byggi á vamarsáttmálanum frá
1951. Samningurinn nú geri ráð
fyrir að íslenskir starfskraftar verði
notaðir eins og mögulegt er. Joel
Cocks ofursti og tölvusérfræðingur
hjá TAC segir að það séu fá lönd
í heiminum utan íslands sem
Bandaríkjamenn myndu treysta sér
til að eiga samstarf við á svipaðan
hátt og raun verður með
IADS...„Það sem liggur til grund-
vallar er hin mikla almenna mennt-
un sem til staðar er á íslandi svo
og að íslendingar eru almennt mjög
traustir og ábyggilegir starfs-
rnenn," segir Cocks.
Johnson segir að í samningum
um IADS muni verða einstætt
ákvæði sem kveður á um að verk-
taka þeim er fær verkið sé skylt
að nota íslenska starfskrafta eins
Þorsteinn Ingólfsson
og unnt er og að honum beri að
láta íslensk stjómvöld vita með
nægum fyrirvara hvaða verk beri
að vinna og hvenær eigi að vinna
Joel Cocks ofursti
Dr. Þorgeir Pálsson
það.
Eignm að geta
unnið þetta verk
Þorsteinn Ingólfsson segir að
enginn vafi sé á því að íslendingar
geti veitt aðalverktaka verksins
þann stuðning sem hann þurfí hér
innanlands...„Við höfum verið að
vinna að upplýsingaöflun á þessu
sviði og hefur Félag íslenskra iðn-
rekenda verið þar í forystu."
í máli Þorsteins kemur fram að
ekki er endanlega séð fyrir hve
mikill hlutur íslendinga í verkinu
geti verið en það er skýrt markmið
að hann verði sem mestur.
í þessu sambandi nefnir Bob Jo-
hnson að Pearce hjá TAC hafi farið
fram á það við ESD að þeir standi
að þjálfun þeirra íslendinga sem
komi til með að vinna að viðhaldi
hugbúnaðarins fyrir kerfíð er það
kemst í gagnið. Slíkt sé einstætt
að því leyti að það gerir ESD kleyft
að koma íslendingum inn í dæmið
hjá verkfræðingum hugbúnaðarins
frá upphafí þannig að þeir hljóti
reynslu og þekkingu í rekstri hug-
búnaðarins yfír nokkurra ára tíma-
bil...„Slíkt myndi gera íslendingum
kleyft að taka að sér viðhald og
rekstur hugbúnaðarins frá því að
kerfíð kemst í gagnið án nokkurra
vandkvæða," segir hann.
Háskólinn taki upp
kennslu í Ada forritun
Aðspurður um þátt Háskóla ís-
lands í þessu máli segir Þorsteinn
að Ada forritun sé ekki til staðar
þar nú. Koma þurfí' á fót kennslu
á þessu sviði, í samráði við stjóm
skólans. Hinsvegar sé ekki farið að
ræða það mál enn að ráði, þótt
háskólayfírvöld viti af því og hafí
sýnt málinu áhuga.
Harry Pearce segir i þessu sam-
bandi að Bandaríkjamenn sjálfír séu
enn tiltölulega skammt á veg komn-
ir í þróun Ada forritunar. Þetta sé
mjög flókið forritunarmál en allir
sem vit hafa á tölvumálum telji að
það sé mál framtíðarinnar á þessu
sviði. „Það eru til margir ólíkir kost-
ir á forritunarmáli en við völdum
Ada þar sem við teljum að það sé
mál framtíðarinnar. Auk þess hefur
ríkisstjóm okkar fyrirskipað okkur
að nota þann kost,“ segir Pearce.
Bob Johnson bætir því hér við
að Atlantshafsbandalagið hafí
áhuga á Ada þar sem viðhald og
rekstur kerfísins með því sé auð-
veldur. Og ekki sé það síður mikil-
vægt í framtíðinni að nota á Ada
við frekari uppbyggingu á loft-
Bob Johnson undirofursti
vamakerfum bandalagsins í Evr-
ópu.
Dr. Þorgeir Pálsson segir að enn
sé of snemmt að segja fyrir um hve
marga forritara þurfí er IADS
kemst í gang en það verði ein-
hversstaðar á bilinu 20 til 40
manns....„Fyrst verðum við að þróa
Ada hæfni, vélar og hugbúnað, við
Háskólann og svo vill til að bæði
innan tölvu-og verkfræðigeirans
þar er mikill áhugi á því. Það er
ekki síður mikilvægt að til staðar
sé hæft starfsfólk sem miðlað getur
af reynslu sinni á þessu sviði," seg-
Harry A. Pearce ofursti
ir dr. Þorgeir. „Við þyrftum því að
fá kennara til skólans."
Reynsla í þróun Ada forritunar
er þegar til staðar hérlendis í ein-
hverjum mæli þar sem Artek, eitt
af ISC fyrirtækjunum, hefur gert
Ada þýðanda fyrir PC tölvur.
ísland í
forystusveit
Joel Cocks segir að enn sem kom-
ið er sé lítil sérfræðiþekking til stað-
ar á Ada í heiminum. Þátttaka ís-
lendinga í þessu verkefni þýði að
þeir verði í forystusveit þeirra sem
þróa forritunarmálið. „Mín spá er
að Ada muni hafa gífurleg áhrif á
þróunina á hinum almenna tölvu-
markaði í heiminum næstu árin,“
segir Cocks. Johnson bætir því hér
við að þetta sé eitt af því sem vak-
ið hafí áhuga íslendinga á því að
vera með frá upphafi.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Morgunblaðsins hafa Frakkar
og Þjóðveijar enn ekki formlega
staðfest samning þann sem gerður
var innan Mannvirkjasjóðsins um
IADS. Bob Johnson segir að því
valdi minniháttar ágreiningsatriði
og að hann hefði aldrei sent út út-
boðsgögnin nema því aðeins að
hann teldi að þessi ágreiningur
myndi leysast á næstunni....„Ég er
ekki viss um að Þjóðveijar hafí
nokkuð við þennan saming að at-
huga en mér skilst á Frökkum að
þeir séu óánægðir með að ekki skuli
varið fé til hvortveggja, að þróa
Ada á íslandi og svo aftur í Evr-
ópu. Einnig skilst mér að þeir vilji
að þátttaka Evrópuríkja í verkefn-
inu sé tryggð," segir hann.
Samningurinn
í samkomulagi því sem rætt var
um undanfarna daga og báðir aðil-
ar eru sáttir við felst framlenging
á samkomulaginu um uppsetningu
ratsjárstöðvanna hérlendis. Gert er
ráð fyrir byggingu tveggja eftirlits-
stöðva auk hugbúnaðarins. Önnur
stöðin yrði varastöð fyrir hina en
báðar yrðu á Keflavíkurflugvelli.
Kerfíð verði fullbyggt 1992 en
næstu tvö árin verður unnið að
uppsetningu þess og prófunum á
því. Eftir að kerfíð er komið í gang-
ið munu Islendingar alfarið sjá um
viðhald þess og rekstur undir stjóm
Ratsjárstofnunnar. Sökum þessa er
nauðsynlegt að íslenskir starfs-
kraftar hljóti ítarlega þjálfun, sér-
staklega hvað hugbúnaðinn varðar.
Bandaríkjamenn munu koma upp
íslenskum tengilið við ESD í
Massachusetts þar sem flugherinn
myndi þjálfa hann og gefa honum
innsýn í heildarmyndina. Hann
myndi svo aftur aðstoða við frekari
þjálfun íslenskra starfskrafta.
Tveir reyndir íslenskir hugbúnað-
arverkfræðingar verða sendir til
þess aðila sem verður aðalverktaki
IADS og munu þeir vinna í nánum
tenglsum við hönnuði hugbúnaðar-
ins. Fjöldi þeirra Islendinga sem
hlýtur þessa þjálfun mun stöðugt
aukast og er áformað að þeir verði
orðnir 8 talsins tvö ár eftir að verk-
takinn tekur við verkefninu en 15
er lokaprófanir fara fram á því.
Þessi mannskapur myndar kjarnan
af þeim starfsmönnum sem síðar
vinna við viðhald og rekstur kerfis-
ins.
Aðalverktakinn mun einnig
þjálfa þá menn sem síðan skortir
til að vinna verkið, en sem fyrr
segir verða þeir á bilinu 20-40.
Allri þjálfun þessa starfskrafts á
að vera lokið fyrir 1994.
Þess má geta að Ada er kvenn-
mannsnafn, nánar tiltekið nafn
dóttur Byrons lávarðar er hét Ada
Augusta Lovelace.Hún er talin vera
fyrsti forritari í heiminum og er
forritið skírt í höfuð hennar.
Byggingarsjóður ríkisins:
Lánað til kaupa eða bygginga
á sérhönnuðum þjónustuíbúðum
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um lán úr Bygg-
ingarsjóði ríkisins, samkvæmt nýjum lánaflokki, vegna lána til
kaupa eða bygginga á sérhönnuðum ibúðum fyrir fólk 60 ára og
eldra. Markmið þessa lánaflokks er að auðvelda fólki 60 ára og
eldra að komast i sérhannaðar þjónustuíbúðir.
Samkvæmt reglugerðinni er fyrir að umsækjandi sem er að
gert ráð fyrir að veitt verði fram- skipta um íbúð þurfí að selja hana
kvæmdalán ef um nýbyggingar
er að ræða, til sveitarfélaga eða
félagasamtaka, sem hlotið hafa
samþykki félagsmálaráðuneytis-
ins. Þegar framkvæmdum er lokið
og fram hefur farið úttekt á þeim
er framkvæmdaláninu breytt í
skammtíma- eða langtímalán til
kaupenda íbúðanna.
Skammtímalán á að koma í veg
fyrr en hann getur flutt inn í þjón-
ustuíbúðina. Langtímalánið verður
til allt að 40 ára og eru tvö fyrstu
árin afborgunarlaus. Umsækjandi
sem er að eignast sína fyrstu íbúð
á kost á hámarksláni samkvæmt
reglum Bygginarsjóðs um lán til
nýbygginga. Sömu reglur um láns-
rétt gilda um skammtíma- og
langtímalán.
Reglugerð þessi er liður í san
ræmingu og endurbótum á húí
næðismálum aldraðra. í tengslui
við stofnun þessa nýja lánaflokk
hefur félagsmálaráðherra óska
eftir því við húsnæðismálastjór
að ráðgjafarstöð Húsnæðisstofr
unar ríkisins veiti fólki 60 ára o
eldri sérstaka ráðgjöf varðani
íbúðaskipti.
Ætlunin er að veita 100-20
milljónum króna til framkvæmda
lána vegna þessa lánaflokks
þessu ári.
(Úr fréttatilkynningu).