Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 27

Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 27 Verður í Ljósufjöllum um V er slunar mannahelgina Aheitaganga Leifs Leópoldssonar: „Mun sjá Reykjavík yfirgefna í suðri“ LEIFUR Leópoldsson er nú lagð- ur af stað upp Bröttubrekku í Borgarfirði og á þá eftir að ganga í eina viku áður en ferð hans lýkur við Arnarstapa á Snæ- fellsnesi. Tilgangurinn með göngu Leifs er sem kunnugt er að safna áheitum til styrktar Krýsuvíkursamtökunum, en markmið þeirra er að koma á fót meðferðarstofnun og skóla í Krýsuvík fyrir unglinga sem lent hafa í vímuefnavanda. Um síðustu helgi gekk Leifur yfír Amarvatnsheiði. „Ég gekk í vesturátt eftir áttavita mest allan tímann. Það tók tvo daga að ganga yfír heiðina í blindaþoku og hvassri norðanátt. Mýrarkeldur og urðir til skiptis; pollar og tjamir og kenni- leitalaust. Á Amarvatnsheiði svaf ég undir berum himni og sömuleið- is síðustu nótt.“ Nú er Leifur kominn til byggða og var staddur í Hreðavatnsskála þegar Morgunblaðið náði tali af honum. „Leiðin liggur nú áfram Bröttubrekku í átt að Hítarvatni á Snæfellsnesi. Sá hluti leiðarinnar er á vissan hátt erfíðari en hálend- ið, að því leyti tii að það er tiltölu- lega bratt, en þó er visst öryggi í því að vera því sem næst í byggð. Nú er ég að leggja upp í þriggja daga göngu og tek með mér nesti til ferðarinnar. Næsti viðkomustað- ur er í Hnappadal, við Heydalsveg sem liggur yfír Snæfellsnesið." Leifur kvaðst einkum vera farinn að þreytast á því að bera bak- pokann, en hann hefur enn ekki náð sér eftir að hann gekk í 23 tíma samfleytt með 30 kg á bakinu á Gæsavatnaleið. „Ég verð væntanlega í Ljósufjöll- um um Verslunarmannahelgina og mun þá horfa yfir Reykjavík yfír- gefna í suðri. Ég ætla að skilja prímusinn eftir nú þegar ég legg af stað í næsta áfanga og verð því að láta mér_ nægja kaldan mat í þrjá daga. Ég tel það ekki eftir mér þegar ég hugsa til þess að margir munu ekki búa við betri kost um næstu helgi þar sem þeir veltast um drukknir," sagði Leifur. Snorri Welding hjá Krýsuvíkur- samtökunum sagði að söfnunin gengi þokkalega þó enn vantaði nokkuð á að tækist að safna þeim sex milljónum sem stefnt var að. „Það er byrjað að streyma inn fé frá sveitarstjórnum, fyrirtækjum, félagasamtökum og eins hefur starfsfólk fyrirtækja tekið sig sam- an og lagt sitt að mörkum. Okkur hefur sömuleiðis verið gefið eitt- hvað af húsgögnum, svefnbekkjum, sófasettum og fleiru sem fer allt í upp í Kiýsuvík, þar sem það flýtir fyrir því að hægt verði að koma fýrsta áfanga skólans í gagnið. Við höfum sent út bæklinga til 3500 fyrirtækja, presta, safnaða, lækna, og heilsugæslufólks, þar sem sam- tökin og markmið þeirra eru kynnt, og vonumst eftir sem mestum stuðningi" sagði Snorri. Göngugarpurinn Leifur Leópoldsson á leið yfir hálendið. Þríhyming- urinn t.v. er merki Krýsuvíkursamtakanna. ÚTSALA Afsláttur af öllum karlmannafötum, jökkum, terylenebuxum og ýmsum öðrum vörum. * Karlmannaföt kr. 3.995 - 5.500 - 8.900 og 9.900. * Jakkar kr. 4.995. á Terylenebuxurkr. 1.195-1.595 og 1.795. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. Kvennaráðstefnan í Ósló: „Undarleg ósköp að vera kona“ Morgunblaðið/KGA Sigurður Karlson og Hanna María Karlsdóttir í hlutverkum sínum í Guðrúnu Ósvífursdóttur. Til hliðar stendur Ásdís Skúladóttir leik- stjóri, sem les millitextann. Á kvennaráðstefnunni í Ósló, sem hefst þann 31. júií næst- komandi, verður framlag Bandalags kvenna í Reykjavík dagskrá er nefnist „Undarleg ósköp að vera kona“. Ásdís Skúladóttir hefur tekið saman nokkra leikþætti eftir íslenska höfunda og samið millitexta auk þess hún stjórnar flutningi. Leikarar í sýningunni eru Hanna María Karlsdóttir og Sigurður Karlsson en auk þeirra syngur kór Bandalags kvenna í sýningarlok. Leikatriðin er úr fimm leikrit- um; Guðrúnu Ósvífursdóttur eftir Þórunni Sigurðardóttur, Reykjavíkursögum Ástu Sigurðar- dóttur í leikgerð Helgu Bachman, Blýhólknum eftir Svövu Jakobs- dóttur, Saumastofunni eftir Kjart- an Ragnarsson og Jóa eftir sama höfund. Á milli atriða flytur Ásdís milli- texta sem fenginn er víða að; úr biblíunni, íslandsögunni, bók- menntasögu, stjómmálasögu og kirkjusögu auk fleygra orða sem margt mætra manna hefur látið fálla um konur. í lok sýningarinn- ar, sem er um klukkutíma löng, syngur Hanna María ásamt söng- kór Bandalags kvenna lagið „Kvennmannslaus í kulda og trekki kúrir saga vor...“ Aðstæður til matf isk- • • eldis í Oxarfirði kannaðar Borunum lýkur í haust Rannsóknarboranir standa nú yfir í Öxarfjarðarhreppi í Norður-Þingeyjarsýslu, upp af fjarðarbotninum við austan- verðan Öxarfjörð. Verið er að kanna aðstæður til matfiskeldis í Öxarfirði og er leitað eftir grunnvatni, jarðhita og jarðsjó. Boranirnar hafa þegar skilað nokkrum árangri, en þeim lýkur í haust. Það eru þrír hreppar, Kelduneshreppur, Öxarfjarðar- hreppur og Presthólahreppur sem fjármagna rannsóknirnar auk iðnaðarráðherra og Orku- stofnunnar, sem sér um fram- kvæmdirnar. Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarðfræðíngur hjá Orkustofnun, sagði það ekki rétt sem komið hefur fram í fréttum, að fundist hafi gas í einni heitavatnsholunni á svæðinu. Það hafi reyndar rétt vottað fyrir lífrænu gasi, en hann sagðist ekki vita hvort það ætti sér eðlilegar orsakir eða hvort það væri komið frá olíu sem notuð hefur verið við borinn. „Við höfum haft þetta meira í flimtingum okk- ar á milli og kallað þetta „þin- geyskt loft“. Þetta gæti verið skýr- ingin á því. Annað er ekki hægt að segja fyrr en niðurstöður liggja fyrir og það verður ekki fyrr en borunum líkur eftir tvær til þijár vikur,“ sagði Guðmundur. Boranir hófust í Öxarfirði fyrra- sumar og eru, eins og fyrr segir, tengdar rannsóknum á aðstæðum til matfiskeldis á svæðinu. Leitað hefur verið eftir jarðsjó og grunn- vatni til að nota við fiskeldið og sagði Guðmundur að tvær holur hefðu skilað nokkrum árangri. Niðurstöður borana eftir köldu vatni komu þó nokkuð á óvart, þar sem kalda vatnið sem búist var við að væri um 10 gráður reyndist vera 35 gráður. Boranir eftir heitu vatni á 500 metra dýpi standa nú yfir, en áður hefur verið borið á innan við 100 metrum. Vatnið í grynnri holunni reyndist 100 gráðu heitt, en vonast er eftir meiri hita í nýju holunni. Tjarnargata: Fleirikærur ÍBÚAR við Tjarnargötu hafa enn kært til félagsmálaráðuneytisins einstök atriði i undirbúningi ráð- húsbyggingarinnar við Tjörnina. Að þessu sinni er kærð sú ákvörð- un byggingarnefndar Reykjavík- ur að stækka lóðina Tjaruargötu 11 og úthlutun sömu nefndar á þessu svæði til Reykjavíkurborg- ar. Einnig kæra íbúarnir veitingu byggingarleyfis fyrir ráðhúsið á þeirri forsendu að Reykjavíkur- borg sé ekki réttmætur eigandi lóðarinnar. í greinargerð með kæru íbúanna leggja þeir fram skjöl frá borgar- fógetaembætti um að engar séu til eignarheimildir á svæði því, sem bætt var við lóðina Tjarnargötu 11. „Það er hins vegar alkunna að eig- endur húsa við Tjarnargötu hafa ávallt verið taldir eiga land að Tjöminni og allan rétt sem því fylgdi, t.d. ístökurétt á sínum tíma,“ segir í greinargerð íbúanna. DAGVIST BARNA Hollusta í fyrirrúmi Dagheimiliö Sunnuborg, Sólheimum 19, óskar eftir ráðskonu frá 1. ágúst. Starfid krefst undirstöðuþekkingar í næringar- fræði og felst í matargerð og matarinn- kaupum í samráði við starfsfólk heimilis- ins. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 36385. fomhjólp DAGSKRÁ SAMHJÁLPAR YFIR VERSLUNARMANNAHELGINA FYRIR ÞÁ, SEM EKKIKOMAST ÍFERÐALAG Fimmtudagur 28. júlí: Almenn samkoma kl. 20.30. Mikill söngur. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburðir. Allir velkomnir. Laugardagur 30. júlí: Opið hús frá kl. 14-17. Lítið inn og rabbið um daginn og veginn. Heitt kaffi á könnunni. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Kl. 15.30 tökum við lagið saman og syngjum kóra. Allir velkomnir. Sunnudagur 31. júli: Samhjálparsamkoma kl. 16.00. Mikill og fjölbreyttur söngur. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Vitnisburðir. Ræðumaður verður Óli Agústsson. ALLIR VELKOMNIR f ÞRÍBÚÐIR, HVERFISGÖTU 42. S JÁ NÁNAR í FÉLAGSLÍFI. Samhjálp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.