Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
31
Búrma:
Sein Lwin treyst-
ir valdastöðu sína
Rangoon. Reuter.
SEIN Lwin, uppgjafa hershöfðingi og nývalinn eftirmaðUr Ne Wins
í formannsembætti sósialistaflokks Búrma, treysti valdastöðu sina í
gær með þvi að bæta á sig forsetanafnbót.
Þing Búrma útnefndi Tun Tin
fyrrum fjármálaráðherra til emb-
ættis forsætisráðherra en því emb-
ætti gegndi Maung Maung Kha
áður, einn af gömlu mönnunum sem
nú víkja. Þessar mannabreytingar
fylgja í kjölfar örlagaríks aukaþings
sósíalistaflokksins. Þar með lauk
26 ára valdatíma Ne Wins sem
breytt hefur „hrísgijónakistu Asíu“,
eins og landið var áður nefnt, í eitt
fátækasta land heims. Sendimenn
erlendra ríkja segja að skipun Seins
Lwins í embætti forseta og flokks-
formánns boði síst betri tíma fyrir
38 milljónir íbúa Búrma.
Sein Wlin er 64 ára gamall og
hefur frá því flokkurinn hrifsaði til
sín öll ,völd árið 1962 séð um að
beija niður andstöðu við valdhafana
og verið yfirmaður hinnar alræmdu
Lon Htein óeirðalögreglu. Hann er
hataður meðal námsmanna sem
stóðu fyrir óeirðum á síðasta áratug
og meðal miðaldra Búrma, hverra
börn hafa orðið fyrir barðinu á hern-
um. Stærsti stjómarandstöðuhóp-
urinn í landinu er Kommúnista-
flokkur Búrma sem náð hefur norð-
urhéruðum landsins á sitt vald.
Annað stjómmálaafl er Lýðræðis-
fylkingin, samsteypa níu minni-
hlutahópa sem berst gegn stjórn-
inni.
Búist er við þvi að Sein Wlin leggi
sig allan fram við að hrinda efna-
hagslegum umbótum í framkvæmd
sem samþykktar vom á flokks-
þinginu á mánudag. Hann hefur
hins vegar gert flestum ljóst að
hann kæri sig ekki um að önnur
stjómmálaöfl en sósíalistaflokkur-
inn verði heimiluð. Ne Win hafði
vakið vonir þar að lútandi í síðustu
viku. Sein Wlin segir að kerfinu sé
ekki um að kenna hvemig komið
sé fyrir landinu heldur spilltum
embættismönnum.
Einstök atriði efnahagsumbót-
anna hafa ekki verið opinbemð en
talið er að í þeim felist að leyft
verði aukið einkaframtak, samstarf
við erlend fyrirtæki og verðsam-
keppni.
Búrma var hluti af breska heims-
veldinu frá 19. öld fram til 1942
er Japanir hernámu landið. í
stríðslok náðu herir bandamanna
landinu á sitt vald á ný og árið
1948 fékk Búrma sjálfstæði. Árið
1962 hrifsaði Ne Win hershöfðingi
til sín völdin og tveimur ámm síðar
bannaði hann önnur stjórnmálaöfl
en sósíalistaflokkinn.
Reuter
Talsmenn deiluaðila í Kambódiu: Khieu Samphan, leiðtogi Rauðra khmera; Son Sann, leiðtogi Hvítra
khmera og formaður í samtökum skæruliðahreyfinganna þriggja; Hun Sen, forsætisráðherra stjórnar-
innar í Phnom Penh; Sihanouk og sonur hans, Norodom Ranariddith.
Viðræður um frið í Kambódíu:
Sihanouk fellur frá kröfunni
um alþjóðlegar friðarsveitir
Jakarta. Reuter.
NORODOM Sihanouk prins og fyrrum þjóðhöfðingi í Kambódiu
hefur fallið frá þeirri kröfu, að alþjóðlegar eftirlitssveitir fylgist
með framkvæmd hugsanlegs samkomulags um frið i landinu.
Þykja þetta nokkur tíðindi og eftirgjöf fyrir Rauðum khmerum,
stjórninni í Phnom Penh og Víetnömum. Eftir sem áður veldur
það mestum áhyggjum hvernig koma megi í veg fyrir valdatöku
Rauðra khmera þegar víetnamska herliðið er farið.
deilt um leiðir til að hindra, að
Rauðir khmerar kæmust aftur til
valda. Kvaðst Ijann hlynntur hug-
myndum um alþjóðleg
stríðsglæparéttarhöld þar sem
leiðtogar Rauðra khmera yrðu
látnir svara til saka fyrir glæpa-
verkin'á árunum 1975-79.
Á þriðja degi friðarviðræðn-
anna, sem nú eru haldnar í Ja-
karta í Indónesíu, skoraði Sihano-
uk á fulltrúa allra hreyfinganna
fjögurra, stjómarinnar í Phnom
Penh, sinna eigin samtaka, Rauðra
khmera og Hvítra khmera, að láta
ekki úr greipum sér ganga það
tækifæri, sem þeir hefðu til að
Kína:
Hallarekstur á fyrir-
tækjum 1 ríkiseign
Peking. Reuter.
NÆRRI fimmtungur fyrirtækja í
rekin með halla. Vandinn stafar
og lélegri yfirstjórn.
Háttsettur kínverskur embætt-
ismaður lét hafa eftir sér að fyrir-
tækin þyrftu að sameinast öðrum
stærri eða vera tekin til gjald-
þrotaskipta. Ifyrstu gjaldþrotalög-
in taka gildi í Kína í nóvember
en hingað til hefur ekkert ríkis-
rekið fyrirtæki farið á hausinn en
15% útgjalda á fjárlögum þessa
árs eru styrkir til ríkisfyrirtækja
sem eru rekin með halla.
Könnun sem náði til 120 verk-
eigu hins opinbera í Kina eru
af of mörgum starfsmönnum
smiðja í leiddi í ljós að algengt
er að starfsmenn séu óþarflega
margir. Það hefði í för með sér
mörg innantóm störf, rifrildi og
skrifræði. Margar undriskriftir
þyrfti áður en einföldum hlut
væri komið í verk.
Það er þó erfiðleikum bundið
fyrir stjórnvöld að hætta rekstri
fyrirtækjanna vegna andstöðu
héraðsstjórna og lögreglu sem
óttast ólæti og atvinnuleysi.
semja um frið í Kambódíu. „Ég
bið ykkur að fara ekki héðan fyrr
en þið hafið sýnt okkar eigin fólki
og öllum heimi fram á, að við
getum orðið ásáttir um það, sem
máli skiptir," sagði Sihanouk.
Sihanouk hefur áður lagt til og
krafist þess, að alþjóðlegar friðar-
sveitir tryggi, að Rauðir khmerar,
stærsta skæruliðahreyfingin,
komist ekki aftur til valda í
Kambódíu, en í gær kvaðst hann
geta sæst á, að alþjóðleg fram-
kvæmdarnefnd fylgdist með hugs-
anlegu samkomulagi. Stjórnin í
Phnom Penh, Víetnamar og Rauð-
ir khmerar hafa öll verið andvíg
alþjóðlegum eftirlitssveitum.
Talið er, að Rauðir khmerar
hafi á valdatíma sínum í Kambódíu
myrt hundruð þúsunda eða jafnvel
milljónir manna og Sihánouk sak-
ar þá um að hafa ráðist á og drep-
ið skæruliða, sem honum eru holl-
Sihanouk hefur lagt fram frið-
aráætlun í fimm liðum og er í
henni gert ráð fyrir samstjórn allra
hreyfinganna ijögurra. Hann gerir
þó ráð fyrir, að stjómsýslan verði
fyrst um sinn í höndum núverandi
stjómvalda. Nguyen Co Thach,
utanríkisráðherra Víetnams, sagði
á fundunum í gær, að þótt sam-
komulag væri um margt, væri enn
Umdeilt dómsmál í Júgóslavíu:
Fjórir Slóvenar
dæmdir í fangelsi
Ljubljana. Reuter.
FJÓRIR Slóvenar voru í gær dæmdir til allt að fjögurra ára vist-
ar innan fangelsismúra fyrir að hafa látið uppi hernaðarleyndar-
mál. Þrír hinna dæmdu eru blaðamenn og hafa Slóvenar mót-
mælt handtöku þeirra ákaft og sakað hermálayfirvöld um valdní-
ðslu.
Herdómstóll kvað dómana upp
en mennimir vom dæmdir sam-
kvæmt 224. grein hegningarlaga
sem kveður á um refsingar þeirra
sem gerast sekir um að skýra frá
hernaðarleyndarmálum. Mennirnir
vom handteknir í maí og í byijun
júní eftir að tímarit sem þeir störf-
uðu við hafði birt grein þar sem
íjallað var um áform yfirmanna
hersins um að bijóta á bak aftur
fijálslyndisstefnu stjórnvalda í
Slóveníu. Auk blaðamannanna
þriggja var foringi í hernum hand-
tekinn og hlaut hann þyngsta
dóminn; fjögurra ára fangelsi.
Tveir blaðamannanna fengu 18
mánaða dóma en sá þriðji fimm
mánuði. Mennimir kváðust allir
vera saklausir af ákærunni.
Handtökum mannanna hefur
verið harðlega mótmælt í Slóveníu.
Stjómvöld þar þykja fylgja frjáls-
lyndisstefnu og hafa þau deilt
hart á yfirmenn herafla Júgóslavíu
vegna þessa máls. Þá hefur verið
boðað til ijöldafunda til að mót-
mæla handtökunum.
Um 10.000 manns söfnuðust
saman við herstöðina í Ljubljana
þar sem dómarnir vom kveðnír
upp og lýstu andúð sinni er niður-
staðan hafði verið kynnt. Hljóm-
sveit lék ættjarðarlög frá Slóveníu
og menn héldu á borðum þar sem
á var letrað: „Við sættum okkur
ekki við þessa dóma“.
Hermálayfirvöld í Júgóslavíu
segja að mennirnir hafí ekki verið
handteknir og dæmdir vegna tíma-
ritsgreinarinnar heldur hafi þeir
haft undir höndum leyniskjal um
viðbúnað og bardagahæfni júgó-
slavneskra hersveita.
SumartHboð
Svínakótelettur 799. mkr.
Kryddlegnar svínakótelettur899." kr.
Kryddlegnar kambsteikur989.-kr.
Gott á grillið - Allt kjöt afnýslátruðu - Gott á grillið