Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 46

Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 46
YDDA F5.25/SIA 46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 SKORAÐU KÖRFU FYRIR ÍSLAND! Höldum landinu hreinu! Það var ekki tilviljun að við völdum full- komnar dósir, með áföstum upptakara, fyrir Egils drykkina; þær hafa í för með sér mun minni umhverfismengun. Nú er komið að þér. Sýndu hæfni þína; hentu tómu Egils dósinni þinni í ruslakörfuna og skoraðu körfu fyrir ísland. Vertu með, höldum landinu hreinu. Wj - áskorun um bætta umgengni! HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON Minning: Höskuldur Stefáns- son, rafvélavirki Fæddur 5. apríl 1941 Dáinn 18. júli 1988 í dag verður jarðsettur vinur minn, Höskuldur Stefánsson. Hös- kuldur, sem við öll héldum að ætti ótal mörg ár ólifuð og væntum að fá að njóta með honum. En skyndi- lega er kallið komið og við stöndum agndofa frammi fyrir þeirri hel- köldu staðreynd að Höskuldur, þessi elskulegi góði drengur er ekki leng- ur hjá okkur. Minningarnar hrannast upp. Arin sem ég vann í Hrísnesi hf., fyrir- tækinu sem hann byggði upp ásamt konu sinni. Þar var nákvæmni og lipurð alltaf í fyrirrúmi gagnvart viðskiptavinum eins og starfsfólki. Ef búið var að lofa einhveiju vildi Höskuldur að staðið væri við það. Ég sem starfsmaður fann þá alúð og einlægni sem hann sýndi starfi sínu, starfsfólki og fjölskyldu. Ég laðaðist að þessum manni sem lét sig varða og gaf tíma þeim sem á þurftu að halda. Þá og alla tíð síðan hef ég verið svo lánsamur að fá að kalla Höskuld, þennan jákvæða mannlega persónuleika, einn af mínum bestu vinum. Höskuldur átti mörg áhugamál. Meðal annars var hann skíðamaður góður og einnig hafði hann mikið yndi af að fljúga litlu flugvélinni sinni. Stærsta áhugamál hans var þó íjölskyldan, hennar velferð og afkoma. Eftirlifandi eiginkona Hös- kuldar er Sigurbjörg Björnsdóttir og áttu þau þtjá syni, þá Valbjörn, Rúnar og Þröst. Þau syrgja nú góðan eiginmann og föður. Ég votta þeim mína dýpstu samúð, einnig Guðrúnu móður hans og öðrum aðstandendum. Finnur Þegar ég tek mér penna í hönd og sendi fátækleg skrif um Hösk- uld frænda minn, sem lést á gjör- gæsludeild Borgarspítala 18. þ.m., af völdum slyss, sem hann varð fyrir á mótorhjóli, er hann ók aust- ur undir Eyjafjöllum tveim dögum fýrr, þá er í huga mínum slíkt tóm, að ég fæ ekki orðum að komið. Hann, þessi sterki hlekkur í fjöl- skyldukeðju okkar, er numinn brott með sviplegum hætti. Slysin gera ekki boð á undan sér segja menn oft, og svo sannarlega er það rétt. Sú spurning verður þó alltaf áleitin, hver sé tilgangur lífsins. Er þetta skóli okkar, sem eftir lif- um, er sorgin einn af þeim þáttum lífsins, sem þroska okkur til dáða? Hún fer sannarlega ekki í mann- greinarálit og löngum hlífir hún engum. Eru menn kallaðir til ann- arra starfa á besta aldri í miðju lífsstarfi frá konu og börnum. Svör við þessum hugrenningum kann ég engin, en genginn er góður dreng- ur, sem ég veit að er sárt saknað af öllu frændfólki okkar og að því kveðinn mikill harmur. Ég bið góðan guð að styrkja og annast hans elskulegu eiginkonu, Sigurbjörgu Björnsdóttur, drengina þeirra, tengdadóttur og sonardótt- ur, aldraða móður, systkini og fjöl- skyldur þeirra. Höskuldur var fæddur 5. apríl 1941 á Kirkjubóli í Korpudal í On- undarfirði. Hann var sonur hjón- anna Guðrúnar Össurardóttur og Stefáns R. Pálssonar, er þar bjuggu, og var hann þriðji í röðinni af fimm systkinum er upp komust. Skúlína og Kjartan voru honum eldri, en Páll og Össur yngri. Ég þekkti vel æskuheimili Höskuldar og naut þar sem barn og unglingur mikils kærleika og umhyggju. Þar dvaldist líka öldruð amma, sem var okkur öllum svo kær. Með veganesti frá þessu myndar- heimili fór enginn illa búinn. Hösk- uldur lærði rafvirkjun og rak um t BJÖRG JÓNASDÓTTIR tannsmiður, Hverfisgötu 3, Hafnarfirði, er látin. Fyrir hönd vandamanna, Helga Jónasdóttir, Eli'as B. Elfasson. t Stjúpmóðir okkar og fósturmóðir, SIGURBJÖRG VIGDÍS GUÐBRANDSDÓTTIR, Hringbraut 42, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Gunnar Guðmundsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Ingimar Jónsson, Þorsteinn Guðmundsson, Valtraut Paulsen, Hjörtur Guðmundsson, Auður Sigurbjörnsdóttir. MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ FLUGUHJÓL Fóst í nœstu sportvöruverslun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.