Morgunblaðið - 28.07.1988, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SIGURÐUR SIGURGEIRSSON
vólvirkja- og pipulagningameistari,
Aðalgötu 14,
Stykkishólmi,
lést i St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi þriðjudaginn 26. júlí.
Ingveldur Kristjánsdóttir,
dætur og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma,
HALLA KR. SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Smáraflöt 12,
Garðabæ,
er lést 22. júlí, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 29.
júlí kl. 13.30.
Guðjón Þorleifsson,
Þórdi's Jóna Guðjónsdóttir,
Svavar Heimir Guðjónsson,
Erna Hrönn Guðjónsdóttir, Fred Bianga,
Rafn Arnar Guðjónsson, Anna Marfa Þorláksdóttir,
Víðir Þormar Guðjónsson, Málfrfður Elfsdóttir,
Stella Dröfn Guðjónsdóttir, Jóhannes Jóhannesson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BJÖRN BALDURSSON,
Háaleitisbraut 28,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Jófrfður Sveinsdóttir,
Aron Björnsson,
Edda Björnsdóttir.
t
Útför mannsins míns og föður okkar,
INGIBJARTAR ÞORSTEINSSONAR
pfpulagningameistara,
Espilundi 1, Garðabæ,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júlí kl. 15.00.
Kristfn Guðmundsdóttir,
Kristrún Ingibjartsdóttir,
Hugi Ingibjartsson.
Skarphéðinn Ama-
son — Minning
Fæddur 22. september 1919
Dáinn 18. júlí 1988
Mér er bæði ljúft og skylt að setja
nokkur kveðjuorð á blað við andlát
og jarðarför vinar míns, Skarphéðins
Amasonar. Við áttum samleið í 35
ár við störf að íslenskum flug- og
ferðamálum, auk þess sem náin per-
sónuleg tengsl sköpuðust okkar í
milli á örlagastundu í lífi hans.
Skarphéðinn var einn þeirra sem
um iangt árabil störfuðu í forsvari
fyrir Flugfélag Islands erlendis, und-
ir yfírstjóm vinar okkar og félaga,
Amar 0. Johnson. Það var ekki stór
hópur, sem starfaði að sölu- og
markaðsmálum hjá félaginu á þess-
um áram, en samstaða okkar, sam-
vinna og vinátta var mikil og góð..
Reglulega var komið saman til
skrafs og ráðagerða, heima og er-
lendis. Við litum á okkur sem vor-
menn Islands í þessari atvinnugrein
og gerðum okkur góða grein fyrir
að við voram að sá í lítt plægðan
akur, en voram jafnframt sannfærð-
ir um að uppskeran yrði góð. Við
hvem nýjan áfanga glöddumst við
innilega saman og stefnan var sett
á ný takmörk og enn frekari land-
vinninga. Minningamar um liðna
áfangasigra skjóta upp kollinum
hver af annarri. Kaupin á fyrstu
íslensku skrúfuþotunum til milli-
landaflugs, fyrsta íslenska skrúfu-
þotan tekin í notkun á flugleiðum
innanlands og ef til vill stærsti
áfanginn, þegar fyrsta íslenska þot-
an, Gullfaxi Flugfélags íslands, kom
til landsins í júní 1967.
Skarphéðinn tók þátt í öllum þess-
um atburðum af lífi og sál. Á þessum
áram starfaði hann í Danmörku,
Noregi, Þýskalandi og síðan aftur í
Noregi þar sem hans starfsdegi lauk
hjá Flugleiðum. Það var sama hvar
hann dvaldi. Alls staðar var hann
vinsæll og vel látinn, enda vildi hann
hvers manns vanda leysa. Ég veit
að margir viðskiptavinir Flugfélags
íslands á þessum áram minnast hans
nú með þakklæti og virðingu.
í Þýskalandi kvaddi sorgin dyra
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinsemd viö andlát og útför
HELGU ATLADÓTTUR,
Houston, Texas.
F.h. barna, barnabarna og systkina,
Kristín Ögmundsdóttir Garver
og Sherry Sebek.
t
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
GUÐRÍÐAR ÁSGEIRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs.
Rebekka Guöfinnsdóttir, Kristján Einarsson,
Karl Guöfinnsson, Hafdfs Jónsdóttir,
Guðlaugur Guöfinnsson, Ásdfs Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
SIGURJÓN GUÐJÓNSSON,
Efri-Holtum,
Vestur-Eyjafjöllum,
verður jarösunginn frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 30. júlí kl.
14.00.
Jón Sigurjónsson,
Unnur Jóna Sigurjónsdóttir,
Kristbjörg Sigurjónsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR ELLERTSSON,
Miðbraut 1,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 29. júlíkl. 13.30.
Valborg Guðjónsdóttir,
Katrfn Ellertsdóttir,
Guðjón Sigurösson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Edda V. Sigurðardóttir, Stanton B. Perry
og barnabörn.
t
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
SKÚLA JÓNSSONAR,
Hróarslæk,
Rangárvöllum.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landakotsspítala og á
gjörgæsludeiid Landspítalans.
Ingigerður Oddsdóttir,
Helgi Skúlason,
Guömundur Skúlason,
Ragnheiður Skúladóttir, Þröstur Jónsson,
Sólveig Jóna Skúladóttir, Bjarni Sveinsson,
Þóroddur Skúlason
og barnabörn.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jaröarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MARÍU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Njarðvíkurbraut 19,
Innri-Njarðvík.
Hákon Kristinsson,
Þorsteinn Hákonarson, Kristfn Tryggvadóttir,
Stefanfa Hákonardóttir, Sigurbjörn J. Hallsson,
Bryndfs Hákonardóttir, Guðmundur Pálmason,
Steinunn Hákonardóttir, Elvar Ágústsson
og barnabörn.
Lokað
Lokað í dag, fimmtudaginn 28. júlí, vegna jarðarfarar
HÖSKULDAR STEFÁNSSONAR.
Hrísnes hf.,
Auðbrekku 16, Kópavogi.
Lokað
Vegna útfarar HÖSKULDAR R. STEFÁNSSONAR verð-
ur lokað í dag frá kl. 12.00 á hádegi.
Nylonhúðun hf.,
Lyngási 8, Garðabæ.
Lokað
Vegna útfarar HÖSKULDAR R. STEFÁNSS0NAR verð-
ur verslun okkar lokuð eftir hádegi í dag, fimmtudaginn
28. júlí.
Álfaborg hf.,
Skútuvogi 4.
hjá Skarphéðni þegar eiginkona
hans, Brynja, lést af bamsföram og
hann stóð einn eftir með dætumar
tvær, Helgu og litlu Brynju. Okkur
hjónunum veittist þá sú gleði að
geta orðið honum að liði. „Dóttir
ykkar biður að heilsa." Þetta sagði
Skarphéðinn við mig nánast í hvert
skipti eftir þetta þegar fundum okk-
ar bar saman. En élin birtir, einnig
þau dimmustu. Elínborg, seinni kona
Skarphéðins, kom inn í líf hans.
Saman byggðu þau upp nýtt heimili
og Elínborg varð dætranum tveimur
sem besta móðir.
„Ég bið að heilsa öllum heima.“
Þetta sagði Skarphéðinn einnig í
hvert skipti er við kvöddumst. Hug-
urinn var alltaf mikið hér heima á
Islandi. Hér átti hann marga vini,
sem allir kunnu vel að meta dreng-
skap hans, tryggð og einlægni. Aldr-
ei lagði hann illt til nokkurs manns.
Skarphéðinn var ef til vill of góður
fyrir þennan heim. Slík var einlægni
hans og trúmennska.
Fari gamall vinur sæll á nýjum
vegum. Starfsfélagar hans hjá Flug-
félagi íslands óska honum góðrar
ferðar, af sama hlýhug og hann ósk-
aði svo mörgum þess sama, og þakka
honum allt hans ágæti og vináttu.
Við Ragnheiður vottum þér, Elín-
borg, ykkur dætranum, Helgu og
Brynju, og sonunum ykkar litlu inni-
lega samúð. Við drúpum höfði í
þakklæti fyrir samverastundirnar
með Skarphéðni og í virðingu fyrir
minningu hans.
Birgir Þorgilsson
Það var mánudaginn 18. þ.m. að
mér var gengið út af skrifstofu
minni, er ég sneri aftur að nokkram
tíma liðnum, var miði á skrifborðinu
er á stóð: Skarphéðinn andaðist í
morgun.
Ekki var um að villast um hvaða
Skarphéðin var að ræða, það var
Skarphéðinn Árnason, sem okkar á
milli gekk undir nafninu Skarphéð-
inn í Ósló, og mér brá við þessi
tíðindi, þótt ég vissi um mjög erfið
og alvarleg veikindi hans, þá leynd-
ist sú von að honum auðnaðist að
eiga rólegt ævikvöld með fjölskyldu
sinni, að loknum erilsömum starfs-
degi. En það er eins og svo oft áð-
ur, enginn ræður því sjálfur hvenær
hann leggur upp í þessa hinstu för,
menn verða að hlýða þegar kallið
kemur.
Mér var hugsað til Skarphéðins
og Kfshlaups hans, og mér var ljóst
að erfitt mundi verða að fylla það
skarð sem hann skilur eftir. Slík er
háttvísi og hógværð sumra manna,
að tómið sem þeir skilja eftir sig
þegar þeir kveðja, er miklu stærra
en rúmið sem þeir tóku upp í lifandi
lífi, þú vissir af þeim og þeir vora
til staðar, ef þú þurftir á að halda,
en að óþörfu vora þeir ekki að troða
þér um tær.
Á sjötta og sjöunda áratugnum
urðu stórstígar framfarir í íslensku
þjóðlífi, og þessar framfarir stöfuðu
ekki síst af stórbættu sambandi við
umheiminn, _þær fjarlægðir sem
haldið höfðu Islandi í einangrun frá
upphafi vega, hurfu eins og dögg
fyrir sóiu. Islendingar sem fram að
seinni heimsstyijöld höfðu látið flest-
ar tækninýjungar framhjá sér fara,
hoppuðu allt í einu beint af hestbaki
upp í flugvél.
Flugsamgöngur rafu einangran
ýmissa byggða á íslandi, og allt í
einu var landið sjálft í þjóðbraut, og
þær nýjungar í tækni og þær breyt-