Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 51
ingar á lifnaðarháttum sem áttu sér
stað í nágrannalöndum okkar, með
uppbyggingunni eftir stríðið, settu
jafnharðan svip sinn á lifnaðarhætti
okkar Islendinga.
En íslendingar létu sér ekki nægja
að nota flugið til bættra sam-
gangna, þeir vildu frekari hlutdeild
í þessu mikla ævintýri, þeir vildu
eignast það sjálfir, þeir skyldu sjálf-
ir sjá um flugsamgöngur á landinu
og til og frá landinu, og þeir skyldu
einnig hasla sér völl á alþjóðlegum
flugleiðum.
Við þetta myndaðist ný atvinnu-
grein á íslandi, hópar ungra manna
fóru utan til náms, og komu til baka
sem flugmenn, flugvélvirkjar, loft-
siglingafræðingar og flugumsjónar-
menn, svo eitthvað sé nefnt, og brátt
stóðum við fyllilega jafnfætis öðrum
þjóðum í hinni tæknilegu hlið þessar-
ar atvinnugreinar.
En einnig þurfti fólk til að sinna
markaðsmálum, sölumálum og af-
greiðslumálum, og til þessara starfa
komu menn ur öllum áttum, misjafn-
lega undirbúnir, en með einlægan
áhuga á þessum málum og staðráðn-
ir í því, að íslendingar yrðu ekki
eftirbátar annarra þjóða á þessu
sviði.
Þar sem yfirleitt var ekki um að
ræða sérþekkingu á þessum málum,
urðu menn að fikra sig áfram og
mistökin voru mörg, en smátt og
smátt náðu menn einnig tökum á
þessum þætti.
Einn þessara frumheija sem stóðu
um langt bil í eldlínunni, var Skarp-
héðinn Árnason. Skarphéðinn hóf
störf hjá Flugfélagi Islands árið
1954 við bókhald, skömmu síðar
flyst hann til Kaupmannahafnar, til
að hafa yfirumsjón með bókhaldinu
á skrifstofu Flugfélags íslands þar.
Þá voru þegar orðin mikil umsvif
á Kaupmannahafnarskrifstofunni,
langflestir farþegar voru á flugleið-
inni milli Reykjavíkur og Kaup-
mannahafnar, auk þess annaðist
skrifstofan í Kaupmannahöfn samn-
inga ,um ýmiss konar leiguflug, mest
í tengslum við Grænland. Þetta flug
var bæði fyrir dönsku Grænlands-
verzlunina og ýmsa rannsóknarleið-
angra, og þessi Grænlands-verkefni
voru mikil lyftistöng fyrir íslensk
flugmál og svo er enn í dag.
SKIPHOLTI 31
Kjörvari og
Þekjukjörvari
verja viðinn
vel og lengi
málning'f
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
51
Skarphéðinn vann störf sín í
Kaupmannahöfn af þeirri lipurð og
samviskusemi sem síðar var alkunn
innan félagsins, og öðlaðist traust
samstarfsfólks og yfirmanna, og því
var það að þrem árum síðar var
honum boðið að veita forstöðu skrif-
stofunni í Ósló, og þar með starfsem-
inni í Noregi.
Að þessu sinni hafði Skarphéðinn
ekki langa viðdvöl í Osló, því
snemma árs 1960 hélt hann til Ham-
borgar, til að stjórna starfsemi Flug-
félags Islands þar. Árið 1964 snýr
hann síðan aftur til Ósló, og var
þar, þar til hann lét af störfum fyr-
ir aldurssakir árið 1986.
Skarphéðinn var ákaflega farsæll
í öllum sínum viðamiklu og tíma-
freku störfum.
Skrifstofur Flugfélags íslands,
veittu íslenskum ferðalöngum á
sjötta og sjöunda áratugnum miklu
ijölbreyttari fyrirgreiðslu en nú, og
stafaði það meðal annars af því, að
íslendingar voru þá ekki eins ferða-
vanir og nú er, og því ekki eins við-
búnir að mæta ýmsum vandamálum
sem upp geta komið á ferðalögum.
Orð fór af því, hvað Skarphéðinn
var laginn við að aðstoða í slíkum
tilfellum, og fór þá saman útsjónar-
semi og eðlislæg nærfæmi, sem var
þess valdandi að rétt aðstoð var
veitt á réttum tíma, án þess að særa
tilfinningar og stolt þess er hennar
r.aut.
Fiölmargir eru þeir íslendingar
sem nutu þessarar fyrirgreiðslu
Skarphéðins, og hugsuðu síðan
ávallt til hans með hlýjum hug.
Skarphéðinn var ákaflega mikill
íslendingur, og eins og svo margir
Islendingar, sem dveljast langdvöl-
um erlendis, sá hann land og þjóð í
meiri ljóma en við hin sem heima
sitjum.
Hann hafði gagngóða þekkingu á
landinu, og hafði ánægju af að miðla
öðrum af þeirri þekkingu, vekja hjá
útlendingum áhuga á hrikalegri
náttúrufegurð landsins og sérkenni-
legri menningu þjóðarinnar, og þó
hann sæi landið í dýrðarljóma, þá
var hann raunsær þegar hann gaf
öðrum upplýsingar og sagði kosti
og löst á öllu eftir mestu vitund.
Skarphéðinn var um árabil ein
aðaldriffjöðurin í Islendingafélaginu
í Ósló, og þar eins og allsstaðar
annars staðar, vann hann af dugn-
aði og heilindum.
Um nokkur skeið var ég nákunn-
ugur Skarphéðni í starfi, og bar ég
mikla virðingu fyrir nákvæmni í
vinnubrögðum, og ekki síður fyrir
hreinlyndi og drengskap í samskipt-
um við starfsfélaga. Eg virti einnig
tillögur hans, sem ávallt voru fram-
settar af vel íhuguðu máli, og með
hógværð og sannfæringu. Þar sem
hann fór var fals og undirferli hvergi
nærri.
Fyrir mörgum árum, er kona mín
gekkst undir aðgerð, og lá á sjúkra-
húsi í Ósló um nokkurt skeið, kynnt-
umst við af eigin raun hlýju Skarp-
héðins og hjálpsemi, og öll aðstoð
var veitt á þennan rólega og hóg-
væra hátt, sem honum var einum
lagið og gerir svo auðvelt að þiggja.
Fyrir þetta færum við honum inni-
legar þakkir nú þegar leiðir skiljast
að sinni.
Ég hygg að Skarphéðinn hafi ver-
ið mikill gæfumaður í sínu einkalífi,
þó ekki fari hjá því að hann yrði
fyrir áföllum, og kynntist hann því
átakanlega hvað skammt er á milli
gleði og dýpstu sorgar, er hann
missti konu sína, Brynju Þ. Guð-
mundsdóttur, skömmu eftir að hún
hafði alið dóttur.
Einnig veit ég að hin miklu veik-
indi, er hann átti við að stríða síðustu
árin, lögðust stundum þungt á
Skarphéðin, eins og við er að búast.
Að lokum vil ég aftur þakka
Skarphéðni samveruna á þeirri ferð
sem við áttum saman, og það fals-
leysi og og drengskap sem ein-
kenndi hann. Elínborgu Reynisdótt-
ur eftirlifandi konu Skarphéðins,
dætrum hans Helgu og Brynju, litlu,
drengjunum tveim, sonum dætr-
anna, vottum við Hulda innilega
samúð. Einar Helgason
Skarphéðinn Árnason er látinn og
með honum er genginn einn trygg-
asti vinur okkar. Við höfum þekkt
Skarphéðin um árabil og kynntumst
vel hvílíkur mannkostamaður hánn
var. Hann var traustur og góður
félagi sem gott var að leita til eða
gleðjast með á góðri stund. Hann
var höfðingi í lund, réttsýnn og því
oft fastur fyrir. Við höfum átt marg-
ar ánægjustundir með Skarphéðni
og fjölskyldu hans, bæði hér heima
og úti í Ósló og þó að þau Ella hafi
dvalið langdvölum erlendis er heim-
ili þeirra fyrst og fremst íslenskt
heimili sem ber menningu okkar
fallegt vitni og gestrisni þeirra hjóna
var einstök. Við vottum fjölskyldu
hans samúð okkar.
Vigdís og Steingrímur
er stór-
kostleg nýjung í
ríslenskri málningar-
framleiðslu.
_______er fljótþornandi og
auðunnin akrýlmálning ætluð á
litað stál, þök og vegg-
klæðningar, því allt litaö stál þarf
viöhald. T.d. er ekkert litað stál
varið gegn mengun úr
andrúmsloftinu. Þótt stálið hafi
ekki ryðgað eða yfirborö þess
ekki byrjað að flagna, þarfnast
það samt sem áður viðhalds.
er fáanlegur í 8
staðallitum og hægt að fá hann í
yfir 2000 sérlöguðum litum eftir
litakerfi ALCRO. UÖRVl fæst í
1,4, og 10 lítra umbúöum.
Málningarverksmiðja
Slippfélagsins wssssstsssi