Morgunblaðið - 28.07.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
53
Guðbjörn Guðbjörnsson og kona hans Kathy. Þau kynntust á tónlist-
arnámskeiði í Weimar, en hún leggur einnig stund á söngnám.
ÓPERU SÖNGUR
„Umboðsmaðurmn minn heyrði
fyrst í mér í útvarpsþætti“
Rætt við Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvara
rátt fyrir ungan aldur hefur
Guðbjörn Guðbjörnsson óperu-
söngvari vakið athygii hér á landi
fyrir söng sinn á tónleikum og
frammistöðu sína í ýmsum smærri
óperuhlutverkum. Hljótt hefur verið
um hann að undanförnu, enda hefur
hann dvalist í Þýskalandií vetur,
þar sem hann hefur haldið áfram
söngnámi sínu og sungið á fjöi-
mörgum tónleikum. Guðbjörn var á
ferðinni hér á landi á dögunum og
tók blaðamaður Morgunblaðsins
hann þá tali.
Aðspurður sagðist Guðbjörn
kunna vel við sig í Þýskalandi. „Það
er virkilega gott að vera íslending-
ur þar. Þjóðveijar vita töluvert um
land og þjóð og ótrúlega margir
þeirra hafa komið til íslands. Það
hjálpar mér svo auðvitað mjög mik-
ið, hversu gott kerfi Lánasjóðs
íslenskra námsmanna er. Ég skil
ekki þá sem sífellt eru að agnúast
út í það, því við megum vera þakk-
lát fyrir þá þjónustu sem Lánasjóð-
urinn veitir. En sennilega gerum
við íslendingar okkur ekki fulla
grein fyrir því, hvað við búum við
góðar aðstæður í þessum efnum."
Guðbjörn segist alltaf hafa sung-
ið mikið. „í fjölskyldu minni er mik-
ið söngfólk. Gunnar bróðir minn er
einnig að læra söng og Ketill jens-
son söngvari er föðurbróðir okkar.
Átján ára söng ég hlutverk Perons
í söngleiknum Evitu á Nemenda-
móti Verslunarskólans. í kjölfar
þess hóf ég nám í Söngskólanum
og síðar í Nýja tónlistarskólanum
hjá Sigurði Demetz Franzsyni. Eft-
ir stúdentspróf byijaði ég í ensku
og heimspeki í Háskóla íslands
samhliða söngnáminu, en fljótlega
ákvað ég að helga mig söngnum.“
Guðbjörn lauk prófi frá Nýja tón-
listarskólanum á síðasta ári og hélt
í haust sem leið til Þýskalands. „Ég
hef stundað nám í vetur hjá dr.
Hanne-Lore Kuhse í Austur-Berlín
og hef í rauninni búið í báðum hlut-
um borgarinnar." ‘Guðbjörn hefur
haldið tónleika bæði í vesturhluta
Berlínar og Vestur-Þýskalandi en
sækir hins vegar söngtíma í Aust-
ur-Berlín, auk þess sem hann
kvæntist stúlku þaðan síðasta vor.
Guðbjörn vinnur að því að skapa
sér nafn í tónlistarlífinu í Vestur-
Þýskalandi. „Síðasta vetur hélt ég
fjölmarga tónleika, en hélt mig hins
vegar frá óperusviðinu að ráði
SEYÐISFJÖRÐUR
Félagsstarf
eldri borgara
Seydisfirði.
Félagsstarfsemi eldri borgara á
Seyðisfirði hefur verið með mikl-
um blóma I ár.
Eldri borgarar hafa hist reglulega
og margvísleg starfsemi verið í
gangi, svo sem föndur- og spila-
kvöld. Vorferð var farin til Akur-
eyrar og Hriseyjar og nýverið var
fann ferð til Borgarfjarðar eystra. •
í Borgarfírði eystra tóku eldri
borgarar staðarins á móti ferðafólk-
inu og héldu kaffisamsæti í félags-
heimilinu þar. Síðan var komið við á
Edduhótelinu á Eiðum og þar var
snæddur kvöldverður.
Þetta var dagsferð og þátttakend-
ur, sem voru þijátíu og tveir, voru
mjög ánægðir með ferðina. Edda
Blöndal var fararstjóri en hún hefur
verið aðalhvatamanneskjan í starfi
eldri borgara á Seyðisfirði.
— Garðar Rúnar.
kennarans míns. Hún telur skyn-
samlegt fyrir mig að þjálfa mig í
framkomu með því að syngja á tón-
leikum áður en ég fer af alvöru að
takast á við óperuhlutverk.“
„Viðtökur Þjóðveijanna hafa ver-
ið góðar,“ bætti Guðbjörn við. „Til
dæmis sóttu milli 70 og 80 fyrstu
tónleikana sem' ég hélt í V-Berlín,
en 400 komu á þá næstu. Ég held
að allir sem mættu á fyrstu tónleik-
ana hafi komið aftur á þá næstu
og sérhver þeirra tekið nokkra vini
og vandamenn með sér. Ég söng
meðal annars nokkur íslensk lög á
þessum tónleikum og vöktu þau
mikla athygli. Undirtektir áheyr-
enda voru reyndar mjög jákvæðar
og ég söng fjögur aukalög fyrir þá.“
Guðbjörn kom fram í útvarps-
þættinum „Kunstler aus dem Aus-
land stellen sich vor“ í einni stærstu
útvarpsstöð V-Þýskalands í vetur.
Söng hann þar fimm lög og hlaut
mjög góða dóma fyrir frammistöðu
sína. „Stjómandinn líkti mér við
ýmsa þá tenóra, sem mestrar virð-
ingar hafa notið í Þýskalandi, svo
sem Jussi Björling og Helge Ros-
vaenger. Hann lýsti því yfir, að ég
ætti örugglega eftir að ná árangri
og bauð mér að koma aftur í þátt-
inn hvenær sem ég vildi. Ég varð
auðvitað bæði stoltur og ánægður,
en hins vegar verð ég að játa, að
ég fór verulega hjá mér þegar ég
heyrði þetta.“
Þessi útvarpsþáttur varð til þess
að Guðbjöm komst í samband við
umboðsmann sinn. „Hann var af
tilviljun að hlusta á útvarpið og
þegar hann heyrði í mér byijaði
hann að taka upp á segulband.
Skömmu síðar hafði hann samband
við mig og bauð mér samning.
Hann spilaði þessa upptöku fyrir
hljómsveitarstjóra, sem nú hefur
fengið mig til að syngja með Sin-
fóníuhljómsveit Berlínar í tveimur
uppfærslum af Messíasi eftir Hand-
el næsta vetur.“
Guðbjörn hefur sungið sígilda
tónlist af ýmsum toga. „Eg hef hins
vegar mest gaman af að syngja
þýsk ljóð og ítalskar óperuaríur,“
sagði hann. „Dramatíkin i óperun-
um heillar mig, en svo er líka gam-
an að vera einn á sviðinu og túlka
ljóðin, án þess að hafa nokkurn
annan stuðning en tónlistina og.
textann."
Varðandi aðrar áætlanir sínar
sagði Guðbjörn, að hann ætlaði að
einbeita sér að því að vinna sér sess
í þýsku tónlistarlífi, bæði með tón-
ieikahaldi og þátttöku í keppnum.
„En ég ætla líka að leyfa íslending-
um að heyra í mér á næstunni. Eg
hafði ekki tíma til þess að syngja
hér á Islandi í vetur, en reyni að
bæta úr því fljótlega. f framtíðinni
hef ég svo hugsað mér að búa
bæði hér heima og erlendis. Ég vil
ekki slíta tengslin við ísland, en
maður sér ýmislegt í dálítið nýju
ljósi erlendis. Ég hef til dæmis aldr-
ei haft eins gaman af því að lesa
bækur Þórbergs Þórðarsonar og
Halldórs Laxness oir í Þvskalandi."
IVIýjung
3 ísla^di
7 bekkja æfingakerfiÖ kemur
þér íflott form.
Mætti
bjóða
þérað
leggj ast
í leikfimi ?
Við opnum fimmtudaginn 6. ágúst.
Við bjóðum einn frían kynningartíma út ágústmánuð.
Ath.: Byrjum að taka á móti pöntunum miðvikudaginn 5. ágúst.
Þetta fonn er inhan seilingar
SPURNING: Hve langan tíma tekur það að sjá árangur?
SVAR: Vanalega fara sentimetrarnir að falla af þér eftir
aðeins nokkra tima. Eins og með allar tegundir likams-
ræktar, sést besti árangurinn með reglulegri notkun yfir
ákveðið timabil. Styrkur, sveigjanleiki og heilbrigði eykst
stig frá stigi.
SPURNING: Get ég notað tækin eftir að hafa orðið
barnshafandi?
SVAR: Að sjálfsögðu. Þessar æfingar geta stórlega lagað
og styrkt vööva eftir fæöingu.
SPURNING: Mlnnka æfingarnar appelsínuhúð (cellolite)?
SVAR: Appelsínuhúð er umdeild. Ekki eru allir sammála
um ástæðuna fyrir henni, en margir sérfræöingar eru
þeirrar trúar að aukið blóðstreymi og aukin vöðvastyrking
á vandræðasvæöum minnki appelsinuhúð.
SPURNING: Hver er munurinn á þessari tegund æfinga
og aerobik-lelkfiml?
SVAR: Aerobik-leikfimi er framkvæmd á bilinu 12 til 15
mínútum og eykur hjartslátt í 60% til 90% af hámarki,
Þetta eykur þol hjarta- og æðakerfisins. Flott form æfinga-
kerfið er ekki aerobik-leikfimi. Það eykur vöðvaþol og styrk-
ir auk þess sem það eykur sveigjanleika vöðvanna.
SPURNING: Hver er munurinn á j>essu æfingakerfi og
öðrum líkamsræktartækjum?
SVAR: Almennt virka likamsræktartæki þannig, að það
spyrna gegn líkamshreyfingu. Flott form kerfið notar sömu
grundvallarhugmyndina, en með einni mikilvægri undan-
tekningu: Tækin okkar sjá um að hreyfa líkamann á með-
an þú sérð um að spyrna á móti.
SPURNING: Hvernig getið þið tryggt að fólk megrist?
SVAR: Þar sem þessar síendurteknu hreyfingar styrkja
vöðva án þess að þeir stækki, á meðan þyngd þin helst
sú sama eða minnkar og þú fylgir leiðbeiningum okkar,
mun sentimetrunum fækka, svo einfalt er það og þetta
ábyrgjumst við.
SPURNING: Nýtur gamalt fólk góðs af þessum tækjum ?
SVAR: Já. Þessi þægilega leið við að hreyfa likamann
er kjörin fyrir eldra fólk, vegna þess að allir geta æft á
sinum hraða. Aukin sveigjanleiki og aukið vöðvaþol, sem
kemur með þessum tækjum er kjörið, fyrir þá sem hafa
stifa vöðva eða eru með liðagigt.
Ath.:Verðummeð
Wvnmngu' Kringlunm
K’ 28.ogföstudagmn
timmtudaginnaa.uv~6
Flott form -
Hreyfing sf.,
Eingjateigi 1,
(Dansstúdió Sóleyjar)
sími 680677,
Hreyfing sf.,
Kloif arseli 18,
Breiðholti,
sími 670370.
Flottform-
Stúdíó Disu,
Smiösbúð 9, Garöabæ,
sími 45399.
Flottform-
LíkamsræktÓskars,
Hafnargötu 23,
Keflavík,
simi 92-14922.
Söluumboð:
Hreyfing sf.