Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 61
61
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ I988
ir. Landar mínir eru líka snillingar
að rakka mig niður og margir eru
að drepast úr öfundsýki. Þetta
fínnst mér stundum frekar leiðin-
legt.“
Þú ert þekktur fyri að vera
„glaumgosi" og lifa lífinu!
„Jaaaaa... ég lifi lífinu, en ég er
ekki eins mikill glaumgosi og marg-
ir vilja meina. Ég tek íþróttimar
mjög alvarlega, því atvinna mín er
fyrst og fremst hástökk. Fyrir utan
það er ég afskaplega venjulegur
ungur maður sem er svo heppinn
að peningar eru ekkert vandamál.
Mér finnst gaman að keyra kraft-
mikla og hraðskreiða bfla, fara á
diskótek, fá mér sígarettu og gjam-
an drekka nokkra bjóra með vinum
og kunningjum. Þetta er í raun
ekkert óvanalegt fyrir unga menn
eins og mig. Hvers vegna má ég
ekki njóta lífsins eins og hver ann-
ar, þótt ég sé bestur í hástökki í
heiminum?"
Margir eru þeirra skoðunar að
þú reynir að vera sem mest í
sviðsljósinu til þess að styrktar-
aðilar þínir fái sem mest fyrir
peningana?
„Nei, það er bara kjaftæði. Ef mað-
ur ætlar að ná langt í íþróttum er
mikilvægt að vera hreinskilinn við
sjálfan sig bæði utan vallar og inn-
an. Á mínum unglingsámm lærði
ég að lifa eftir ákveðnum reglum,
en þessum reglum fylgdu líka
nokkrar undantekningar. Að mínu
áliti er mikilvægast að vera maður
sjálfur og vera ánægður, annars er
þetta vonlaust."
Nú vinnur þú geysilega mikið við
auglýsingastörf. Hefur þú ekki
góð laun?
Patrik brosir og hugsar síðan ör-
litla stund. „Jú ég lifi vel af þessu
og hef yfir engu að kvarta. En það
er mikilvægt að hafa stjóm á þessu
og ekki láta íþróttimar líða fyrir
þetta, því það er auðvelt, ef skyn-
semin ræður ekki ríkjum. En mér
finnst gaman að vinna við þessa
hluti og það er fyrir 811u.“
Hvernig er fjölskylduhögum
þínum háttað, ertu giftur?
„Ég er ógiftur en á föstu. Ég er
ekkert á því að gifta mig strax
enda ástæðulaust að flýta sér í
þessum efnum. Að mínu áliti er
nauðsynlegt að njóta lífsins meðan
maður er ungur.“
Aö vera ég sjálfur
„Hvernig er að vera heimsfræg-
ur og vekja alls staðar athygli?
„Ég reyni oftast að vera ég sjálfur
og læt þessa hluti ekki hafa mikil
áhrif á mig. Ég veit að töluvert
margir af mínum félögum hafa lát-
ið frægðina skemma fyrir sér og
ég hef engan áhuga á að feta í
fótspor þeirra. Maður verður að búa
yfir ákveðnum hæfileika til að geta
meðhöndlað frægðina. Að mínu áliti
eru ekki allir sem geta þetta og
láta frægðina stíga sér tií höfuðs.
Einnig má geta þess að þjálfari
minn, Viljo, hefur verið mér mikill
styrkur í þessum efnum."
Þú minnist á þjálfarann þinn.
Hefur hann mikla þýðingu fyrir
þ>J??
„An hans ætti Patrik Sjöberg ekki
heimsmet í hástökki í dag. Hann
hefur á vissan hátt mótað mig og
alið mig upp. Hann er að mínu áliti
einn sá besti í heiminum í dag.
Hann hefur geysilega yfirsýn, hann
veit allt um hástökk og er auk þess
mjög fróður um líkamann og
líffærafræði. Hann er alltaf vel með
á nótunum. Hans veika hlið er helst
að hann er ávallt mjög stressaður
fyrir stór mót. Við höfum því tekið
-þann kostinn að ræða lítið saman
rétt fyrir mót.“
Hvernig hagar þú þínum andlega
undirbúningi fyrir stórmót?
„Eg hugsa aldrei um andlegu hiið-
ina og gef í raun og veru bara skít
í því um líkt. Ég er þeirrar skoðun-
ar að ef maður hugsar um of um
þessa hluti komi upp fleiri vanda-
mál og maður verður bara ruglaður
af öllu saman. Ég finn það á mér
hvort ég er í góðu eða lélegu formi.
Sjálfstraustið er yfirleitt fyrir
hendi."
Er takmark þitt að setja heims-
met á OL?
„Ég varð í öðru sæti 1984 í Los
Angeles og vissulega stefni ég
hærra í ár. Að sjálfsögðu væri gam-
an að setja heimsmet á sjálfum leik-
unum, en það er i raun aukaatriði.
Annars eru Ólympíuleikamir frekar
erfið keppni, því fyrst verður maður
að fara í gegnum undankeppni og
síðan stranga úrslitakeppni."
Þú keppir á hveiju ári á Bisl-
ett-leikunum. Er eitthvað sér-
stakt við Bislett?
„Bislett er frábær leikvangur og
ég hef sterkar tilfinningar til Bisl-
ett. Það er alltaf einstök stemmning
hér og gaman að keppa. Á þessum
leikvangi stökk ég í fyrsta skipti
yfir 2.30 metra, en það er merkur
áfangi fyrir alla hástökkvara. Auk
þess er Svein Hansen, maðurinn á
bak við Bislett-leikana, góður vinur
minn.“
Hvað ráðleggur þú ungum
íþróttamönnum?
Hann hugsar sig lengi um. „Ég er
ekki alveg viss, en að minnsta kosti
mikla alhliða þjálfun og síðan sér-
þjálfun, en ekki of snemma. Annars
er ekki auðvelt að gefa ráðlegging-
ar, því það er hægt að ná árangri
á svo marga ólíka vegu. Það er
ekki til einhver ein uppskrift að
góðum árangri í íþróttum. Það er
mikilvægt fyrir unga Sþróttamenn
að hafa hugfast."
Helstu af rek
Patrik Sjöberg, fæddur 5.
janúar 1965, 2 m/82 kg
Heimsmeistari 1987,
heimsmeistari innanhúss
1987, Evrópumeistari inn-
anhúss ’85-’87, 8 sinnum
sænskur meistari, 2. sæti á
ÓL 1984.
Þróunin í hástökklnu
hjá Patrik:
1975 (10 ára) 1,30 m
1976 (11 ára) l,40m
1977 (12 ára) 1,59 m
1978 (13 ára)
1979 (14 ára) 1,91 m
1980 (15 ára) 2,07 m
1981 (16 ára) 2,21 m
1982 (17 ára)
1983 (18 ára) 2,33 m
1984 (19 ára) 2,33 m
1985 (20 ára) 2,38 m
1986 (21 ára) 2,34 m
1987 (22 ára) 2,42 m
Onnur persónuieg met: Langstökk 7,72 (’87) þrístökk 15,87 (’83)
Patrlk ásamt unnustu sinni, sem einnig er sænsk.
KNATTSPYRNA / 3. OG 4. DEILD
Slguröur Haraldsson, markvörður Stjörnunnar, horfir á eft-
ir knettinum í netið — er Júlíus Pétur Ingólfsson jafnaði, 2:2,
úr vítaspymu fyrir Grindavík. Á innfelldu myndinni vísar Geijr-
Þorsteinsson dómari Hjálmari Hallgrímssyni af velli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tíu Grindvíkingar rifu
sig upp og jöfnuðu 2:2
SPENNULEIKUR er orðið yfir
leik efstu liðanna i A-riðli 3.
deildar, Stjörnunnar og
Grindavíkur, í gærkvöldi.
Þegar komið var fram í seinni
hálfleik, og staðan orðin 2:0
fyrir Stjömuna, var einum leik-
manni Grindvíkinga, Hjálmari
Hallgrímssyni, vikið
af leikvelli. Við það
var eins og
Grindvíkingum
hefði verið gefín
vítamínssprauta, og drifnir áfram
af ótrúlegum eldmóði tókst þeim
að jafna leikinn; 2:2, og þannig lauk
þessum geysispennandi leik topplið-
anna tveggja.
Stjömumenn vom betri aðilinn í
fytTÍ hálfleik; þeir spiluðu betur úti
á vellinum og sóttu meira. Það var
Ingólfur Ingólfsson, sem skoraði
KristinnJens
Sigurþórsson
skrifar
fyrra mark þeirra eftir góða fyrir-
gjöf Áma Sveinssonar.. Síðara
markið skoraði Ámi svo í seinni
hálfleik, með þrumuskoti úr víta-
spymu.
Þá var Hjálmari vikið útaf og
Grindvíkingar tóku við sér. Bæði
mörk þeirra skoraði Júlíus Ingólfs-
son, og var fyrra markið mjög fal-
legt; hörkuskot í bláhomið, en það
síðara skoraði hann úr vítaspymu.
Leikurinn var nokkuð harður og
þurfti dómari leiksins, Geir Þor-
steinsson, að sýna gula spjaldið sjö
sinnum. Áhorfendur vom fjölmarg-
ir, eða 400 talsins.
Njarðvík-ÍK............................1:4
Rúnar Jonsson - Steindór Elísson 2, Hörður
Sigutjónsson og Bjöm Bjömsson.
Leiknir-Víkverji......................0:1
- Finnur Thorlacius
Reynir-Grótta.........................1:1
Sigutjón Sveinsson - Kristján Brooks
4. deild
A-riðill
Augnablik - Árvakur....................3:4
Sigurdur Halldórsson, Birgir Teitsson, Helgi
Helgason - Guðmundur H. Guðmundsson,
Ámi Guðmundsson, Guðmundur Jóhannsson
og Snorri Gissurarson.
Ægir - Ernir............................24^
Sigmundur Traustason, sjálfsmark - Einar
Valdimarsson og Birgir Haraldsson.
Snœfell - Haukar.......................8:3
Hinrik Þórhallsson 4, Rafn Rafnsson 2, Gunn-
ar Þór Helgason, Alexander Helgason - Paul
Paulsen 3.
B-riðiil
Ármann - Fyrirtak
Gústaf Alfreðsson 3, Ingólfur Daníelsson,
Magnús Hannesson, Konráð Ámason, ^jálfs-
mark - Róbert Róbertsson.
H veragerði - Víkingur Ó1..............2:0
Kristján Theodórsson, Amar Gestsson.
Hafnir-Hvatberar.......................4:0
Sigurður Friðjónsson 2, Gunnar Bjömsson,
Ari Haukur Arason.
D-riðill
Neisti - Kormákur......................1:1
Bjöm Sigtryggsson - Bjarki Gunnarsson
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD
KNATTSPYRNA / BIKAR KVENNA
Valur áfram
Valur sigraði Selfoss í gær-
kvöldi með sex mörkum gegn
engu. Leikurinn var í átta liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ og Vals-
liðið er þar með komið í undanúr-
slit ásamt ÍA, KR og Stjömunni.
Valsliðið hafði mikla yfirburði
{leiknum og hefði sigurinn getað
orðið mun stærri eftir gangi hans.
Staðan f leikhléi var 3:0 fyrir
Val. Kristín Briem, Magnea
Magnúsdóttir, Margrét óskars-
dóttir og Ragnheiður Víkings-
dóttir skoruðu sitt hvort markið
fyrir Val. Þá sendu Selfossdöm-
umar knöttinn tvisvar sinnum í
eigið mark.
í fjögurra liða úrslitum mætast
því Valur og KR á heimavelli
Vals á Hlíðarenda og Stjarnan og
ÍA í Garðabæ.
Valsmenn án
Leifs í vetur
LEIFURGústafsson, leikmaður
Vals í úrvalsdeildinnl í körfu-
knattleik, mun ekki leika með
liði sínu í vetur. Hann heldur
til náms í Danmörku í haust
og kemur ekki aftur fyrr en í
vor.
Eg ætla mér að læra tæknifræði
og missi því af öllum vetrinum.
Það er vissulega slæmt, en ég held
að það komi ekki að sök,“ sagði
Leifur í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Valsmenn eru með svipað lið
og í fyrra. en hin liðin hafa breyst
töluvert. Ég held því að þetta verði
ár Valsmanna og að þeir verði ís-
landsmeistarar." 1
Nám í tæknifræði tekur þijú ár og
því má búast við að Leifur leiki
ekki með Valsmönnum fyrr en að
því loknu.
Valsmenn hafa fengið tvo nýja leik-
menn fyrir næsta vetur. Matthías
Matthíasson frá Bandaríkjunum og
Hrein Þorkelsson frá ÍBK. Á móti
kemur að Torfi Magnússon, fyrirliði
liðsins, mun ekki leika með Vals-
mönnum, heldur einbeita sér að
þjálfun.
Morgunblaðið/Einar Falur
Leifur Gústafsson leikur ekki með
Valsmönnum næsta vetur.