Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
GOLF / ADIDAS DRENGJAMOTIÐ
Haukur 1.42 metra frá holu
Opna Adidas drengjamótið í
golfi fór fram um helgina
og voru þátttakendur 41 talsins.
Mótið fór fram í miklu blíðskapar-
veðri á Nesvelli, og var keppt um
margvísleg verðlaun.
Leiknar voru 18 holur, og var
keppt í tveimur flokkum; með og
án forgjafar. Þá var einnig keppt
um hver yrði næst holu á 3 og
12 braut, og sá sem sigraði í
þeirri keppni var Haukur Oskars-
son, sem reyndist hafa slegið kúl-
una 1.42 metra frá stönginni.
Urslit voru annars sem hér segir:
Keppni án forgjafar:
1. Ólafur Þór Ágústsson, GK ....76
2. Gísli Hall, NK..............77
3. RúnarG. Gunnarsson, NK ....77
Keppni með forgjöf:
1. Snæbjörn Eyjólfsson, GR.....59
2. Albert Elísson, GK..........59
3. Þórður E. Ólafsson, GL......65
V'
V*-
KOSTUR FYRIR ÞIG
stálpottab - hÆst. GÆOAFLOkkUB
skaftpottaR 1 1 1,4 LTR. Kfí. 1°46'
2,25 LTR- Kfí 1-179'
1,4 LTR- KR- 1°46'
pOTTAR.VÍ£,IR 2,25 L.TR- Kfí 1-179'
3.75 LTR- kr. 1
II 2,0 LTR- KR. 998••
pottar,hA'R 3,75 LTR- Kfí. 1302'
II 6,5 LTR' Kfí. 1-699'
II 24 CM KR. 935-'
panna m/loki KR. 1.685.-
.,.C 28 panna. loklaus KAUPFÉLÖGIN UM U\ND ALLT!
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
Reuter
Brasilíumaðurinn Ayrton Senna hefur smám saman saxað á forskot
Alain Prost í baráttunni um heimsmeistaratitil Formula 1-ökumanna. Hann
vann vestur-þýska kappaksturinn um helgina og hélt 193 km meðalhraða á
hálli brautinni.
Senna sigurviss
ÞAÐ hlýtur að vera farið að
fara um Frakkann Alain Prost,
því Brasilíumaðurinn Ayrton
Senna vann sína aðra keppni í
röð í Formula 1-kappakstri á
sunnudaginn. Hann vann vest-
ur-þýska kappaksturinn á
Hockenheim-brautinni, en
Prost varð annar, en þeir berj-
ast um heimsmeistaratitil öku-
manna og örfá stig skilja þá
nú að. Báðir aka McLaren-
keppnisbílum.
Keppnin um helgina fór fram í
hellirigningu og í slíku veðri
er Senna í essinu sínu. Hann leiddi
enda keppnina frá upphafi til enda
þó Prost reyndi á
tímabili að fylgja
honum eftir. Prost
snarsneri hins vegar
bílnum í 33. hring
af þeim 44 sem eknir voru og sigur
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrifar
var þar með úr sögunni. Hann hélt
hins vegar öðru sæti á undan Ferr-
ari-ökumönnunum Gerhard Berger
og Michele Alboreto sem náðu
þriðja og fjórða sæti. Heimsmeistar-
inn Nelson Piquet gerði óskiljanleg
mistök í upphafi keppni, setti venju-
leg malbiksdekk undir Lotus-bíl
sinn á meðan aðrir notuðu gróf-
munstruð dekk vegna bleytunnar.
Piquet þeyttist á grindverk eftir
nokkrar beygjur og varð að hætta
keppni.
Lokastaðan á Aksturstími
Hockenheim klst.
1. Ayrton Senna McLaren Honda 1;32,54
2. Alain Prost McLaren Honda 1:33,07
3. Gerhard Berger Ferrari 1;33,44
4. Michele Alboreto Ferrari 1;34,30
5. Ivan Capelli March 1;35,30
6. Thierry Boutsen Benetton hring á eftir
Staðan í keppni ökumanna stig
1. Alain Prost Frakklandi 60
2. Ayrton Senna Brasilíu 57
3. Gerhard Berger Austurríki 25
4. Michele Alboreto Ítalíu 16
5. Nelson Piquet Brasilíu 15
KNATTSPYRNA / 3. & 4. DEILD
FOLK
■ JEFF Gutteridge var í gær
útilokaður frá keppni um lífstíð,
fyrstur allra brezkra fijálsíþrótta-
manna. Gutteridge, sem er 31 árs
stangarstökkvari, var dæmdur í
bannið af samtökum brezkra
áhugamanna í fijálsum íþróttum
eftir að tvö lyfjapróf sýndu fram á
að hann hefði tekið inn ólögleg lyf.
Gutteridge vísaði dómsniðurstöð-
unni á bug og sagðist áfrýja til
þess að hreinsa mannorð sitt. Hann
hafði stefnt að því að komast á sína
aðra Ólympiuleika nú í haust.
MTÓRINÖ, ítalska 1. deildarliðið,
kvaddi í gær brasilíska framheijann
Muller aftur heim til Ítalíu, eftir
að honum hafði verið vísað úr bras-
ilíska landsliðinu, sem er á keppnis-
ferð um Evrópu. Ástæðan fyrir
brottvísuninni var sú, að hann
mætti degi of seint til Ósló þar sem
brasilíska landsliðið keppir við það
norska í dag. Brasilíska knatt-
spyrnusambandið hefur gefið í
skyn, að vera kunni, að Muller
verði refsað fyrir að hafa komið of
seint með því að fá ekki að leika
með Tórínó en forseti félagsins
segist ekki hafa áhyggjur af þessi
máli enda hefði ekkert formlegt
erindi borist frá brasilíska sam-
bandinu.
■ ÍÞRÓTTASKÓLl Vals hefur
verið með fjögur hálfsmánaðarná-
mskeið í íþróttum fyrir börn og
unglinga í su mar. Ákveðið hefur
verið að bæta einu námskeiði við
og hefst það 2. ágúst en lýkur 15.
ágúst Það stendur yfir virka daga
frá 9:00-16:00. Megináherzla verð-
ur lögð á knattspyrnu og knatt-
þrautir. Verðlaun verða.veitt fyrir
bezta frammistöðu og afhent á ein-
hveijum stórleik hjá Val í haust.
Knattspyrnuþjálfarar á námskeið-
inu verða Atli Eðvaldsson og Sig-
urbergur Sigsteinsson. Innritun
og upplýsingar eru á skrifstofu
Vals að Hlíðarenda.
MÞAU mistök urðu síðastliðinn
þriðjudag í frásögn _af leik Vals og
Leifturs í 1. deild Islandsmótsins
í knattspyrnu, að ekki var getið um
dómara og línuverði. Dómari leiks-
ins var Sæmundur Víglundsson
og fékk hann einkunnina 7. Línu-
verðir voru Bragi Bergmann og
Þorvarður Björnsson. Fjöldi
áhorfenda var ekki gefinn upp á
leiknum.
HANDBOLTI
Sumar-
mót HSÍ
íágúst
Sumarmót Handknattleiks-
sambands Islands verður
haldið um miðjan ágúst. Lið
geta tilkynnt þátttöku á skrif-
stofu HSI í síma
685422/687880 fyrir 4. ágúst.
Þeim aðilum sem hafa áhuga á
að halda mótið er bent á að
hafa samband við skrifstofu
HSÍ.
Eitt lið fellur úr A-riðli þriðju
deildar í stað tveggja áður
ÞAÐ verður aðeins eitt lið sem
fellur niður í 4. deild úr A-riðli
3. deildar í haust í staðtveggja
áður vegna þess að ÍBÍ dró sig
út úr keppni þar í vor.
ÍB-riðli 3. deildar falla tvö eins
og áður. Sigurvegararnir í D-
riðli og E-riðli 4. deild fara beint
upp í B-riðil 3. deildar.
Efstu liðin í A-riðli, B-riðli óg C-
riðli 4. deildar leika um tvö laus
sæti í A-riðli 3. deildar.
Eins og áður verður sérstök úrslita-
keppni í 4. deild þar sem öll efstu
liðin í riðlunum fimm leika til að
fá úr því skorið hvaða lið telst sigur-
vegari í 4. deild.
lO ,nc>2di>f.L
it.LÍ
liUiCl. 1I X1J I )