Morgunblaðið - 07.09.1988, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.09.1988, Qupperneq 20
O oppr 'jafiy.rTr'wnv y íTÍJOA(TIJ)IIVQrW QJ(íAJ9MUOSOM 20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988 Morgunblaðið/Sverrir Starfsfólk Þjóðleikhússins og aðrir þeir er standa að sýningum á vegum þess í vetur. Fjóiián verkefni á vetrar- dag'skrá Þjóðleikhússins Leikið verður á þremur sviðum NÝTT LEIKÁR hófst þjá Þjóð- leikhúsinu þann fyrsta septem- ber. Af þvi tilefni hefur vetrar- dagskrá leikhússins verið kynnt og eru þar eru alls 14 verkefni, þar af ein ópera, tveir ballettar, tvö barnaleikrit, fimm islensk leikrit og fjögur erlend. Leikið verður á þremur sviðum, þvi auk sýninga á litla og stóra sviðinu fœr Þjóðleikhúsið afnot af sviði íslensku óperunnar, meðan óp- eran Ævintýri Hoffmanns verð- ur sýnd á stóra sviðinu. Fyrsta verkefnið á stóra sviðinu er Marmari eftir Guðmund Kamb- an. Tvær forsýningar voru á verk- inu á Listahátíð í vor, en áætlað er að frumsýning verði 23. septem- ber. Aðalhlutverkið leikur Helgi Skúlason, Helga Bachmann er leik- stjóri og höfundur leikgerðar, Hjálmar H. Ragnarsson samdi tón- listina og Karl Aspelund hannaði búninga og leikmynd. Þjóðleikhúsið og íslenska óperan hafa samstarf um sýninguna á Ævintýrum Hofftnanns eftir Jac- ques Offenbach. óperan verður frumsýnd þann 14. október á stóra sviðinu. Leikstjóri er Þórhildur Þor- leifsdóttir, hljómsveitarstjóri Anth- ony Hose og með titilhlutverkið fer Garðar Cortes. Þann 11. nóvember verður frum- sýnt leikritið Stór og smár eftir Vestur-Þjóðveijann Boho Strauss. Leikstjóri er Guðjón P. Pedersen, Hafliði Arngrímsson þýddi verkið og er jafnframt aðstoðarleikstjóri, höfundur tónlistar er Hjálmar H. Ragnarsson en leikmynd og bún- inga gerði Grétar Reynisson. Með aðalhlutverk í sýningunni fer Anna Kristín AmgrímSdóttir. Fjórða verkefnið á stóra sviðinu er Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sig- uijónsson. Frumsýning verður 26. desember. Leikstjóri er Bríet Héð- insdóttir, hönnuður leikmyndar og búninga er Siguijón Jóhannsson, tónlist er eftir Leif Þórarinsson en með aðalhlutverk fara Þórarinn Eyflörð, Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir og Amar Jónsson. í byijun febrúar frumsýnir ís- lenski dansflokkurinn nýjan ballett eftir Hlíf Svavarsdóttur á stóra sviði Þjóðleikhússins. Titill verksins hef- ur ekki enn verið ákveðinn. Fleira verður á döfinni hjá dans- fiokknum í vetur. Meðal annars verður ballettinn Faðir vor eftir Ivo Cramér frumsýndur um jólin. Höf- undurinn mun stjóma uppfærslunni og verður dansað í kirkju. Sjötta verkeftiið á stóra sviðinu verður leikritið Haustbrúður eftir Þórunni Sigurðardóttur. Hún mun sjálf leikstýra sýningunni en Karl Aspelund er höftmdur leikmyndar. Með aðalhlutverk fara María Sig- urðardóttir, Jóhann Sigurðarson og Bríet Héðinsdóttir, en alls munu um 20 leikarar taka þátt í sýning- unni. Leikritið Ofviðrið eftir William Shakespeare verður frumsýnt á stóra sviðinu í apríl á næsta ári. Þýðinguna gerði Helgi Hálfdanar- son en leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson. Leikmynd og búninga ger- ir Una Collins. Þjóðleikhúsið mun fá Gamla bíó til ráðstöfunar á meðan sýningar standa yfir á Ævintýmm Hoff- manns. Fyrsta verkefnið á sviðinu þar er Hvar er hamarinn? eftir Njörð P. Njarðvík. Farið var með þetta verk í leikför um landið á síðasta ári. Brynja Benediktsdóttir hefur nú æft sýninguna upp á nýjan leik og verður frumsýningin í októ- ber. Tónlistin er eftir Hjálmar H. Ragnarsson en hönnuður leikmynd- ar og búninga er Siguijón Jóhanns- son. Annað verkefni Þjóðleikhússins í Gamla bíói er leikritið Háskaleg kynni eftir Christopher Hampton. Karl Guðmundsson og Þórdís Bach- mann þýddu verkið, Benedikt Áma- son er leikstjóri og Karl Aspelund hannar leikmynd og búninga. Fýrirhugað er að sýna bamaleik- ritið Óvita eftir Guðrúnu Helgadótt- ur á stóra sviðinu í janúar. Verkið var sýnt fyrir 10 ámm í tilefni af alþjóðlegu bamaári Sameinuðu þjóðanna. Að minnsta kosti þijú verkefni verða frumsýnd á litla sviði Þjóð- leikhússins í vetur. Þann 30. sept- ember hefjast sýningar á leikritinu Ef ég væri þú eftir Þorvarð Helga- son. Leikstjóri er Andrés Sigurvins- son, leikmjmd og búninga gerði Guðrún Sigríður Haraldsdóttir en tónlistin í verkinu er eftir Hilmar Öm Hilmarsson. Annað verkefnið á litla sviðinu er Ljúfir dagar eftir Samuel Beck- ett. Þýðandi og leikstjóri er Ámi Ibsen, Karl Aspelund gerir leik- mynd og búninga en aðalhlutverkið er í höndum Sigríðar Þorvaldsdótt- ur. Fmmsýnt verður í nóvember. Um mánaðamótin október/nóv- ember verður frumsýnt á litla svið- inu nýtt verk eftir Valgeir Skag- fjörð er nefnist Brestir. Leikstjóri er Pétur Einarsson en leikmynd gerir Gunnar Bjamason. Leikárið 1988-1989 er tímamóta- ár í sögu Leikfélags Reykjavíkur og leiklistar á íslandi, en þetta er 92. og siðasta leikár LR í Iðnó, sem hefur hýst starfsemi þess allt frá stofnun árið 1897. Á verkefnaskránni í vetur eru 6 verkefni, þar af einn söngleikur, bamaleikrit, nýtt íslenskt leikrit og þijú erlend. Fyrsta verkeftiið á leikárinu er Sveitasinfonía, sem er nýtt leikrit eftir Ragnar Amalds, en það verður frumsýnt 20. september. Með aðal- hlutverk fara Öm Ámason og Val- gerður Dan, leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson og leikmynd og búningar em eftir Siguijón J6- hannsson. í aprfl síðastliðnum var frumsýn- ing á Hamlet í leikgerð Kjartans Ragnarssonar, og hefjast sýningar á verkinu á ný í lok september. Með aðalhlutverk fer Þröstur Leó Gunnarsson, leikstjóri er Kjartan Ragnarsson, tónlist er eftir Jóhann G. Jóhannsson og Pétur Grétarsson og leikmynd og búningar em eftir Gretar Reynisson. Milli jóla og nýárs verður frum- sýndur söngleikurinn Maraþondans eftir Ray Herman í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar, sem jafnframt er leikstjóri, en sýningar verða utan Iðnó. Þetta er viðamikil sýning með miklum Qölda leikara, dansara og hljóðfæraleikara, en með aðalhlut- verk fara Helgi Bjömsson og ólafía Hrönn Jónsdóttir. Tónlistar- og hljómsveitarstjóm er í höndum Jó- hanns G. Jóhannssonar. Um áramót verður frumsýnt leik- ritið Sjang-Eng eftir Göran Tunström í þýðingu Þórarins Eld- jáms. Aðalhlutverk leika Sigurður Siguijónsson og Þröstur Leó Gunn- arsson, en leikstjóri er Láms Ýmir Óskarsson. Nýtt íslenskt bamaleikrit eftir Olgu Guðrúnu Ámadóttur verður frumsýnt í janúarlok, en það er nafnlaust enn sem komið er. Aðal- hlutverk leikur Edda Björgvins- dóttir, leikstjóri er Ásdís Skúladótt- ir, leikmynd og búningar em eftir Hlín Gunnarsdóttur og Soffía Vagnsdóttir sér um tónlistarstjóm. Þijár systur eftir Anton Tsjekhov verður frumsýnt fyrir páska. Aðal- hlutverk leika Edda H. Backman, Sigrún Edda Bjömsdóttir og Guð- rún Gísladóttir, og leikstjóri er Stef- án Baldursson. Leikarar og aðrir starfsmenn Leikfélags Reykjavíkur á síðasta leikárinu í Iðnó. SÍÐASTA LEIKÁR LR í IÐNÓ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.