Morgunblaðið - 07.09.1988, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988
90 nemendur
úr Menntaskól-
anum til Italíu
NÍUTÍU manna hópur MA-inga halda tU Ítalíu næstkomandi fðstu-
dag, 9. september. Nemarnir fá að vísu ekki stúdentshúfuna fyrr
en næsta vor ef allt fer vel, en allt frá 1970 hefur það tiðkast að
verðandi stúdentar fari í veglegt skólaferðalag að hausti áður en
þeir setjast í fjórða bekkinn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þýskt rannsóknaskip kannar
setmyndun í Norðurhöfum
Tveir Íslendingar á meðal leiðangursmanna
ÞÝSKA rannsóknaskipið Meteor kom til Akureyrar á mánudag og
heldur til starfa í Norðurhöfum í dag. Þrjátíu visindamenn eru um
borð og 32 skipveijar. Af þessum fjölda eru fimmtán konur, þar
af tvær þemur, einn kvenkyns læknir og tólf kvenkyns vísinda-
menn. Skipið er eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar og er 4.780
tonn að stærð.
Fararstjórar á vegum skólans
verða þeir Sverrir Páll Erlendsson
íslenskukennari og Jónas Helgason
jarðfræðikennari. Farið verður
með Útsýn og á hennar vegum sér
Halldór E. Laxnes um fararstjóm.
Ferðin stendur í þrjár vikur. I fyrs-
tunni verður haldið til Trieste og
verður dvalið þar í viku og frægar
borgir skoðaðar svo sem Flórens,
Feneyjar og Róm. Síðan verður
haldið til Sorrento, sem er smábær
á Sorrento-skaganum. Þar verður
dvalið í tólf daga. Bærinn er fom-
frægur menningarstaður þar sem
m.a. skáldum og listamönnum hef-
ur þótt gott að dvelja á, eins og
þeim Henrik Ibsen og Halldóri
Laxnes. Miklar minjar eru í bænum
um sögu og list og skammt frá eru
borgimar Pompei og Ercolano sem
fóru á kaf eftir jarðhræringar í
Vesúvíusi. Borgir þessar vom
grafnar upp mörgum öldum síðar.
Þá er eyjan Capri skammt undan,
en um hana og Sorrento hafa ver-
ið ort ljóð og sögur. Þessir staðir
eru frægar ferðamannaslóðir að
fomu og nýju þó íslendingar hafi
ekki fjölmennt þangað eftir að
baðstrandarmenningin komst í
tísku, að sögn Sverris Páls.
Hann sagði að hugmyndin væri
að komast á fótboltaleik Napólí og
einhvers erlends liðs. Frá Ítalíu
væri förinni síðan heitið til Lund-
úna þar sem dvalið verður yfir
helgi. Hluti hópsins kemur heim
l. október og þeir síðustu 2. októ-
ber, en þann dag verður Mennta-
skólinn á Akureyri settur og MA-
ingar eru staðráðnir í að setjast
kaffibrúnir og sællegir á skóla-
bekk.
Sverrir Páll sagði skólaferðalög
MA-inga til útlanda hafa hafist
árið 1966 og upp úr því hefðu
menn valið sér styttri vegalengdir
svo sem Norðurlöndin og Irland
og var þá jafnframt farið að vori
til. Þriðji bekkur sér um töluverðan
hluta af félagslífí MA og aflar
m. a. tekna í ferðalagið bæði innan
skólans og utan með ráðum eins
og happdrætti, kassabílarallýi með
áheitum, jólaskreytinga- og korta-
sölu og jafnvel kakósölu í jólaö-
sinni í desembermánuði. Sameigin-
legir sjóðir duga þó ekki fyrir fari
hópsins svo nemendumir hafa
mátt spara hluta af sumartekjun-
um fyrir ferðina. „Þetta er fimmta
ferðin mín með MA-inga til út-
landa. Þessir nemendur eru engir
óvitar lengur, komnir fast að
tvítugu, og sé ég enga ástæðu til
að óttast neitt. Eg hef hingað til
haft góða reynslu af mínum fyrri
ferðum og hafa þær allar gengið
áfallalaust. Ég hef ekki ástæðu til
að ætla að þessi verði öðruvísi þó
hópurinn sé þetta stór.“
Skipið er í eigu þýska ríkisins
en er leigt út í hin ýmsu rannsókna-
verkefni á vegum háskóla og stofn-
ana. Nokkur rannsóknaskip eru í
eigu þýska ríkisins og hefur Meteor
yrfír að ráða fullkomnustu tækjum
á sviði hafsbotnsrannsókna ásamt
þýska rannsóknaskipinu Polarst-
em, sem var hér við land fyrr í
sumar. Munurinn á þessum tveimur
skipum felst aðallega í því að Pol-
arstem er ísbijótur og betur byggt
fyrir norðurhöfín heldur en Meteor,
sem er aðeins tveggja ára gamalt
og hefur mikið verið notað við
strendur Afríku og í Kyrrahafi.
Það er háskólinn í Kiel sem hef-
ur skipið Meteor nú til umráða. Á
vegum háskólans er unnið að tíu
ára rannsóknaverkefni, sem skipt-
ist á milli hinna ýmsu fræðigreina
í háskólanum. Verkefnið er nú á
sínu ijórða ári og er því ætlað að
kanna setmyndun í Norðurhöfum
sem lítið hefur verið rannsökuð til
þessa. Skipið var að koma úr rann-
sóknaferð sem staðið hefur hátt á
ijórðu viku og voru þá aðallega
líffræðingar og haffræðingar um
borð, en í næstu ferð verða að
mestu hafsbotnsjarðfræðingar um
borð. Á meðal þeirra verður ein
íslensk stúlka, Lovísa Birgisdóttir,
sem vinnur nú að doktorsgráðu við
Kielarháskóla og gerir hún ráð fyr-
ir að ljúka námi þar að hálfu ári
liðnu. Tvívegis hefur hún farið í
rannsóknaleiðangra með Polar-
stem. í fyrri leiðangri skipsins var
dr. Bodo von Bodungen leiðangurs-
stjóri með líffræðingunum, haf-
fræðingunum og hafefnafræðing-
unum sem nú fara í land og var
aðalviðfangsefni þeirra rannsókn á
lífínu í sjónum og breytingar á sjáv-
arlífínu eftir því sem neðar dregur
í gegnum vatnssúluna og er þar
aðallega um að ræða örlífverur,
götunga og svif. Leiðangursstjóri
nú verður dr. Jöm J. Thiede sem
er einn aðalkennari Lovísu við há-
skólann. Aðalviðfangsefni hafs-
botnsjarðfræðingana verður að
taka kjama úr hafsbotninum til að
kanna hvemig lífverur líta út í set-
lögunum og þá er hægt að sjá
hvemig hafstraumar síðustu
500.000 ára hafa breyst auk þess
sem hægt er að merkja hitastig
sjávar á hinum ýmsu tímum. Lovísa
sagði að dýralíf reyndist miklu fjöl-
breyttara í setlögum í heitum sjó
en köldum. „Steingervingamir
mynda kalkskel og þegar sjór er
kaldur, er kalk lítið og fáar lífver-
ur, en mun meira er um lífverur
og kalk á þeim tímum er sjór hefur
verið heitari. Með þessu getum við
sagt sögu hafsins," sagði Lovísa.
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands vinnur við jöklarannsóknir
og rannsóknir á breytingum á lofts-
lagi uppi á landi. Halldór Pétursson
jarðfræðingur þar sagði brýnt að
fá upplýsingar um hafið til að
tengja þær upplýsingum stofnunar-
innar. Hinsvegar væru íslendingar
100 til 150 árum á eftir hvað
grunnrannsóknir varðar þar sem
íslenskir vísindamenn þyrftu sífellt
að vera að afla fjár með sínu starfi.
Hafrannsóknastofnun hafði til
dæmis verið boðið að senda starfs-
mann sinn sem gest með leiðangr-
inum, en það var ekki hægt þar
sem allir vísindamenn þar voru að
sinna útseldum verkefnum. „ís-
lenskt vísindastarf gengur út á
hagnýtar rannsóknir nær ein-
göngu. Það gæti margborgað sig
til lengri tíma litið að veita fé í
grunnrannsóknir. Á meðan látum
við útlendinga sitja eina að rann-
sóknum á hafsvæðinu í kringum
landið þó það sé vitað að þeir vilja
okkur fúslega til samstarfs og eiga
sjálfír öflug rannsóknaskip. Mjög
brýnt er að efla grunnrannsóknir
hér á landi og búa þannig um hnút-
ana að íslenskir vísindamenn fái
að fylgjast með,“ sagði Halldór.
Auk Lovísu tekur Þorsteinn Jó-
hannsson þátt í leiðangrinum, en
hann stundar nám við Háskóla ís-
lands. Sú venja er viðhöfð á þýsku
rannsóknaskipunum, að einum
gesti er boðin þátttaka frá því landi
sem liggur að þeim hafsbotnssvæð-
um, sem rannsökuð eru hveiju
sinni.
Minningar-
og unglinga-
mót að Jaðri
Minningarmót í golfi fer
fram á Jaðarsvelli um helg-
ina. Mótið er haldið í minn-
ingu frú Ástu Jónsson, sem
var frumkvöðull í kvennagolfi
á íslandi og fyrsta konan sem
sveiflaði golfkylfu á Akur-
eyri.
Keppt verður í karla- og
kvennaflokkum með og án for-
gjafar og leiknar verða 36 hol-
ur. Frú Ásta Jónsson lést nú
síðsumars, en hún var gift Pétri
Jónssyni lækni á Akureyri, sem
látinn er fyrir nokkrum árum.
Samhliða minningarmótinu fer
fram unglingamót 16 ára og
yngri að Jaðarsvelli, sem hlotið
hefur heitið Blöndumót. Leiknar
verða 36 holur með og án for-
gjafar. Akva sf. gefur verðlaun
í Blöndumótinu.
Mótin heíjast bæði kl. 9.00 á
laugardagsmorgun og lýkur
skráningu kl. 20.00.
Blaðberar
óskast
Nú, þegar skólarnir eru að byija,
vantar okkur blaðbera sem geta borið
út fyrir hádegi.
Starfið hentar vel húsmæðrum sem
eldri bæjarbúum.
í boði er hressandi morgunganga,
sem borgar sig.
Akiu*eyri, sími 23905.
SKOLAVORUR
Verslun á tveimur hæðum
Kaupvangsstræti 4
sími 26100 Akureyri
IKVAL
SKOLA;
REIKNIVELAR
Verslun á tveimur hæöum
Kaupvangsstræti 4
sími 26100 Akureyri BOKVAL
RITVELAR
Kaupvangsstræti 4 _____
sími 26100 Akureyri BÓKVAL