Morgunblaðið - 07.09.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988
fclk í
fréttum
Ford skiptí á Porsche fyrir gaml-
an pallbíl.
HARRISON FORD:
Harrison Ford með konu sinni
Melissu Mathieson, en hún skrif-
aði kvikmyndahandritið að
myndinni „ET.“
GOMAR
INNBROTSÞJÓF
ÁÞAKINU
COSPER
Ég tek konuna alltaf með mér, þá losna ég við kveðjukossinn.
Ford og Malcolm sonur hans.
C05PER
©?!» 10641
□L
Harrison Ford, leikarinn frægi
úr kvikmyndunum „Star
Wars", „Indiana Jones" og
„Frantic" kynntist alvöru innbrots-
þjóf nú um daginn. Hann sat í róleg-
heitum, þar sem hann býr í London
um þessar mundir, og var að horfa
á sjónvarpið með konu sinni. Varð
honum litið út um gluggann og kom
hann þá auga á grunsamlegan
flæking á þaki næsta húss. Hann
kallaði á lögreglu og kom í ljós að
þjófurinn hafði nælt sér í skartgripi
Melissu, konu Ford, að verðmæti 4
milljónir ísl. króna.
„Maður getur aldrei farið of var-
lega, hvað sem er getur gerst. Og
fjölskylda mín er mér meira virði
en allt annað. Mér er sama um
ffamann og peningana, en ég dræpi
þann sem skaðaði son minn", segir
leikarinn eftir atvikið. Sonur hans
sem er eins árs svaf vært á meðan
þjófurinn læddist um húsið. Ford
sem er nú við upptöku á nýrri Indi-
ana Jones mynd í Englandi tekur
konu sína og bam með í vinnuna,
hvar sem hann er staddur í heimin-
um.
Fjölskyldan er ekki á flæðiskeri
stödd. Ford á búgarð í Vyoming
og villu á Beverly Hæðum, en hann
heldur því fram að hann hafí ein-
faldan smekk og sé nægjusamur.
„Einu sinni keyrði ég um á Porsc-
he, en nú ek ég gömlum pallbíl."
Ford hefur ekki alltaf verið svo efn-
aður að geta tekið fjölskyldu sína
með hvert sem er. Fyira hjónaband
hans endaði fyrir nokkrum árum
og á hann tvo uppkomna syni. „Það
er erfítt yfír fjölskyldumann að vera
leikari, þurfa að vera út um allar
jarðir, og það eyðilagði hjónaband
mitt. Nú geri ég og get betur" seg-
ir Ford.
Og það er víst rétt. Hann hefur
verið hamingjusamlega giftur í
fímm ár. Melissa og sonurinn em
alltaf viðstödd upptökur, og þá er
víst betra fyrir þann litla að skríkja
ekki of hátt. „En hann er betri en
gull, og hagar sér vel á dýrmætum
augnablikum leiksins" segir Harri-
son Ford að lokum.
Victoría fyrir örfáum
árum sfðan. Falleg, en
ekki fullkomin.
Victoria Principal og Harry Glassmann.
Sæt, sætari, sætust
Victoria Principal giftist lýta-
lækni sínum fyrir þremur áram
síðan. Þau hittust fyrst á sjúkra-
húsi þegar Victoria var að láta fjar-
lægja hrakkur, elli kerling er ekki
velkomin á hennar bæ. Áður hafði
hún verið fagurt fljóð, en enn feg-
urri átti hún eftir að verða. Síðan
áirið 1985 hefur Victoria viljað
breyta ýmsum guðs gjöfum, enda
segir hún sjálf að hún hafí aldrei
þolað útlit sitt, og hafi haft minni-
máttarkennd frá því að hún man
eftir sér.
Ljóshærð vildi hún vera og blá-
eyg, en eins og allir vita er hún enn
dökkhærð og brúneyg, og bara
sjálfri sér lík. Sérfræðingar sjá þó
að andlitið og reyndar kroppurinn
allur hefur fengið á sig aðra og
huggulegri mynd, síðustu þijú árin.
Augun era orðin ennú meira aðlað-
andi, andlitsfallið hefur breyst, ekki
lengur breiðleit konan sú, heldur
grann- og sléttleit, og nefíð ku hafa
tekið stakkaskiptum.
En maður hennar er sagður ekki
takast alltaf jafn vel upp í lagfær-
ingum andlitslýta, eða kannski er
hann bara svona óheppinn með
skjólstæðinga sína, sem sumir
hveijir kvarta og kveina yfír honum.
Þrátt fyrr að hann þéni fleiri fleiri
milljónir dollara hvert ár, þarf hann
að borga til baka, í skaðabætur,
óheyrilegar upphæðir, fólki sem
aldrei er hægt að gera neitt til geðs.
Og þá kemur buddan hennar Viggu
til góða. Sagt er að þau rífist mikið
um fjármál og hjónaband þeirra
þoli bara ekki fleira ófrítt fólk. Þrátt
fyrir að þau búa við óvenju mikið
streituálag, era þau ekki sögð vera
í skilnaðarhugleiðingum.
Sjálf segir Victoria að frami
hennar á sjónvarpsskerminum sé
Harry að þakka. Að minnsta kosti
þarf hún ekki að kvarta, álitlegt
útlit hefur verið henni til framdrátt-
ar og fær hún fjöldamörg tilboð,
þrátt fyrir að hún hafi viljað hætta
f Dallasþáttunum. Hún hefur verið
iðin við að ófrægja þann efnismikla
þátt, framleiðendum og leikuram
til mikillar hrellingar.
VICTORIA PRINCIPAL: