Morgunblaðið - 09.09.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988
Kennsla hefst 12. september
fyrir byrjendur og lengra
komna í íþróttahúsinu
við Strandgötu, Hafnarfirði.
Upplýsingar og innritun um helgar Hrefna Geiisdóttir
og virka daga eftir kl. 5. sími 44512 íþróttakennari
kormákur og klíkan
benson
neðrideildinni
A
/l/H/IDEIJS
ra
'fÖ
+
o
o
'op
»o
»
Áskriftarsíminn er 83033
Framkvæmdir við Aðalstræti 8 stöðvaðar
Trey sti þ ví að
misskilningur
verði leiðréttur
- segir Óskar Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Byggðaverks
FRAMKVÆMDIR á lóðinni nr. 8 við Aðalstrœti voru stöðvaðar á
miðvikudag af byggingafulltrúanum í Reykjavik. Var það gert i
samræmi við úrskurð félagsmálaráðherra frá því á mánudag, um
að fella úr gildi byggingarleyfið á lóðinni. Óskar Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Byggðaverks telur að úrskurður ráðherra sé byggður
á misskilningi og segir að forráðamenn fyrirtækisins hugleiði nú
höfðun skaðabótamáls vegna þess tjóns, sem af stöðvuninni hlýst.
Byggðaverk hóf framkvæmdir á
lóðinni í maí síðastliðnum, eftir að
byggingamefnd Reykjavíkur veitti
byggingarleyfi. Lóðin var áður í
eigu Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, en ætlunin var, að í nýbygg-
ingunni yrðu skrifstofur SH, Trygg-
ingamiðstöðvarinnar og Sölusam-
bands íslenskra fiskframleiðenda,
auk íbúða og ýmiss konar þjónustu-
starfsemi.
Framkvæmdir kærðar til
félagsmálaráðherra
í júní barst félagsmálaráðuneyt-
inu kæra frá 9 íbúum í Gijóta-
þorpi, þar sem þess var krafist, að
byggingarleyfíð yrði fellt úr gildi.
Kærendumir töldu, að fyrirhuguð
bygging væri ekki í samræmi við
samþykkt deiliskipulag og að
ákvæði reglugerða um fjarlægðir
milli húsa væru virt að vettugi.
Félagsmálaráðherra sendi kær-
una til skipulagsstjómar ríkisins og
byggingamefndar Reykjavíkur til
umsagnar. Það var niðurstaða þess-
ara aðila, að ekki væm forsendur
fyrir afturköllun byggingarlejrfis-
ins, þótt um viss frávik frá sam-
þykktu deiliskipulagi væri að ræða.
Byggingarleyfið
afturkallað
Niðurstaða Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, félagsmálaráðherra var hins
vegar sú, að leyfl byggingamefndar
Reykjavíkur fyrir þessari nýbygg-
ingu skyldi falla úr gildi. í forsend-
um úrskurðarins er sagt, að nýting-
arhlutfall hússins sé of hátt, að
verið sé að gera tvö hús að einu á
lóðinni, en deiliskipulag Kvosarinn-
ar gerir ráð fyrir tveimur, og að
lokum, að landnotkun sé í ósam-
ræmi við deiliskipulag, þar sem ein-
ungis sé gert ráð fyrir einni íbúð í
húsinu.
Hilmar Guðlaugsson, formaður
Fyrirlestur um grafík
í Norræna húsinu
LESLIE Luebbers listfræðingur
heldur fyrirlestur í fundasal
Norræna hússins sunnudaginn
11. september kl. 17.00 og sýnir
litskyggnur. Fyrirlesturinn er
haldinn í tengslum við sýninguna
Norrænt grafík-þríár, sem stend-
ur nú yfir í sýningarsölum húss-
ins.
Leslie Luebbers skrifaði grein um
listamennina í sýningarskrá og ætl-
ar hún að ræða frekar um verk
þeirra og sýna litskyggnur máli sínu
til skýringar.
Leslie Luebbers er bandarísk og
stundaði nám í listasögu við ýmsa
bandaríska háskóla. Hún hefur haft
umsjón með fjölda grafiksýninga
og verið forstöðumaður World Print
Council í San Francisco. Þá hefur
hún skipulagt nokkrar alþjóðlegar
ráðstefnur myndlistarmanna.
Síðustu ár hefur hún starfað sjálf-
stætt sem listráðunautur og skipu-
lagt sýningar. Einnig hefur hún
haldið fyrirlestra við ýmis tækifæri.
(Fréttatilkynning)
X-Xöföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
DÚNDUR ÚTSALA
íGardínubúðinni, Skipholti 35
Gluggatja/daefni, stórisefni og nú tíka fataefni
í miklu úrvali.
Opið Gardínubúðin,
Mánudaga - föstudaga frá kl. 9-18 Skipholti 35,
Laugardaga frá kl. 10-16 sími 35677.