Morgunblaðið - 09.09.1988, Page 40

Morgunblaðið - 09.09.1988, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988 Minning: Rósa Pálsdóttir Fædd 1. október 1912 Dáin 21. ágúst 1988 í orðskviðum Salomons segir, „Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður. Vinsæld er betri en silfur og gull.“ Já, hún Rósa mín á Geirland var mikil mannkostamanneskja og nú hefur hún kvatt þennan heim og hjólastólinn, sem hún þurfti að not- ast við til að komast ferða sinna síðastliðin 17 ár. Það var mikið áfall fyrir heimilið á Geirlandi, þeg- ar húsmóðirin missti heilsuna árið 1971 og þurfti suður til að leita sér lækninga. Eiftir það var hún meira og minna á sjúkrastofnunum, fyrst á Reykjalundi en síðastliðin 15 ár dvaldi hún á Sjálfsbjargarheimilinu við Hátún. í mörg ár fór hún samt heim að Geirlandi á sumrum og á jólum, eða þar til þau hjónin seldu jörðina sína fyrir nokkrum árum. Við þessi tímamót sækja æsku- minningar á hugann, því næsta vor verða liðin 50 ár síðan ég sá Rósu f fyrsta sinn. Það var vorið 1939, sem Sigfús Vigfússon, bóndi og rafvirkjameistari á Geirlandi á Síðu, kom akandi á vörubílnum sfnum suður í Hafnarfjörð, til að sækja 12 ára telpuhnátu, sem ráðin hafði verið til að passa son þeirra hjóna, Þórð, semi þá var tveggja ára. Ég gleymi aldrei hvað mér fannst voðalega löng leiðin austur, en Sig- fús stytti mér hana með því að segja mér frá fossunum, fjöllunum og ánum, hreppamörkum og sýslu- mörkum. Ég starði á þennan mann og dáðist að hvað hann vissi mikið. Við gistum á leiðinni hjá vinafólki í Flögu í Skaftártungu, því í þá daga var lengra austur að Kirkju- bæjarklaustri en er í dag; það má orða það svo, Kambamir eins og hringaður ánamaðkur og allir vegir örmjóir. Um hádegisbil, er sólin sendi geisla sína á Síðufjöljin, renndum við í hlað á Geirlandi. Úti stóð Rósa, stór og myndarleg með Þórð, son sinn, í fanginu, tvær föðursystur Sigfúsar, þær Élín og Ragnhildur, og svo Borga gamla. Mér fannst þetta stórkostlegar móttökur, allir úti á hlaði til að taka á móti mér, en auðvitað var verið að fagna hús- bóndanum. Mér leið mikið vel um sumarið og er leið að hausti eða 2. september fæddist þeim hjónum dóttir, svo áður en ég fór heim var ég fastráðin næsta sumar til að passa tvö böm, sem ég og gerði. Síðasta sumarið mitt á Geirlandi var ég 16 ára og titluð sem kaupa- kona, þeir vom líka stórir flekkim- ir á Geirlandstúninu þegar hús- bóndinn var búinn að vera að slá alla nóttina, en það man ég að Sig- fús gerði oft. „Eg er að nota rekj- una og tímann," var hann vanur að segja, „svo er það líka betra fyrir klárana, hann Jarp og hann Fjalla-Rauð“. Mér fannst skrítið að Sigfús skyldi vinna á nóttunni, því hann vann líka á daginn. Sigfús hafði séð um smíði og uppsetningu á 32 heimilisrafstöðvum, þar af 26 í Vestur-Skaftafellsýslu. Svo var eitthvað að bila einhvers staðar og þá þurfti Sigfús að fara að heiman, hvemig sem á stóð. Rósa var stundum leið yfír því, en þá stjómaði hún bæði úti og inni. í áratugi höfðu þau Geirlands- hjón frábæran vinnumann, Davíð Bjamason frá Efri-Steinsmýri, sem nú dvelur á Gmnd í Reykjavík. Seinna varð einnig heimilisfastur frændi Rósu, Skúli frá Hunkubökk- um, hann dvelur á Vífilsstöðum þessa dagana vegna veikinda. Rósa var fædd og uppalinn í vest- urbænum á Fossi á Síðu, einum af fegurstu stöðum þessa lands, dóttir hjónanna Þórdísar Guðmundsdóttur og Páls Helgasonar bónda á Fossi, en hann var bróðir Lámsar á Klaustri og Höllu á Geirlandi. Rósa var elst þriggja bama þeirra, næst henni kom Laufey, sem í áratugi var ljósmóðir þar fyrir austan og bjó á Fossi, en flutti síðan til Reykjavíkur og býr þar ásamt manni sínum. Yngstur var Helgi bóndi á Fossi, dáinn 1963. Rósa giftist frænda sínum, Sig- fúsi Vigfússyni, 5. nóvember 1932. Fyrsta árið bjuggu þau á Selfossi, þar sem Sigfús vann við rafvirkjun, en hausticl 1933 fluttu þau að Geir- landi og tóku við búi af Höllu, móður Sigfúsar, sem þá var orðin ekkja. Heimilið á Geirlandi var alla tíð mannmargt rausnarheimili. Ég man gamla bæinn, sem var yndislega vinalegur, með stáss-stofunni og gestaherberginu austur í, borðstof- unni með orgelinu og vesturkames- ið, sem var svefnherbergi þeirra hjóna. Gömlu konumar á loftinu, sem sátu við að kemba, spinna og pijóna alla daga, og svo vinnustað- urinn hennar Rósu, „eldhúsið", þar bakaði hún öll brauð og heimsins bestu flatkökur, smákökur og tert- ur, strokkaði smjör og bjó til osta. Hún var snillingur í allri matar- gerð, já, hún kunni til verka, hún Rósa Pálsdóttir, enda hafði hún farið á húsmæðraskóla til Lilja Magnúsdóttir, Akureyri Fædd 7. mars 1941 Dáin 4. september 1988 í dag verður til moldar borin á Möðruvöllum í Hörgárdal Lilja Magnúsdóttir, sem látin er, aðeins 47 ára að aldri. Lilja var dóttir Magnúsar Jóns Ámasonar, sjómanns á Hjalteyri við EyjaQörð, og konu hans, Val- gerðar Þorbergsdóttur, sem bæði em látin. Systkini Lilju em þijú, Bára, Ámi og Dóra. Við systkinin — þau okkar sem eldri em — minnumst Lilju fyrst frá því er við bjuggum í Miklagarði á Hjalteyri, en fjölskylda Lilju bjó þar á hæðinni fyrir ofan okkur. Þar leit hún oft til með grislingunum — og hélt því raunar áfram eftir að flölskylda okkar fluttist til Ólafsvík- ur 1958, þvf hún kom þangað að vinna og bjó í sama húsinu. Þar var líka föðurbróðir okkar, Magnús Tryggvason, á sama tíma og bjó á sama stað. Bæði vom þau okkur systkinunum ákaflega góð og gáfu sér jafnan nægan tíma til þess að leika við okkur og glettast. Magnús og Lilja giftu sig hinn 9. nóvember 1960. Fyrst settu þau sig niður á Hjalteyri, en 1963 fluttu - Minning þau til Akureyrar þar sem þau hafa búið síðan. Fyrstu tíu árin á Akureyri bjuggu þau í Lundargötu 1, í gömlu húsi, þar sem foreldrar Magnúsar, Tryggvi Stefánsson og Sigrún Tijá- mannsdóttir, bjuggu lengi og skó- vinnustofa Tryggva var um hríð. Raunar vom Magnús og bræður hans fæddir í þessu húsi. 1973 fluttu þau svo í nýtt einbýlishús í Lerkilundi 44, sem þau komu sér upp af miklum dugnaði og elju. Magnús og Lilja eignuðust tvö böm, Magnús og Valrúnu Helgu. Bamabömin em tvö, Freydís Magn- úsdóttir og Óli Þór Magnússon. Lilja var einstaklega bamgóð — og það . vom böm fljót að fínna. Hin síðari árin sáum við að bömin hændust að Lilju rétt eins og við gerðum þegar við vomm að slíta bamsskón-1 um. Tengdadóttir Lilju, Inga Ólafs- dóttir, fór heldur ekki varhluta af stóm hjartaiými hennar. Eftir að Magnús og Lilja fluttu norður frá Ólafsvík og fjölskylda okkar til Hafnarfjarðar urðu sam- fundir stopulli. Oft komu þau þó á Tjamarbrautina, en miklu oftar kom eitthvert okkar sjö til þeirra í heimsókn þegar leiðih lá um Norð- Reykjavíkur. Árið 1945 fluttu þau í stórt og myndarlegt steinhús sem þau hjón höfðu byggt á hlaðinu, rétt hjá gamla bænum. Rósa og Sigfús eignuðust 4 böm: Þórð Bjama, fæddan 1937, Dísu, fædda 1939, dreng, sem þau misstu nýfæddan 1944, og Ingu Jónu, fædda 1946. Þórður, Dísa og Inga Jóna em öll búsett í Reykjavík. Bamabömin em orðin 6 og bama- bamaböm em tvö. Móðir mín, Guðrún Ásbjöms- dóttir, þakkar hjónunum á Geirlandi alla þeirra tryggð og vináttu í gegn- um árin, en við Ijögur af bömum hennar dvöldum ein 13—14 sumur á Geirlandi, hvert tók við af öðm. Og eftir að ég gifti mig og fór að eignast böm dvaldi sonur minn, Gunnlaugur Helgi, í mörg sumur á Geirlandi hjá þeim Rósu og Sig- fúsi. Hann sendir Kka sfnar þakkir ogkveðjur. í þá daga var ekki talað um meðgjöf með sumarbömum, krakk- ar áttu að vinna fyrir sér,.jafnvel þó þau gætu lítið gert annað en borða. En samt fengum við alltaf kartöflupoka og rófupoka með okk- ur heim á haustin og mikið gladdist mamma yfír þessari góðu gjöf, sem kom sér vel fyrir fátækt heimili. Ég sendi Sigfúsi, sem nú dvelur aldraður á Dvalarheimilinu Sunnuhlfð í Kópavogi, og bömum þeirra hjóna innilegar samúðar- kveðjur. Um leið kveð ég Rósu mína, sem jarðsungin verður á morgun frá Prestbakkakirkju á Síðu, kveð hana með þakklæti fyrir allt og allt. Hún verður alltaf í mínum huga bæði góð og falleg. Far þú haustblær hægt um jörð, dveldu við leiði lágt. Hvíslaðu hljóðlátur kveðju minni, milli bliknandi blóma. (E.G.) Helga Guðmundsdóttir, Hafnarfirði. urland. Alltaf var okkur tekið með kostum og kynjum, og gjaman var gist hjá Lilju og Magga, bæði í Lundargötunni, þó þar væri þröngt, og í Lerkilundinum, þar sem hús- plássið var ærið. Til þeirra var ævinlega gott að koma og jafnan glatt á hjalla. Ekki síst em margar góðar minningar um hressilegt spjall yfír kaffíbolla f eldhúsinu. Liíja var alltaf ófeimin við að segja sína meiningu, hress og skemmti- leg, og gat verið hvatvís og hnytt- in. Engum duldist þó hlýjan sem innra bjó. Lilja hafði gaman af öllum kveð- skap og naut vel góðra vísna og ljóða. Hún kunni vel að meta það sem' vel var gert í skáldskap og Bjami G. Kristfáns- son - Minning Fæddur 4. mars 1924 Dáinn 4. september 1988 Menn falla frá en aðeins sumir menn skilja eftir jafn sáran söknuð og Bjami Kristjánsson. Söknuður verður ekki til fyrir það að sá fellur frá sem gefíð hefur þér fé eða frama. Söknuður fyllir aðeins hug þess sem sér á eftir mann sem gef- ið hefur hjarta sitt og látið aðra fínna að þeir skipti máli og séu metnir. Ég kynntist Bjama Kristjánssyni þegar hann leiddi Ingu Rósu, syst- urdóttur sína, upp að altarinu til mín og æ síðan upp frá þeim degi hefur hann látið okkur hjónin fínna að það skipti hann máli að við lifð- um vel og ættum ánægjulega daga. Bjami og Áslaug kona hans fengu snemma dálæti á Ingu Rósu, frænku sinni, og svo mikið sem þau gáfu á þeim ámm af ást og um- hyggju þá var það ekki nema eðli- legt að Bjami leiddi stúlkuna upp að altarinu þegar hún giftist. Bjami Kristjánsson var mikill heimsmaður á þeim tíma. Vann við heildverslunina Kristjánssön hf. ásamt Einari og Kristjáni bræðmm sínum og naut þess ríkulega að ferðast umhverfis jörðina í leit að góðum vömm og umboðum, en á þeim ámm áttu fáir kost á slíkum ferðalögum. Ég held að Bjama hafí verið það betur gefíð en mörgum öðmm að fínna réttu vömna og fá erlenda menn til þess að treysta sér og fyrir- tæki sínu fyrir vöram sínum og við- skiptum. Enda varð vegur hans mestur á meðan hann gat einbeitt sér að þeim verkefnum í samstarfi við bræður sína. Bræðraböndin vom sterk. Bjami hóf störf sem ungur maður á aug- lýsingastofu EK, sem bróðir hans Éinar Kristjánsson hafði stofnað. Síðan vann hann með Guðna Kristj- ánssyni bróður sínum sem þá rak Nælonplast áður en hann réðst sem sölumaður til Kristjánsson hf., en á þeim ámm sem hann starfaði hjá Kristjánsson fékk Bjami umboð fyrir sum þeirra japönsku fyrir- tækja sem í dag þykir einna verð- mætast að vera í viðskiptum við. Fyrir allnokkmm ámm slitnaði upp úr samstarfí þeirra bræðra og stofnaði Bjami þá heildverslun B G Kristjánsson hf. Naut þá hvomgur bræðranna hæfíleika hins, sem báð- ir vom þó mjög í þörf fyrir. Nú em þeir allir gengnir bræðumir. Syst- umar tvær, Álfhildur og Ásdís, böm og tengdafólk sitja eftir og minnast svipmikilla og duglegra Vestfírðinga sem fluttust til Reykjavíkur á þeim ámm þegar kreppu fylgdi eymd og peninga- leysi, bræðra sem unnu sig upp með dugnaði og samvinnu og létu sér annt um foreldra sína, systkini og frændfólk. Bjami var sonur Kristjáns Sig. Sigurður Sigursteins son - Minning Kynni okkar af Sigurði Sigur- steinssjmi vom ekki löng en þeim mun ánægjulegri. Við dáðumst að þeim hjónum, Sigurði og Önnu Ámadóttur, fyrir að hleypa heim- draganum á hveiju ári þrátt fyrir að vera lítt heima í framandi tung- um. Þau vom ávallt komin á fætur fyrir allar aldir til að njóta sólarinn- ar, kynna sér háttu innfæddra, skoða athyglisverða staði, sinna kaupunum á gjöfum til ættingja og var stundvísi þeirra við bmgðið þegar farið var í sameiginlegar ferðir. Við minnumst Sigurðar heit- ins fyrir gleðiríka daga á Kýpur, flarri hversdagslegum áhyggjum heima fyrir. Hann kunni frá mörgu að segja norðan frá Akureyri þar ljóðagerð. Davíð skáld frá Fagra- skógj var í miklu uppáhaldi hjá henni. Lilja og Magnús ferðuðust mikið um Island og nutu þess mjög að skoða sig um í hinni margvíslegu og fjölþættu náttúm landsins, í byggðum jafnt sem óbyggðum. Þau vom góðir ferðafélagar og fjöl- skyldan, vinir og vandamenn eiga margar góðar minningar um Lilju í þessum ferðalögum. Ekki var síður skemmtilegt að heyra þau Magnús og Lilju segja frá svaðilfömm í óbyggðum — og smástríða hvort öðru í leiðinni. í janúar 1985 veiktist Lilja alvar- lega vegna hjartaáfalls, en hafði náð sér töluvert vel aftur, enda þótt hún yrði að heyja daglega bar- áttu við þennan sjúkdóm sinn, og stundum meira en ýmsa grunaði. Það var fjarri Lilju að bera veikindi sín á torg — miklu fremur faldi hún þau undir hressu yfírbragði. Kannski var það vegna þess hve hún bar veikindi sín með miklu æðmleysi, að andlát hennar kom vinum hennar og vandamönnum svo óvænt og að óvömm. Og kannski einmitt vegna þess fínna þeir nú enn betur hve mikið þeir hafa misst við fráfall hennar og hversu sár söknuðurinn er. Lilja Magnúsdóttir var heilsteypt kona. Hún lifír í minningu okkar sem þeklq'um hana og þótti vænt um hana. Harðarbörn sem þau hjónin stofnuðu sitt fyrsta heimili og úr starfí sínu sem leigubílstjóri í Reykjavík. Jafnan barst talið að sonum og bamaböm- um þeirra hjóna og gætti þá stolts í lágum rómi Sigurðar. Daginn örlagaríka þegar hópur íslendinga sigldi í glaðasólskini á lítilli snekkju meðfram strönd Lim- assol spjölluðu Sigurður og Páll dijúga stund saman um heima og geima. Sigurður sagði hinum unga viðmælanda sínum frá fyrsta heim- ilishaldinu á Akureyri þegar oft var þröngt í búi; frá móðurbróður Páls sem sá um dreifingu Moggans á Akureyri; og afa, Þorsteini Jóns- syni, sem var „hörkukarl". Fyrr um morguninn hafði Sigurður blaðað í Morgunblaði sem barst að heiman. Þar las hann um dauða kunningja síns á besta aldri. Varð Sigurði þá að orði hversu dauðinn væri oft skammt undan og menn hyrfu stundum fyrirvaralaust af sjónar- sviðinu. Ekki vom nema nokkrir dagar síðan hann hafði ekið þeim sem nú væri fallinn frá. Örfáum mínútum síðar var Sig- urður allur. Akkemm hafði verið kastað skammt undan ströndinni til að menn gætu fengið sér sund- sprett. Við sem um borð vomm fylgdumst milli vonar og ótta með hetjulegri björgunartilraun skip- stjórans en allt kom fyrir ekki. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Sigurður lifir áfram í minningu þeirra sem gengu skamma stund með honum lífsleiðina. Fyrir hönd Amars Más Ólafssonar fararstjóra og farþega með ferðaskrifstofunni Sögu vottum við Önnu, sonum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar. Páll og Þórdís Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.