Morgunblaðið - 22.09.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988
VEÐUR
Afmælistónleikar Atla Heimis
Það var mikil stemning í Gamla
bíói í gærkvöldi á 50 ára af-
mælistónleikum Atla Heimis
Sveinssonar og í lokin hyllti fólk
Atla og konu hans, Ingibjörgu
Bjömsdóttur, og söng „I Skóla-
vörðuholtið hátt, hugurinn skopp-
ar núna“ úr Ofvitanum.
Fjöldi söngvara og hljóðfæra-
leikara kom fram á afmælistón-
leikunum og voru fjögur verk eft-
ir Atla flutt: fimm lög fyrir fiðlu
og píanó, Dona Nobis Patsem, úr
21 tónamínútu fyrir einleiksflautu
og 4 sönglög við pólsk og íslensk
Ijóð.
Veg og vanda af skipulagningu
tónleikanna hafði Guðmundur
Emilsson, en kynnir var Sveinn
Einarsson. Töluðu þeir báðir í
bundnu máli allan tímann.
Eyjaferðir í Stykkishólmi:
Vilja flytja farþega milli
Reykjavíkur og Akraness
Morgunblaðið/Þorkell
Friðrik Sophusson, iðnaðarráðherra, flytur ávarp við opnun sýning-
arinnar Tölvur á tækniári.
Laugardalshöll:
Sýningin Tölvur
á tækniári opnuð
SÝNINGIN Tölvur á tækniári
var opnuð í Laugardalshöll í
gær. Tölvunarfræðinemar í Há-
skóla Islands gangast fyrir sýn-
ingunni. Við opnunina flutti Frið-
rik Sophusson, iðnaðarráðherra,
ávarp og framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar, Jón Georg Aðal-
steinsson, opnaði sýninguna
formlega.
Um 500 manns voru viðstaddir
opnunina, að sögn Kristins Eiríks-
sonar í sýningarstjóm. „Um 55 fyr-
irtæki, einstaklingar og stofnanir
sýna meðal annars tölvur, kerfi,
strikamerki, gagnabanka, bækur,
öryggiskerfi, húsgögn, kennslu-
stofu og blóm í 62 básum á sýning-
unni en henni lýkur næstkomandi
sunnudag," sagði Kristinn Eiríks-
son í samtali við Morgunblaðið.
„VID sendum bæjarstjórn Akraness og útgerðarfélagi Akraborgar,
Skallagrími hf., bréf, þar sem reifiið er sú hugmynd okkar að starfa
í samvinnu við Skallagrím að fólksflutningum milli Reykjavíkur og
Akraness í vetur,“ sagði Svanborg Siggeirsdóttir, framkvæmdastjóri
Eyjaferða á Stykkishólmi. Eyjaferðir hafa í sumar verið með 60
manna bát í ferðum um BreiðaQörð.
„Það er alls ekki hugmyndin hjá
okkur að fara út í samkeppni við
Akraborgina," sagði Svanborg.
„Við viljum fyrst og fremst reyna
að nýta bátinn okkar, Hafrúnu, í
vetur, í stað þess að binda hann
við bryggju. Þar erum við fyrst og
fremst að hugsa um fólk sem þarf
að komast á milli snemma á morgn-
ana til að sækja vinnu eða skóla.“
Svanborg var innt eftir því hvort
Eyjaferðir myndu hafa bátinn í sigl-
ingum milli Akraness og Reylq'avík-
ur ef af því verður að Norðurskip
hf., í eigu bræðranna Amar og
Hauks Snorrasona, he§i rekstur
farþegaferju á þessari leið. „Nei,
ef af þeirri ætlan bræðranna verður
þá reikna ég ekki með að okkar
bátur verði í ferðum á milli. Við
viljum fyrst og fremst láta á það
reyna hvort við getum nýtt bátinn
í samvinnu við Skallagrím hf. Ef
ekki verður af því þá er auðvitað
hugsanlegt að við reynum að leigja
bátinn í sérstök verkefni, annars
verður honum lagt við bryggju til
næsta sumars."
Bátur Eyjaferða kom til landsins
í maí og hefur verið í ferðum um
Breiðaíjörð síðan. Aður hafði fyrir-
tækið notað til ferðanna smærri
bát, sem hefur einnig verið í notkun
í sumar. Fyrirtækið hefur skipulagt
tveggja stunda útsýnisferðir um
Breiðafjörð og ferðir út í Flatey.
VEÐURHORFUR íDAG, 22. SEPTEMBER
1988
YFIRLIT í GÆR: Lægð fyrir austan land en hæð yfir Grænlandi.
SPÁ: Norðaustanátt, víða allhvöss um vestanvert landið en hæg-
ari austanátt austan lands. Rigning um allt norðanvert landið, skúr-
ir á Suðausturiandi en þurrt suövestan lands. Hiti 4—7 stig noröan-
til á iandinu en 7—11 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Noröaustanátt, víða talsverður strekking-
ur. Skúrir á Norður- og Austurlandi en að mestu þurrt á Suður-
og Vesturlandi. Hiti 3—6 stig norðan lands en 6—10 stig syðra.
HORFUR Á LAUGARDAG: Minnkandi norðanátt og svalt i veðri.
Slydduél við norðurströndina, skúrir á Austurlandi en bjart veður
sunnan lands og vestan.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
^ \r.i
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
víndstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjökoma
* * *
-| 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hltl 4 7 veður rigning rigning
Bergen 13 súid
Helsinkl 12 léttskýjað
Kaupmannah. 17 skýjað
Narssarssuaq 3 hálfskýjað
Nuuk 3 skýjað
Osló 15 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 12 alskýjað
Algarve 25 heiðskirt
Amsterdam 15 mistur
Barcelona 24 heiðskírt
Chicago 10 alskýjað
Feneyjar 20 skýjað
Frankfurt 14 alskýjað
Glasgow 13 alskýjað
Hamborg 13 þokumóða
Las Palmas 25 léttskýjað
London 18 mistur
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 14 léttskýjað
Madríd 24 heiðskfrt
Malaga 24 heiðskírt
Mallorca 25 léttskýjaö
Montreal 15 hátfskýjað
New York 21 mistur
Parfs 16 heiðskírt
Róm 24 léttskýjað
San Diego 18 skýjað
Winnipeg 7 rigning
Morgunblaðið/Þorkell
Vemdaðar íbúðir aldraðra við Melabraut á Seltjamarnesi.
Seltjarnarnes:
Síðari áfanga verndaðra
íbúða aldraðra lokið
SÍÐARI áfanga verndaðra íbúða
aldraðra við Melabraut á Sel-
tjarnamesi er nú lokið og hafa
þá verið byggðar 38 ibúðir í þess-
um áfongum. Af íbúðunum 38
era 33 eign notenda og 5 em
leiguíbúðir í eigu bæjarsjóðs
Seltjaraaraess. Ibúarair eiga
meðal annars kost á að fá fast
fæði eða einstaka máltíðir, þrif
og þvott. Seltjaraarnessbær á
alla sameign í húsunum.
Heilsugæslustöð, sundlaug og
bókasafn eru í næsta nágrenni íbúð-
anna. Bæjarsjóður var fram-
kvæmdaaðili við bygginguna. Hús-
næðisstofnun ríkisins lánaði bæjar-
sjóði framkvæmdalán sem greiðist
upp á 18 til 24 mánuðum eftir að
íbúðimar eru teknar í notkun. Lán-
in til síðari áfanga námu 900 þús-
und krónum á hveija íbúð.
Bæjarsjóður telur borga sig að
fjárfesta í sameign íbúðanna þar
sem í stað þeirra, sem inn í þær
flytja, koma nýir íbúar sem fiytja
í gróin hverfi á Seltjamamesi án
verulegs tilkostnaðar bæjarsjóðs.