Morgunblaðið - 22.09.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988
Undirstaðan er víð-
ar en í sjávarútvegi
eftir Kristínu A.
Ólafsdóttur
Málsvari meirihluta borgar-
stjómar í dagvistarmálum, Júlíus
Hafstein borgarfulltrúi, hefur ekki
miklar áhyggjur af uppeldisaðstæð-
um reykvískra bama, ef marka má
orð hans á síðasta borgarstjórnar-
fundi. Með yfirskilvitlegum kúnst-
um reiknaði hann rúmlega 2000
bama biðlista eftir dagvistarplássi
niður í 200 böm. Nefndi að vísu
ekki dagsetninguna á þeim veru-
leika, en hann var greinilega hand-
an næsta homs á borgarkorti þeirra
sjálfstæðismanna. Reikningskúnst-
in fólst m.a. í því að draga frá þann
fjölda bama sem var hjá dagmæðr-
um í borginni um síðustu áramót!
Hvemig stjómarmanni hjá Dagvist
bama dettur í hug að bera annað
eins á borð verða aðrir en ég að
útskýra. En vonandi er stjómar-
manninum a.m.k. ljóst, að enn fæð-
ast böm í Reykjavík, fæðingum
hefur reyndar fjölgað í ár og í fyrra
frá því sem var. Þessi nýfæddu
böm þurfa tryggar uppeldisaðstæð-
ur eins og önnur börn, og mörg
þeirra munu bætast við á biðlista
borgarinnar eftir dagvistarplássi.
Allt útlit er því fyrir lengri biðlista
ef óbreytt stefna sjálfstæðismanna
í dagvistannálum ríkir áfram.
Áðumefndur borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins hafði hins vegar
þungar áhyggjur af ábyrgðarleysi
stjómarandstöðunnar gagnvart
fjármunum borgarinnar. Þessi
stjómarmaður Dagvista bama lagði
því til, að tillaga minnihlutans um
að 35 milljónum króna yrði varið
til þess að bregðast við starfs-
mannavanda bamaheimilanna yrði
felld. Það gekk eftir, þegar allir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiddu atkvæði gegn tillögunni
síðar á fundinum.
Biðlistar, ónýtt pláss
og reddingar
Tillagan var flutt vegna þess að
neyðarástand ríkir hjá mörgum
bamafjölskyldum í Reykjavík sök-
um skorts á tryggri dagvist fyrir
bömin. Dagvistarheimili borgarinn-
ar, sem em allt of fá, er ekki hægt
að fullnýta vegna starfsmannaeklu.
Nú er óvistað í 530 pláss af rúm-
lega 4000. Bamafækkun vegna
hádegisvistunar á leikskólum eða
sökum erfiðrar samsetningar
bamahópsins á sumum deildum,
Æ
KOSTUR FYRIR ÞIG
ía^Ístk0^1'690'
,0X200 ^2'590"
KR, 870."
50 X 70 KH’
50 X 00 KR. 19°-
>TT 70 X125 KB. 330-
KAUPFELOGIN UM LAND ALLT!
skýrir nokkra tugi þessara vannýttu
plássa. U.þ.b. 450 pláss standa hins
vegar auð vegna þess að það vant-
ar fólk til starfa. Á sama tíma em
2068 böm á biðlistum eftir dag-
heimilis- eða leikskólaplássi, fleiri
en nokkm sinni fyrr.
Algengasta úrræðið fyrir börn,
sem ekki komast inn á dagvistar-
heimili, er að vistast hjá dagmóður.
Þar er nú erfiðara um vik en áður,
þar sem dagmæðmm hefur fækkað,
sérstaklega þeim sem vista böm
allan daginn. Með auknum þrýstingi
á dagmæðrakerfið eykst hættan á
því að fleiri böm séu vistuð á ein-
stökum dagmæðraheimilum en
góðu hófi gegnir. Og svo em þeir
foreldrar, sem ekki fá neitt dag-
mæðrapláss sem þeir geta eða vilja
nota fyrir böm sín.
Tætingsleg uppeldisskilyrði, sem
byggjast á reddingum frá degi til
dags eða mánuði til mánaðar er
vemleiki margra reykvískra bama.
Slíkt ástand er samfélaginu öllu
hættulegt. Með því að vanrækja
þann gmnn, sem uppeldi yngstu
bamanna er, bjóðum við heim hæt-
tunni á auknum félagslegum vanda-
málum og fjölgun veikra einstakl-
inga. Flestir gera sér grein fyrir
mikilvægi sjávarútvegs sem undir-
stöðu atvinnu- og efnahagslífs
íslensks þjóðfélags. Færri virðast
skilja, að undirstaða heilbrigðrar
þjóðar og bjartra framtíðarvona em
þroskavænleg uppeldisskilyrði
bama.
Með hagsmuni barna í huga, og
þar með þjóðarinnar, vildi stjómar-
andstaðan veija fé til þess að
styrkja uppeldisstarf dagvistar-
heimilanna og koma á fullri nýtingu
þeirra. Því var tillagan flutt á borg-
arstjómarfundinúm í síðustu viku.
En kröfunni um ábyrgð gagnvart
bömum svömðu sjálfstæðismenn
með ásökunum um ábyrgðarleysi í
fjármálum!
Niðurstaðan:
Bætt launakjör
Vandi dagvistarheimila borgar-
innar er ekki að koma upp fyrst
núna. Allra síðustu árin hefur
reynst erfitt að fullmanna þau, og
geysilega ör starfsmannaskipti hafa
veikt uppeldisstarf margra þeirra.
Af þessum sökum skipaði borgarráð
á síðasta ári nefnd til þess að leita
leiða út úr starfsmannavandanum.
Niðurstaða nefndarinnar lá fyrir í
janúar sl. og var þar efst á blaði:
„Nefndin álítur þegar litið er til
dagsins í dag að bætt launakjör
hafi mesta þýðingu fyrir starfs-
mannahaldið."
í nefndinni sátu 3 fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins. Líklegt þótti því
að mark yrði tekið á henni og farið
að tillögunum. Það hefur reyndar
verið gert að hluta til hvað varðar
námskeiðahald og hlífðarfatnað
fyrir starfsfólk. En meginniðurstað-
an, að bæta verði launakjörin, hefur
verið hunsuð af ráðamönnum borg-
arinnar. Þeir hafa þó haft tækifæri
til þess að taka á þeim málum.
Þegar samið var við Sókn snemma
ársins, var ekki tekið mið af eftir-
farandi tillögu nefndarinnar:
„í komandi samningum við Sókn-
arstarfsmenn verði tekið tillit til
þeirrar ábyrgðar sem felst í uppeldi
bama. Vakin er athygli á því, að
Sóknarstarfsmenn á dagvistar-
heimilum eru sérstaklega lágt laun-
aðir þar sem vinnutími þeirra býður
ekki upp á vaktaálag." Samninga-
menn borgarinnar stóðu dyggilega
vörð um krónur borgarsjóðs en létu
hagsmuni bama lönd og leið.
Stjómarmaður Dagvista, Júlíus
Hafstein, hrósar þeim eflaust fyrir
„ábyrgð gagnvart íjármunum“.
Annað tækifæri gafst í apríl,
þegar stjómarandstaðan lagði til
að engin laun á vegum Reykjavíkur-
borgar yrðu undir skattleysismörk-
um. Við samþykkt tillögunnar
hefðu launamál dagvistarheimil-
Kristín Á. Ólafsdóttir
„Láglauna- og vaxta-
stefiia síðustu ára hef-
ur kippt öryggisnetinu
undan fjölda barna.
Lengdur vinnutími og
auknar peningaáhyggj-
ur foreldra bitna á
börnum og við bætist,
að uppeldisstéttir, sér-
staklega forskólabarn-
anna, eru svo illa laun-
aðar að ekki er hægt
að veita börnunum
nauðsynlega umönnun
meðan foreldrar afla
tekna utan heimilis.“
anna gjörbreyst til batnaðar. Sjálf-
stæðismenn fundu tillögunni flest
til foráttu, þrátt fyrir samþykkt
verkalýðsmálaráðs flokks þeirra um
fordæmingu launa undir skattleys-
ismörkum. Þeim tókst að þvæla til-
lögunni á undan sér þar til ríkis-
stjómin kom þeim til hjálpar með
bráðabirgðalögum 20. maí. Þau lög
banna kjarasamninga og hækkun
launa umfram þröngan ramma
fram til 10. apríl næsta árs. Borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins kom-
ust þannig hjá því að greiða at-
kvæði gegn tillögunni, en af mál-
flutningi þeirra var orðið nokkuð
ljóst að þannig hefðu þeir afgreitt
hana.
Og starfsmannavandi dagvistar-
heimilanna hefur ekki minnkað
þrátt fyrir niðurstöður borgarráðs-
nefndarinnar sem lágu tilbúnar fyr-
ir 8 mánuðum. Hreyfing á starfs-
fólki fyrri helming þessa árs minnk-
aði ekki frá því í fyrra. I miðjum
þessum mánuði vantaði starfsfólk
í tæplega 80 stöðugildi.
V erðmætamatið
Vandinn að fá fólk til þess að
gegna uppeldisstörfum leysist ekki
fyrr en þau störf verða metin að
verðleikum og viðurkennd sem ein
þau þýðingarmestu fyrir samfélags-
heildina. Því fer fjarri að sú viður-
kenning sé staðreynd í dag. Það á
ekki síst við um Reykjavík, sem
greiðir starfsfólki sínu lægri laun
en fjöldi annarra sveitarfélaga í
landinu. Fóstrur, sem eru að koma
úr 3ja ára fagnámi fá rúmar 47
þúsund krónur í byijunarlaun. For-
stöðumenn stærstu heimilanna með
hæsta starfsaldur og sérmenntun
komast uppí 73 þúsund krónur fyr-
ir fullan vinnudag.
Fólk án fagmenntunar, sem svar-
ar auglýsingum Dagvista bama um
starfsfólk, fær nú þær upplýsingar,
að byijunarlaun séu tæplega 40
þúsund krónur á mánuði ef viðkom-
andi er orðinn 23ja ára. Launin
fara niður í 34 þúsund ef manneskj-
an er 16 ára. Þeir sem forvitnast
um störfin eru helst komungar
stúlkur sem ekki hafa í þyggju að
ílengjast í starfmu og mæður ungra
bama sem sjá þarna möguleika á
ódýru dagvistarplássi fyrir bömin
sín sem gerir þeim kleift að stunda
launavinnu. Upplýsingamar um
launin valda því hins vegar, að
margir þeirra sem forvitnast þakka
fyrir og segjast því miður ekki hafa
efni á að taka að sér starfið.
Svona er verðmætamat ráða-
manna Reykjavíkurborgar. Þetta
þykja hæfileg laun fyrir að sinna
undirstöðunni — uppeldi yngstu
bamanna. Þetta er sóminn sem
yngstu Reykvíkingunum er sýndur
í raun.
Samfélag á villigötum
Samfélag sem vanrækir svo
skyldur sínar við böm er á hættu-
legum villigötum. Stjómvöld verða
að átta sig á samhengi orsaka og
afleiðinga, ekki bara í efnahags-
og atvinnulífi, heldur í mannlífinu
almennt. í nýjasta hefti tímaritsins
Mannlífs er umfjöllun um bama-
vemdarmál. Þar kemur m.a. í ljós
að börnum, sem alvarleg barna-
vemdai-mál snemst um, fjölgaði um
155% frá 1981 til 1987. Þetta er
aðeins toppurinn á ísjakanum, erfíð-
ar aðstæður bama, sem ekki em
þó komnar á jafn alvarlegt stig,
verða stöðugt meira áberandi í vel-
ferðarsamfélagi okkar. Ég dreg
ekki í efa, að skortur á góðum dag-
vistarúrræðum á sinn þátt í þessari
ógnvekjandi þróun. Erfíðleikarnir
munu aukast og verða illviðráðan-
legri ef stjómvöld átta sig ekki á
tengslum milli ömggra, þroskavæn-
legra uppeldisskilyrða og vellíðunar
bama og foreldra þeirra.
Láglauna- og vaxtastefna
síðustu ára hefur kippt öryggisnet-
inu undan fjölda bama. Lengdur
vinnutími og auknar peninga-
áhyggjur foreldra bitna á bömum
og við bætist, að uppeldisstéttir,
sérstaklega forskólabamanna, em
svo illa launaðar að ekki er hægt
að veita bömunum nauðsynlega
umönnun meðan foreldrar afla
tekna utan heimilis. Þeir sem
ábyrgir em fyrir hinum illu bráða-
birgðalögum frá í maí ásamt gild-
andi láglaunastefnu ættu að velta
þessu samhengi fyrir sér áður en
gengið er lengra út á þennan hála ís.
Foreldrar vekji
stjórnmálamenn
En borgarfulltrúar, sem horfa
uppá óviðunandi uppeldisaðstæður
bama í sveitarfélagi sínu, geta ekki
bara skotið sér á bak við gjörðir
ríkisvaldsins. Ábyrgðin á rekstri
dagvistarheimila borgarinnar er
þeirra. Með því að endurmeta nú
þegar störf og vinnufyrirkomulag á
heimilunum gætu þeir tryggt eðli-
lega starfsemi og þannig veitt 450
bömum til viðbótar betri uppeldis-
skilyrði en þau nú búa við. Þetta
má gera þrátt fyrir íjandsamleg
bráðabirgðalög, fýrir því færðum
við fullnægjandi rök á borgarstjóm-
arfundinum 15. september. Til þess
þurfum við aðeins vilja borgar-
stjómar og fjármuni, sem eru til. Á
þeim sama fundi var samþykkt sala
á Granda. 50 milljónir koma í borg-
arsjóð 5. október nk. sem fyrsta
útborgun. Við fórum fram á allt
að 35 milljónir til dagvistarheimil-
anna. Þótt Grandasalan hefði ekki
komið til em nægir peningar í
sjóðnum fyrir. Júlíus Hafstein, sá
sem hneykslaðist á ábyrgðarleysi
gagnvart fjármunum, er ásamt
flokkssystkinum sínum að dæla nær
tvö þúsund milljónum uppí
Öskjuhlíð og niður í Tjörn, svo
dæmi sé tekið um ábyrga ráðstöfun
Sjálfstæðisflokksins á sameiginleg-
um sjóðum okkar.
Tillaga okkar í stjórnarandstöð-
unni var felld. Meirihlutinn virðist
ætla að gera lítið með niðurstöður
nefndarinnar sem átti að taka á
vandanum. Hagsmunir bama er
ekki forgangsmál sjálfstæðismanna
í borgarstjóm. Það er hart til þess
að vita og gerir stöðuna í uppeldis-
málum erfíða. í bili. Vonin felst
hins vegar í vaxandi áhuga foreldra
' og uppeldisstétta. Fjöldi starfs-
manna á dagvistarheimilum
Reykjavíkurborgar er brennandi
hugsjónafólk um velferð bama. Það
verður að treysta á úthald þess.
Og með eftirfylgju foreldra hlýtur
að koma að því að stjómmálamönn-
um skiljist, að mikilvæg undirstaða
þjóðarinnar em böm, ekki síður en
sjávarútvegur.
Höfundur er borgarfuHtrúi fyrir
Alþýðubandalagið.