Morgunblaðið - 18.11.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988
47
Morgunblaðið/Bjami
AUSTURSTRÆTI
Nýstárleg bókakynning
Nýstárleg útstilling blasir nú
við þeim sem leið eiga fram
hjá bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti. Er þar verið
að kynna nýútkomna bók Iðunnar
Steinsdóttur „Víst er ég fullorðin".
í glugganum má sjá tilvísanir í
bókina sjálfa en sagan lýsir lífi
unglingsstúlku á árunum um 1950.
Auglýsingin er einnig sérstök vegna
þess að hlustendum Bylgjunnar sem
þangað hringja-gefst kostur á að
svara léttum spumingum er varða
það sem sýnt er í glugganum og
geta fengið vegleg bókaverðlaun
fyrir rétt svör. Næstu vikur verða
kynntar fleiri á þennan hátt, svo
sem „Ur eldinum til íslands“, frá-
sögn af viðburðaríku lífi Eistlend-
ingsins Eðvalds Hinrikssonar, fyrr-
um knattspyrnumanns og núver-
andi nuddara, skrifuð af samlanda
hans Einari Sanden, „Þjóð í hafti“
eftir Jakob F. Ásgeirsson. Er það
saga haftaáranna á íslandi (1930-
1960), og lýsir þeim tíma þegar
fólk þurfti að standa í löngum bið-
röðum til þess að fá keypt eitt par
af bomsum!
Olafur Ólafsson, markaðsstjóri
verslunarinnar, á hugmyndína að
þessum bókakynningum, en auglýs-
ingastofan Örkin sér um útfærsl-
una.
Daihatsu Charade var upphaflega hannaður
til að mæta gífurlegri hækkun bensínverðs í orku-
kreppu og að draga úr útgjöldum heimilanna.
Nú, þegar kreppir að í íslensku efnahagslífi
og bensínverðshækkun liggur í loftinu, ásamt öðrum
auknum álögum, sannar 'Charade enn einu sinni
ágæti sitt sem einn albesti kosturinn á markaðnum
þegar hugað er að bílakaupum.
Kynntu þér hönnun, útlit og rekstrargrund-
völl Daihatsu Charade áður en þú velur annað.
Daihatsuþjónustan er svo í kaupbæti, sú
besta sem völ er á.
Við eigum fyrirliggjandi árgerð 1988 á besta
verði sem við höfum nokkrum sinni boðið uppá.
í því eru engar blekkingar um vexti, einfald-
lega lágmarksverð á gæðabíl.
Árgerð 1989 er á leiðinni fyrir
þá sem vilja bíða,
en á töluvert hærra verði.
Innifalið hágæða útvarps- og segulbandstæki.
Við bjóðum kjör við allra hæf i og erum opnir fyrir alls konar skiptum.
Úrval notaðra bíla.
9-18
***2S£"‘14
Y.au9a<“0-16
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 1 5 - SÍMI 685870.
Daihatsu - Volvo - Viðurkennd gæðamerki
NÝ SÍMANÚMER:
Söludeild 685870
Verkstæði: 673600
Varahlutir: 673900
Einlcegar þakkir sendum við öllum, sem glöddu
okkur með blómum, skeytum og gjöfum í til-
efni sjötugsafmœla okkar.
Sú vinátta sem okkur var sýnd verður seint
þökkuð sem skyldi.
Helga Egilson og Rögnvaldur Sigurjónsson.
á laugardag
handa þér, ef þú híttír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki ,
vanta í þetta sinn! I
i