Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 47
88et KaaM38aa .8 auoAauTMMia .GiGAjawuoflOM
'"MURGUNBTAÐIÐTTiMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
47
Þessi fyrirtæki
styrkja
brunavarnaátak
3. 84008/84009
Í
|
Bmálning ' f M
--------------4
GÚMMÍf
VINNU 4
STOfAN í
HF á
/ SKIPHOLTI35 s. 31055 M
RÉTTARHÁLSÍ $
}
4
RAUÐIKROSS á
ÍSLANDS jJ
____________2
í
i
í
TRYGGINGAMIÐSTðÐlN f M
AOALSTRÆTI 6 — 101 REYKJAVlK — SlUI 204M
--------------4
^ TRYGGINGAR 1
5
!
4
iro t
ER í DAG UNNIÐ AF BRUNABÓTAFÉLAGIÍSLANDS
No. 1
KLMRNAVAMII
Olíufélagið hf 4
--------------4
1
fl
I
i^l * í
TkyO' GLÓFAXIHDE W
ETH MATHIESEN HF
BÆJARHRAUNI 10 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
ff^lnausL |
BORÓARTÚNI 26,
SÍMI 62 22 62 H
‘ 1
1
I
LSS, er til hús ó Laugavegi 59,
Reykjcivik, simi 10670. Veitir
róðgjöf, þjónustu og nómskeið
vcirðcmdi brunavqrnir. Utvegor
eldvarnabúnað til heimila, fyrir-
tækjci og slökkviliða.
Brunabótafélagi íslands er það sönn ánægja^að heQa í samvinnu við Landssam-
band slökkviliðsmanna BRUNAVARNAÁTAK ’88. Þetta er í þriðja sinn sem
Brunabótafélagið og Landssamband slökkviliðsmanna fara í gang með átak
gegn eldhættunni fyrir almenning. BRUNAVARNAÁTAK ’88 mun birtast hér á síðum
Morgunblaðsins annan hvern dag til jóla, þar sem fræðslu og upplýsingum um eldvarn-
armál verður komið á framfæri, ásamt skemmtilegum getraunaleik, sem vonast er til
að sem flestir taki þátt í. Þegar jólaundirbúningurinn stendur sem hæst á aðventunni
er gott að huga að eldvörnum heimilisins, því á jólunum er um óvenju mikla eldhættu
að ræða.
Það skiptir höfuðmáli, að hver einasti einstaklingur sé á verði gagnvart eldhættu í
sínu nánasta umhverfi, bæði á heimili og á vinnustað, og hafi sem bestar varnir tiltæk-
ar, ef eldur verður laus. Staðreyndir sýna að öflugar brunavarnir borga sig. Á
hverju heimili má koma í veg fyrir eldsvoða með reykskynjara, eldvarnateppi og hand-
slökkvitæki. Á vinnustað ætti hver starfsmaður að huga að sínu nánasta umhverfi í
eldvarnalegu tilliti, því ef eldur verður laus, þá er bæði um líf, verðmæti og starf að
tefla. Bæði á heimilum og í fyrirtækjum ætti að vera til áætlun um hvernig skuli bregð-
ast við ef eldur verður laus, og slíka áætlun ætti að æfa þannig að allir viti hvað eigi
að gera.
Slökkviliðsmenn um land allt hafa lengi látið til sín taka á sviði eldvarna og hafa víða
til sölu eldvarnatæki til notkunar á heimilum og í fyrirtækjum. Slökkvistarfið er fórn-
fúst starf og slökkviliðsmenn leggja sig oft í mikla hættu við að bjarga lífi og eignum
samborgara sinna. Fræðsla og ráðgjöf um brunavarnir stendur öllum til boða hvenær
sem er. Hægt er að fá upplýsingar og ráðgjöf um eldvarnamál hjá slökkviliðsstjórum
og eldvarnaeftirlitsmönnum um land allt eða Brunamálastofnun ríkisins.
Það er von okkar, sem að þessu átaki stöndum, að þær upplýsingar og ábendingar,
sem hér munu birtast og skrifaðar af færustu mönnum á sviði brunamála, verði til
þess að hver einstaklingur verði sem best upplýstur um þær hættur sem geta leynst í
eldinum. Eldvarnir koma öílum við, líka ÞER. Vertu virkur þátttakandi í BRUNA-
VARNAÁTAKI ’88 þrátt fyrir miklar annir við jólaundirbúninginn; þeim tíma er vel
varið. Taktu þátt í þessu átaki með okkur, láttu eldinn ekki ná tökum á þér, taktu eldinn
í þínar hendur.
ÞAÐ GETUR GERST HJÁ ÞÉR, - AÐ ELDUR VERÐI LAUS
VERTU ELDKLÁR!
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS