Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 28
^8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
Yirðingarleysi fyrir
umferðarreglum
eftirArnþór
Ingólfsson
Það er mikið góðæri sem gengið
hefur yfír íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins nú síðustu vikur og hver dagur
sem líður og færir okkur þá veðr-
áttu sem verið hefur undanfarið,
er fundið fé fyrir sveitarstjómir og
um leið landsmenn alla.
Það eru margar milljónir sem
sparast hafa vegna þess að ekki
hefur þurft að moka snjó af ak-
brautum og gangvegum eða hafa
uppi aðrar hálkueyðandi aðgerðir.
Ökumenn hafa getað ekið eins og
hásumar væri, hvað færð snertir,
þrátt fyrir að yfír okkur grúfír nú
svartasta skammdegið.
Hvemig hefur okkur þá gengið
í umferðinni?
Við höfum ekki getað kennt bölv-
aðri hálkunni um, það hefur verið
lítið um hana, við höfum ekki getað
kennt snjónum um, ekki hríminu á
rúðum bflanna og yfírleitt engu af
því sem fylgir vetrarakstri. Já,
hvemig hefur okkur gengið? Ojæja,
ekki er það nú til að hrópa húrra
fyrir. Ég bið menn að líta á þijá
fyrstu liðina í meðfylgjandi línuriti
og í framhaldi af því að velta því
fyrir sér hvað hægt er að gera til
að ráða bót á. Velta því fyrir sér
hveijum er um að kenna að þessar
tölur eru svona háar, velta því fyrir
sér hvert á að leita úrbóta og hverj-
ir það væru helst sem gætu látið
þær útbætur í té.
Hvað segir þessi skilgreining
okkur? Aðalbrautarréttur ekki
VIRTUR? Umferðarréttur ekki
VTRTUR?
Þetta segir mér að þama sé um
að kenna virðingarleysi fyrir þeim
reglum sem eru í gildi um þessi
mál. Það má vafalaust einnig segja
að hér sé um hreinan böðulsskap
að ræða og áníðslu á samborgaran-
um og samferðamanninum.
Hvað segir liður nr. þijú okkur?
Of stutt bil milli bifreiða. Það er
ekið aftan á næsta bfl á undan.
Hvað em þeir menn að gera sem
lenda í þessu? Hvað em þeir að
hugsa? Og nú spyr ég: Hvert eigum
við að leita til að koma í veg fyrir
að svona hlutir gerist? Úrbóta er
þörf, það hygg ég að sé öllum ljóst,
vegna þess að það er alls ekki einka-
mál þess sem aftan á ekur þegar
það gerist. Það er mál okkar allra,
það er tryggingamál og þar af leið-
andi mál allra sem greiða þurfa
tryggingaiðgjöld. Getum við annað
Arnþór Ingólfsson
„Hvað segja mennum
það að tryggingafélög-
in í landinu þurftu að
greiða Qórar og hálfa
milljón króna á hverj-
um einasta sólarhring
alltárið 1987 ítjóna-
bætur vegna árekstra
og slysa í umferðinni.“
LÖGREGLUSTJORINN I REYKJAVÍK
UM FERÐARSLYS Í OKTÓbER 1988
1968 gpg
Adalbraufarrbttur ekki virtur........
Umferáarréttur ekki virtur...........
Of stutt bil milli bifr..............
Ranglega beygt.......................
’Ogœtiiegur framór akstur............
'Ogaetilega ekiá aftur b bak ........
Ögoctilega ekið fró gangstbtt........
Röng staésetning b akbraut...........
Bifrelð ranglega lagt ...............
Þrengsli.............................
Ölvun við okstur.....................
Of hraður akstur.....................
Gbleysi og 'okunn orsök..............
Mannlaus bifreið rennur .............
Bifreið i ’ologl.....................
R'ettindaleysi við okstur ...........
en krafíst þess að ökumenn séu að
hugsa um það sem þeir em að gera?
Ekki síst vegna þess að það em,
því miður, stundum lifandi vemr
sem fyrir verða en ekki einungis
bflar.
Ætli við gemm okkur grein fyrir
því hvað árekstrar og slys kosta
þjóðfélagið?
Hið opinbera er gagnrýnt fyrir
allskonar sóun og eyðslu og auðvit-
að á gagnrýni rétt á sér, sé hún
sanngjöm.
Upplýsingar sem ég fékk hjá
mætum og traustum trygginga-
manni sögðu mér óhugnanlega
sögu. Eða hvað segja menn um það
að tiyggingafélögin í landinu þurftu
að greiða flórar og hálfa milljón
króna á hveijum einasta sólarhring
allt árið 1987 í tjónabætur vegna
árekstra og slysa í umferðinni. Er
þetta ekki gagnrýnivert, eða hvað?
Emm við e.t.v. farin að telja um-
ferðarslys svo sjálfsagðan þátt í
daglegu lifí okkar að við látum all-
ar milljónagreiðslur vegna þeirra
sem vind um eymn þjóta? Sé svo,
þá emm við á hættulegri braut.
• Ég skora á alla ökumenn, ég
skora á alla vegfarendur, að taka
þessi mál til umhugsunar, svo fram-
. arlega sem þeir hafa einhveija
ábyrgðartilfínningu og ég trúi ekki
að menn séu svo steinblindir að
þeir sjái ekki hvar úrbótanna er að
leita.
Höfundur er aðatoðaryBrlög-
regluþjónn.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
SKRIFSTOFUPJALFUN
Ritaraskólans
Innritun fyrir næsta misseri, á allar námsbrautir,
stendur nú yfir.
Upplýsingar í símum (91) 10004 og (91) 21655
á skrifstofutíma.
Mímir
Ánanaustum 15, Rvík.
SAMSTÆÐUR
úti sem inni með 40 perum
Verð frá kr. 1.380 með straumbreyti
JÓLASTJÖRNUR
úr máimiy margir litir.
Með perustæðiy
3y5m. snúru og kló.
Verð frá kr. 650
Sendum í póstkröfu
SKEIFUNNI 8 ■ SÍMI 82660
- leiöandi í lýsingu