Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Hans Rörig', ferðamálastjóri Lahnstein, Ferdinand Aust, forstjóri Rhein-Lahn skemmtigarðsins, Flug-
leiðamaðurinn Emar Gústafsson, Knut Hanschke, yfirmaður þýska ferðamálaráðsins á Norðurlöndum
og Gross, bæjarstjóri i Lahnstein.
Lahnstein vinsæll meðal íslendinga
- segir Hans Rörig ferðamálastjóri bæjarins
FYRIR nokkru voru aðilar frá
bænum Lahnstein í Rinardalnum
í Vestur-Þýskalandi staddir hér
á landi og notuðu tækifærið til
að kynna bæinn fyrir frétta-
mönnum.
Hans Rörig, ferðamálastjóri
Lahnstein, sagði að íslendingar
hefðu þegar komið í nokkrum mæli
til þessa 19 þúsund manna bæjar,
enda dvelja þar um 100 þúsund
ferðamenn árlega. „Gistinætur ís-
iendinga í ár eru um 4000, en það
er nálægt 10% af gistinóttum ís-
lendinga í Vestur-Þýskalandi öllu,“
sagði Hans Rörig. „Bærinn liggur
um 120 kílómetra frá Frankfurt og
er skammt frá Koblenz, sem er 100
þúsund manna borg. Þeir sem vilja
skreppa í verslanir finna því nóg
af þeim í Koblenz. I Lahnstein get-
um við hins vegar boðið upp á
ýmislegt annað og má þar nefna
að mjög góð aðstaða er til tennisiðk-
unar, sunds og fleira í Rhein-Lahn
skemmtigarðinum. Þá er héraðið
mikið vínhérað og hátíðir og
skemmtanir af ýmsum toga um
hveija helgi. Verðlag er lágt, svo
lágt að ég þekki dæmi þess að fólk,
sem býr í nágrenni Lahnstein, geri
sér sérstaka ferð þangað. Staðurinn
er ákjósanlegur fyrir fjölskyldu-
fólk.“
Ferðamálastjórinn sagði að
Lahnstein væri vinsæll áningastað-
ur Norðurlandabúa. „Um 30 þúsund
ferðamenn frá Noðurlöndunum
gista á ári hveiju á hótelum Lahn-
stein og því til viðbótar koma þeir
sem gista á tjaldstæðum. Danir eru
íjölmennastir, en íslendingar eru
fleiri en t.d. Svíar. Ef til vill heldur
fyöldi Dana Svíunum í burtu," sagði
hann.
I jólaglaðningi Hótel Sögu býðst
þér gisting með morgunverði í tvær
eða fleiri nætur og ein máltíð af jóla-
hlaðborði Skrúðs fyrir einstaklega
hagstættverð. / /
Verðámannítvibýli:
Tværnæturfrákr. 4.190 /
Þrjár næturfrá kr. 5.775 /
Fjórar nætur frá kr. 7.200
Smákökur
Dyngjunnar
Hér koma uppskriftir af nokkr-
um tegundum af smákökum
sem ég vona að þið hafið gam-
an af að reyna.
Sírópskökur Pálu
250 gr smjörlíki, 250 gr síróp,
250 gr sykur, 650 gr hveiti, 1
tesk. kanill, 1 tesk. negull, 1 tesk.
kardemommur, 1 tesk. matarsódi.
Smjörlíki, sykur og síróp hitað
varlega þar til allt er bráðið og
hrært vel í á meðan. Kælið aðeins
og bætið svo hveiti og kryddi út í.
Hnoðað. Geymið í ísskáp í um
hálftíma. Deigið svo sett í hakka-
vél og flata mynstrið notað. Keyrt
í gegnum vélina, skorið í 6—7 sm.
lengjur og þær látnar á bökunar-
pappír eða smurða plötu í um 200
gráðu heitan ofn — 150 gráðu
heitan blástursofn — í 10—15
mínútur.
Mjöggóðar með ískaldri mjólk.
Hnetusmjörs-kökur
Alveg afbragð!
125 gr smjör, 125 gr hnetu-
smjör, 100 gr sykur, 100 gr púð-
ursykur, 1 egg, 200 gr hveiti, '/2
tesk. vanilla, 3/4 tesk. matarsódi,
sált framan á hnífsoddi og salt-
hnetur ef vill.
Sykur, púðursykur, smjör,
hnetusmjör, vanilla og egg allt
hrært vel saman. Hveitinu og
matarsódanum hrært saman við
og að síðustu er deigið lauslega
hnoðað saman á hveiti stráðu
borði. Kælið deigið,
Mótið kúlur úr deiginu og látið
á plötu með bökunarpappír. Gerið
far tvisvar í hveija köku með
gaffli, eða þrýstið salthnetu ofan
í kökuna. Bakist við 200 gráðu
hita — 150 gráður í blástursofni
— í um 10—12 mínútur.
Súkkulaðibita-kökur
Að iokum kemur svo hér ein
sígild uppskrift:
Hrærið fyrst saman 125 gr syk-
ur, 100 gr púðursykur, 200 gr
smjörlíki og 2 egg. Út í það er
blandað 300 gr hveiti, 1 tesk. mat-
arsódi 1 tesk. heitt vatn, 200-300
gr. gróft saxað dökkt suðusúkkul-
aði, 150—200 gr gróft saxaðar
hnetur. Deigið kælt smástund.
Sett með teskeið á bökunarplötu.
Hafið gott bil á milli því kökurnar
eiga að renna. Bakist í um 200
gráðu heitum ofni — um 160
gráðu heitum blástursofni — í
10—12 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
Jólastjörnur
Um 60 stykki
150 gr smjör, 90 gr sykur, 1
egg, 1 tesk. vanillusykur, V2 tesk.
lyftiduft, 90 gr malaðar möndlur,
220 gr hveiti, egg til að pensla
með, möndluspænir og perlusyk-
ur.
Hrærið smjör og sykur saman
létt og ljóst, bætið eggi, vanillu-
sykri og lyftidufti út í. Síðan hveiti
og möluðum möndlum og hnoðið
létt.
Látið deigið á kaldan stað í
um einn tíma. Skiptið þá deiginu í
tvo hluta og fletjið þá út nokkuð
þunnt. Tekið undan stjömumóti.
Penslið kökumar með hrærðu
eggi og möndluspænum og perlu-
sykri stráð ofan á. Kökurnar svo
settar á smurða bökunarplötu í
190 gráðu heitan ofn — 170 gráðu
heitan blástursofn — þar til ljós-
brúnar.
Jórunn.