Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 71
88gi aaaMaaaa .8 auoAauTMMN .aiaAiaviuoHOM MORGUNBLÁÐII), FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988 ot 71 ''EKÞETTH EkW ruLLlrnst gengÍo, •Sétrroót^?1' Frú Silvia Raganeau kynnir nýja yngingarkremið „Longue vie cellulaire" frá í Serínu, Kringlunni, á morgun frá kl. 12-19. Glæsileg herraföt Vörumerkiðtryggir gæði og bestu snið Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð. Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,- Jakkar kr. 4.995,- Terelynefrakkar kuldafóðraðir kr. 4.760,- Úlpur kr. 2.240,- og 3.400,- Terelynebúxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,- 1.795, og 1.995,- Skyrtur nýkomnar, mikið úrval. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. maconde formen MAOE M BpRTUGAL Nokkur orð til íþróttafrétta- manna vegna þáttar á Rás 2 Ég hlustaði á íþróttaþátt Bjama Felixsonar á Rás 2 fyrir nokkru. Bjami talaði við annan ónefndan fréttamann sem hafði fylgst með leik Vals og Gróttu í 1. deild karla í handknattleik. Sá rakti gang leiks- ins og varð nokkuð tíðrætt um dóm- ara leiksins sem hann taldi hafa verið mjög hliðholla Valsliðinu og nánast fært því sigurinn á silfur- fati. Hann gaf þeim mjög slæma einkunn og endaði á því að segja að ef þeir dæmdu leiki þannig yfir- leitt þá ættu þeir að fara að leita sér að einhverri annarri deild til að dæma í. Ég hélt reyndar að hann ætlaði að segja að dómaramir ættu að leita sér að einhveiju öðru að gera. Nei, óhæfír dómarar voru að æati fréttamannsins fullgóðir til að dæma leiki í 2. deild og þá væntan- lega í 3ju og 4ðu deild. í fáfræði minni hefi ég alltaf haldið að sömu reglur giltu í handbolta hvort sem væri leikið í 1. deild eða öðrum deildum og því jafnbrýn nauðsyn á hlutlausum dómumm alls staðar. Þetta hlýtur þó að vera misskilning- ur minn ef marka má orð frétta- mannsins. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á íþróttum og tók þátt í þeim sjálf- ur þegar ég var ungur og er sann- færður um að það er öllu ungu fólki hollt og þroskandi að vera í íþrótt- um. Þess vegna er ég löngu orðinn þreyttur á því sjónarmiði sem fram kemur í fýrrgreindum ummælum fréttamannsins. Við íslendingar höfum átt mjög gott landslið í hand- bolta og eigum enn, þó á móti hafi blásið í bili. Þetta lið hefur verið stolt okkar í íþróttunum ásamt skákliðinu. En hvar skyldu þeir hafa byijáð? Ekki í 1. deild. Mér finnst því að íþróttafréttamenn hafí líka skyldur við okkur sem höfum einnig áhuga á öðrum deildum og óþarfi að sýna okkur, strákunum okkar og stelpunum þá fádæma fyrirlitningu sem fólst í orðum fréttamannsins. Ég verð að segja það eins og er að það er hending ef fjallað er að nokkru ráði um leiki í 2. deild í handbolta og oft og tíðum er úrslita ekki getið. Þar er þó Mannréttindabrot? Kæri Velvakandi. Við íslendingar státum okkur af því að eiga fallegustu konu heims og sterkasta mann í heimi. Við stöndum saman í að safna undir- skriftum til stuðnings mannréttind- um í heiminum en á sama tíma lok- um við augunum fyrir þeim mann- réttindabrotum sem eiga sér stað hér á okkar ástkæra íslandi. Ástæða þess að ég vek máls á þessu er að nú er „alnæmisvika“ °g er hún til að opna augu fólks fyrir þessum skæða sjúkdómi sem þegar hefur lagt nokkra íslendinga að velli. Það virðist ekki veita af slíkri viku ef marka má það sem ég heyrði á Bylgjunni þann 24.11. er talað var við formann samtak- anna 78, Þorvald Kristinsson. Sú staðreynd að nú er fólki sagt upp störfum, vegna kynhegðunar sinnar, er hrikaleg. Hræðslan við alnæmi virðist ráða þar ríkjum. Þetta sýnir hvað fólk er fáfrótt um alnæmi og smitleiðir þessa sjúk- dóms þrátt fyrir alla þá fræðslu sem Landlæknisembættið hefur verið með, bæði á vinnustöðum og í fjöl- miðlum. Dæmið sem Þorvaldur nefndi hafði ég heyrt áður: Maður sem vinnur í 12 ár á sama vinnu- stað er umsvifalaust rekinn þar sem hann er einungis að sinna sínu starfí. Ástæðan, jú hann er hommi. Engin önnur ástæða virðist vera fyrir hendi. Því spyr ég, hver eru mannrétt- indi hans og allra hinna sem eiga það eitt sameiginlegt að vera hommar. íslendingar lítum okkur nær, þegar við hugsum um mannréttindi úti í hinum stóra heimi. Húsmóðir í Vesturbænum Morgunblaðið undanteking. Góðir fréttamenn. Það væri ósanngjamt að ætlast til þess að liðið mitt, 2. deildarlið Selfoss í handbolta, og önnur lið annarrar deildar og þar fyrir neðan fái sömu umfjöllun og toppliðin enda geri ég það ekki. En væri nú ekki hægt að gera svolítið betur? Að endingu langar mig til að benda ykkur á að á sl. tveimur árum hafa a.m.k. 6 af strákunum okkar leikið og æft með drengja- og unglingalandsliði í handbolta. Með íþróttakveðju og von um góðan endasprett í Grikklandi. Sigurður Sveinsson Nýju Cyinda upplmiRavfilamar lieda medan pær (nm upp! Eirtn stœrsti kosturirm vid -kostimir eru fleiri — njju Cylinda uppþvotta- vélamar sést ekki og heyrist varia - hvað þeer eru ótrúlega hljóðlátar | Einstök einangrun gerir Cylinda hljódlátari en ábur hejur TTuelst. Med nýrri þvottateekni sparast orka,vatn og sápa, svo um munar. Cylinda UPPÞVOTl AVÉLAR • ÞVOTTAVÉIAR TAUÞURRKARAR T | Lekaáhyggjur eru úr sögunni - Cylinda hejúr CM margfalt lekaöryggi Cy | Cylinda pveer sig upp sjálf ábur en hún pveer upp - betri upppvottur en ábur hefur pekkst ,i| ||,l Efnisgeebin skapa endinguna. Cylinda er úr 0.6mm 5 18/8 stáli (abrir láta 0.4 mm duga) t þegar adeins þad besta er núgu gott /rO nix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 Yfir 80 tegundir af hárkollum fyrir kvenfólk og mjög gott úrval af toppum og hárkollum fyrir karlmenn. Fyrsta flokks vara á góðu verði. UMBOÐSMENN: Jón Hjartarson, hárskeri, simi 2675, Akranesi. Rakarastofa Sigvalda, Kaupangi, Akureyri. Sími 21898. UPPLÝSINGASÍMI 17144 Dóróthea Magnúsdóttir Torfi Geirmundsson Laugavegi 24 - 2. hæð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.