Morgunblaðið - 28.12.1988, Page 25

Morgunblaðið - 28.12.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 25 Verður Njörvasund brúað fyrir aldamót? Rabat. Reuter. HASSAN Marokkókonung-ur skýrði frá því á annan í jólum að Marokkómenn og Spánveijar hefðu náð samkomulagi um að tengja lönd sín með brú yfir Njörvasund. Sagði hann að brú- argerðin ætti eftir að hafa sams konar þýðingu og gerð Súez- skipaskurðarins fyrir einni öld, en með houm opnaðist siglinga- leið frá Miðjarðarhafi inn á Rauðahaf. „Ég vona að brúarsmíðinni verði lokið fyrir næstu alddamót," sagði Hassan konungur í viðtali við spænska blaðið ABC. Hann skýrði hvorki frá hver væntanlegur kostn- aður við brúna yrði né hvenær smíði hennar hæfíst. Fyrir þremur árum reiknuðu sérfræðingar út að brú á Njörvasundi mundi kostajafn- virði tveggja milljarða Bandaríkja- dollara, eða um 90 milljarða Bandaríkin: íslenzkra króna. Sú tala yrði enn hærri í dag, vegna kostnaðar- hækkana. Fyrirhugað er að brúin liggi milli Capa Malabata austur af Tanger í Marokkó og Punta Paloma á Spáni, sem er um 10 km vestur af bænum Tarifa. Ef af brúarsmíðinni yrði kæmi hún til með að styrkja efnahagsleg tengsl Marokkó annars vegar og Spánar og Evrópubandalagsríkj- anna (EB) hins vegar. Stjómvöld í Marokkó hafa mikinn áhuga á aðild að EB enda selja Marokkómenn 40% útflutningsafurða sinna til EB-ríkja og þaðan kemur helming- ur allrar innflutningsvöru þeirra. Brúargerðin kæmi til með að auð- velda þeim aðgang. Umsókn þeirra snemma á líðandi ári var þó hafnað. Brúin hefði það éinnig í för með sér að Marokkó yrði mikilvæg mið- stöð viðskipta og ferðamanna- straums milli Evrópu og Afríku. Elizabeth Dole skipuð atvinnumálaráðherra Washington. Reuter. GEORGE Bush, sem sver emb- ættiseið Bandaríkjaforseta i næsta mánuði, hefúr ákveðið að skipa Elizabeth Dole atvinnu- málaráðherra í ríkisstjórn sinni. Elizabeth Dole var úm fjögurra ára skeið samgönguráðherra í sfjórn Ronalds Reagans en sagði af sér siðla árs 1987. Bush kunngerði þessa ákvörðun sína á laugardag og kom val hans á óvart. Búist hafði verið við því að að Elizabeth Dole, sem er 52 ára að aldri, réðist til starfa í einka- geiranum eftir að ljóst varð að hún myndi ekki hreppa embætti sendi- herra Bandaríkjanna hjá Samein- uðu þjóðunum. Elizabeth Dole er eiginkona öld- ungadeildarþingmannsins Roberts Dole sem háði harðvítuga baráttu við George Bush í forkosningum Repúblíkanaflokksins vegna for- setakonsinganna. Höfðu banda- rískir fréttaskýrendur sumir hveijir á orði að ef til vill vildi Bush frið- mælast við þau hjónin með þessum hætti. Bush fullyrti hins vegar að hann hefði valið Elizabeth Dole sökum verðleika hennar og lagði jafnframt áherslu á að fyrri fjand- skapur hans og Dole væri úr sög- unni. Ronald Reagan skipaði Elizabeth Dole samgönguráðherra árið 1983 og gegndi hún því embætti þar til Elizabeth Dole. síðla árs 1987 er eiginmaður henn- ar ákvað að gefa kost á sér í for- kosningum Repúblíkanaflokksins. Sem samgönguráðherra beitti hún sér fyrir víðtækum breytingum á flugsamgöngum í Bandaríkjunum. Fargjöld lækkuðu mjög í verði en þjónusta flugfélaga þótti versna mjög í kjölfar þessa. Þá var hún harðlega gagnrýnd er hún varði þá stefnu stjómar Reagans að ráða ekki fleiri flugumferðarstjóra þrátt fyrir að flugumferð hefði stórauk- ist. Engu að síður naut hún bæði vinsælda og virðingar í ráðherratíð sinni og þótti ötull talsmaður stjóm- arstefnu Reagans forseta. Noregur: Unnt að stórminnka lyfjanotkun í fiskeldi í LJÓS hefúr komið við rann- sóknir norskra vísindamanna á lyQanotkun í fiskeldi, að hana er unnt að stórminnka og ná þó sama árangri og jafnvel betri. Var frá þessu skýrt í norska dagblaðinu Aftenposten fyrir nokkrum dögum. Árleg lyfjanotkun í norsku fisk- eldi er nú rúmlega 48 tonn en við athuganir vísindamanna við Akva- forsk-rannsóknastofnunina, sem rekin er í tengslum við norska land- búnaðarháskólann, kom í ljós, að 65% minni lyfjanotkun að vetrar- lagi og 45% minni að sumarlagi báru alveg sama árangur og stóru skammtamir. Geta þessar niður- stöður haft mikil áhrif á tilkostnað- inn við fískeldið og einnig dregið úr því umhverfistjóni, sem stundum fylgir því. Fái fiskurinn of mikið af lyfjum geta örverur og gerlar myndað mótstöðuafl gegn þeim og það sama getur átt sér stað hjá mönn- um, sem neyta físksins. Tilraunir, sem gerðar hafa verið í Averöy á Norður-Mæri í hálft annað ár á lyfínu oksolínsýru, sýna, að það kemur að betri notum ef því er blandað saman við loðnulýsi og sett utan á fóðurtöflumar en ekki blandað saman við fóðrið eins og stundum er gert. Þegar svona var farið að mátti stórminnka lyfja- notkunina. Norskir vísindamenn segja, að núverandi lyfjanotkun í fiskeldinu sé stórvarasöm og því verði að minnka hana með öllum ráðum. Þessar niðurstöður eru því mikið fagnaðarefni og geta auk þéss sparað norskum fískeldismönnum stórar fjárhæðir. áramótaa; Gríptu jott ttkijieri jýrir krttlartlgar hzkkanír. Gób^nittítukför eia^óSir turhtóir bítar tekttir BíLVANGURstr HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO MONZA’tbá. Vrrófrotkr, 667,000r Vrrblarkktm:ht, 104,00Q - TílbofóverÓ. h4ZZ,000,Afr. TR0OPÍK m' UrSfixnkr.l,‘>19,000,- VírShekkun .kr, /99,000, , J/MMY « VerSfro hrí.mOOO. np. VerSUkkim. hr. 140,00: « I . i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.