Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 43
ir og lifðu þau í farsælu hjónabandi í yfír sextíu ár. Jón virti konu sína mikið og fráfall hennar fyrir nokkr- um árum varð honum ákaflega er- fitt. Sjón hans var þá orðin svo döpur að hann var ekki bóklæs, en Áslaug las fyrir hann blöð og þær bækur sem Jón hafði dálæti á. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til Jóns fyrir órofa tryggð og vinsemd mér til handa. Blessuð sé minning hans. Ólafiir Árnason frá Oddgeirshólum Jón Pálsson fyrrverandi héraðs- dýralæknir á Selfossi lést 19. des- ember síðastliðinn. Með honum er horfínn hispurslaus maður, sem naut óvenju almennra vinsælda hjá þeim fjölmörgu sem hann hafði skipti við á löngum starfsferli. Þeim, sem vel hefur unnið langan dag, er hvíldin góð. Jón Pálsson var Austfírðingur, fæddur í Þingmúla í Skriðdal, sonur Elínborgar Stefánsdóttur bónda á Þóreyjamúpi Jónssonar prófasts í Steinnesi og manns hennar Páls Þorsteinssonar hreppstjóra í Tungu í Fáskrúðsfírði. Þau hjón áttu fjórtán böm og ólu upp fjögur til viðbótar. Pál man ég vel, teinréttan léttleikamann, þó kominn væri þá hátt á níræðisaldur. Eftir nám í Flensborgarskólanum og við Menntaskólann í Reykjavík hóf Jón nám í dýralækningum í Kaupmannahöfn, þar lauk hann námi með góðum vitnisburði árið 1918. Sama ár var hann skipaður dýralæknir í Austuramtinu með búsetu á Reyðarfírði. Á þeirri tíð voru samgöngur erfíðar á Austur- landi, sími óvíða, og starf dýralækn- is í þeim landsfjórðungi algert brautryðjendastarf og kjörin því kröpp. Áldrei heyrði ég Jón þó mikla erfiðleika þessara ára, þvert á móti, bærast þessi starfsár í tal, kunni hann frá ýmsu gamansömu og bros- legu að segja. Á þessum áram kannaði Jón lungnasjúkdóma í sauðfé á Austur- landi sem þar ollu miklu tjóni. Um þá sjúkdóma ritaði hann tvær fróð- legar og ítarlegar greinar í Búnað- arritið. í byijun fjórða áratugarins fóra bændur á Suðvesturlandi að auka mjög mjólkurframleiðslu _og mjólk- urbú voru sett á stofn. Ákvað Al- þingi þá að lögfesta nýtt dýralækn- isembætti á Suðurlandi. Árið 1934 kvaddi Jón Austurland og var skip- aður í hið nýja dýrlæknishérað með búsetu á Selfossi, og þar starfaði hann óslitið, uns hann lét af störfum fýrir aldurs sakir árið 1961. Á Selfossi vora starfsvettvangur og starfsskilyrði fyrir dýralækni allt önnur en verið höfðu á Austur- landi. í Ámes- og Rangárvallasýslu var víða blómlegur búskapur og þéttbýli og samgöngur ólíkt greið- ari en verið höfðu á Austurlandi og nóg að starfa fyrir ötulan dýra- lækni, því gripafjöldi var mikill. Jón var enn á góðum starfsaldri er hann flutti að Selfossi, enda spar- aði hann sig hvergi í erfíðu starfi og lýjandi ferðum. Jafnan var Jón kátur og reifur, hispurslaus og óragur við að láta í ljósi skoðun sína, og gat þá stundum verið hijúf- ur í orðum, en það særði ekki, því fólk þekkti hjartahlýju hans og hjálpsemi. Þess hafa gamlir bændur á Suð- urlandi oftsinnis minnst í minni áheym hve sjúkravitjunum Jóns fylgdi jafnan mikil uppörvun og gleði vinnulúnu bændafólki sem var að basla við sjúkar skepnur. Alla tíð þótti Jón sanngjarn í kröfum fyrir ferðir og aðgerðir, enda komst hann stundum svo að orði að sér þætti veikar mjólkurkýr bænda óeðlilegur tekjustofn. Jafnan var Jón ráðhollur ungum starfsbræðram sínum, sem til hans leituðu og suma þeirra hafði hann hjá sér um lengri eða skemmri tíma og miðlaði þeim óspart af reynslu sinni, ekki síst varðandi mannleg samskipti. Mátu þeir þetta „skóla“- starf Jóns síðar meir mjög mikils. Jón var virkur í ýmsum félags- málum og mikils metinn á því sviði. Því síðar meir var hann gerður MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28: DESEMBER 1988 43 heiðursfélagi í þeim samtökum þar sem hann hafði lengst starfað, t.d. í Landssambancfó hestamanna, Dýralæknafélagi íslands, Hesta- mannafélaginu Sleipni o.fl. Sérstaka tryggð tók Jón við málefni hestamanna og starfaði á þeim vettvangi fram á elliár, enda var hann alla tíð mikill aðdáandi góðra hesta og átti sjálfur lands- þekkta gæðinga, sem hann kunni öðram mönnum betur með að fara. Alla tíð ól hann með sér draumsýn- ina um hinn fullkomna íslenska hest. í einkalífí sínu mun Jón hafa notið mikillar gæfu. Hann kvæntist ungur góðri og_ glæsilegri konu, Áslaugu dóttur Ólafs Stephensens, prófasts Magnússonar bónda í Við- ey og Steinunnar Eiríksdóttur frá Karlsskála. Áslaug studdi bónda sinn í eril- sömu starfí, jafnt innan heimilis sem utan. Áslaug var höfðingi sem seint mun gleymast þeim er henni kynntust. Hjá þeim hjónum var jafnan hús opið öllum gestum og gangandi. Synir þeirra era fjórir: Garðar, skógarvörður; Ólafur, framkvæmdastjóri; Páll, tannlæknir og Helgi, bankastjóri og á heimili Jóns og Áslaugar ólst upp frænka Áslaugar, Steinunn Sigurðardóttir, húsmóðir. Að leiðarlokum kveð ég Jón Páls- son, aldursforseta fámenns hóps íslenskra dýralækna, og votta hon- um þakkir og virðingu fyrir langt og farsælt starf í þágu ferfætlinga sem oft eiga sér fáa formælendur. Aðstandendum sendi ég hugheil- ar samúðarkveðjur. Páll A. Pálsson t Útför sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföfiur, afa og langafa, JÖRUNDARÞÓRÐARSONAR frá Ingjaldshóli, fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Öldrunardeild Landspítalans. Gufiný Magnúsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför ástkœrrar dóttur okkar og systur, HERU BJARGAR EMILSDÓTTUR, sem lóst af slysförum 19. desember sl. verður gerð frá Fossvogs- kirkju fimmtudagjnn 29. desember kl. 15.00. Emil Sigurðsson, Lára Einarsdóttir, Árni Elvar Emilsson. ; Þegar þú kaupir hlutabréf í Iðnaðarbankanum mátt þú draga kaupverð þeirra frá skattskyldum tekjum þínum upp að ákveðnu marki. Ef keypt eru hlutabréf fyrir kr. 70.000,- má draga sömu upphæð frá tekjum 1988. Því skiptir máli að fjárfesta í hlutabréfum Iðnaðarbankans fyrir áramót til að geta nýtt sér þessi skattfríð- indi. Dæmi: Ef keypt eru hlutabréf að nafnvirði kr. 70.000,- lækkar tekjuskattur þinnum28% afþeirriupphæð eðaum 19.600,-fyrirárið 1988. Arður Iðnaðarbankinn hefur alla tíð hugsað vel um hluthafa sína og starfsfólk bankans er meðvitað um hagsmuni þeirra. Fyrir árið 1987 greiddi Iðnaðarbankinn 9,5% arð til híuthafa. Þannig fékk einstaklingur sem átti hlutabréf að nafnvirði 100.000,- kr. í Iðnaðarbankanum í lok árs 1987 sendan tékka að upphæð kr. 9.500,- í apríl 1988, sem arð fyrir árið 1987. Auk þess fékk hann hlutabréf í Iðnað- arbankanum vegna verðlagshækkana á árinu 1987 að nafnvirði kr. 24.500,- en það er 24,5% hækkun, sem er sama og á vísitölu jöfnunarhlutabréfa. Fríðindi Ymis fríðindi fylgja því að vera hluthafi í Iðnaðarbankanum. Auk þess að vera þátttakandi í uppbyggingu nútíma banka fá hluthafar hærri vexti á Alreikningi. Á Bónusreikningi fá hluthafar strax vexti annars vaxtaþreps án tillits til inn- stæðu en það innlánsform ber stighækkandi vexti með auknum spamaði. Hlutabréfin eru seld í Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans, Ármúla 7 og úti- búum bankans. ©iðnaðarbankinn -mt'm bœrtki Skattafrádráttur -við kaup á hlutabréfum Iðnaðaxfoankans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.