Morgunblaðið - 15.04.1989, Page 1

Morgunblaðið - 15.04.1989, Page 1
64 SIÐUR B OG LESBOK 11 STOFNAÐ 1913 85,tbl. 77.árg. LAUGARDAGUR 15. APRIL 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólland: Walesaí forseta- framboð Varsjá. Reuter. LECH Walesa, leiðtogi verka- lýðssamtakanna Samstöðu í Pól- landi, hyggst bjóða sig fram til forsetaembættis en kosningar til þess eru fyrirhugaðar innan nokkurra ára. Ætlunin er að for- setinn verði mjög valdamikiil. Walesa hefur hins vegar ekki enn ákveðið hvort hann verður í framboði í væntanlegum þing- kosningum í júní næstkomandi. Hann segir að Samstaða muni heyja harða kosningabaráttu. Kosið verður til þingsins í tveim umferðum, 4. og 18. júní. Stjórnar- andstaðan, þ. á m. Samstöðufram- bjóðendur, fá 35% þingsæta í neðri deildinni, Sejm, þar sem 460 manns sitja, en kommúnistar afganginn. Komið verður á fót öldungadeild með 100 þingsætum og eiga kosn- ingar til hennar að verða fullkom- lega frjálsar. Öldungadeildin fær neitunarvald og getur því stöðvað frumvörp Sejm. „Ég hef í hyggju að bjóða mig fram í forsetakosningunum sem verða eftir sex ár,“ sagði Walesa í símtali við fréttamann Reuters- fréttastofunnar í gær. „Margir leggja hart að mér að vera í fram- boði í þingkosningunum en ég hef ekki tekið neina ákvörðun í þeim efnum.“ Á blaðamannafundi í Gdansk sagði Walesa að kosning- arnar í júní myndu leiða í ljós hver hefði „rétt fyrir sér í Póllandi". Hann sagði Samstöðu myndu heyja harða kosningabaráttu og jafn- framt að hann vænti þess að sam- tökin hefðu sjö milljónir félaga þeg- ar þau verða formlega gerð lögleg sem að líkindum verður á mánudag. 1981, þegar herlög voru sett í Pól- landi, voru um tíu milljónir manna skráðar í Samstöðu. Síðustu þing- kosningar í landinu voru í október 1985 og hvatti þá Samstaða kjós- endur til að taka ekki þátt í þeim. Reuter Hreinsanir í Georgíu Leiðtogi kommúnistaflokksins í Georgíu, Dzhumber Patiashvili, og forsætisráðherra Sovétlýðveld- isins hafa báðir sagt af sér og forseti þess hefur farið fram á að verða leystur frá störfum. Tals- maður sovéska utanríkisráðuneyt- isins sagði í gær að hershöfðing- inn, sem stjórnaði aðgerðum gegn mótmælendahópum í höfuðborg- inni, Tíflis, sætti nú vaxandi gagnrýni. 19 manns féllu í átökum við hermenn í vikunni og hafa hermenn m.a. verið sakaðir um að beija á fólki með hvassbrýnd- um stunguskóflum. Edúard She- vardnadze utanríkisráðherra segir að óeirðirnar geti stofnað umbóta- tstefnu Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í hættu. Á myndinni sjást her- menn athuga skilríki bílstjóra í Tíflis. Útgöngubann ríkir þar að næturlagi og herlið í skriðdrekum kemur í veg fyrir alla fjöldafundi. Kína: Ibúar tveir milljarðar á næstu öld? Peking. Reuter. Daily Telegraph. FARI sem horfir verða Kínverjar tveir milljarðar einhvern tíma á næstu öld, að sögn kínverskra yfirvalda. íbúar Kína eru nú um 1.100 milljónir og Qölgar um tuttugu milljónir á ári. Til saman- burðar eru íbúar Norðurland- anna fímm samanlagt um 23 milljónir. Kínveijum hefur að meðaltali fjölgað um 13 milljónir árlega frá 1949 er kommúnistár tóku völdin. Talsmenn stjórnvalda segja að ef ekki verði tekið í taumana muni afleiðingarnar verða hræðilegar fyrir þjóðina. Ljóst er að sú stefna stjórnvalda að hver hjón megi að- eins eiga eitt barn hefur mistekist og hefur ekki tekist að framfylgja henni í sveitahéruðunum þar sem meginhluti þjóðarinnar býr. Kínversk stjórnvöld reyndu ekki að takmarka fólksfjölgunina fyrr en á áttunda áratugnum. Sjá ennfremur frétt á bls.24: „Vara við hörmungum ...“ Bandaríkin: Bush semur við demókrata um lækkun Jjárlagahallans Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti náði í gær samkomulagi við meiri- hluta demókrata á Bandaríkjaþingi um að setja skorður við fjárlaga- halla ríkisins. Stefiit verður að því að hallinn verði 99,4 milljarðar Bandaríkjadala (rúmlega 5.000 miiyarðar ísl.kr.) á næsta ári og verður þannig hjá því komist að svonefnd Gramm-Rudman lög taki gildi. í þeim er gert ráð fyrir því að öll framlög verði skorin niður fari hallinn yfir 100 milljarða markið. Bush viðurkenndi að enn ætti eftir að ganga frá ýmsum smáatriðum en sagði að samkomulag- ið væri dæmigert fyrir „raunverulegan samvinnuanda". Ríkisstjórnin hafði áætlað fjár- lagahalla næsta árs 127 milljarða dala ef ekki tækist að skera niður útgjöld. Forseti fulltrúadeildar þingsins, demókratinn Jim Wright, sagði að minna fé en áður yrði nú hægt að ráðstafa til ýmissa lífskjarabóta fyrir almenning, s.s. endurbóta í húsnæðismálum. „Sam- Þýskaland: Hljótt yfir aldar- afinæli Hitlers Bonn. Reuter. ÞJÓÐVERJAR eru vanir að minnast merkisafinæla með viðeig- andi hætti en ekki er búist við að þeir geri sér neinn dagamun nk. fimmtudag, 20. apríl. Þá verða 100 ár liðin frá fæðingu Adolfs Hitlers, mannsins, sem kom af stað síðari heimsstyijöld, stóð fyrir yöldamorðum á gyðingum og fyllti þýsku þjóðina sekt- arkennd, sem hefúr markað hana æ siðan. Þótt afmælis Hitlers verði ekki minnst opinberlega hefur verið um hann fjallað í ýmsum fjölmiðl- um. „Hryðjuverkamaður aldarinn- ar: Adolf Hitler. Sá, sem vann siðmenningunni mest tjón, bæði fyrr og síðar“ mátti nýlega lesa á forsíðu tímaritsins Der Spiegel og vestur-þýska sjónvarpið ætlar að gera honum nokkur skil á sjálf- um afmælisdeginum. í Austur- Þýskalandi er hins vegar ekki á manninn minnst enda hafa stjóm- völd þar ávallt undanskilið sig allri ábyrgð á fortíðinni. Það hafa Vestur-Þjóðveijar ekki gert. • Frá stríðslokum hafa vestur- þýsk stjómvöld greitt fórnarlömb- um nasimans, aðallega gyðingum, sem flestir búa nú í Israel eða Bandarílq'unum, samtals 82,4 Hitler með krepptan hnefa í fararbroddi nasistahóps. milljarða marka (2,300 milljarða ísl. kr.), í skaðabætur. • Vestur-þýskir dómstólar hafa dæmt 6.480 manns fyrir stríðsglæpi og um 8.000 mál er enn verið að Ijalla. • Að halda á loft nasískum hug- myndum og flagga nasískum táknum, t.d. hakakrossinum, er bannað og lögunum stranglega framfylgt. Þá er bókin „Mein Kampf" eftir Hitler bönnuð. Mörgum finnst þó ástæðulaust að burðast lengur með syndir feðranna. I nýlegri skoðanakönn- un svaraði ijórðungur því til, að hann hefði ýmist enga eða heldur jákvæða skoðun á Hitler. komulagið er ekkert þrekvirki en líklega það skásta sem hægt var að ná,“ sagði Wright. Leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, Ge- orge Mitchell, lagði áherslu á þann mun sem væri á samvinnutilraunum þings og forseta nú og stöðugum árekstrum er fjallað var um fjárlög- in á stjórnarárum Ronalds Reag- ans. Sagði Mitchell að athyglisverð- ast væri að samkomulagið skyldi yfirleitt hafa orðið til. Fulltrúar stjórnar og þings hafa ræðst við um fjárlögin bak við luktar dyr í tvo mánuði. Gert er ráð fyrir því að hallinn á yfirstandandi íjárlaga- ári verði 163,3 milljarðar dala en var 155,1 milljarður þar á undan. Næsta fjárlagaár hefst 1. október næstkomandi. Bush hét því í kosningabarátt- unni að hækka ekki skatta og var tekið tillit til þessa í samningavið- ræðunum þar sem fyrst og fremst var fengist við að skera niður út- gjöld. Ríkisstjórnin varð að sætta sig við að tillögur hennar um fram- lög til varnarmála lækkuðu um 1,4 milljarða dala, niður í 299,2 millj- arða, og hefur Dick Cheney vamar- málaráðherra þegar lýst óánægju sinni með þessa ákvörðun. Forðast hefur verið að skera niður framlög til ýmissa sérmála þingmanna sem þeir nota til atkvæðaveiða á heima- slóðum en margs konar beinar greiðslur til þurfandi einstaklinga verða lækkaðar um samtals sjö milljarða dala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.