Morgunblaðið - 15.04.1989, Síða 2

Morgunblaðið - 15.04.1989, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989 Sj óvá-Almennar: Hafa keypt 6% hlut í V erslunarbankanum - þess hvetjandi að bankarnir fylgi fordæmi tryggingarfélaganna í sameiningarmál- um, segir Einar Sveinsson í Sjóvá-Almennum SJÓVÁ-ALMENNAR hf. hefur fest kaup á um 6% hlutafjár í Verslun- arbankanum, og er félagið þar með komið í hóp stærstu einstakra hluthafa bankans. Heildarhlutafé Verslunarbankans i árslok 1988 var um 420 milþ'ónir króna og hluthafar eru alls um 1200. Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri Sjóvá-Almennra, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að gengið hefði verið frá samningum um þessi hlutabréfakaup á fimmtu- dag sl. og er seljandinn Sigurður Njálsson. Einar segir tilganginn með þessum kaupum að renna frek- ari stoðum undir ávöxtunarmál fé- lagsins, og hann segir forsvarsmenn félagsins fylgjast af athygli með viðræðunum sem nú eru að hefjast um huganlega sameiningu Verslun- arbankans og Iðnaðarbankans. Ljóst megi vera að Sjóvá-Almenn- ar, sem nýlega væri til orðið fyrir sameiningu tveggja tryggingarfé- laga, væri þess mjög hveljandi að bankamir fylgdu þessu fordæmi. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er stærsti hluthafínn í Verslunarbankanum Lífeyrissjóður verslunarmanna með rétt liðlega 10%, en næst kemur Eimskipafélag íslands með tæplega 10%. Orri Vig- fússon og fjölskylda em síðan þriðji stærsti hluthafinn en þar næst kom Sigurður Njálsson með 6% hlut, og síðan Bent Sch. Thorsteinsson með litlu minni hlut. Miðað við að heildarhlutafé Verslunarbankans var 420 milljónir í'árslok og að á aðalfundi bankans nýverið var samþykkt útgáfa jöfn- unarhlutabréfa upp á um 20% hlutafjár er nafnvirði þeirra bréfa sem Sjóvá-Almennar hefur nú fest kaup á um 31 milljón króna eftir jöfnun. Kaupgengi á bréfum Versl- unarbankans á hlutabréfamarkaði er nú 1,24 t.d. hjá H-Marki sem síðast auglýsti nýtt gengi og það þýðir að sá sjóður hefði keypt þenn- an 6% hlut í Verslunarbankanum á um 38 milljónir króna. Sérfræðing- ar á hlutabréfamarkaði segja hins vegar að hér sé um svo stóran hlut að ræða að honum fylgi ákveðin áhrif á stefnu Verslunarbankans og þess vegna megi ætla að Sjóvá- Almennar hafi greitt enn hærra verð fyrir þessi hlutabréf, og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er kaupverð bréfanna á bilinu 40-50 milljónir króna. A aðalfundi Verslunarbankans nýverið var einnig samþykkt hluta- fjáraukning upp á um 100 milljónir króna. Venjan er að hluthöfum er fyrst gefinn kostur á kaupum bréf- anna en það sem ekki selst með þeim hætti er síðan boðið á almenn- um markaði. Halldór Ásgrímsson slær á létta strengi með þeim Uwe Beckmey- er, efhahagsráðherra Bremen-fyUds, og Wolfgang Von Geldern, sjávarútvegsráðherra Vestur-Þýzkalands (til hægri), við höfnina í Bremen í gær. Litlar líkur á hvalveið- um næsta ár HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra, sem er í opinberri heimsókn í Þýzkalandi, segir að þegar hvalveiðum íslendinga í vísindaskyni (júki í sumar verði beðið eftir ákvörðun Alþjóða hvalveiðiráðsins um það, hvort hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný. Halldór segist ekki eiga von á að sú ákvörðun muni hggja fyrir á árinu 1990 og á meðan muni íslendingar ekki veiða hval. „Þegar vísindaáætluninni lýkur þurfa vísindamenn okkar að vinna úr þeim upplýsingum, sem þar koma fram. Þær upplýsingar munum við leggja fram á fundi Alþjóða hvalveið- iráðsins vorið 1990. Mér þykir ólík- legt að málinu verði lokið fyrir árs- lok 1990,“ sagði Halldór í samtaii við Morgunblaðið. Fundur ráðherra með samtökum grænfriðunga hefur verið ákveðinn klukkan 16 í dag í Bremerhaven. Þegar Rosalind Reeve, starfsmaður alþjóðasamtaka grænfriðunga í Lon- don og sérstakur skipuleggjandi að- gerða gegn íslendingum, var spurð hvort til greina kæmi að grænfrið- ungar létu af herferðinni í ljósi þess- arar yfirlýsingar, þótt íslendingar lykju vísindaáætluninni í ár, sagði hún svo ekki vera. Sameinast þrír einkabank- ar og kaupa Útvegsbankann? VIÐRÆÐUR Verslunarbankans og Alþýðubankans um sameiningu og kaup á Utvegsbankanum hafa staðið að undanförnu og fyrir- hugaðar eru viðræður um sama eöii milli Iðnaðarbanka og Verslunar- banka. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ríkir hófleg bjartsýni meðal forráðamanna þessara banka í þá veru að bankarnir þrír, Alþýðubanki, Verslunarbanki og Iðnaðarbanki, sameinist í einn banka og kaupi Útvegsbankann. Steingrímur Hermannsson for- Verslunarbanka og Alþýðubanka sætisráðherra hefur sagt að ef ekki og kaup þeirra á Útvegsbankanum, takist samkomulag um sameiningu telji hann að sameina beri Útvegs- bankann ríkisbönkunum. Hann tel- ur að niðurstaða verði að fást fyrir næstu mánaðamót. „Ég vona svo sannarlega að það takist að sameina Alþýðubanka, Verslunarbanka og Útvegsbanka og tel að það væri athyglisvert skref. Hins vegar, ef það tekst ekki, þá hlýtur ríkisstjórnin að athuga þá leið að sameina Útvegsbanka Skýrsla utanríkisráðherra: Stefiian í öryggis- og varnar- málum hefur reynst farsæl Heræfingar heimilaðar hér í sumar - engin ákvörðun um varaflugvöll UTANRIKISSTEFNA sú, sem fylgt hefúr verið, hefiir reynst þjóðinni farsæl og á það jafnt við um öryggis- og vamarmál sem viðskiptamál. Þannig er komist að orði í skýrslu um ut- anríkismál, sem Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Heræfingarnar í sumar; Utanríkisráðherra vill minnka umfang’ æfinganna - segir forsætisráðherra „EG VEIT af okkar viðræðum, að utanríkisráðherra hefúr fúllan hug á að fá umfang þessara æfínga minnkað og tímasetningu þeirra breytt. Að öðru leyti get ég ekki fjáð mig um málið að svo stöddu, þar sem ég hef ekki lesið skýrsluna," sagði Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra um skýrslu utanríkisráðherra, sem lögð var fram á Alþingi í gær. Þar segir ráðherrann að æfing 1.000 manna varaliðs bandaríska hersins á íslandi auk 2-300 manna úr landher, flugher og flota sé fyrirhuguð hér á landi eftir 17. júní í sumar. Olafur Ragnar Grímsson formað- Hannibalsson telja nauðsynlggt að hersveitin hljóti þjálfun við íslensk- ar aðstæður. Hann gerir síðan ítar- lega grein fyrir æfingunum. ur Alþýðubandalagsins og fjármála ráðherra sagði við Morgunblaðið að utanríkisráðherra hefði ekki til- kynnt ríkisstjóminni um ákvörðun sína varðandi þessar heræfíngar. „Ég ætla ekki að flalla um þá niður- stöðu fyrr en hún hefur verið til- kynnt ríkisstjórninni," sagði Ólafur og bætti við að hann vildi ekki túlka skýrslu utanríkisráðherra. í skýrslunni segist Jón Baldvin Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur komist þannig að orði, að hann líti á þessar æfíng- ar sem „tímaskekkju". Steingrímur Sigfússon landbúnaðarráðherra lagði til í ríkisstjóminni að hætt yrði við æfíngamar. lagði fram á Alþingi í gær. í skýrslunni kemur fram að vara- lið Bandaríkjahers efiiir hér til 1.000 manna æfíngar í sumar. í skýrslunni vekur utanríkisráð- herra máls á hvaladeilunni í því samhengi, að íslendingar hafi orðið varir við að mál, sem þeir töldu fyrst og fremst vera sín eigin, hafi orðið fyrir vaxandi afskiptum utan- lands frá og segir: „Á ég hér eink- um við hvalamálið, sem verið hefur mjög í brennidepli á síðustu mánuð- um. Mál þetta er angi af almennri þróun í alþjóðamálum, sem ég tel að íslendingar verði að gefa vax- andi gaum í samskiptum sínum við umheiminn. Þar á ég við síaukin og sífellt flóknari gagnkvæm tengsl ríkja veraldar, sem gera að verkum að þau verða hvert öðru háðari." Hann telur umhverfismál verða æ ríkari þátt í alþjóðasamvinnu enda þekki mengun engin landamæri. í skýrslunni kemur fram að á þessu ári og þeim næstu verði unn- ið að endurskipulagningu utanríkis- þjónustunnar. í viðskiptamálum verður tengt betur en nú er pólitískt starf við viðskiptamálin og starfs- menn fluttir til innan utanríkis- þjónustunnar til að tryggja að þess- um málaflokki verði sinnt eins vel og kostur er.____ Ráðherra segir að ákvörðun ís- lands um að gerast aðili að Atlants- hafsbandalaginu hafí reynst þjóð- inni farsæl og stuðlað að varðveislu friðar og stöðugleika í okkar heims- hluta í fjóra áratugi. Innan banda- lagsins sé áhugi á að heimild verði veitt til forkönnunar á hugsanleg- um varaflugvelli á íslandi en engin ákvörðun hafi enn verið tekin. Á hinn bóginn kemur fram í skýrsl- unni að í sumar verður hér æfíng 1.000 manna varaliðs í bandaríska landhemum.. Sjá frétt um æfíngar varaliðs- ins á bls. 22. ríkisbönkunum," sagði forsætisráð- herra í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður hvort ekki kæmi til greina í hans huga að Iðnaðarbank- inn yrði aðili að slíkri sameiningu sagði forsætisráðherra: „Það er hmn möguleikinn sem viðskiptaráð- herra hefur kynnt fyrir okkur, svo ég hef ekki skoðað þann mögu- leika. Þessir bankar verða einfald- lega að fara að koma sér að efn- inu, en ekki vera í þessum kjafta- gangi mánuðum saman. Það vantar sameiningu í bankakerfið og hana verður að knýja fram á næstu vik- um.“ Forsætisráðherra var spurður hvort ekki væri þar með verið að útiloka þann möguleika að hér risi öflugur einkabanki, ef Útvegs- bankinn yrði sameinaður ríkis- bönkunum: „Ég skal ekkert um það segja. Einkabankamir verða nátt- úrlega fyrst að sýna viljann og get- una til þess að sameinast," sagði Steingrímur. Tryggvi Pálsson bankastjóri Verslunarbankans sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fulltrúar Alþýðubanka og Verslunarbanka væru að ræða málin og kanna út- reikninga og stærðarhlutföll. Jafn- framt myndu fulltrúar Verslunar- bankans ræða við Iðnaðarbanka- menn á næstunni, en hann sagðist ekki geta sagt til um það hvenær niðurstaða lægi fyrir, né hver hún yrði. „Við vitum ekki betur en það sé viðskiptaráðherra sem er með bankann til sölu, en ekki Steingrím- ur Hermannsson, forsætisráð- herra," sagði Tryggvi Pálsson. Ríkið býður KÍ sömu launahækkanir og BSRB RÍKISVALDIÐ hefur gert Kennarasambandi íslands tilboð um kjara- samning, sem taka myndi gildi í maí næstkomandi. Að sögn Indriða H. Þorlákssonar, formanns samninganefúdar ríkisins, er i tilboðinu gert ráð fyrir sömu launahækkunum og BSRB samdi um, en einnig eru í tilboðinu ýmis atriði, sem varða kennara sérstaklega, til dæm- is um skólaþróunarmál. Samninganefnd KÍ hefur ekki arar hyggjast skoða tilboðið yfir tekið afstöðu til tilboðsins eða gefið helgina, en samningafundur er boð- neitt frá sér um það, síðan plaggið aður á þriðjudag. yar lagt fram í gærmorgun. Kenn-_____

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.