Morgunblaðið - 15.04.1989, Qupperneq 16
Tt
16
j)ÁqflAOUAJ qiöAJaMuoaoM
Ð -LAUGAftÐAGUR-15r APRIL lí>89
Nýr Kerú-
bínó í Brúð-
kaupi
Fígarós
FRÁ OG með 5. sýningu á Brúð-
kaupi Fígarós, laugardaginn 15.
apríl, syngur Rannveig Fríða
Bragadóttir hlutverk Kerúbínós,
hirðsveins greifans. Mun hún
syngja á átta sýningum, eða til
og með 30. apríl.
Rannveig kemur frá Vínarborg
til að taka þátt í þessum sýningum
en þar hefur hún verið undanfarin
ár við nám og síðar meðlimur í
Operustúdíói Ríkisóperunnar.
Síðastliðið haust söng Rannveig
sitt fyrsta óperuhlutverk á íslandi
en það var Nicklausse í Ævintýrum
Hoffmanns í samvinnu Þjóðleik-
hússins og íslensku óperunnar.
Einnig hélt hún sína fyrstu opin-
beru tónleika í Gerðubergi. Rann-
veig hefur verið ráðin einsöngvari
við Ríkisóperuna í Vínarborg frá
næstkomandi hausti.
Gunnar Guðbjörnsson, tenór-
söngvari.
Guðbjörg Siguijónsdóttir, píanó-
leikari.
Tónleikar í Hafnarborg
GUNNAR Guðbjörnsson, tenór-
söngvari, heldur einsöngstón-
leika i Hafharborg, menningar-
og listastofnun HaftiarQarðar,
mánudaginn 17. april nk. kl.
20.30. Undirleikari Gunnars er
Guðbjörg Sigurjónsdóttir, píanó-
leikari. Á efhisskránni verða
Borgaraleg „ferming“
Athugasemd frá Biskupsstofii
NYLEGA fór fram athöfn í Nor-
ræna húsinu sem aðstandendur
nefhdu borgarlega „fermingu".
Margir hafa spurst fyrir á Bisk-
upsstofu hvort hér sé um rétt-
nefni að ræða frá sjónarhorni
kirkjunnar.
í Orðabók Menningarsjóðs eru
orðið að ferma útkýrt þannig: (I
lúthersku hér á íslandi, venjulega
íið lokinni bamauppfræðslu við um
14 ára aldur) staðfesta skímarsátt-
mála til að veita full réttindi safnað-
armanns, ferma barn.
Síðan er orðið ferming útskýrt
þannig: trúarleg athöfn, það að
ferma, eitt af sakramentum kaþ-
ólskrar kirkju.
Það sem hér segir hefur einnig
verið skilningur kirkjunnar og fyrir
því aldalöng hefð. Ferming er sú
athöfn er skím bamsins er staðfest.
(Það ætti að vera óþarfi í þessu
sambandi að minnast á aðra merk-
ingu orðsins að ferma, nefnilega
að hlaða skip og flugvélar.)
Við hina borgaralegu „fermingu"
er ekki verið að staðfesta skírnar-
sáttmála, heldur er efnt til athafnar
að loknu stuttu námskeiði. Það er
að sjálfsögðu réttur allra foreldra
að veita bömum sínum hveija þá
uppfræðslu sem þau telja þeim holl-
asta til hamingjuríkrar framtíðar.
Það er hins vegar verið að blekkja
og leiða á villigötur að gefa þeirri
athöfn sem fór fram í Norræna
húsinu nafn, sem samkvæmt hefð
og almennum málskilningi táknar
þá trúarlegu athöfn er skímarsátt-
málinn er staðfestur.
Bernharður Guðmundsson,
fræðslustjóri.
Yorleikur '89
Pantanir
í síma
686204
og 686337
frá kl. 13-19.
Enginn yefffi'
Vidhalds- og varahlutaþíónusta á íslandi
ÞETTA TILBOÐ STENDUR AÐEINS TIL 18. APRIL
Burtfarartónleikar
1 Norræna húsinu
antik-, óperu- og óperettuaríur
eftir ýmsa höfunda. Auk þess
verða flutt lög eftir íslensk,
skandinavísk og þýsk tónskáld.
Gunnar Guðbjömsson fæddist í
Reykjavík árið 1965. Hann stund-
aði píanónám sem unglingur en hóf
söngnám 18 ára, fyrst hjá Snæ-
björgu Snæbjarnardóttur en síðarw
hjá Vincenzo S. Demetz í Nýja
Tónlistarskólanum. Gunnar lauk
þaðan burtfararprófi í desember
1987. í vetur hefur hann stundað
framhaldsnám hjá prófessor
Hanne-Lore Kuhse í Berlín. Gunnar
hefur á síðustu ámm komið víða
fram sem einsöngvari með kómm
og hljómsveitum, m.a. með Pólýfón-
kómum, Langholtskirkjukómum,
íslensku hljómsveitinni, Kammer-
sveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljóm-
sveit fslands.
Guðbjörg Siguijónsdóttir fæddist
í Reykjavík. Hún byijaði píanónám
hjá Ragnari Bjömssyni en fór síðan
til Hollands og lærði hjá Willem
Brons við Sweelinck Conservator-
ium í Amsterdam og tók þaðan
kennarapróf árið 1979. Guðbjörg
hefur tekið þátt í námskeiðum fyrir
söngvara og undirleikara hjá
Charles Spencer, Dalton Baidwin
og frú Hanne-Lore Kuhse. Guðbjörg
starfar sem kennari og undirleikari.
(Fréttatilkynning)
MANUDAGINN 17. apríl heldur
Soffia Halldórsdóttir sópran-
söngkona burtfarartónleika
sína firá Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar. Píanóleikari
er Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.
Tónleikarnir verða í Norræna
húsinu og hefjast klukkan 20.30.
Soffia Halldórsdóttir er Svarf-
dælingur og hóf píanónám 10 ára
í Tónlistarskóla Dalvíkur. Síðar
stundaði hún söngnám við Tónlist-
arskóla Akureyrar hjá Sigurði
Demetz Franzsyni og Þuríði Bald-
ursdóttur.
Hún innritaðist í Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar haustið
1984. Aðalkennari hennar er John
Speight.
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir Atla Heimi Sveinsson, De-
Soffia Halldórsdóttir
bussy, Schönberg, Schumann og
Satie.
Fyrirlestur um sænska skáld-
ið Erik Axel Karlfeldt
Dr. phil. Karl-Ivar Hildeman
prófessor heldur fyrirlestur á
morgun, sunnudaginn 16. apríl,
klukkan 16, um sænska skáldið
Erik Axel Karlfeldt og Hjörtur
Pálsson cand.mag. les nokkur
(jóð eftir Karlfeldt í þýðingu
Magnúsar Ásgeirssonar.
Erik Axel Karlfeldt fæddist
1864 og lést 1931. Hann var
bóndasonur frá Karlbo í Dölunum,
gaf út fyrstu ljóðabók sína 1895
en varð fyrst þekktur með ljóða-
bókinni „Fridolins visor", sem kom
út 1898.
Hann varð meðlimur í Sænsku
akademíunni 1904 ogritari hennar
1912. Hann varð heiðursdoktor við
Uppsalaháskóla 1917 ogfékkNób-
elsverðlaunin eftir að hann lést
1931. Mörg tónskáld hafa samið
tónlist við ljóð hans, þau fjalla flest
um náttúruna og ástina.
Fyrirlesarinn, Karl-Ivar Hilde-
man, fæddist 1905. Hann kenndi
um árabil bókmenntir við Stokk-
hólmsháskóla og Kennaraháskól-
ann í Stokkhólmi. Hann hefur
skrifað margt um skáldskap Karl-
feldts og hefur hin síðari árin haft
forystu fyrir Karlfeldt-félaginu.
Gítartónleik-
ar í Tónskóla
Signrsveins
Gítartónleikar verða haldnir í
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar í dag, laugardaginn 15.
apríl, í Hraunbergi 2 og hefjasf
þeir klukkan 17.
Fram koma nemendur á fram-
haldsstigi og þeir eru: Albert Ólafs-
son, Bjami Ölafur Friðriksson, Guð-
jón Steingrímur Birgisson, Guð-
mundur Hallvarðsson, Halldór
Ólafsson, Hannes Þorsteinn Guð-
rúnarson, Hinrik D. Bjamason, Jón
Guðmundsson, Pálmi Erlendsson,
Theódór Ásgeirsson og Þorkell
Atlason.
N0TAME wkm
Aséuisiié
Traktorsgröfur: CAT 428
FORD COUNTY 974
JCB 3DX
JCB 3DX4
JCB 3DX4
MF 50
CASE 580F
CASE 580G
Vegheflar: CAT 1 2F
CHAMPION
Jardýtur: CAT D4D
CAT D5B
CAT D6C
CAT D7F
IH TD-8
Hjólaskóflur: CAT 980B
CAT 966C
CAT 950
CAT 950B
MICHIGAN 125
MICHIGAN 125
MICHIGAN 175
Beltagröfur: CAT 225
CAT 225 LC
OK RH-12
OK RH-6
'87
'82
'80
’82
'87
'82
'81-83
'83-87
'66
'83
'81
'73
'66
'74
'77
'75
'74
'73
’84
'69
'73
'73
'80
’83
'77
'74
ALLAR UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUMANNI
IHIHEKLAHF
g B Laugavegj 170-174 Slmi 695500
Caterpillar. Cat og CH eru skrásett vörumerkl.
ffl CATERPILLAR
YFIR 40 ÁRA FORYSTA A ISLANDl