Morgunblaðið - 12.05.1989, Side 29

Morgunblaðið - 12.05.1989, Side 29
8£ 29 rm ía*£ ,21 auoAauraöi aiaAuauuaaoM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989 íí>,' Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Hjólreiðar Nú er kominn sá tími þegar reiðhjólið er tekið úr geymslunni Hér á eftir er getið nokkurra þeirra atriða, sem hjólreiðafólk þarf að hafa í huga af því tilefni. Auk þess búnaðar sem krafist er í lögum, svo sem hemils, ljós- kers, glitaugna, bjöllu og láss, er mælt með viðvörunarstöng og góðu endurskini á hvert reiðhjól. Ekki má skilja reiðhjól eftir á almannafæri, nema því sé læst og gengið frá því á þann hátt að ekki trufli eða valdi hættu fyrir umferð. Hjólreiðamenn skulu hjóla í einfaldri röð og virða regl- ur um umferð sem og aðrir veg- farendur. Óheimilt er að flytja farþega á reiðhjóli. Þó má vanur hjólreiða- maður, sem orðinn er 15 ára, flytja bam yngra en 7 ára á reið- hjóli, enda sé baminu ætlað sérs- takt sæti og þannig um búið að því stafi ekki hætta af hjólatein- unum. Nauðsynlegt er að vanda val slíkra sæta. Þrátt fyrir 7 ára lágmárksaldur á reiðhjólum, mælir lögregla ekki með því að yngri böm en 9 ára hjóli einsöm- ul á vegum þar sem vænta má umferðar vélknúinna ökutækja. Notkun reiðhjóla hefur marga kosti en því er ekki að neita að hjólreiðamaður er illa varinn ef óhapp hendir. Þó getur góður og léttur hjálmur komið að gagni auk þess að veita skjól. Hjólreiðamaður ætti ætíð að forðast flýti og gefa sér góðan tíma til að komast á milli staða. Æskilegt er að hjólreiðafólk ferðist um gangstéttir og göngustíga, þar sem slíku er til að dreifa, sérstaklega þar sem umferð vélknúinna ökutækja er þung. Þar ber þó að sjálfsögðu að sýna gangandi vegfarendum fyllstu tillitssemi. Ódýrasta kjötið í Kjötstöðmni Glæsibæ KJÖTSTÖÐIN staðgreiðir allar vörur og fær við það afslátt sem látinn er ganga áfram til viðskiptavinanna í vöruverðinu, sagði Hrafii Bach- mann starfsmaður Kjötstöðvarinnar í Glæsibæ þegar leitað var skýr- inga hans á niðursstöðum verðkönnunar Verðlagsstofiiunar á lgöti sem birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem fram kom að Kjötstöðin er i flestum tilvikum með lægsta verðið. Hrafii nefndi einnig sem skýringu að allt kjöt væri unnið í fyrirtækinu og sparaðist við það milliliðakostn- aður. í könnuninni kom fram að ódýr- asta kjötið var í flestum tilvikum í Kjötstöðinni, eða í sex tegundum af alls 14 sem kannaðar voru. Saman- lagt verð (lægsta verð) á einu kílói af öllum kjöttegundunum sem kann- aðar voru var í meirihluta verslan- anna á bilinu 9—10 þúsund krónur. Kjötið kostaði meira en 10 þúsund í fjórum verslunum, og var dýrast 10.352 krónur. Það kostaði minna en 9 þúsund í þremur verslunum. Lægsta samanlagða verðið reyndist vera í Kjötstöðinni, 8.410 krónur, næst lægst í Kjötmiðstöðinni í Garðabæ, 8.467 og þriðja lægsta í Grundarkjöri í Kópavogi, 8.789 krón- ur. Lægsta verð á einu kílói af kjöti af þessum tegundum var því liðlega 23% hærra en lægsta verð í ódýrustu búðinni. FiskverA á uppboðsmörkuAum n. maí FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 48,50 40,00 46,14 5,802 267.686 Þorskur(óst) 40,00 30,00 36,45 1,951 71.120 Þorskur(smár) 17,00 17,00 17,00 0,077 1.309 Ýsa 56,00 24,00 42,69 1,071 45.704 Ýsafósl.) 49,00 30,00 47,19 0,514 24.255 Karfi 40,00 22,00 29,83 7,952 237.206 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,708 10.613 Langa 15,00 15,00 15,00 0,083 1.246 Lúða 190,00 70,00 130,88 0,454 59.420 Koli 25,00 15,00 18,37 1,137 20.891 Keila 8,00 8,00 8,00 0,011 ■ 88 Skötuselur 70,00 70,00 70,00 0,003 210 Samtals 37,43 19,761 739.748 Selt var úr Má SH og bátum. i dag verða m.a. seld 15 tonn af þorski úr Stakkavík ÁR, 10 til 15 tonn af þorski, 1 tonn af ufsa, 1 tonn af löngu og óákveðið magn af ýsu og lúðu úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 46,00 39,00 43,52 1,711 74.471 Ýsa(ósl.) 57,00 37,00 46,76 4,347 203.259 Ýsa(smá) 55,00 25,00 28,59 10,290 295.206 Karfi 31,50 26,00 30,86 40,739 1.257.288 Ufsi 30,00 26,00 28,21 '1,507 42.510 Steinbítur 28,00 24,00 26,70 0,552 14.736 Hlýri 16,00 16,00 16,00 0,530 8.480 Blálanga 29,00 29,00 29,00 0,294 8.526 Lúða(stór) 240,00 60,00 183,12 0,543 99.435 Lúða(smá) 200,00 200,00 200,00 0,064 12.800 Grálúða 42,50 40,50 42,00 73,570 3.090.282 Keila 12,00 12,00 12,00 0,156 1.872 Samtals 38,04 134,303 5.108.865 Selt var úr Sigurey BA og bátum. í dag veröur selt úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 44,00 40,00 42,49 11,760 499.690 Þorskur(ósl.) 57,50 38,00 43,57 0,700 30.500 Þorskur(smár) 20,50 20,50 20,50 0,500 10.250 Ýsa 66,00 42,00 56,15 27,313 1.533.695 Ýsa(ósl.) 25,00 25,00 25,00 0,383 9.575 Karfi 23,00 15,00 21,59 2,116 45.687 Ufsi 21,00 20,00 20,86 0,523 10.910 Steinbítur 19,00 19,00 19,00 0,250 4.750 Steinbítur(ósL) 10,00 10,00 10,00 0,064 640 Hlýri+steinb. 15,00 15,00 15,00 0,250 3.750 Langa 25,00 22,00 23,12 0,187 4.324 Lúða 220,00 220,00 220,00 0,070 15.400 Skarkoli 29,00 29,00 29,00 0,350 10.150 Skarkoli(ósL) 28,00 25,00 26,83 0,493 13.225 Keila 12,00 12,00 12,00 0,900 10.800 Samtals 48,11 45,959 2.211.226 Selt var aðallega úr Eldeyjar-Boða GK, Hraunsvík GK, Má GK og Kára GK. 1 dag verður selt úr dagróðra- og snurvoöarbátum. Alþjóðadagnr hjúkr- unarfiræðinga: Heilsu- gæslaí skólum í tilefiii af alþjóðadegi hjúk- runarfræðinga mun Félag há- skólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga og Deild heilsugæsluþjúk- runarfræðinga innan Hjúk- runarfélags Islands gangast fyr- ir ráðstefnu í fundarsal Hjúk- runarfélags íslands að Suður- landsbraut 20 í dag, föstudag kl. 13, um heilsugæslu í skólum. Kjörorð alþjóðadags hjúkrunar- fræðinga í ár en Heilsugæsla í skólum, og hvetur Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga félög sín um allan heim til þess að vekja at- hygli hjúkrunarfræðinga og al- mennings á mikilvægi þess að stuðla að heilsugæslu í skólum. Jafnframt hvetur Alþjóðasamband- ið alla hjúkrunarfræðinga til að leggja sitt af mörkum og taka full- an þátt í þeim störfum er stuðla að auknu heilbrigði skólabama. Arkitektavika ARKITEKTAVIKA verður hald- in í tengslum við 50. afinælisár Arkitektafélagsins dagana 12.—21. maí og er hún í þremur liðum: 12.—21. maí yerður opið hús í Ásmundarsal. Syning á samtíma- verkum arkitekta. Opið klukkan 10—21 virka daga, klukkan 14—21 laugardaga og sunnudaga. 12.-13. maí og 19.—20. maí ráðgjöf og sýning í Kringlunni. Arkitektar veita almenningi ráðgjöf og sýnd líkön. 18. maí klukkan 17.30 í Café Hressó, opinn borgarafundur um íslenska byggingarlist. Fréttatilkynning leiðrétt VEGNA fréttatilkynningar um sýningu á nokkrum vatnslitamynd- um Ingveldar Gísladóttur í Gallerí Boekie í Amsterdam, sem birtist í Morgunblaðinu 18. apríl síðastlið- inn, hafði Ingveldur samband við blaðið og vildi leiðrétta hluta frétta- tilkynningarinnar: Ingveldur er fædd árið 1913, dóttir Gísla Jóns- sonar listmálara og Guðrúnar Þor- leifsdóttur fyrri konu hans. Mæðrablómið selt í Reykjavík Mæðradagurinn er sunnudag- urinn 14. maí. Mæðrablóm Mæðrastyrksnefiidar verður selt i Reykjavík, í dag föstudag 12. maí og á morgun laugardaginn 13. maí, til styrktar efiialitlum konum. Konur í Mæðrastyrksnefnd munu sjá um að selja litla Mæðra- blómið. Sjóntækjafræð- ingar þinga Alþjóðafyrirtækið Bausch & Lomb hefur ákveðið að halda sitt fimmta Norðurlandaþing um kontaktlinsur á Hótel Sögu um hvftasunnuhelgina. Von er á 140 starfandi sjón- tækjafræðingum hingað til lands til fyrirlestrarhalds þar á meðal er Brian Holden, frá Áytralíu, Ruth Comish einnig frá Ástralíu, Rob Rosenbrand frá Hollandi, ásamt fyrirlesurum frá Norðurlöndum. Fyrirtækið Bausch & Lomb hef- ur umboðsskrifstofur í 70 löndum og starfa hjá fyrirtækinu um 9.000 manns. Heildarvelta sfðasta árs var tæpur 1 milljarður bandarískra dollara segir í fréttatilkynningu. Fræðsluráð: Annar fiilltrúi minnihlutans mælti með Reyni Á fimdi fræðsluráðs Reykjavíkur á miðvikudag, þar sem samþykkt var að leggja til að Valgerður Selma Guðnadóttir yrði ráðin skólastjóri Öldusels- skóla, lagði Þorbjöm Brodda- son, annar fúlltrúi minnihlutans í fræðsluráði til, að mælt yrði með Reyni Daniel Gunnarssyni í stöðuna vegna þekkingar hans á starfi skólans, og þeirrar hylli sem hann hafi notið fyrir störf sín þar. Þá óskuðu kennarafull- trúar eftir að bókað yrði að þeir teldu eðlilegt að fræðsluráð mælti með Reyni Daníel Gunn- arssyni i stöðuna. í tillögu Þorbjöms Broddasonar segir meðal annars að þar sem tveir umsækjendanna hafa gegnt yfirkennarastörfum þá verði þeir að því leyti að teljast fremri þriðja umsækjandanum. Bæði hafi þau sannað ágæti sitt sem skólastjóm- endur svo ekki verður um villst, en Reynir Daníel hafi þó hinsvegar fram yfir Valgerði Selmu að hann þrautþekki Ölduselsskóla og njóti slíkrar hylli fyrir störf sín þar að fágætt megi telja. Því komi ekki til greina að hafna honum fyrst hann gefí kost á sér til starfans. í bókun kennarafulltrúanna seg- ir að Reynir Daníel hafi rejmst traustur stjómandi, hlotið með- mæli fyrrverandi skólastjóra, kenn- ara skólans og notið stuðnings að- standenda nemenda. Þá hafi hann notið trausts og vinsælda nemenda og starfsfólks í starfí sínu við skólann. Reynir Danfel þekki auk þess allar aðstæður í skólanum og geti þvf einbeitt sér þegar að því að koma skólastarfí þar í eðlilegt horf eins fljótt og verða mætti. V. Það var mikið sungið á 100 ára afinæli stúkunnar. Morgunblaðið Amór Stúkan Framför í Garði 100 ára: Stúkan rak samkomuhúsið og leiddi félagslífíð í áratugi Garði. STÚKAN Framför nr. 6 varð 100 ára fyrir nokkru. Hélt stúkan veg- legt afmælishóf í Samkomuhúsinu og mættu gestir víðs vegar að af landinu, s.s. Akranesi, Keflavík, Hafiiarfirði, Akureyri og Vest- mannaeyjum. Ýmislegt hefir gerst á þessum langa starfsferli stúkunnar, starfið hefir lengst af verið í blóma og víða verið komið við. Má þar t.d. nefna leiklistarstarfsemi sem stúkan stjómaði í áratugi, þá stóð stúkan að stofnun kóra og fyrir námskeiðum fyrir sjómenn þar sem þeir gátu tek- ið svokölluð pungapróf o.fl. Þá má geta þess að stúkan rak samkomuhú- sið í áraraðir eða allt til ársins 1971 að hreppurinn eignast húsið. Margar ræður voru haldnar í af- mælishófínu en öll starfandi félög í Garðinum áttu þar fulltrúa og komu þeir færandi hendi. Vakti ræða Hilm- ars Jónssonar stórtemplara úr Keflavík mesta athygli undirritaðs þar sem hann kallaði þingmenn og íjölmiðlamenn furðulegan söfnuð og í tilefni bjórdagsins 1. marz fékk Jón Óttar Ragnarsson viðumefnið æðsti- prestur og hinir fyrmefndu vom öfuguggar sem kölluðu 1. marz frels- isdaginn. Ef grannt var hlustað á ræðumenn kom það berlega fram að stúkan hefir í áranna rás markað spor í huga Garðmanna. Mátti hvað gleggst heyra þetta í máli Þorsteins Gíslasonar fiskimálastjóra sem enn- þá er félagi í bamastúkunni Sið- semd. í dag starfar bamastúkan Sið- semd af miklum krafti undir stjóm Sigrúnar Oddsdóttur. Þrír meðlimir stúkunnar vom heiði-aðir á afmælinu. Þau em Kjart- an Ásgeirsson, Marta Halldórsdóttir og Steinunn Sigurðardóttir. Steinunn var auk þess gerð að heiðursfélaga auk Þovalds Halldórssonar og Sigr- únar Oddsdóttur. Amór

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.