Morgunblaðið - 12.05.1989, Síða 41

Morgunblaðið - 12.05.1989, Síða 41
allt virtist svo bjart framundan. Hann var að ljúka því prófi sem átti hug hans allan, einkaflug- mannsprófinu. Stoltur tilkynnti hann okkur að hann hefði fengið inngöngu í þekktan flugskóla í Bandaríkjunum næstkomandi haust og flugmannsstaða á erlendri grund var það sem hann stefndi að. Markús var í eðli sínu rólegur og hjartahlýr, og hafði til að bera ótakmarkaða þolinmæði, enda komu þessir eiginleikar hans glöggt í ljós þegar þeir sem minna máttu sín áttu í hlut og aldrei mátti hann heyra á nokkurn mann hallað. Allt- af átti hann tíma í leik með systur- sonum sínum sem honum þótti svo vænt um. Markús var mikill tónlistarunn- andi og þær eru ótaldar stundirnar sem hann sat við orgelið sitt og spilaði sér og öðrum til mikillar gleði. Þessar stundir verða hvað ljúfastar í minningum okkar um elskulegan bróður og mág. Við kveðjum Markús með þung- bærum söknuði og biðjum Guð að láta hið eilífa ljós lýsa honum veg- inn. Þegar þú er sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (K. Gibran) Við biðjum Guð að styrkja for- eldra okkar og aðra ástvini á sorg- arstundu. Systur, mágar og systursynir. í dag kveðjum við Andrés Mark- ús Þorleifsson, sem með svo svip- legum hætti lét lífið þann 4. maí síðastliðinn. Markús, en það var hann kallað- ur meðal íjölskyldu og vina, kveður okkur langt fyrir aldur fram, hraustur maður í blóma lífsins. Það er sorglegt til þess að vita, en eigi að síður staðreynd, að slys hér á landi eru allt of tíð. Fórnirnar eru miklar og margar fjölskyldur bíða þess vart bætur að sjá á eftir ástvinum sínum eins og raun ber vitni. Við vitum þó að með tímanum gróa sárin. Á sorgarstundu sem þessari er erfitt að láta hugann reika um í minningu bernskuáranna. Þó koma upp nokkur atriði í hugann, sem minningin ein mun geyma. Ætíð var mikið um að vera hjá Markúsi sem litlum dreng og segir það sína sögu að vinahópurinn var stór. í leik gat sá hópur verið hávær og var það ekki síst frá hinum full- komnu leiktækjum. Þegar leikir stóðu sem hæst, átti Markús það til að fara afsíðis og dunda sér við lestur bóka. Sýnir þetta að Markús var rólegur að eðlisfari en var ávallt glaður í góðra vina hópi. Markús lauk skólaskyldu, en eins og oft vill verða hjá ungum drengj- um er erfitt að velja sér framtíð- armenntun. Hugur hans stefndi fljótlega að bifvélavirkjun og hóf hann nám í henni. Smám saman kviknaði áhugi hans á flugi. Hóf hann flugnám og lauk einkaflug- mannsprófi. Samhliða náminu lagði hann hart að sér við vinnu því hug- ur hans stefndi til frekara náms erlendis. Hafði hann fengið þar inn- göngu í skóla til a_ð ljúka fram- haldsnámi í flugi. Átti þessi tími að hefjast á hausti komanda. Markús var einkasonur hjónanna MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989 41 Gunnhildar Eiríksdóttur og Þorleifs Markússonar og er söknuður þeirra mikill. Þau standa þó ekki ein, þar sem dæturnar og fjölskyldur þeirra eru þeim við hlið. Við biðjum Guð að styrkja þau öll í þessari miklu sorg. Guðný og Björgvin Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V.Briem). Það er vissulega margs að minn- ast þegar svona sorgaratburður gerist, að ungur maður bregður sér bæjaríeið og kemur aldrei aftur. Að kvöldi uppstigningardags breiddist sorgarblæja yfir hús vina okkar og nágranna þegar sonur- þeirra lést í slysi og langar okkur að minnast hans með fáeinum kveðjuorðum. Markús var sonur hjónanna Gunnhildar Eiríksdóttur og Þorleifs Markússonar. Hann fæddist 14. apríl 1966 og var því aðeins 23 ára þegar hann lést. En lífshlaupið þarf ekki að vera langt til að láta eftir sig minningar. Markús var einstak- lega vel gerður piltur sem alltaf átti til hlýlegt bros og ljúft viðmót, sama hver í hlut átti. Hann átti sér stóra drauma sem bundnir voru við hans aðaláhugamál, flugið. Hann var langt kominn með flugtíma þá sem þurfti til að taka einkaflug- mannspróf og síðan ætlaði hann að freista gæfunnar úti í hinum stóra heimi og fullnema sig í faginu. En draumarnir hans Markúsar náðu ekki að rætast hér á jörð; en von- andi fá þeir að rætast handan móð- unnar miklu. Við þökkum Markúsi samfylgd- ina og eigum alltaf eftir að minn- ast hans með hlýhug. Við minn- umst hans sem lítils 7 ára drengs, sem hann var þegar við kynntumst honum. Lítill kotroskinn drengur með bjart bros, boðinn og búinn til að gera öllum gott og alla sína góðu eiginleika varðveitti hann til hinstu stundar. Elsku Gunnhildur, Þorleifur og dætur. Orð fá ekki lýst hversu mjög við finnum til með ykkur og við vonum að Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu raun. En minningin lifir, minningin um yndislegan son og bróður sem gerði líf ykkar auð- ugra meðan hans naut við og lang- ar okkar að ljúka þessum kveðju- orðum með versum sem við tileink- um ykkur foreldrum hans. Sá himinn var bjartur hreinn og skær, sem hló móti augum þínum. Þú sigraðir harminn, sonur kær, varst sumar á vegi mínum, þar æskan þín fríða ung og mær þig auðgaði gæðum sínum. En blómgunarárin urðu fá og æskan þín fljót að líða, en líf þitt var geisli Guði frá það gefur mér þrek að stríða. Ég veit að þú áttir honum hjá þíns háleita þroska að biða. 0 blessaðu, Drottinn, blómin mín, sem búa mér enn við hjarta fyrst einu þú lyftir upp til þín í eilífðarsali bjarta og leyf þú mér svo þá lífið dvín í ljósinu þar að skarta. (Ljóðmæli. Guðrún Magnúsdóttir.) Nágrannarnir i Þrastarlundi 1. Það var undarlegt til þess að hugsa að Markús vinur okkar væri allur. Með nokkrum orðum viljum við minnast hans með þakklæti og virðingu. Margs ber að minnast, margt ber að þakka. Markús var sonur hjónanna Gunnhildar Ágústu Eiríksdóttur og Þorleifs1 Markússonar. Hann var mjög glaðlyndur og ávallt vinur vina sinna, ætíð reiðubúinn til að aðstoða og alltaf sat þolinmæðin í fyrirrúmi. Þær eru svo margar hinar ógleymanlegu minningar sem við eigum um Markús. Elsku Gunn- hildur, Þorleifur, Mæja, Guðrún og okkar kæra vinkona Soffía, við biðj- um Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Á kveðjustund langar okkur að þakka Markúsi fyrir allar góðu'samverustundirnar sem hann veitti okkur og alltaf mun hann lifa í hugum okkar. Blessuð sé minning hans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Ruth Örnólfedóttir, Margrét Sif Hákonardóttir, Herdís Tómasdóttir. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að Markús félagi okkar sé látinn. Okkar fyrstu . kynni af Markúsi urðu síðasta vetur á bók- legu einkaflugmannsnámskeiði. Hann sýndi fluginu geysimikinn áhuga og var sérlega gaman að ræða við hann um flugmál sem og önnur mál því drengurinn iðaði af lífi. Strax í upphafi námskeiðsins kom í ljós að í Markúsi bjó mikið „sameiningarafT. Hann átti stóran þátt í því að gera þessa 25 einstakl- inga, sem saman voru komnir á námskeiðinu, að einum hóp og kom þar ýmislegt til. Hann var ófeiminn og kíminn og mjög hjálpfús. Vél- fræðin var fag sem vafðist hvað mest fyrir nokkrum okkar og þreyttist Markús aldrei á að veita okkur aðstoð, en hann þekkti mikið til í þeim fræðum. Námskeiðinu lauk að sjálfsögðu með prófum. Að þeim loknum fór fram vel heppnað skemmtikvöld sem Markús, formaður skemmti- nefndarinnar, hafði undirbúið og skipulagt samviskusamlega. Þetta kvöld var mjög ánægjulegt og efldi vinskap okkar félaganna mikið. Eftir svo ánægjulega viðkynningu er því erfítt að lýsa þeim söknuði er ríkti meðal okkar félaganna er við fregnuðum andlát Markúsar, þann sama dag og við áttum að veita prófskírteinum okkar viðtöku. Aðstandendum Markúsar vottum við okkar dýpstu samúð. Félagar úr fluginu. MÆÐRADAGIRINN ER IM HEIGINA! RlomalramleiMur Ath.: Blómaverslanir m lokaóar hvítasunnudag VIÐ LOGUM OKKUR AÐ BREYTTUM AÐSTÆÐUM Þann 12. maí 1989 verður útíbú Verslunarbankans í Umferðarmiðstöðinni lagt niður. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að húsnæði og aðstaða viðskiptavina og starfsfólks í útibúinu hefur verið ófullnægjandi um nokkurn tíma og að breytingar á umferðarmannvirkjum í nágrenni Umferðarmiðstöðvarinnar virðast hafa í för með sér einangrun útibúsins. Fimm afgreiðsíustaðir í Reykjavík til að velja um. Verslunarbankinn er staðsettur á fimm stöðum í Reykjavík, auk útibúa í Keflavík og Mosfellsbæ. Starfsfólk bankans mun aðstoða við val á því útibúi sem hentar best, en 12. maí munu öll önnur viðskipti flytjast sjálfkrafa í útibú bankans í Bankastræti 5. Við vonum að þessi hagræðing í rekstri bankans valdi viðskipta- vinum ekki óþægindum og munum, hér eftir sem hingað til, kappkosta að veita víðtæka og persónulega þjónustu á öllum sviðum bankaviðskipta. V/€RSIUNRRÐRNKINN -(MMMWlVHeðfiCl! Bankastræti 5, sími 27200 Laugavegi 172, sími 20120 Grensásvegi 13, sími 84466 Þarabakka 3, sími 74600 Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, sími 687200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.