Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989
23
Bandarískar ^arskiptastöðvar á Grænlandi:
Grænlandsstj óm varar
við lokun stöðvanna
Kaupmannahöfn. Frá Nils J. Bruun, frettaritara Morgimblaðsms.
VERÐI Qarskiptastöðvum Bandaríkjamanna á Grænlandi lokað óska
Grænlendingar ekki lengur eftir veru bandaríska hersins á herflugvell-
inum og ratsjárstöðinni í Thuie. Utanríkis- og öryggismálanefhd græn-
lenska landsþingsins skýrði bandarískum stjómvöldum frá þessu er
hún var í heimsókn í Bandaríkjunum nýverið.
Orðrómur hefur verið á kreiki um
að bandaríski herinn ráðgeri að
draga úr starfsemi sinni í herstöðinni
í Syðri-Straumsfirði og flugvellinum
í Kulusuk auk þess að loka nokkrum
fjarskiptastöðvum, sem Grænlend-
ingar nota einnig.
Lars Emil Johansen, formaður
nefndarinnar, sagði í samtali við
grænlenska útvarpið að það myndi
kosta Grænlendinga miklar fjárhæðir
yrði þessum stöðvum lokað. „Þess
vegna höfum við skýrt bandarískum
stjórnvöldum frá því að ef af lokun-
inni yrði mundum við ekki óska eftir
bandarískum herflugvelli á græn-
lensku landsvæði," sagði Johansen.
Hann bætti þó við að honum myndi
þykja miður ef svo færi. Nefndin
hefði tjáð bandarískum stjómvöldum
að Grænlendingar væru einna helst
fylgjandi veru bandaríska hersins í
landinu vegna þess að þeir nytu góðs
af fjarskiptastöðvunum.
Ungverskir kommúnistar:
Aftaka Imre Nagys
nú sögð réttarmorð
Búdapest. Reuter.
MIÐSTJÓRN ungverska kommúnistaflokksins lýsti yfir því í gær að
aftaka Imre Nagys, forsætisráðherra í blóðugri uppreisn landsmanna
gegn Sovétmönnum 1956, hefði verið réttarmorð. Opinber nefiid hefúr
að undanfornu kannað heimildir um réttarhöldin. Jarðneskar leifar
Nagys og Qögurra helstu aðstoðarmanna hans voru Qarlægðar úr
ómerktri gröf í mars síðastliðnum og verða jarðsettar með viðhöfh 16.
júní.
Búist er við því að gífuriegur fjöldi
fólks verði við jarðsetninguna og
hafa bandarískir Ungveijar, sem
flúðu land í og eftir uppreisnina, leigt
þijár breiðþotur í þessu skyni.
Talsmaður ungverskra stjórn-
valda, Laszlo Major, sagði þau vænta
þess að dagurinn markaði þjóðar-
sátt. Æ háværari raddir innan
flokksins hafa síðustu vikumar hyllt
Nagy sem umbótasinnaðan kommún-
ista og jafnvel „píslarvott." Major
sagði að flokkurinn myndi gefa út
sérstaka yfirlýsingu um Nagy fyrir
útförina í júní. En eitt hefðu mið-
stjómarmenii verið einhuga um:
„Það ber aldrei að taka menn af lífi
fyrir pólitískar sakir.“
Veró aóeins kr.
14.900
FJALLAHJÓLIN
SEM SLEGIÐ HAFA í GEGN
ARMUIA 16 - SIMI: 686204 & 686337
Kannt þú nýja símanúmerid? k/3 67
Steindór Sendibflar
Óperutónleikar
i til styrktar
✓
Óperusöngvaramir Krístján Jóhannsson tenór og Natalia Rom sópran
syngja þekktar óperuaríur við undirleik Sinfóníuhljómsveitar íslands
í Háskólabíói laugardaginn 3. júní kl. 13:30.
Stjómandi Cesare Alfieri.
Á efnisskránni eru ítalskar aríur úr þessum óperum:
Vald örlaganna, Nabncco, La Traviata og
11 Trovatore eftir Verdi og Tosca eftir Puccini.
Allur aðgangseyrir rennur til rannsókna á
krabbameini. Aðgöngumiðar eru seldir í Gimli við
Lækjargötu, sími 622255 og lijá Krabbameinsfélagi íslands,
Skógarhlíð 8, sími 621414.
Krabbameinsfélagið