Morgunblaðið - 31.05.1989, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31, MAÍ 1989
49
Þessir hringdu .. .
Mannlífið í Miðbænum
J.S. hringdi:
„Oft er talað um að borgir er-
lendis séu hreinlegri en Reykjavík
en ég get ekki tekið undir það.
Ég hef ferðast víða á undanförn-
um árum og í flestum borgum
t.d. á Norðurlöndum er meira
drasl á götum en almennt gerist
í Reykjavík. Eins finnst mér
skemmtilegri andi yfir mannlífinu
í Miðbænum okkar heldur en ger-
ist í öðrum borgum. Ef til vill
þurfum við íslendingar að dvelja
erlendis til að læra að meta landið
okkar að verð!eikum.“
Bjórinn aðeins til bölvunar
Súsanna hringdi:
„Það var mikið glappaskot að
leyfa innflutning á bjór. Bjórinn
gerir menn að algerum sjúkling-
um, það þekki ég frá Danmörku
þar sem ég bjó í mörg ár. Allt
áfengi veldur böli og er ég ekki
að mæla því bót. En bjórinn er
lúmskur og menn ánetjast honum
án þess að gera sér það ljóst. Það
ætti að banna bjórinn á ný áður
en hann gerir meiri skaða.“
Handklæði
Handklæði tapaðist á sund-
námskeiði í Vesturbæjarlauginni
8. maí. Hanklæðið er ómerkt,
hvítt með mynd af hundi og ketti
í svörtum og brúnum litum. Eru
foreldrar beðnir að athuga hvort
einhver telpa á sundnámskeiðinu
hafi hugsanlega tekið það í mis-
gripum og hringja þá í síma
622142.
Of langt gengið.
Guðmundur Kristvinsson -
hringdi:
„Ég tel að Stöð 2 reyni að etja
saman foreldrum og börnum með
því að hefja sýningu teiknimynda
á sama tíma og Ríkissjónvarpið
er með fréttatíma. Börnin vilja
auðvitað sjá teinkimyndirnar en
þeir fullorðnu fréttirnar. Það er
allt í lagi þó sjónvarpsstöðvarnar
keppi um áhorfendur en það er
of langt gengið að reyna að etja
saman börnum og fullorðnum á
þennan hátt. Ef Stöð 2 heldur
uppteknum hætti borga ég ekki
aftur af myndlyklinum."
Armband
Silfurlitað platínuarmband tap-
aðist 19. maí við Skúlagötu.
Finnandi vinnsamlegast hringi í
síma 699600 að deginum eða í
síma 625537 á kvöldin.
Vantar hvítan kettling
Vill einhver gefa hvítan kettl-
ing, læðu? Ef svo er, vinsamleg-
ast hringið í Lindu í síma 42632.
Hvít læða
Hvít læða á miðjum aldri fór
að heiman frá sér í Skólastræti
fyrir nokkrum vikum. Hún er
miseygð og dregur nafn af því
og heitir Misa. Vinsamlegast
hringið í síma 17646 ef hún hefur
einhvers staðar komið fram. Á
sama stað eru vel þegnar upplýs-
ingar um hálfs árs gamla læðu
sem er brún- og rauðflekkótt en
hvít á bringu og heldur sig ef til
vill á Seltjarnarnesi.
Lýst eftir reiðhjóli
Nýlegu STAR NORD reiðhjóli,
bláu að lit, var stolið sl. laugardag
fyrir utan KR-heimilið við Frosta-
skjól. Þeir, sem gætu gefið upp-
lýsingar um atburðinn, eru vin-
samlega beðnir að hringja í síma
16937.
Góðir útvarpsþættir Rásar 1
Til Velvakanda.
Það ber að þakka, sem vel er
gert.
Vel mættum við hlustendur
Ríkisútvarpsins, Rásar 1, oftar sýna
þakklæti okkar fyrir fjölmarga vel
gerða og fróðlega þætti, sem of
langt yrði upp að telja. Verða því
örfáir nefndir.
Sérstakar þakkir til Halldóru
Björnsdóttur, stjórnanda morgun-
leikfiminnar. Auðheyrt er, að nú
höfum við kennara, sem skilur
hlutverk sitt. Leiðsögn hennar er
skýr og skipuleg, þannig að allir
geta skilið, að tónlistina velur hún
þannig að hún ein getur verið
heilsubót út af fyrir sig.
Kærar þakkir Halldóra Björns-
dóttir.
Þá vil ég nefna þátt' Sigrúnar
Björnsdóttur, „Dagmál". Margvís-
legan fróðleik hefur hún flutt okkur
og vil ég þá sérstaklega nefna sam-
starf hennar „Matráðið" svonefnda.
En hlutverk Matráðsins er m.a. að
safna saman upplýsingum um þjóð-
legar hefðir í matargerð formæðra
okkar. Því segi ég formæðra, að
varla mun vera um að ræða mjög
gamlar hefðir í matargerð íslenskra
karla.
Þessi heimildasöfnun er svo
sannarlega tímabær. Því að trúlega
er kynslóð, sem nú er komin á efri
ár, sú síðasta sem er til frásagnar
um það hvernig íslensk þjóð hélt í
sér lífinu á liðnum öldum. Þess
vegna getur þetta framtak Mat-
ráðsins orðið gott innlegg í þjóðlífs-
lýsingu og ekki þá ómerkustu. Á
þessu sviði sem svo mörgum öðrum,
gegnir Ríkisútvarpið mikilvægu
hlutverki.
Og svo eru það þættirnir um
íslenskt mál og daglegt mál, sem
vel mættu vera fleiri, og þá einkum
þættir sem ná eyrum barnanna. Því
ekki mun vanþörf á andófi gegn
sívaxandi kæruleysi í meðferð
íslensks máls í fjölmiðlum.
Að lokum — þökk fyrir þættina
hans Hermanns Ragnars Stefáns-
sonar. Q_g
Hvaðan eru
upplýsing-
arnar?
Til Velvakanda.
Hvaðan hefur Ragnar úr Seli þær
upplýsingar að 63 prósent þjóðarinn-
ar játi ekki kristna trú? Hvaðan hef-
ur hann þær upplýsingar að það séu
aðeins 14 prósent þjóðarinnar sem
segjast trúa því að maðurinn rísi upp
til samfélags við Guð eftir dauðann?
Það hlýtur eitthvað að vera brenglað
hjá íslendingum ef þessar tölur eru
réttar í ljósi þess að þjóðkirkjan
hefur 95 prósent þjóðarinnar innan
sinna veggja.
Snorri Óskarsson
Aðalfundur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
verður haldinn dagana 5. og 6. júní 1989
í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
HEFUR ÞU EKKI
EITTHVAÐ AD SELJA
í KOLAPORTINU?
í Kolaportinu á laugardögum er tilvaliö tækifæri
fyrir fjölskyldur, saumaklúbba, vinnufélaga
og aðra hópa að sameinast um sölubása og selja
gamla dótið úr kompunni, eða nánast allt
milli himins og jarðar (veitingar þó undanskildar
nema með sérstöku leyfi).
Það er auðvelt að vera með.
Hringið í síma 621170 (á kvöldin í síma 687063)
eða komið við á skrifstofunni, að Laugavegi 66,
virka daga kl. 16-18.
^—, Og nú má panta sölubása símleiðis_
E] með Euro- eða Visakortsgreiðslu. 1 ^
Við tökum nú við pöntunum fyrir næstu níu laugardaga
(út júlímánuð) - þar með talinn 17. júní!
Mundu að „eins manns drasl er oft annars manns
fjársjóður“ og þú ert í góðum og hressum hópi
seljenda í Kolaportinu.
Sjáumst í Kolaportinu! í
KOLA PORTHD 1
MtmKa-ÐStOfccr